Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Qupperneq 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991.
Iþróttir
íslandsmótiö í blaki
Víkingar steinlágu
- fyrsta tap Hæöargarðsliðsins 1 vetur
Það var ansi dapurlegt að sjá til
Víkingsstúlkna er þær léku gegn
Völsungum á föstudag. Eftir þokka-
lega byrjun (5-1) slökuðu þær á og
Húsavíkurstúlkum tókst svo sannar-
lega að nýta sér það. Þær sigldu fram
úr og unnu, 15-11, í hrinunni.
Völsungar voru nú farnir að leika
af mikilli hörku en Víkingsstúlkur
virtust vera annars hugar og gerðu
mikið af klaufalegum mistökum. í
annarri hrinu komst heimaliðið í 9-0
áður en andstæðingarnir náðu að
svara fyrir sig. En svör gestanna
voru máttlaus og virtist allur vindur
vera úr þeim. Eftirleikurinn var
Völsungum auðveldur enda stóðu
þær uppi sem sigurvegarar eftir að-
eins þrjár hrinur (15-11,15-7,15-10)
og Víkingar máttu játa sig sigraða í
fyrsta sinn í vetur.
Völsungar léku sinn hesta leik til
þessa og börðust firnavel. Bestar í
annars jöfnum liði voru Jóhanna
Guðjónsdóttir og Eyrún Sveinsdóttir.
Sigurður Haröarson dæmdi leikinn
gerði það vel.
Daginn eftir léku hressir Víkingar
síðan við KA. Akureyrarstúlkur
máttu sætta sig við 0-3-tap (7-15,
11-15, 9-15).
Aðrir leikir
• Þróttarar þurftu ekki nema þrjár
hrinur gegn IS til að tryggja sér stig-
in eftirsóttu. Hinir síðarnefndu voru
afskaplega mistækir, klúðruðu
miklu af uppgjöfum og Þróttarar,
sem léku agað án tilþrifa þó, unnu
réttlátan sigur (15-12, 15-13, 15-12).
• Eftir að hafa tapað tveimur hrin-
um gegn Breiðabliki (11-, 14-16)
færðist fjör í leik ÍS-stúlkna en and-
stæðingarnir gáfu eftir. Stúdínur
unnu í tveimur næstu hrinum, 15-9
og 15-13, en í úrslitahrinu var tölu-
vert jafnræði með liðunum. í stöð-
unni 11-11 urðu Blikum hins vegar
á slæm mistök og misstu þeir af sigr-
inum. ÍS-ingar unnu 15-11.
• Á Neskaupstað unnu Þróttar-
stúlkur góða sigra á HK-ingum, sem
enn hafa ekki unnið leik. Fyrri leik-
urinn var þriggja hrina (16-14,15-12,
15-13) en sá seinni fjögurra (16-14,
15-8, 14-16, 15-11).
• Það voru hins vegar HK-sveinar,
sem hrepptu stigin ijögur eftir viður-
eignir sínar og Þróttara. Sú fyrri var
heldur tvísýn (15-13, 15-12, 12-15,
12-15,15-10) en sú síðari var einung-
is upp á þrjár hrinur.
-gje
Sagteftirleikinn:
Vantar
meiri
samæfingu
-segirÞorbergur
„Það er samæflnga-
leysi sem háir okkur.
Það var ein æfing með
öllum hópnum fyrir
leikinn en Héðinn kom það seint
til landsins að hann gat ekki æft
með okkur. Byrjunin var góð en
eftir aö vörn Ungverjanna kom
framar riðlaðist sóknarleikur
okkar,“ sagði Þorgbergur Aðal-
steinsson landsliösþjálfari eftir
að ísland hafði lagt Ungverjaland
að velli í Laugardalshöll í gær-
kvöldi, 22-20.
„Á æfingunni í hádeginu mun
ég finna svar við varnarleik Ung-
verjanna. Það þarf að fá meiri
hreyfanleika í sóknarmennina og
hlaupaleiðirnar verðum við að
lagfæra. Það var algjör óþarfi að
hleypa þeim inn í leikinn en
menn slökuðu of mikið á eftir
þessa góðu byrjun. Ég er samt
bjartsýnn á framhaldið, við leik-
um vonandi betur á morgun hekh
ur en í kvöld. Það verður kannski
ein breyting á hópnum, Júlíus
hefur átt við flensu að stríða og
það er óvíst hvort hann geti leik-
ið en það skýrist betur á æfing-
unni í dag,“ sagði Þorgbergur.
„Eigum að vinna þetta
lið með 7-8 mörkum“
„Þetta var frekar lélegt hjá okkur
og leikurinn í heild var slakur.
Ég held samt að við eigum aö
vinna þetta lið með 7-8 mörkum
á góðum degi,“ sagði Geir Sveins-
son, línumaðurinn sterki.
„Annars er erfitt að dæma um
þennan leik, lið okkar hefur ekk-
ert æft saman og Ungverjarnir
komu nánast beint í leikinn úr
flugvélinni. Eftir að hafa náð
þessu forskoti í byrjun slökuðum
við alltof mikið á, það var ein-
beitingarleysi og það var greini-
legt á leik okkar að við van-
mátum Ungverjana eftir þessa
góðu byijun. Það er hlutur sem
við getum ekki leyft okkur enda
erum við ekki það góðir. Ég vona
að við náum að stilla strengi okk-
ar saman í kvöld og að fólk fjöl-
menni í Höllina og hvetji okkur,“
sagði Geir.
-GH
Badminton:
Haraldur
þrefaldur
meistari
- á íslandsmótinu
Haraldur Kornelíus-
son, hinn gamalkunni
badmintonmaður úr
TBR, varð þrefaldur
íslandsmeistari um helgina en þá
lauk keppni á íslandsmeistara-
mótinu. Haraldur sigraði í A-
flokki karla, og ennfremur bæði
í einhða- og tvíliðaleik í öðhnga-
flokki, 40 ára og eldri, en í tvíliða-
leik lék hann með Steinari Pet-
ersen.
Friðleifur
vann tvöfalt
Annar reyndur kappi, Friðleifur
Stefánsson úr KR, vann tvöfaldan
sigur í æðsta flokki, 50 ára og
eldri. Hann sigraði í einliðaleik,
og í tvíliðaleik þar sem hann lék
með Óskari Guðmundssyni.
-VS
Finnbogi nálægt metinu
Finnbogi Gylfason úr FH var nálægt því að slá 19 ára gamalt íslandsmet Þor-
steins Þorsteinssonar í 800 metra hlaupi innanhúss á móti í Johnsburg í Arkans-
asfylki í Bandaríkjunum á sunnudaginn. Finnbogi hljóp vegalengdina á 1 mín-
útu, 53,49 sekúndum og var tæpum 2/10 úr sekúndu frá meti Þorsteins.
Fjórir aðrir íslendingar kepptu á mótinu og náðu ágætum árangri. Árni Jens-
son úr ÍR skipaði sér í hóp átta bestu kúluvarpara landsins innanhúss þegar
hann kastaði 17,16 metra og stórbætti árangur sinn. Einar Kristjánsson úr FH
stökk 2,08 metra í hástökki og átti góðar tilraunir við 2,13. Frímann Hreinsson
úr FH hljóp mílu á 4:23,4 mínútum og Súsanna Helgadóttir úr FH hljóp 55 metra
á 7,30 sekúndum. Steinn Jóhannsson úr FH dvelst einnig í Bandaríkjunum og
um fyrri helgi hljóp hann mílu á 4:25,9 mínútum á móti í Oklahoma. -VS
Sportstúfar
Þau mistök áttu sér staö
í blaðinu í gær að leikur
Gróttu og Selfoss var á
einum stað sagöur hafa
endað með jafntefli en annars stað-
ar aö Grótta heföi unnið, 25-20. Það
síöarnefnda er rétt og staðan í 1.
B
land, Frakkland, Indland, Portúgal
og Svíss. Alþjóða knattspyrnusam-
bandið, FIFA, mun ákveða í næsta
mánuði hvaða land fær að halda
keppnina.
deild er þannig:
Víkingur .20 19 0 1 .501-412 38
Valur .20 16 1 3 500-439 33
Stjarnan 20 12 1 7 485-478 25
Haukar........ 20 11 2 7 477^79 24
FH 20 10 3 7 472-470 23
ÍBV .20 8 4 8 482^74 20
KR 20 6 6 8 461-465 18
KA 20 7 3 10 467-454 17
Grótta .20 5 2 13 445-468 12
ÍR 20 3 4 13 437-479 10
Fram 20 3 4 13 416-460 10
Selfoss......... 20 3 4 13 407 472 10
Hulda varð í 67. sæti
Hulda Pálsdóttir, hlaupakona úr
ÍR, varð í 67. sæti í viðavangshlaupi
í San Marínó á laugardaginn en
ekki í 76. sæti eins og fram kom í
blaðinu í gær. Þá hafnaði sveit ÍR
í 14. sæti í fyrra en ekki í 18. sæti.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
Atta þióðir vilja
HM árið 1998
Lokafrestur til að sækja
um að halda heims-
meistarakeppnina í
knattspyrnu árið 1998
rann út í gær. Alls eru þaö átta
þjóðir sem sækjast eftír því ,aö fá
keppnina og áttunda og síðasta
þjóán, sem sótti um, var Marokkó.
Hin löndin eru Brasilía, Chile, Eng-
W.
Hörkuleikir í bikarkeppni
karla í körfuknattleik í kvöld
Þrír leikir fara fram í
bikarkeppni karla í
körfuknattleik í kvöld,
8-liða úrslit Kl. 19.30
leika Þór og ÍR á Akureyri og kl.
20 eru hinir tveir leikirnir. Valur
og Keflavík eigast viö að Hlíðar-
enda og í Grindavík er stórleikur
þegar Grindvíkingar taka á móti
nágrönnum sínum úr Njarðvík.
Síðasti leikurinn í 8-liða úrslitun-
um fer fram á miðvikudagskvöldiö
þegar KR-ingar fá UBK í heimsókn
íHöllina.
BREIÐABLIKSMENN
- FÉLAGSFUNDUR
Él
Félagsfundur verður haldinn í Félagsheimili
Kópavogs, 2. hæð, í kvöld, þriðjudaginn
12. febrúar kl. 20.30.
Fundarefni:
Staða mála vegna byggingar íþróttahúss á
félagssvæðinu.
Félagsmenn í Breiðabliki eru hvattir til þess að
fjölmenna. Aðalstjórn.
• Júlíus Jónasson sést hér brjótast framhjá Ungverjanum Gábor Fekéte í leikn
Hrútlei
- f sland vann Ungverjaland, 22-20. Fur<
Landsleikur Islendinga og
Ungveija í handknattleik í
Laugardalshöllinni í gær-
kvöldi var hreint ótrúlega
leiðinlegur og illa leikinn af beggja liða
hálfu. íslendingar sigruðu, 22-20, eftir
mikið basl og sigurinn var það eina já-
kvæða sem þessi leikur skildi eftir sig.
Ungveijar mættu hingað með hálfgert
varalið sitt og í það vantaði í það
minnsta íjóra snjalla leikmenn.
í fyrstu virtist sem íslenska liðið ætl-
aði að keyra yfir það ungverska. Staðan
varð fljótlega 6-2 en Ungverjarnir
breyttu stöðunni í 9-12 og staðan í leik-
hléi var 11-12, Ungveijum í vil. Léku
Ungverjar vörnina mjög framarlega er
þeir minnkuðu muninn og komust yfir
og íslenska liðið átti ekkert svar.
Síðari hálfleikur var jafnari en bæði
lið gerðu ótrúlega mikið af mistökum
og þegar upp var staðið í lokin var ein-
hverjum leiðinlegastaa landsleik, sem
undirritaöur hefur séð, lokið.
Ótrúlega léleg
framkoma Ungverja
í síðari hálfleik átti sér stað sérstakt
atvik. Þá kom í ljós að forráðamenn
ungverska hðsins eru ekki miklir
Handbolti:
Rúmenar sigruðu
Ungveijaland - Rúmenía.22-21
Danmörk - Finnland.23-22
Rúmenía - Finnland.35-23
Danmörk - Ungverjaland.21-20
Finnland - Ungverjaland.23-22
Rúmenía - Danmörk..30-23
Rúmenar fengu 4 stig, Danir 4,
Ungverjar 2 og fönnar 2. Ungverjar
héldu beint til íslands eftir mótið.
-VS
Ungveijar máttu sætta sig við að
tapa bæði fyrir Dönum og Finnum
á alþjóðlegu handknattleiksmóti í
Danmörku sem lauk á sunnudag-
inn. Þeir sigruðu þó Rúmena í
fyrstu umferð mótsins en það voru
Rúmenar sem stóöu uppi sem sig-
urvegarar eftir sjö marka sigur á
Dönum í úrslitaleik.
Úrslit leikja á mótinu urðu þessi: