Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991. Persaflóastríðið: Atburðarásin 11. febrúar 08.35 - Flugmenn bandatnanna segjast hafa eyðilagt fjóra færan- lega eldflaugaskotpalla í írak. 09.30 - Heimildarmenn innan Bandaríkjahers segja að svovirð- ist sem bestu flugmenn íraka hafi verið um kyrrt í írak á með- an aðrir hafl flogið bestu orrustu- flugvélunum til írans. 10.05 - Franskar flugvélar gera árásir á flugvélaskýli í suðaust- urhluta íraks og bækistöðvar ír- aska hersins í Kúvæt. 10.45 - Sérstakur sendimaður Gorbatsjovs Sovétforseta leggur af stað til Bagdad til að hvetja Saddam til að hörfa frá Kúvæt til að hægt verði að binda enda á stríðiö. 11.00 - írösk yfirvöld segjast aldr- ei munu samþykkja vopnahlé. 12.20 - Fulltrúar flmmtán óháðra ríkja koma saman í Beigrad í Júgóslavíu til að reyna aö fmna leiöir tíl lausnar á Persaflóadeil- unni. 14.35 - Yasser Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu, kemur til Amman í Jórdaníu til við- ræðna við Hussein konung. 15.39 - Bandamenn herða loftár- ásir sínar á stöðvar íraka í Kú- væt. 15.47 - Þýsk yfirvöld segjast hafa beðið bandarísk yfirvöld um að fljúga með þýskt loftvarnakerfi til Tyrklands eftir að Sovétmenn höfðu neitað að fljúga til hættu- svæðisins. 15.56 - íraskur stríðsfangi segir konu úr bandaríska hernum vera í haldi í írak. 16.16 - Aðstoðarforsætisráðherra íraks, Saadoun Hammadi, segir land sitt hafa kosið átök við fjöl- þjóðaherinn við Persaflóa. 16.26 - Háttsettur saudi-arabískur embættismaður segir þrjú hundruð afganska mujahideen skæruliða hafa lýst yflr stuðningi viö bandamenn. 16.59 - Loftvarnamerki gefið í fsrael. _ 17.34 - ísraelar segja að svo virð- ist sem enginn hafi særst í eld- flaugaárás íraka. 18.26 - Fahd, konungur Saudí- Arabíu, segir þjóð sína ákveðna í aö halda áfram stríðinu þar til írakar hafi farið frá Kúvæt. 18.51 - írakar segja flugvélar bandamanna hafa gert sextíu og þrjár árásir á hernaðarmann- virki og á óbreytta borgara síð- astiiðinn sólarhring. 19.13 -Bandaríska utanríkisráðu- neytið segir öfgamenn hafa gert um hundrað árásir á eigur Bandaríkjanna og bandamanna þeírra frá því að stríðið hófst. Samkvæmt bráðabirgðatölum hafa fimm látiö lífið og fimmtíu særst i árásunum. 19.25 - Loftvarnamerki aftur gefin í ísrael. 19.33 - Loftvarnamerki gefin í Riyadh, höfuðborg Saudi-Arabíu. 19.38 - ísraelar segja hættuna liðna hjá. Eldflaug hafi verið skotið en henni ekki beint gegn ísrael. 20.05 - Sjónarvottar segja Patriot- gagnflaug hafa skotið niður ír- aska Scud-eldflaug yfir Riyadh. 20.16 - Yfirmaður frönsku her- sveitanna við Persaflóa segir að nokkrar vikur geti liðið þar til landbardagar heíjist. 20.25 - Aðstoöarforsætisráðherra íraks, Saadoun Hammadi, segir írösk ytirvöld fús til að íhuga áskorun um skilyrðislaust vopnahlé. 20.53 - George Bush Bandáríkja- forseti segir að loknum fundi með helstu hernaðarráðgjöfum sínum að bandamönnum liggi ekki á að hetja bardaga á landi. 12. febrúar 04.53 - íraska útvarpiö segir Sadd- am Hussein íraksforseta hafa átt fund með helstu ráðgjöfum sín- um. Ekki var greint frá hvenær fundurinn hafi verið haldinn né hvað hafi verið rætt. Útlönd George Bush lætur ekkert uppi um væntanlega árás á landi: Þúsundir hermanna búnir undir bardaga - taka sér stöðu við framlínuna tveggja stunda akstur frá Kúvætborg í nótt hófust miklir herflutningar í Saudi-Arabíu þar sem þúsundir bandarískra landgönguliða voru látnir taka sér stöðu við framlínuna við landamæri Kúvæts. Andspænis þeim er herlið íraka að sögn illa leik- ið eftir nær fjögurra vikna loftárásir. Hermennirnir voru látnir hafa með sér léttan búnað til bardaga á landi rétt eins og búíst væri við að þeir þyrftu að berjast maður á mann. Lið- ið er nú í skotgröfum við landamær- in. Leggi það til atlögu er áætlað að tveggja stunda leið sé til Kúvæt- borgar. „Það er mikill áhugi á að ljúka þessu verki sem fyrst og fara heim,“ segir Charles Rowe, talsmaður fyrstu sveitar bandarísku landgöngulið- anna. „Það eina sem heldur okkur frá að yfirgefa átakasvæðið er Sadd- am Hussein." Vara við bardagagieði Yfirmenn fjölþjóðaliðsins hafa var- að liðsmenn sína við að rasa um ráð fram og leggja til atlögu við her íraka áöur en boð hefur komið um sam- ræmda árás. Sagt er að yfirstjórn íraska hersins sé nú í molum og þeg- ar til bardaga komi verði hermenn bandamanna að fást við einstaka hópa hermanna sem ekki lúta sam- eiginlegri herstjórn. „Þeir munu hugsa um það eitt að verjast og bjarga lífi sínu. Herinn sem heild er meira og minna óvirk- ur,“ sagði einn af foringjum fram- varðarliðsins á fréttamannafundi í nótt. Vilja biða með landhernað George Bush Bandaríkjaforseti átti í gær fund með Dick Cheney varnar- málaráðherra og Colin Powell, for- seta herráðsins, eftir komu þeirra frá Saudi-Arabíu. Tilgangur ferðar þeirra var að meta af eigin raunþörf- ina á að leggja til atlögu við Iraka með landher. Niðurstaðan virðist hafa verið sú að landhernaður væri ótímabær enn um sinn þótt fastlega sé gert ráð fyr- ir aö herhð íraka verði ekki yfirbug- að nema ineö sókn á landi. Bush sagði eftir fundinn með ráö- gjöfum sínum að loftárásirnar hefðu skilað miklum árangri til þessa og muni halda áfram fyrst um sinn. Hann neitaði að tala um sókn á landi og hvenær af henni yrði. Hann færð- ist meira að segja undan að nota orðalagið „sókn á landi“. George Bush ræddi í hálfa aðra klukkustund við nánustu ráðgjafa sina í hermálum, þá Dick Cheney og Colin Powell. Niðurstaðan varð aö bíða enn um stund með hernað á landi. Forsetinn vildi þó ekkert láta uppi um hvaða ráða hann hygðist grípa til næst. Símamynd Reuter Bush lætur ekkert uppi „Við ætlum að taka þann tíma sem við þurfum til að meta hvenær rétt er aö hefja næsta stig aðgerðanna til að frelsa Kúvæt,“ sagði Bush. Hann tók fram að ráöagerðir fjölþjóðahers- ins miðuðust ekki við að bæta við nokkrum dögum í loftárásir áður en annað yrði ákveðið. Tilgangurinn væri að frelsa Kúvæt og það yrði gert með öllum ráðum. Bush mun á næstu dögum eiga fundi með yfirmönnum hermála hjá bandamönnumBandaríkjanna í deil- unni við íraka. Þar verður rætt um hugsanlega sókn á landi og samræm- ingu aðgerða. í dag verða fundir með vamarmálaráðherrum Breta og Frakka. Talsmaður forsetans sagði að dagskrá fundarins væri ekki ákveðin og vildi ekki segja hvort landhernaðurinn yrði ræddur. Reuter ísraelsmenn bjóða aðstoð: Viðgetumgert írökum skráveif ur „Ég held að her ísraels gæti gert írökum vemlegar skráveifur ef hann fengi að taka þátt í bardög- um,“ sagði Moshe Arens, varnar- málaráðherra ísraels, eftir fund með George Bush Bandaríkjafor- seta í gær. Arens sagði að ísraelar gætu ekki setið endalaust hjá þégar land þeirra yrði fyrir árásum íraka. Tveimur Scud-flaugum var skotið að landinu í gær neðan Arens var í Bandarikjnum. „Viö getum ekki gefið loforð um að hefna árásanna ekki,“ sagöi Arens. „Hvað við gerum veltur þó mikið á framtíðinni." Bandaríkjamenn hafa lagt mikla áherslu á aö ísrael dragist ekki inn í stríðið. Enn vilja þeir ekki láta flugher ísraels fá upplýsingar um merkin sem bandamenn nota til að greina flugvélar sínar frá flugvél- um íraka. Á meöan getur ísraels- her ekki beitt sér. Ueuter PLO vilja samvinnu við sænsku öryggislögregluna Frelsissamtök Palestfnu, PLO, vilja eiga samvinnu við sænsku ör- yggislögregluna, Sapo. Bjóðast sam- tökin til að miðla af þekkingu sinni um Miðausturlönd. Fulltrúi PLO sagði í Stokkhólmi í gær aö félagar samtakanna væru reyndir og þekktu bæði Miðausturlönd og fólkið þar. Hingaö til hefur sænska öryggis- lögreglan ekki aðhyllst hugmyndina um samvinnu viö PLO. Hún hefur reyndar í langan tíma átt samvinnu viö andstæðinga PLO, það er að segja Mossad, ísraelsku leyniþjónustuna. Yasser Arafat, leiðtogi PLO, sem kom til Amman í Jórdaníu í gær, sagði í viötali við franskt dagblað í gær að Saddam Hussein íraksforseti gætt veitt fjölþjóðahernum við Persaflóa viðnám í þrjú ár. í viðtal- inu sagði Arafat einnig að stríðið við Persaflóa myndi breiðast um Mið- austurlönd. I ræöu sem Arafat flutti í Alsír á sunnudagskvöld sakaði hann Bandaríkin um að hafa komið í veg fyrir tilraunir araba til aö leysa Persaflóadeiluna friðsamlega. TT og Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.