Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1991, Qupperneq 9
FÖSTUDÁGtÚR 8. FEBRUAR 1991.
Útlönd
írski lýðveldisherinn lýsir ábyrgð á tilræði við bresku stjómina:
Ætluðu að koll-
varpa lýðræðinu
- sagði John Major forsætisráðherra á þingfundi eftir sprenginguna
„Þetta var vísvitandi tilraun til að
myrða ráðherrana og kollvarpa lýð-
ræðinu í landinu," sagði John Major,
forsætisráðherra Breta, á þingfundi
skömmu eftir að hryðjuverkamenn
úr írska lýðveldishernum vörpuðu
þremur sprengjum að heimili hans
við Downingstræti 10.
Major sat þar á fundi með öðrum
ráðherrum sem skipa hermálaráðu-
neyti Breta. Sprengjurnar sprungu í
bakgarðinum rétt við húsvegginn.
Rúöur brotnuðu í fundarherbergi
ráðherranna sem fluttu sig um set í
húsinu og héldu áfram fundi á örugg-
ari stað.
Þetta er alvarlegasta árás IRA gegn
ráðamönnum í Bretlandi frá því að
öflug sprengja sprakk á hóteh í
Brighton árið 1980 þegar íhaldsflokk-
urinn hélt þar landsfund. Þá munaði
htlu að Margrét Thatcher, þáverandi
forsætisráðherra, færist í sprenging-
unni.
Árásin í gær var mjög mjög vel
skipulogð og munaði minnstu að
hryðjuverkamönnunum heppnaðist
ætlunarverk sitt. Eitthvaö fór þó úr-
skeiðis því að eldur blossaði upp í
bílnum, sem sprengjunum var skotið
úr, áður en fyrstu sprengjunni var
skotið.
Þjóöaratkvæðagreiðsla í Litháen:
Sovétmenn ógna
með heræfingum
Sovéski herinn verður með heræf-
ingar í öllum Eystrasaltsríkjunum á
sunnudag, meðan talning í þjóöarat-
kvæöagreiðslu þar sem Litháaer
taka afstöðu til sjálfstæðis fara fram.
Landsbergis forseti sagði frá heræf-
ingunum á blaðamannafundi í þing-
húsinu gærkvöldi og sagði þær enn
eina tilraun til að hræða fólk frá kjör-
stöðum.
Kuskin herforingi tilkynnti yfir-
völdum í Lettlandi um heræfingarn-
ar seinnipartinn í gær en Lands-
bergis segist ekki hafa fengið opin-
bera thkynningu um þær.
Þá upplýsti Landsbergis að sovésk
herþyrla hefði dreift flugumiðum þar
sem fólk er hvatt th að taka ekki þátt
í atkvæöagreiðslunni. Sagði á mið-
unum að ef Litháar segðu já við sjálf-
stæði fylgdi efnhagsleg ringulreið í
kjölfarið.
Landsbergis hefur beðið þjóðir
heims um að fygljast vel með tilraun-
um Sovéthersins til aö hafa áhrif á
framgang atkvæðagreiðslunnar. í
tengslum við hana hefur fjöldi er-
lendra sendinefnda komnið til Lithá-
ens, þar á meðal frá Belgíu, Dan-
mörku, Póllandi, Ungverjalandi,
Ástrahu og Sovétlýðveldunum Ge-
orgíu og Rússlandi.
í augum Litháa eru sendinefndirn-
ar og fjöldi erlendra blaöamanna eins
og mannlegur skjöldur. Vonast þeir
til að athyglin, sem beinist að at-
kvæðagreiðslunni, muni gera Sovét-
hernum mjög erfitt fyrir í möguleg-
um tilraunum sínum til að hafa áhrif
áhana. Kitzau
SjáKsmorð „Dauða læknis“
Útfararstjóri í Taiwan, sem gengið
hefur undir nafninu „Doctor death"
eöa Dauði læknir framdi sjálfsmorð
í borginni Chungh í gær.
Dauði læknir eða Li Wen-lang fékk
viðurnefni sitt þar sem hann bauð
þeim er þjáðust af ólæknandi sjúk-
dómum að koma og fá lausn sinna
mála í eitt skipti fyrir öh. Útfararfyr-
irtæki hans hét Bein leið til himna
og hann bauð fyrrnefndum sjúkling-
um líknardráp með því að neita þeim
um mat og nauðsynleg lyf.
Lögregla hafði rannsakað starf-
semi Dauða læknis og yfirheyrt hann
en ekki fundið óyggjandi sannanir
um eðh starfsemi hans. í skilaboðum
til íjölskyldu sinnar sagðist Dauði
læknir óttast málssókn meira en
nokkuð annað. Því hefði hann ákveð-
ið að fyrirfara sér. Það gerði hann
með því að leiða slöngu úr útblást-
ursröri inn í bílinn sinn beint utan
VÍð líkkistubúð. Reuter
Svo virðist sem tveir menn hafi
unnið verkið. Þeir komust báðir und-
an á mótorhjóh og hafa ekki fundist
þrátt fyrir ákafa leit. Þegar varð ljóst
að IRA stóð fyrir árásinni því að-
ferðin var sú sama og lýðveldisher-
inn hefur oftsinnis notað á Norður-
írlandi. IRA lýsti skömmu síðar
ábyrgð á hendur sér.
Möguleiki er talinn á að IRA hafi
í árásinni gengiö erinda arabískra
hryðjuverkasamtaka. Saddam Huss-
ein hefur hvatt stuðningsmenn sína
til árása á bandamenn. Vitað er að
IRA hefur sambönd í Mið-Austur-
löndum en ekki hefur tekist að sanna
að verkið hafi verið unnið fyrir aðra
íþessutilviki. Reuter
Reykjarsúlur stigu til lofts við stjórnarbyggingarnar í miðborg Lundúna,
bæði frá sprengjunum og eins frá árásarbilnum sem stóð í Ijósum logum
þegar eftir árásina. Símamynd Reuter
RYMINGAR-
SALAN
Síðasti dagur
rýmingarsölunnar er á morgun,
laugardag
0PÐTI LKL16
''%X
Otrulegt úrval áhalda í örbylgjuofna á einstöku verÖi Lítið útlitsgallaðir kæliskápar og þvottavélar með verulegum afslætti
Eldavélar og innbyggingarofnar á tilboösverði GERIÐ HAGSTÆÐ KAUP
Einar Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28, símar (91)622900 og 622901 - Næg bílastæði.