Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1991, Qupperneq 7
jrt'i i'nmw c
FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1991.
7
“ífífSi
Fréttir
Loðnuveiðibaimið:
Það er verið að láta okkur
blæða út hægt og rólega
- segirBjamiBjamason,skipstjóriáSúlunniEA-300
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þaö er einfaldlega verið aö láta
okkur blæða út hægt og rólega, ég
sé ekki betur. Viö erum búnir að
sitja og bíöa síðan 4. desember og
fáum ekkert að vita,“ segir Bjami
Bjarnason, skipstjóri á loðnuskip-
inu Súlunni EA-300 um það
ófremdarástand sem ríkir meðal
loðnuveiðisjómanna.
„Ég er búinn að tala við marga
menn og heyra í mörgum togara-
mönnum sem segjast hafa orðið
varir við loðnu um allan sjó. Þeir
hafa orðið varir við loðnu allan
janúarmánuð út af Langanesi svo
dæmi sé nefnt. Hún er að vísu
dreifð þar en það er eins og það
komist ekki inn í skelina á þessum
mönnum að þessi kvikindi geti
dreift sér.
Það er alveg örugglega nóg til af
loðnu til þess að hægt sé að taka
eitthvað af henni og létta þessari
óvissu af flotanum, og það átti auð-
viðað að vera búið að því fyrir
löngu. Þessir spekingar ganga
hinsvegar algjörlega fyrir getgát-
um en orð þeirra eru lög í augum
ráðherra."
Hafa loðnusjómenn yfirleitt mikla
vantrú á þvi sem fiskifræðingamir
segja um ástand stofnsins?
„Ég leyfi mér aö fullyrða að
a.m.k. 90% skipstjórnarmanna sem
hafa unnið við loðnuveiðar hafa
vantrú á þessum mönnum. Ég hefði
gaman af að sjá niðurstöðu könn-
unar á því meðal skipstjómar-
manna hvort hægt er að mæla
loðnustofninn með þeim tækjum
sem fiskifræöingarnir hafa yfir að
ráða. Þegar stór meirihluti þeirra
sem hafa fengist við þessar veiðar
lýsir frati á mæhngar fiskifræðing-
anna þá hlýtur eitthvað að vera að
þeim mæhngum, annað getur ekki
verið.
Það er gjörsamlega útilokað mál
að þessir fræðingar séu þeir einu
sem hafa eitthvert vit á þessum
málum, þótt þeir hafi setið á há-
skólabekkjum í Edinborg eða ann-
arstaðar. Éina vitið í máhnu í dag
er að leyfa einhverjar veiöar þá
daga sem eftir eru af þessari vertíð
í stað þess að halda mönnum í þess-
ari spennitreyju. Það hefur fundist
loðna um ahan sjó og það er alveg
ómögulegt að það sé algjörlega á
valdi eins eða tveggja manna hvort
þessi floti lifir eða deyr. Þetta geng-
ur ahs ekki og ég held að þessir
menn viti ekkert hvað þeir eru að
gera. Það skal engan undra að það
sé orðið þungt í okkur loönusjó-
mönnum. Það er ekkert hlustað á
okkur, en öll speki ráðherra kemur
frá einhverjum mönnum sem sitja
á 2. hæð í brúnni á Bjama Sæ-
mundssyni eða Árna Friðriks-
syni,“ sagði Bjarni Bjamason.
Bruninn 1 Krossanesverksmiðjunni:
Brunamálastof nun átti líka
að vera með eftirlit þarna
- segir slökkviliðsstjórmn á Akureyri um gagnrýni Brunamálastofnunar
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyxi:
„Ég er í rauninni ekkert óhress
með gagnrýni brunamálastjóra. Þaö
er rétt að eftirht af okkar hálfu með
verksmiðjunni var of lítið, það er
staðreynd sem ég ætla ekki að neita.
Hinsvegar átti Branamálastofnun
hka að vera með eftirlit þarna en
mætti aldrei á staöinn, það gerðum
við þó. Brunamálastofnun hafði
sömu möguleika og við til að gera
eitthvað en geröi ekkert, það verður
að horfa á máhð í heild,“ segir Tóm-
as Búi Böðvarsson, slökkvihðsstjóri
á Akureyri um gagnrýni Brunamála-
stofnunar varðandi brunann er varö
í Krossanesverksmiðjunni á Akur-
eyri fyrir rúmlega ári síðan.
í skýrslu Brunamálastofnunar seg-
ir m.a. að eftirliti slökkvhiðsstjóra
og eldvamareftirlits hafi verið mjög
ábótavant en fullt eftirlit heföi þurft
með verksmiðjunni þar sem hún var
í fullum rekstri jafnframt þeim fram-
kvæmdum sem þar fóru fram.
„Það er rétt að eftirlitið með verk-
smiðjunni var ekki mikið. Hinsvegar
minnir þetta mig á aö lögreglan á að
hafa eftirht með því að menn aki á
löglegum hraða, en ef menn gera það
ekki og valda tjóni þá er það ekki
lögreglan sem er sökuð um tjónið
heldur sá sem því olli. Það er auðvit-
að sá sem veldur sem er ábyrgur að
mínu mati. Hitt er rétt að við vorum
ekki nógu harðir í þessu máh, ég
ætia ekki að þvo hendur mínar af
því.“
Kom einhvern tíma til greina að loka
verksmiðjunni?
„Nei, ekki af minni hálfu. Þegar
hús er byggt er farið að kynda það
löngu áður en það er tekið í notkun,
og það var kyndiklefinn sem var or-
söltin að þessu öllu saman. Þótt
. reksturinn hefði verið stöðvaður
hefði kyndingin ekki verið tekin af
húsinu. Það sem við vorum óánægð-
ir með var að öryggisatriðunum var
ahtaf slegið á frest en það hefði þurft
að leggja áherslu á þau atriði vegna
þess að verksmiðjan var í rekstri.
En það er því miður alltof algengt
að svona sé staðið að verki, og örygg-
isatriðin komi síðast.“
Verður þetta th þess að þið farið að
taka þessi mál fastari tökum?
„Það verður engin stökkbreyting,
við reynum að vinna þetta eins og
við getum við erfiðar aðstæður og
úrelt lög. Ég tel mig ekki hafa heim-
hd til að stöðva rekstur fyrirtækja,
ég hef heimhd að fengnu samþykki
Brunamálastofnunar til að beita dag-
sektum en þaö tekur mánaðartíma
að koma slíku í gegn og ég hef heim-
ild th að stoppa rekstur ef líf og hm-
ir fólks eru í hættu. Brunamálastjóri
hefur sömu völd í þessum efnum og
ég, og hann ætti sjálfur að lesa lögin
ogkynnasérþau. Bmnamálastofnun
á að hafa eftirlit með meiriháttar at-
vinnufyrirtækjum en það gerir stofn-
unin ekki. Ég ætla ekki að þvo minar
hendur af þessu máh en þaö er ahtaf
spurningin hver á að kasta fyrsta
steininum," sagði Tómas Búi Böð-
varsson slökkvihðsstjóri.
Frá brunanum í Krossanesverksmiðjunni á Akureyri um áramótin 1989-
1990. DV-mynd, gk.
Akranes:
Reykt í sjúkrahúskjallaranum
Siguxður Sveixissan, DV, Akranesú
Reykingar starfsmanna Sjúkra-
húss Akraness verða ekki bannaðar.
Reykingafólki veröur hins vegar gert
skylt að reykja í sérstöku herbergi.
Þetta er niðurstaða skoðanakönnun-
ar sem framkvæmd var á meðal
starfsfólks sjúkrahússins fyrir stuttu
um hvort leyfa ætti reykingar eða
ekki.
Sigríður Lister hjúkranarforstjóri
sagði í samtali við DV að í kjölfar
niðurstöðunnar kæmi helst til greina
að úthluta reykingafólki aðstöðu í
kjallara hússins. Yrði þá útbúin vist-
leg aðstaða með góðri loftræstingu.
Sigríður sagði takmarkið aö koma
þessari aðstöðu upp fyrir svokallað-
an árlegan reyklausan dag sem verð-
ur í byrjun apríl.
Hvað varðaði reykingar sjúklinga
sagði Sigríður það ótengt mál, þaö
yrði að skoða sérstaklega og án sam-
hengis við niðurstöðu könnunarinn-
ar.
Hann er fallegur, rauðmaginn sem Jón Bjarnason, eigandi Smára RE 14,
9,5 tonna trillu, fékk i þorskanet sín í Faxaflóa nú fyrir skömmu. DV-mynd S
Akureyri:
Málþing um
menningu
Gylfi Kxistjánsson, DV, Akureyxi:
Menningarmálanefnd Akureyrar
gengst fyrir „málþingi um menn-
ingu“ í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju nk. laugardag og er til-
efnið margþætt eins og segir í fund-
arboði.
Þar verður m.a. rætt um hvar
staðsetja skuli ýmiss konar aðstöðu
sem ennþá vantar í bænum fyrir
hinar ýmsu hstgreinar. Fyrir liggja
teikningar að viðbyggingu við
Amtsbókasafnið þar sem m.a. er
gert ráð fyrir myndlistar- og fjöl-
nýtisal. Rætt hefur verið um mögu-
leika á nýtingu húsa í Grófargih
fyrir ýmsar listgreinar, frumdrög
að viðbyggingu við Samkomuhús
bæjarins hafa verið th skoðunar
og þessi og fleiri atriði munu verða
til umræðu á málþinginu.
Meðal þeirra sem flytja erindi á
málþinginu eru Þröstur Ásmunds-
son, formaður menningarmála-
nefndar bæjarins, Helgi Vhberg,
skólastjóri Myndlistarskólans, Ro-
ar Kvam, skólastjóri Tónlistarskól-
ans, og Sunna Borg, formaður
Leikfélags Akureyrar, en einnig
verða opnar umræður og fleira á
dagskrá.