Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1991, Qupperneq 3
FÖáTÍJDÁGUR 8.' FEBRUAR1 ÍÓ91.
3'
Fréttir
Kostnaðaráætlanir virkjana á fslandi:
Alltaf langt undir raun-
verulegum kostnaði
segir Ragnar Amason prófessor
„Ég hef borið saman kostnaðar-
áætlanir og raunverulegan kostnað
við gerð síðustu virkjana hér á
landi. Þá kemur í ljós að kostnaður
hefur alltaf farið langt fram úr
áætlun. Og í flestum tilfellum 10 til
20 prósent. Versta dæmið er svo
nýjasta virkjunin, Blönduvirkjun,
sem er komin einhvers staðar á
bilinu 50 til 80 prósent fram úr
kostnaðaráætlun,“ sagði Ragnar
Árnason prófessor í samtah við
DV.
Hann sagði aö þvi kæmi það sér
ekki á óvart þótt kostnaðaráætlun
virkjunar vegna álversins á Keilis-
nesi væri byijuð að bila.
„Búrfellsvirkjun kemur einna
best út. Kostnaður við hana fór
ekki mjög mikið fram úr áætlun.
Sigölduvirkjun kemur aftur á móti
afar illa út. Þar fór saman aö kostn-
aöur fór langt fram úr áætlun og
virkjunin framleiddi einnig minna
rafmagn en áætlað var. Rafmagnið
frá henni er á 25 mill eða meira.
Tæknileg vandamál, sem komu
upp varðandi lónið við virkjunina,
áttu stóran þátt í þessu.
Það voru hins vegar engin tækni-
leg vandamál með Hrauneyjafoss-
virkjun. Samt fór kostnaðurinn við
byggingu hennar um 15 prósent
fram úr áætlun. Nú, alhr þekkja
Kröfluævintýrið og svo kemur
þetta hrikalega dæmi með Blöndu-
virkjun. Stóran þátt í því hvaö
kostnaðurinn hefur farið úr bönd-
um við hana er hvað framkvæmd-
irnar hafa dregist. Þar koma inn í,
meðal annars, áfahnir vextir á
byggingartímanum, sem hófst 1986.
Þá hafa ýmsar framkvæmdir
reynst dýrari en gert var ráð fyrir
og einnig hafa bætur til bænda ver-
ið miklu meiri en reiknað var
með,“ sagði Ragnar.
Ástæðunar fyrir þessu telur
Ragnar að séu margar. Eina taldi
hann vera þá að þeir sem gera
kostnaöaráætlanimar miða ahtaf
við hklegustu útkomuna, sem aftur
væri alls ekki líklegasta meðalút-
koman. Þetta væri að vísu afar
flókið stærðfræðidæmi en við hk-
ingadreifingu kostnaðar eru mun
meiri hkur á að kostnaður fari
fram úr áætlun en að hann verði
lægri. Síðan væri það staðreynd að
Landsvirkjunarmenn vilja virkja
sem mest. Því væri freistandi fyrir
þá aö vera frekar í lægri kantinum
en þeim hærri með áætlanir.
-S.dór
Alþingi:
Languróska-
listihjá
ríkisstjórninni
Samkvæmt starfsáætlun Alþingis
er gert ráð fyrir því að þingsht verði
15. mars næstkomandi. Ráöherrar
ríkisstjórnarinnar hafa hver um sig
lagt fram hsta yfir þau mál sem þeir
telja æskilegt að afgreidd verði fyrir
þinglok. Listinn er langur eða rúm-
Íega 80 mál. Svona hsta leggja ríkis-
stjórnir vanalega fram bæði fyrir
jólaleyfl og þinglok hverju sinni.
Hann gengur undir nafninu óska-
hsti.
„Þaö er auðvitað borin von að öh
þessi mál komist í gegnum þingið á
þeim skamma tíma sem eftir er af
þinginu. Þess vegna verða ráðherrar
að velja einhver ákveðin mál, hver
af sínum lista, sem þeir gera að for-
gangsmálum. Nú og svo er vanalega
reynt að ná samkomulagi við stjóm-
arandstöðuna um að hleypa ákveön-
um málum í gegnum þingið," sagði
Guðrún Helgadóttir, forseti samein-
aðs þings, í samtali við DV.
Meðal stórra mála, sem DV veit að
ráðherrar leggja höfuöáherslu á að
verði afgreidd fyrir þinglok, er frum-
varpið um fjárfestingu útlendinga
hér á landi, upplýsingaskyldu stjórn-
valda og grunnskólafrumvarpið.
-S.dór
Lögregla og slökkvUið:
Tilkyniting um
neyðarsímaef
bilanirverða
Bilanir í símakerfinu geta vald-
iö sambandsleysi við neyðarsíma
lögreglu, 11166, og neyðarsíma
slökkviliðs, 11100. Ekki virðist
hægt að tryggja að þessi númer
verði ekki fyrir trufiunum ef bh-
anir veröa í símakerfinu.
Lögreglan í Reykjavik og
Slökkvihð Reykjavíkur hafa þvi
ákveðið aö kynna ný símanúmer
sem má nota ef ekki er svarað í
hinum venjulegu neyðarnumer-
um viðkomandi aðila:
Ef ekkí næst samband við lög-
reglu í 11166 skal hringja x 671166.
Náist ekki samband við slökkvi-
hð eða sjúkrabifreið í síma 11100
á að hringja í 27287. Á það er
minnt aö þessi símanúmer eru
neyöarsímanúmer og notist ein-
ungis sem slík.
Fréttatllkynning.
• •
ÞAÐ BOGGLAST
EKKERT FYRIR OKKUR
FLATEYRI
þri.. fim., fös.. sun.
S °J00UR SIGLUFJOROUB
alla daga nema laugard.
BLÖNDUÓS
þri *. fös., sun.
BlLDUDALUR
alla daga
stykkishólmur\
miö., fös.*, sun.* \
RIF
miö.. fim.. fös.. sun *
VESTMANNAEYJAR
alla daga
ATH. Stjarnan *, merkir millilendingu.
Stórir eða litlir bögglar, ferkanta&ir,
sívalir eða kringlóttir - ekkert mál!
Við flytjum allt fyrir þig, hvort sem
það er hundur eða köttur sem þarf að
komast í sveitina eða til læknis,
varahluti í bílinn, bátinn, sjónvarpið
og hvaðeina annað sem þú þarft að
koma til skila eða fá til þín. Við
hringjum svo í þig og látum þig vita
þegar böggullinn kemur.
sÉfiÞ'
ARNARFLUG - FLUGTAK
V REYKJAVÍKURFLUGVELLI, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 91-29577