Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1991, Síða 32
■4*
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1991.
Oddsskarðsgöng:
Játuðuaðhafa
settröra-
— sprengjuvið
neyðarsíma
Þrír piltar. 17-18 ára. haí'a gengist
viö þvi hjá lögreglu aö haíá sprengt
neyðarsíma í göngunuin við Odds-
skarð fyrir sköntmu.
Piltarnir fóru i göngin með sér-
stakan blyshólk sem þeir höfðu sett
sprengiefni í og smápeninga til að
hun yrði sem kraítmest. Yið svo Iniið'
kveiktu þeir í og sprengdu neyðar-
sinumn en fóru svo á brott. Búnaður-
inn lá í tætlum þegai' næsti vegfar-
andi kom að í göngunum. Sími þessi
hefur verið notaður þegar þeir sem
fara um skarðið hafa lent í neyö og
»*því talinn mikið öryggisatriði. Odds-
skarð er einn liæsti fjallvegur lands-
ins og þar veröur gjarnan illfæn.
Lögreglan í Neskaupstað og á Eski-
firði hafa unnið i sameiningu við að
upplýsa þetta mál. Þremenningarnir.
sem játuðu á sig verknaðinn. eru all-
ir frá Norðfirði. Tveir þeirra voru i
fyrra uppvísir að því að kasta
sprengju út úr bil að unglingum á
Eskifirði. Btiist er \1ð að Vegagerð
ríkisins leggi bráðlega fram bóta-
kröfu á hendur piltunum vegna
neyðarsimans sem gjöreyðiiagðist
~Við sprenginguna. _óxj
Ullarvörusala Álafoss:
Viðræðum
í Moskvu
frestað
Sovéska samvinnusambandiö
írestaði í gær samningaviðræðum
\1ð fulltrúa Álafoss sem staddir eru
í Moskvu. Viðræðurnar hófust síð-
astliöinn þriöjudag og taka til sölu á
uUarvörum fyrir á annað hundrað
milljónir. Að ósk sovésku samninga-
'•mannanna var viðræðunum frestað
í tíu daga til hálfan mánuð.
Gífurlegir hagsmunir eru í húfi
fyrir Álafoss urn að samningar takist
við Sovétmenn. Gætu þeir skipt
sköpum fyrir áframhaldandi rekstur
þess. Á síðasta ári var fyrirtækið
rekið með 250 milljón króna tapi og
tvö árin á undan nam tapið samtals
ríflega 1,9 milljörðum. Skuldir þess
eru vel á þriðja milljarð.
Auk þess sem Álafoss hefur verið
í samningaviðræðum við sovéska
samvinnusambandið hefur fyrirtæk-
ið um nokkurra \1kna skeið staðið í
viöræöum við rússnesku innkaupa-
stofnunina um sölu á ulllarvörum
fyrir um 650 milljónir á næstu tveim
-árum. -kaa
- sjá nánar blaðsíðu 5
LOKI
Islensk stjórnvöld
eru höfð að lit-háði
ogspotti!
Viöiorkenningin á sjálfstæði Litháen:
Stjórnvöld algerlega
ráðþrota í málinu
- finna ekki leið til að framkvæma stjórnmálasamskiptin sem lofað hefur verið
„Það er fjarri öllu lagi að kunn-
ingskapur minn við Gorbatsjov og
andstaða mín viö að styggja hann
eigi einhvern þátt í því að við ltik-
um við að viðurkenna sjálfstæði
Litháens. Ég batt vonir við þær
þjóðfélagsumbætur sem hann stóö
fyrir en hef líka orðið fyrir miklum
vonbrigðum með þaö sem Sovét-
stjórnin hefur verið að gera undan-
farið. Litháenmálið er bara mjög
flókið mál og ég vil að memt skoði
hvert skref í því vandlega og vona
að niðurstaða fáist sem allir geta
sætt sig við. Meíra vil ég ekki segja
á þessari stundu um málið,“ sagði
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra í morgun.
Samkvæmt heimildum DV er
staðan sú í Litháenmálinu að þegar
ríkisstjórnarfimdui' hofst í morgun
höfðu ráðherrar og aðrir stjórn-
málamenn ekki fundið neina leið
til lausnar. Fundur ráðherra og
formanna stjórnmálaflokkanna í
gær endaði í ráðleysi að öðru leyti
en því aö halda áfram í dag að leita
leiða út úr málinu með einhverjum
hætti. Reynt verður að semja
þingsályktunartillögu sem utan-
ríkismáianefnd verður látin bera
fram á Alþingi. Vandinn er hins
vegar hvernig á að orða hana
Þeir íjöilar sem DV ræddi við í
morgun sögðu ríkisstjórnina benda
á að það væri vandalaust að senda
bréf og viöurkenna Litháen. Þá um
leið kæmi upp sú staða að enginn
Islendingur kæmist til landsins.
Hvorki sendiherra né nokkur ann-
ar. Litháar ráða ekki í reynd landi
sínu og landamærum. Eftir að við
hefðum viðurkennt sjálfstæði Lit-
háens gætum við ekki leitað til
Moskvuvaldsins um vegabréfsárit-
un þangaö. Að leita til annars lands
um vegabréfsáritun tii lands sem
við viðurkennum að sé sjálfstætt
riki gengi ekki. Samkvæmt Vínar-
sáttmálanum um viðurkenningu
ríkia og stjómmálasaraband þarf
viðkomandi ríki að ráða landa-
mærum sínum.
Þetta eru þau atriöi sem menn
leita leiða út úr. Þá munþað einnig
hafa verið kannað hvort önnur
vestræn ríki munu fylgja í kjölfarið
ef við viðurkennum Litháen. Svo
mun ekki vera.
Landsbergis, forseti Litháen, fuil-
yrðir að bæði Tékkar og Pólverjar
muni fylgja í kjölfar okkar og við-
urkenna Litháen. Þetta draga ráð-
herrar í efa vegna þess að sovéskur
her er enn i báðum þessum löndum
og ráðamenn þeirra óttast að hon-
um verði beitt gegn þeim. Það er
einmitt vegna þessa sem Jón Bald-
vin Hannibalsson utanríkisráð-
herra vill bíða eftir því aö Jeltsín
Rússlandsforseti komi viðurkenn-
ingu á Litháen í gegnum rússneska
þingið. Menn vilja að hann ryðji
brautina.
-S.dór
Mikil flóð hafa verið i Borgarfirði síðustu daga og flæddi Hvitá yfir bakka sína hjá Ferjukoti. í Lundarreykjadal fór
vegurinn i sundur og myndaðist stórt skarð þar þegar vatnið flæddi yfir veginn. Unnið var að því í gær að fylla upp
i veginn aftur og þurfti að ná i nokkur þílhiöss af möl og sandi, svo illa var vegurinn farinn.
DV-mynd Brynjar Gauti
Innbrotafaraldur
á heimili
íSeljahverfi
Brotist hefur verið inn á á annan
tug heimila í Seljahverfi á síðustu 10
dögum. Myndband, hljómfiutnings-
tæki og geislaspilari er meðal þess
sem stolið hefur verið. Einnig virðist
ljóst að þjófarnir hafa verið á höttun-
um eftir áfengi. Sparibaukur barns
hefur einnig orðið fyrir barðinu á
þjófunum, hann brotinn upp og úr
honum stolið peningum.
Talið er að ungmenni hafi verið hér
að verki. Rannsóknarlögregla ríkis-
ins vinnur við rannsókn þessara inn-
brota. Að sögn Jóns Snorrasonar hjá
RLR hefur rannsókninni miðað tölu-
vert áfram og er hluti af innbrotun-
umþegarupplýstur. -ÓTT
Kaka í raf magnsleysi
Kona nokkur í Reykjavík hringdi
til lögreglunnar þegar óveðrið var
sem mest um helgina. Hún spurði
hvort lögreglunni væri kunnugt um
hvort rafmagn hefði farið af í hverf-
inu og vildi fá að vita nákvæmlega
hvenær það kæmi á aftur - hún væri
með köku í ofninum og ætti von á
gestum. Konunni var vinsamlega
bent á að leita á náðir Rafmagns-
veitunnar. -OTT
Veðrið á morgun:
Léttskýjað
nyrðra
Á morgun verður suðaustan
stinningskaldi vestanlands en
hægari austlæg átt austanlands.
Lítils háttar rigning eða slydda
verður suðvestanlands og skurir
suðaustanlands en léttskýjað
nyrðra. Hiti verður á bilinu 1-5
stig.
/SM\
> C 7*177 'l*t
SMIÐ JUKAFFI
SBNDUM FRÍTT HFtM
OPNUM KL. 18VIRKA DAGA
OG KL. 12 UM HELGAR