Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1991, Page 13
.13>T ÍIA'JJiaB^ .Í! RUDAaUT3Ö^
FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1991,-
13
,Eitt af því sem menn geta fært inn á skýrsluna er beiðni um að verða slysatryggðir við heimilisstörf.
Slysatryggið
ykkur við
heimilisstörfin
Nú eru flestir búnir að fá skatt-
skýrsluna sína senda heim og fam-
ir að huga að því að útfyfla hana.
Það er að ýmsu að hyggja við það
verk. Eitt af því sem menn geta
fært inn á skýrsluna er beiðni um
að verða slysatryggðir við heimil-
isstörf. En hvers konar trygging er
þetta sem í boði er?
Slysatryggingar
almannatrygginga
Slysatryggingar samkvæmt al-
mannatryggingalögimum taka til
slysa við vinnu, iðnnám, björgun-
arstörf, stjómun ökutækja og afl-
véla, hvers konar íþróttaæfingar,
íþróttasýningar og íþróttakeppni.
Auk þess eru sjúklingar, sem em
til meðferðar á sjúkrastofnunum,
tryggðir samkvæmt lögunum.
Atvinnurekendmn er skylt að
greiða iðgjöld til slysatrygginga al-
mannatrygginga sem er ákveðið
hlutfall aJFlaunagreiðslum. Eigend-
um ökutækja er sömuleiðis skylt
að greiða iðgjöld sem em innifalin
í bifreiðagjöldum.
Þessi iðgjöld standa undir megin-
þorra slysatrygginga almanna-
trygginga en það sem umfram er,
þ.e. tryggingar sjúkhnga og íþrótta-
manna, greiðist af fjárlögum.
Launþegar em þá slysatryggðir í
vinnunni og á leið til og frá vinnu,
sama gildir um matar- og kaffitíma.
Utan þess tíma em menn ekki
slysatryggðir skv. almannatrygg-
ingalögunum.
Tryggð á skattskýrslunni
A skattskýrslunni býðst mönn-
um að slysatryggja sig og maka
sinn við heimilisstörf með því að
merkja við í þar til gerða reiti. Með
því öðlast menn sama rétt til bóta
slysatrygginga almannatrygginga
verði þeir fyrir slysi við heimil-
isstörf og launþegar sem verða fyr-
ir vinnuslysi.
Bætur slysatrygginga em sjúkra-
hjálp, dagpeningar, örorkubætur
og dánarbætur. Sá sem slasast við
heimilisstörf á m.ö.o. rétt á að fá
lækniskostnað greiddan að fullu og
Kjallarirm
Ásta R. Jóhannesdóttir
deildarstjóri félagsmála- og
upplýsingadeildar Trygginga-
stofnunar ríkisins
fá greidda dagpeninga þann tíma
sem hann er óvinnufær. Sé hinn
slasaði í launaðri vinnu og heldur
launum á tímabilinu á vinnuveit-
andinn rétt á að fá dagpeningana
greidda.
Hinn slasaði á rétt á örorkubót-
um ef slysið leiðir til örorku. Ör-
orkubætur em greiddar frá 10%
örorku (vegna slysa eftir 14. júní
1989) en 15% örorku vegna eldri
slysa. Slysabætur vegna 10-49%
örorku em yfirleitt eingreiðslur,
þ.e. greiddar með einni greiðslu.
Bætxu* vegna 50% örorku eða meiri
em lífeyrisgreiðslur sem greiddar
em mánaðarlega.
Ef slysið leiðir til dauða á maki
rétt á dánarbótum í 8 ár og bama-
lífeyri ef hinn látni lætur eftir sig
bam eða böm innan 18 ára. Þá eiga
foreldrar hins látna einnig rétt til
bóta.
Rétt til þessara bóta öðlast þeir
sem slysatryggja sig við heimil-
isstörf á skattskýrslunni, aðrir
ekki.
Mikiöfyrir lítið
Ég hvet alla þá sem fylla út skatt-
skýrslur á næstunni, ekki aðeins
bótaþega heldur alla, að merkja við
í reitinn þar sem spurt er hvort
menn vilji slysatryggja sig við
heimilisstörf, hvort sem þeir em í
annarri vinnu eða ekki. Tryggingin
er innheimt með sköttunum og er
ekki há upphæö, var 962 krónur
fyrir allt árið í fyrra. En slasist
maður við heimilisstörf þá á hann
rétt til slysabóta almannatrygginga
á sama hátt og þeir sem slasast við
launaða vinnu.
Til mín í Tryggingastofnim ríkis-
ins hafa leitað ótalmargir eftir slys
í heimahúsum til að kanna rétt
sinn eða umbjóðenda sinna til
tryggingabóta. Ótrúlega margir
þeirra reynast réttlausir vegna
þess að þeir tryggðu sig ekki á
skattskýrslunni.
Láttu það ekki henda þig.
Ásta R. Jóhannesdóttir
„Á skattskýrslunni býöst mönnum að
slysatryggja sig og maka sinn viö heim-
ilisstörf með því að merkja við í þar til
gerða reiti. Með því öðlast menn sama
rétt til bóta slysatrygginga almanna-
trygginga verði þeir fyrir slysi við
heimilisstörf og launþegar sem verða
fyrir vinnuslysi.“
KERTAÞRÆÐIR fpassandi seftum.
Leióari úr stáibiöndu. Sterkur og þoGr
að loggjast ( kröppum boygjum. Við-
nim aðoins 1/10 af viðnámi kotþráða.
RRögTcw nststagæoi.
Kápa sem deyfir truflandi rafbylgjur.
HABER G ”
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91 I-8 47 88
SJÁUMST
«1%
IFERÐAR
ENDURSKMS-
MERKI fást i
apótekum
ogviðar.
/X>Cj
r' vS'
Veitingastaður .
í miðbæ Kópavogs
Tilbod helgarinnar
Rjómalöguð aspassúpa,
kolgrillað nautafilet
m/bernaissósu, bakaðri kartöflu
og grœnmeti
kr. 1.190,-
VEITINGAELDHÚS
OG VEISLUSALUR FYRIR
MINNI SAMKVÆMI
Veisluþjónusta
\ Hamraborg 11 - sími 42166
Hver býÖur betur?
Seljum nýböhud brauÖ og köhur á
innkaupsverði eða án 25% -30%
álagningar eins og almennt gerist.
Mjólk og léttmjólk 7,5% ódýrari en í
jlestum verslunum.
Kajjfistofa á staðnum, sem býður kajfi og
kókó ásamt meðlœti á hóflegu verði.
Komið, gerið verðsamanburð og reynið
viðskiptin.
^ Ódýri brauða
& kökumarkaðurinn
Suðurlandsbraut 32
Opið Mánud. - Föstud. kl. 9:00 - 18:00
Laugard. kl. 10:00 - 16:00
ODYRIBRAUÐA &
KÖKUMARKAÐURINN
MATBRAUÐ HF.
Iðnbúð 8 Pósthólf 9244 129 Rcykjavík
Símar: 656222, Vsk.nr.: 27144
Kennitala: 500172-0459