Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991. Andlát Justa Mortensen, Bræöraborgarstíg 9, andaðist í Hafnarbúöum aöfara- nótt sunnudagsins 10. febrúar. Viðar Sigurðsson prentari, Suöur- braut 28, Hafnaríiröi, lést af slys- fórum laugardaginn 9. febrúar. Sigurður Kristinn Þórðarson, Hraunbæ 102A, Reykjavík, lést á Landakotsspítala 7. febrúar. Ólafur Danielsson, Sólbakka, Víði- dal, lést á sjúkrahúsinu á Hvamms- tanga laugardaginn 9. febrúar. Gunnar Magnússon, Laufskógum 32, síðast til heimilis í Ási, Hverageröi, lést í Sjúkrahúsi Suðurlands föstu- daginn 8. febrúar. Sigríður Jörgensdóttir Kjerúlf sjúkraliði, lést á heimili sínu, Sam- túni 18, Reykjavík, föstudaginn 8. fe- brúar_ Tilkynningar Kvenfélag Kópavogs Spilað verður í kvöld í félagsheimili Kópavogs. Byrjað veröur að spila kl. 20.30. Allir velkomnir. Félag eldri borgara Opið hús í dag í Risinu frá kl. 13. Skálda- kynning hefst ki. 15. Helgi Sæmundsson fjallar um skáldið Þorstein Erhngsson. Lesarar eru Andrés Bjömsson, Baldvin Halldórsson og Guðjón Halldórsson. Leikfimi hefst kl. 16.30 og leikhópurinn hittist kl. 17. 15.-22. febrúar og 20-27. mars verða farnar ferðir til Lúxemborg- ar. Upplýsingar á skrifstofu félagsins. Kvenfélag Óháða safnaðarins Verður með spilakvöld í kvöld í Kirkjubæ kl. 20.30. Kaffiveitingar á eftir. Tónleikar Jarðarfarir Valdimar Halldórsson, Hofsvallagötu 19, lést 24. janúar á Borgarspítalan- um. Jarðarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna. Karl Bjarnason, Blómvallagötu 12, Reykjavík, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. fe- brúar kl. 15. Útför Hauks Matthíassonar veröur gerö frá Fossvogskirkju miðvikudag- inn 13. febrúar kl. 10.30. Jarðarför Viggós K. Ó. Jóhannesson- ar frá Jófríöarstöðum, Hlíöardal I, Kópavogi, fer fram frá Kópavogs- kirkju miövikudaginn 13. febrúar kl. 13.30. Jarðsett veröur í Göröum, Garöahverfi. Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, Þingvallasveit, Nýbýlavegi 104, Kópavogi, verður jarösunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 14. febrúar kl. 13.30. Ingibjörg Jónsdóttir frá Bíldudal, Háengi 4, Selfossi, sem lést aöfara- nótt 5. febrúar, verður jarösungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 13. febrúar kl. 15. Þórunn H. Gísladóttir, Bústaðavegi 67, verður jarösungin frá Bústaöa- kirkju þriðjudaginn 12. febrúar kl. 13.30. Erla Jónsdóttir lést 4. febrúar. Hún var fædd í Hafnarfiröi 10. maí 1932. Foreldrar hennar voru hjónin Jón Sigurgeirsson og Ólöf Jónsdóttir. Eft- irhfandi eiginmaður Erlu er Þorvald- ur Ó. Karlsson. Þau hjónin eignuöust tvö börn. Útför Erlu veröur gerö frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag kl. 13.30. María G. Hjáltýsdóttir Heiðdal lést 1. febrúar. Hún var fædd í Reykjavík 29. september 1913, dóttir Hjálmtýs Sigurössonar og konu hans Lucinde f. Hansen. Eftirlifandi eiginmaöur Maríu er Vilhjálmur Heiödal. Þau hjónin eignuðust fimm börn. Útför Maríu verður gerð frá Neskirkju í dag kl. 15. ÞURRKUBLÖÐIN VERÐA AÐ VERA ÚSKEMMD og þau þarf að hreinsa reglulega. Slitin þurrkublöð margfalda áhæftu í umferðinni. UMFERÐAR RÁÐ Háskólatónleikar Miðvikudaginn 13. febrúar kl. 12.30 verða Kraft-miklir tónleikar í Norræna húsinu. Þar koma fram Eiríkur Örn Pálsson sem leikur á trompet og Pétur Grétarsson á slagverk. Flutt verður amerísk samtíma- tónlist eftir William Kraft og Leo Kraft. Fundir Opinn fundur hjá íþróttalæknisfræðifélaginu Fundur verður haldinn fimmtudaginn 14. febrúar í húsnæði Í.S.Í. í Laugardal 2. hæð, veitingasal kl. 20. Fundarefni: Hvað er íþróttalæknisfræði? Hvemig nýtist hún íslensku íþróttafólki? Frummæl- endur: Janus Guðlaugsson iþróttakenn- ari, Jón Ingi Benediktsson, lífeðlisfræð- ingur, Gísli Einarsson, endurhæfmga- læknir, Gauti Grétarsson, sjúkraþjálfari og Öm Ólafsson stoðtækjafræöingur. KR-konur Fundur í kvöld, þriðjudagskvöld kl. 20.30 í Félagsheimilinu. ITC-deildin Harpa Heldur reglulegan deildarfund sinn í kvöld kl. 20 að Brautarholti 30, Reykja- vík. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar gefa Ágústa s. 71673 og Guðrún s. 71249. Tapað fundið Kvenveski tapaðist Svart kvenveski tapaðist fyrir utan fé- lagsheimilið Festi í Grindavík aðfaranótt sunnudagsins sl. í veskinu em gleraugu og fl. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 91-24569 eftir kl. 19. Leðurkápa tapaðist íbíl Stúlka tapaði brúnni leðurkápu í bíl sem útlendingar óku. Þeir tóku stúlkuna upp í bílinn fyrir utan Danshöllina laugar- dagsnóttina 2. febrúar. Finnandi vinsam- legast hringi í síma 679421. Gleraugu og linsur fundust Gleraugu í grænbláu hulstri og linsur í boxi fundust í strætisvagnaskýli á Hring- braut gegnt Landspitalanum um kl. 19 á sunnudagskvöldið sl. Upplýsingar í sím- um 687408 og 604355. Ráðstefnur Ráðstefna um opinber útgjöld Fjármálaráðuneytiö gengst fyrir ráð- stefnu í dag, þriðjudag kl. 13-17 um „Op- inber útgjöld: ísland í norrænu ljósi: - uppstokkun, nýjar aðferðir og endur- mat.“ Á ráðstefnunni verður reynt að líta á opinber útgjöld í nýju ljósi, velta fyrir sér hlutverki hins opinbera í framtíðinni og aðferðum sem bestar virðast til að leysa þann vanda sem blasað hefur við velferðarsamfélagi okkar á undanfóm- um aðhaldstímum. t Jarðarför mannsins mins og föður okkar, Viggós K. Ó. Jóhannessonar frá Jófríðarstöðum, Hlíöardal, Kópavogi, fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 13. febrúar . klukkan 13.30. Jarðsett verður i Görðum, Garðahverfi. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vildu minnast hans láti liknarstofnanir njóta þess. Rebekka ísaksdóttir og börn ,Hvað okkur varðar, þá eigum við fiskislóðirnar til framfærslu okkar litlu þjóðar...“ Þjóðin kýs Við höldum áöur uppteknum hætti í Þjóöarflokknum að berjast fyrir sjálfstæði lands og þjóöar, jafnrétti og sjálfstjórn héraða, frelsi einstaklinga og samtaka þeirra og að hver og einn fái og veröi að bera fulla ábyrð á orðum sínum og gerð- um. Það eru tæp 47 ár síðan viö ís- lendingar öðluöumst fullveldi eftir margra alda áþján undir erlendu valdi. Nú blása stjórnmálamenn og hagspekingar í uppgjafalúðra, þeir vilja selja sjálfstæði lands og þjóðar til Evrópubandalagsins fyrir niður- fellingu á tollum af fiskútílutningi okkar, sem mun nema um fjórum þúsundum króna á mann. Ekki er hægt aö segja að þeir verðleggi sjálfstæöi þjóðarinnar hátt. EB-löndin Það er öllum hugsandi íslending- um ráögáta aö á sama tíma og farið er að losna um þrúgandi miðstjórn- arveldi Austur-Evrópuþjóðanna þá er verið að hneppa Vestur-Evrópu í efnahagslega og menningarlega fjötra, þar sem lög stóra bróður veröa á öllum vettvangi gildandi yfir lögum hvers bandalagsríkis. Hvaö okkur varðar, þá eigum viö fiskislóöirnar til framfærslu okkar litlu þjóöar um ókomin ár, en ef skipta á þeirri auölegð á milli allra Evrópuþjóöanna er ég hrædd um að lítiö komi í okkar hlut eftir nokkur ár óg þá veröi skammtur- inn ekki stór, eða eins og hún amma mín sagði: „Það fær enginn stóran bita þegar skipta þarf einu kindarhjarta á milli tólf munna." Og þannig veröa fleiri jaðarsvæöi EB svelt og gert að verpa gulleggj- um, í formi hráefnis, fyrir hinar ríkari og öflugri þjóðirnar og þegar skorin er niður landbúnaðarfram- leiöslan í EB-löndunum þá verður þaö gert á jaðarsvæðunum og þeiin þjóðum gert aö kaupa landbúnað- arvörur frá þeim stóru og ríku. Þegar svo er komið aö jaðarþjóö- irnar htlu geta ekki lengur brauð- fætt sína þegna þá er ekki mikið eftir af sjálfstæöinu. Þetta ættu þeir stjórnmálamenn og hagspek- ingar okkar, sem nú renna hýru auga til glæsilegra embætta sér til handa hjá EB, að hugleiða og líta KjaUarinn Sigríður Rósa Kristinsdóttir fyrsti maður á lista Þjóðarflokksins á Austurlandi í komandi kosningum sveitarstjórnir, um sín heilbrigöis- og tryggingarmál, menntamál, samgöngumál, atvinnumál og orkumál. Ríkisbankar veröi lagðir niður og á grunni þeirra stofnaðir landshlutabankar sem sjái m.a. um húnsæðislán eftir aö Húsnæðis- stofnun hefur veriö lögö niður. Þegar búiö er að losa fjötra mið- stjórnarvaldsins þá eykst frelsi ein- stakhnganna og samtaka þeirra, þar með taka menn á sig ábyrgö orða sinna og gerða í ríkara mæli en nú er og gerast þá framtaks- samari, ábyrgari og betri þjóö- félagsþegnar. Þá er brýn nauðsyn aö jafna laun og lífsafkomu fólks. Við getum ekki, sem ein af ríkustu þjóöum heimsins, veriö þekkt fyrir aö láta láglaunafólk standa að mestum hluta undir hinni frægu „þjóðarsátt“, sem allir njóta góös af, á meðan lánastofnanir hækka vexti langt upp fyrir verðbólgustig ,,Viö getum ekki sem ein afríkustu þjóðum heimsins verið þekkt fyrir að láta láglaunafólk standa að mestum hluta undir hinni frægu „þjóðarsátt“, sem allir njóta góðs af.. til framtíöarinnar og láta þjóðar- hagsmuni ganga fyrir vanhugsuðu eiginhagsmunapoti. Við skulum því halda sjálfstæö- inu og semja á jafnréttisgrunni um okkar mál við aðrar frjálsar þjóðir. Þjóðin er að rumska Þjóðarflokkurinn berst fyrir sjálfstæði landshlutanna með til- komu þriðja stjórnsýslustigsins, þar sem sveitarfélögin eru grunn- einingar. Nú er svo komið að mestmegnis er framleitt úti á landsbyggðinni en nær öll þjónustan er komin á suðvesturhornið, þetta getur ekki gengið lengur. Þjóðarflokkurinn leggur til að sveitarstjórnir sjái um innheimtu allra skatta en ríki og landshlutastjómir fái greidda ákveðna prósentu af skatttekjum hvers sveitarfélags. Síðan sjái landshlutastjómir, í samráði við og sá sem safnaði sér löndum og lausum aurum á óverðtryggðu sparifé afa síns og ömmu og pabba síns og mömmu er'með skattfrían hagnað af fjármagninu og leggur þar með á börn sín og barnabörn að greiða lánskjaratryggð okurlán með allt of háum raunvöxtum. Nú vinnur Þjóðarflokkurinn að framboði í öllum kjördæmum landsins. Það er þjóðin sem er að rumska og bera fram sína stefnu opinskátt og heiðarlega. Við verðum að spyrna við nú, íslendingar, ef við viljum halda sjálfstæði þjóðarinnar, fá sjálfstæöi landshlutanna og ná jöfnuði í laun- um og lífsafkomu þegnanna. Þau okkar sem styðja þessa stefnu eru öll velkomin til starfa með Þjóðarflokknum. Þjóðin kýs. Sigríöur Rósa Kristinsdóttir Já... en ég nota yfirleitt beltið! UMFERÐAR RÁO

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.