Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Qupperneq 2
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR1991. Sjómenn enn ósammála fiskifræðingunum - talið að leyft verði að veiða 50 til 100 þúsund lestir Á fundinum voru ráðherra sé mun stærri en fiskifræðingar víkingi GK, en skipið er eitt sex unni. Bjarni Sæmundsson mun kynntar niðurstöður nýafstaðins telja hann. skipa sem tekið hafa þátt í loðnu- hins vegar fara út í kantinn austur loðnuleitarleiðangurs en þegar síð- „Mín persónulega skoðun er sú leitarleiðöngrum að undanfórnu af landinu til loðnuleitar, síðan asta leitarleiðangri Hafrannsókna- aö það sé helmingi meiri loðna í ásamt skipum Haírannsóknastofn- höldum við norður fyrir land og stofnunar lauk um miðjan janúar ár en á síðasta ári. Torfan út af unar. „Við teljum að langstærsti munum athuga hvort einhver töldu fiskifræðingar stofninn vera Homafirði, sem við höfum verið hiuti stofnsins sé við suðaustur- loöna finnst þar og út af Vestfjörö- um 370 þúsund tonn. Til saman- aö veiða úr, er álíka stór ef ekki ströndina núna og það muni ekki um. Viö höfum haft spurnir af því burðarmágetaþessaöávetrarver- stærri en gangan í fyrra og siðan finnast miklu meiri loöna, sagði að togarar, sem veriö hafa á veiöuni tíðinni í fyrra voru veiddar um 600 kemur töluvert magn þar á eftir Hjálmar Vilhjálmsson. á Kópanesgrunni, hafi fundið eitt- þúsund lestir af loönu. semerekkijafiiþétt. Viðhöfumþví Á næstunni mun rannsóknar- hvaðafloðnu. Sjómenn eru ekki sammála niö- reiknað með að það yrðl leyft að skipið Árni Friðriksson fara til -J.Mar urstööum fiskifræðinga Hafrann- veiða töluvert magn,“ segir Rúnar síldarleitar á þessar slóðir en jafn- sóknastofnunarogteljaaðstofninn Björgvinsson, skipstjóri á Grind- framt mun hann fylgjast með loðn- „Við teljum okkur hafa mælt stofnstærð loðnunnar í göngunni milli Hálsa og Lónsvíkur 450 þús- und tonn. Við greindum ráðherra frá þessum niðurstööum okkar í dag. Ef miðað er við aö 400þúsund tonn af loðnu fái aö hrygna eru 50 þúsund tonn umfram það,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson, leiðangurs- stjóri á Bjarna Sæmundssyni, eftir fund fiskifræðinga með sjávar- útvegsráðherra á Reyðarfirði í gær. íslendingur fór í augnaögerö til Búlgaríu: Sjónin lagaðist aðmestu - segirHaraldurHelgason „Ég hafði vitað um þessar aðgerðir í nokkur ár og þegar ég sá auglýsing- una frá Kjartani Helgasyni um ferðir til Búlgaríu ákvað ég að slá til. Ég fékk upplýsingar um dreng í Vest- mannaeyjum sem hafði farið í augn- aðgerð í Moskvu og hann sagði mér hvernig þetta færi fram,“ segir Har- aldur Helgason sem fór í ágúst á síð- asta ári í augnaðgerö til Búlgaríu og hann er eini íslendingurinn sem hef- ur farið í slíka aðgerð í Búlgaríu. Haraldur var mjög nærsýnn, með -9,5 á öðru auganu og -10,5 á hinu. „Ég þurfti að senda augnvottorð héð- an út því læknarnir vilja vita um hvers konar nærsýni er að ræða. Hún má ekki stafa af sjúkdómi held- ur verður að vera dæmigerð nær- sýni. Ég fékk síöan staðfestingu á að mín nærsýni væri innan við það sem þeir réðu við en þurfti að fara í rann- sókn hjá þeim til að fá endanlegan úrskurð um hvort þeir gætu skoriö mig eða ekki. Það kom svo í ljós að það var hægt.“ Læknarnir gátu gefið Haraldi vonir um að nærsýnin færi niöur í -2 og -2,5 ef allt gengi samkvæmt óskum. „Ég fór nú ekki alveg að þeim fyrir- mælum sem þeir gáfu mér þannig að nærsýnin er núna -3. Maður þarf að fara mjög vel með sig í sex mán- uði eftir aðgerðina og forðast allan þrýsting á augun. En ég var til dæm- is í líkamsrækt sem ég mátti í raun- inni ekki. Ég myndi mæla með því að menn færu algerlega eftir fyrir- mælum læknanna ef þeir ætla að fá fullan bata.“ í aðgerð eins og Haraldur fór í þurfa menn að vera vakandi- og fá einungis staðdeyfingu. „Aðgerðin sjálf er mjög lítið mál og tekur ekki nema 5 mínútur. En maður verður að vera vakandi til að augasteinarnir dragist ekki saman eins og gerist þegar maður er meövitundarlaus. Ég hef aldrei fundiö fyrir neinum óþæg- indum, hvorki í aðgeröinni sjálfri né á eftir. Einu eftirköstin sem ég fann fyrir voru ljósfælni fyrsta mánuðinn eftir aögerðina." Haraldur segist mæla með svona aðgerð fyrir menn með mjög mikla nærsýni. „En fyrir fólk með kannski -3 eöa -4 er þetta matsatriði því það fylgir auövitað viss áhætta svona aðgerðum.“ Aðgeröin, með rannsóknum og öllu saman, kostaöi tæpar 60 þúsund krónur. „Það er ekki nokkur pening- ur því gleraugu eins og ég þurfti, meö hnausþykkum glerjum eins og botn á kókflösku, kosta um 40 þús- und krónur. Ég myndi þess vegna ekki hika við að fara aftur ef ég þyrfti." -ns Aldraðir taka til sinna ráða í húsnæðismálum - mikill skortur er á hj úkrunarrými fyrir aldraða Felög aldraöra í Reykjavík hafa stofnað samstarfsnefnd til að vinna aö úrbótum í húsnæðismálum aldr- aðra, en mörg hundruð umsóknir um vist á dvalar- og hjúkrunarheimilum liggja hjá Félagsmálastofnun Reykja- víkur. Að sögn Gunnars Gunnarssonar hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkur eru umsóknir um vist á hjúkrunar- heimili 204 og þarfnast allar bráðrar úrlausnar. Umsóknir um vist í þjón- ustuíbúðir eru 356 og af þeim eru um 230 sem brýnt er að leysa. Gunnar segir að fyrst og fremst þurfi fleiri rými á hjúkrunarheimilum. „Það eru margir á vistheimilum okkar sem-þurfa á hjúkrun aö halda og það fólk heldur plássum vegna þess að það kemst ekki að á hjúkr- unarheimilum. En lausn á þessum vanda er ekki í sjónmáli," segir Gunnar. Samstarfsnefndin hefur bent á að þróun undanfarinna ára sýni að aldraöir muni verða tvöfalt fleiri á næstu árum. Það sé því mjög brýnt að húsnæðismál þessa fólks verði leyst. Gunnar segir að umsóknum um vist á dvalar- og hjúkrunar- heimilum hafi fjölgað mikið síöustu ár. „Sem dæmi má nefna að 1983 voru um 70 umsóknir sem komu hingað á Félagsmálastofnun en voru tæplega 300 árið 1988.“ -ns Verðlaunahafarnir Fríða A. Sigurðardóttir og Hörður Ágústsson. Meðan nóttin líður og Skálholt II verðlaunaðar Fríða Á. Siguröardóttir og Hörður Ágústsson eru handhafar íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir árið 1990. Fríða fyrir skáldsögu sína Með- an nóttin líður og Hörður fyrir Skál- holt II - Kirkjur. Það var forseti ís- lands, Vigdís Finnbogadóttir, sem afhenti þeim verðlaunin við mikinn fognuö gesta sem voru fjölmargir í Listasafni íslands. íslensku bókmenntaverðlaunin voru nú afhent í annaö sinn. í fyrsta skipti voru tvenn verðlaun veitt, önnur fyrir fagurbókmenntir og hin fyrir handbækur, fræðirit, frásagnir o.fl. Tilnefndar höfðu verið seint á síöasta ári átta bækur í fyrrnefnda flokkinn og sjö bækur í þann síðar- nefnda. Eftir aö Hamrahlíöarkórinn hafði sungið fyrir fjölmarga gesti og Thor Vilhjálmsson hafði flutt skorinorða ræðu þar sem ýmsir fengu orð í eyra tilkynnti Vigdís Finnbogadóttir um verðlaunahafana sem tóku við verð- launum sínum úr hendi forsetans. Verðlaunahafar þökkuðu fyrir sig og sagði Hörður Ágústsson við þetta tækifæri að hann væri þakklátur fyr- ir verðlaunin en hann væri ánægð- astur ef bækurnar um Skálholt yrðu til þess aö auka áhuga á íslenskri kirkjubyggingarlist. -HK Framsókn, Vesturlandi: Sigurður þáði annað sætið „Það var erfitt að taka ákvörðun en nú hefur hún verið tekin og við munum nú vinna samkvæmt því. Ég er tiltölulega sáttur við þessi málalok þó þetta hefði mátt bera öðruvísi að,“ sagöi Sigurður Þórólfsson, bóndi í Dalasýslu, í samtali við DV. Sigurður hefur ákveðiö að taka annað sæti á framboðslista Fram- sóknarflokksins á Vesturlandi fyrir komandi alþingiskosningar. Davíð Aðalsteinsson, fyrrum þingmaður, ákvaö að víkja úr ööru sætinu og bjóða Sigurði það. Ástæðu þess má rekja til megnrar óánægju Dala- manna með skipan listans. Töldu þeir hlut sinn fyrir borð borinn þar sem Dalamaður lenti ekki í öðru af efstu sætunum eftir kjördæmisþing fyrr í vetur. Sigurður varð þá í þriðja sæti en hafnaði því. Mun friður nú hafa náðst um listann. Efstu sæti á lista Framsóknar á Vesturlandi lítur þannig út: 1. Ingibjörg Pálmadóttir, 2. Sigurður Þórólfsson, 3. Ragnar Þorgeirsson, 4. Stefán J. Sigurðsson og 5. Gerður K. Guðnadóttir. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.