Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1991, Page 8
8
FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1991.
Utlönd
Nýjar upplýsingar um flótta íraskra herflugmanna:
Reyndu að sprengja
Saddam á f lóttanum
- enn efasemdir um hvort hernaður á landi reynist nauðsynlegur
Hermenn bandamanna bíða í Saudi-Arabiu eftir að kallið komi um innrás í írak og Kúvæt. Dick Cheney og Colin
Powell eru nú að kanna stöðu mála á vettvangi áður en þeir gefa Bush forseta ráð um innrás eða ekki.
Símamynd Reuter
Norman Schwartskopf, yfirmaður
herafla bandamanna við Persaflóa,
segist hafa vitneskju um að íraksir
herflugmenn hafi varpað sprengjum
á stöðvar Saddams Hussein áður en
þeir lögðu á flótta til írans.
Þessar upplýsingar eru hafðar eftir
íröskum liðhlaupum, sem leitað hafa
hælis hjá bandamönnum í Saudi-
Arabíu. Flóttamennirnir segja að
Saddam haldi enn til undir rústum
forsetahallarinnar í Bagdad en þar á
hann rammgert neðanjarðarbyrgi.
Schwartskopf sagðist ennfremur í
sjónvarpsviðtali í gær ekki vera viss
um hvort innrás landherja banda-
manna í írak og Kúvæt sé nauðsyn-
leg til að bijóta íraka á bak aftur.
Skoðun sína byggir hershöföinginn á
því að enn sé möguleiki á að írskir
hermenn steypi Saddam Hussein af
stóli.
Schwartskopf hefur alla tíð dregið
heldur úr bollaleggingum um vænt-
anlega innrás af landi og sjó í írak.
Aðrir háttsettir menn í liði banda-
manna virðast líta á hernaðinn á
landi sem óhjákvæmilegan þótt enn
hafl menn ekki gefið upp alla von
um að loftárásirnar einar dugi til að
neyða íraka til uppgjafar í Kúvæt.
Francois Mitterand, forseti Frakk-
lands, sagði í gær að árás yrði gerð
á landi í þessum mánuði. Bretar hafa
tekið í sama streng. Helstu ráðgjafar
Bush Bandaríkjaforseta eru nú í
Saudi-Arabíu að meta aðstæður. Þeir
eru væntanlegir heim um helgina og
þá verður að öllum líkindum tekin
ákvörðum um hvort og hvenær lagt
verður til atlögu á landi.
Schwartskopf segir að enn sé of
snemmt að segja til um hvort loft-
árásirnar á herliö íraka muni skila
árangri. Sprengjum er enn linnu-
laust varpað á stöðvar hersins og
einnig á brýr og vegi. Síðustu tvo
daga hefur áhersla verið lögð á að
rjúfa samgönguæðar til að hindra
birgðaflutninga til hersins. Þetta
þykir benda til að undirbúningur
fyrir árás á landi sé á lokastigi.
Enn eru fréttir óljósar af usla í liði
íraka vegna loftárásanna. Banda-
rískir embættismenn hafa enn látið
hafa eftir sér að einungis 10% þjóð-
varðliðs íraka sé úr leik en Frakkar
tala um 30%. Upplýsingarnar stang-
ast mjög á þótt talið sé að bandamenn
hafi allgóða hugmynd um hvaða ár-
angri þeir hafa náö frá því gagnsókn-
in gegn írökum hófst 17. janúar.
Reuter
Scud*
Ríjad
írakar reyndu að skjóta Scud-
eldflaug að Ríjad, höfúðborg
Saudi-Arabíu, seint í gærkvöldi.
Flaugin var skotin niður með
Patriot gagnflaug og olli ekki
umtalsverðu tjóni.
Vika var líðin frá því írakar
reyndu síðast aö nota Scud-flaug-
ar til árása á nágrannaríkin og
var jafnvel taliö að þeir ættu enga
nothæfa skotpalla eftir. Þetta var
niunda árásin á höfuöborg
Saudi-Arabíu en alls hefur 29
flaugum verið skotiö að borginni.
Reuter
dreka i skjól
Flugmenn bandamanna segja
að írakar reyni nú allt hvað þeir
geta til að koma skriðdrekum sín-
um af helstu árásarsvæðunum
við landamæri Kúvæts og íraks.
Þetta bendir til að vamir íraka
séu að bresta.
Reuter
rm
Spá erfiðri landgöngu
við botn Persaflóans
Hernaðarsérfræðingar segja að
landganga Bandaríkjahers við botn
Persaflóa gæti orðið einhver áhættu-
samasta hernaðaraðgerð sögunnar.
Talið er að þessi þáttur hernaöarins
gegn írökum i Kúvæt gæti orðið sá
mannskæðasti.
Fullvíst er talið að Bandaríkja-
menn reyni að komast á land fyrir
botni Flóans til að króa her íraka af
í Kúvæt. Hugmyndin er að beita
tangarsókn þannig að herinn, sem
gengur á land, mæti sókninni frá
Saudi-Arabíu á miðri leið í írak.
Landganga af sjó hefur í gjörvallri
sögu hemaðar reynst mjög áhættu-
söm. Aðferðirnar hafa ekkert breyst
á liðnum árum. Bandaríkjamenn
verða að fara eins að og þegar gengið
var á land í Normandí 6. júni árið
1944 á lokakafla síðari heimsstyijald-
arinnar. Sú árás reyndist mjög
mannskæð.
í gær hófust miklir herflutningar á
sjó í Persaflóanum. Um 17 þúsund
manna landgöngulið var flutt nær
þeim stað sem ætlunin er að taka
land. Ekki er þó enn vitað hvort þaö
verður nyrst í Kúvæt eða á írösku
landi fyrir botninum.
Miklar grynningar eru á þessum
slóðum og erfitt að beita stórum far-
artækjum. Hernaðarsérfræðingar
segja að Bandaríkjamenn ætli að
velja sér stórstraumsflóð til land-
tökunnar. Stórstraumur er um miðj-
an mánuðinn þannig að flestir hall-
ast að því að samræmd innrás af
landi og sjó hefjist þegar líður á
næstu viku.
„Við vitum að verkefnið verður
þegar stundin rennur upp,“ segir
Edward Foster, hernaðarsérfræðing-
ur í Lundúnum. „Það veröur að gera
ráð fyrir kröftugri mótspyrnu því að
strandlengjan þarna er stutt og ekki
margir staöir sem koma til greina
fyrir landtöku."
Landgönguliðið mun þó njóta að-
stoðar úr lofti þannig að óvíst er hve
mikið herlið Iraka getur beitt sér.
Bandamenn hafa nú full yfirráð í
lofti og það kann að ráða úrslitum.
Sagt er að Bandaríkjamenn hafi
þegar fundið staðinn fyrir innrásina.
Samkvæmt gamalli og nýrri her-
fræði verða sérsveitir sendar á land
fyrstar til að kanna aðstæður. Liðs-
menn sveitanna verða sannarlega í
eldlínunni en þeim er m.a. ætlað að
komast að hversu öflugar varnir ír-
aka eru.
Helsta breytingin, sem hefur orðið
á landgöngu hers af sjó frá því í síð-
ari heimsstyrjöldinni, er að nú er
hægt að flytja lið á land með þyrlum.
Áður varð að nota landgöngu-
prammana eina eða varpa mönnum
niður í fallhlífum.
Reuter
Persaflóastríöið:
Atburða-
7. febrúar
9.00 - Orrustuskipið Wisconsin
skaut af risastórum byssum sin-
um i fyrsta skipti frá í Kóreustríð-
inu. Talsmaður Bandaríkjahers
segir skothríð skipsins hafa eyði-
lagt íraska herstöð.
9.33 - írakar segjast hafa skotið
eldflaugum að Israel í hefndar-
skyni fyrir 33 árásarferðir ísraela
í húmi nætur. ísraelar hafa ekki
tilkynnt um eldflaugaárás frá því
á sunnudag.
12.20 - PLO-samtökln ásaka
Bandaríkjamenn um dómadags-
fyrirætlanir með notkun kjarn-
orkuvopna.
13.07 - Bandarikjaher tilkynnir
mögulegar árásir á almenn bygg-
ingasvæði sem her íraka notar.
Bandarikjamenn segja að svo
virðist sem írakar staðsetji loft-
varnabyssur á þökum ibúða-
blokka af ásettu ráðí.
13.15 - írakar hvefja íslama til að
ráðast gegn hagsmunum Banda-
ríkjanna og Vesturlanda yflrleitt.
Ekki sé neitt pláss fyrir hlutleysi
við Persflóa.
13.32 - íranskt dagblað hefur eftir
Bush forseta að Bandaríkjamenn
muni yfirgefa Persaflóasvæðið
eftir lok stríðsins.
16.07 - Breskur herforingi segir
íraka verða fyrir gríðariegum
sprengjuárásum áður en ráðist
verður til atlögu á landi.
16.10 - Sex íraskar orrustuvélar
flugu inn í íranska lofthelgi en
aðeins eru fréttir af einni giftus-
amlegri lendingu.
16.15 - Utanríkisráðherra Sýr-
lands segir ísraela verða að yfir-
gefa herteknu svæðin ef tryggja
á frið eftir stríðið.
16.48 - Tilkynnt að saudi-arab-
ísk-ar hersveitir hafi skotið að 14.
íröskum hermönnum þar sem
þeir reyndu að fara inn í Saudi-
Arabíu aðfaranótt fimmtudags.
17.12 - Bandarískar orrustuvélar
granda tveimur íröskum orrustu-
vélum á leið til íran.
17.13 - Alþjóðanefnd Rauða
krossins segist munu senda meiri
lyfjabirgðir til íraks á laugardag
og matvælabirgðir í næstu viku.
17.38 - Nawas Sharif, forsætisráð-
herra Pakistans, er undir þrýst-
ingi vegan andíraskrar afstöðu
sinnar og býðst til að heimsækja
Bagdad í friðarumleítunum.
18.36 - Um 50menn úr þýska flug-
hernum koma til Tyrklands ti)
að aðstoöa við eldflaugapalla
bandamanna. Stjórnvöld i Bonn
segja þetta viðleitni til að hiálpa
við varnir annars Nato-ríkis.
21.19 - írakar biðja Sameinuðu -
þjóðirnar um að koma afriti af
minnispunktum frá fundi Sadd-
ams Husseins og aðalritara
þeirra í umferð.
22.00 - Bandaríkin endurskoða
fjárhagsaöstoð við Jórdani eftir
að Hussein konungur lýsti yfir
stuðningi við íraka og beygði
þannig af leið hlutleysis.
0.15 - Bandarískar stýriflaugar
granda Scud-eldflaug yfir Ríjad í
Saudi-Arabíu.
0.50 - írakar færa hertæki sín í
Kúvæt til að forða þeim frá loftá-
rásum bandamanna,
4.00 - Schwartzkopf hershöfðingi
segist hafa sannanir fyrir því aö
íraskir liðhlaupar úr flughernum
hafl reynt að ráða Saddam Hus-
sein af dögum með sprengjum í
forsetahölhnni.
7.10 - Sprengja springur i garði
við stjórnstöðvar NATO í Tyrk-
landi. Enginn meiðsl urðu á
mönnum.