Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1991, Side 3
MÁNÚDAGÚR 25. FEBRÍJÁR 1991.
dv Fréttir
Starfsmenn Bólholts vinna að undir-
búningi lagningar Ijósleiðara.
DV-mynd Ægir
Ljósleiðari á
Austfjörðum
Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði:
Að undanfórnu hafa starfsmenn
Bólholts á Egilsstöðum unnið við að
grafa rör í jörðu til undirbúnings
ljósleiðaralagningar milli Fáskrúðs-
íjarðar og Reyðarfjarðar hér innan
við þorpið. í sumar er svo áætlað að
plægja ljósleiðara í jörðu hér inn í
sveit og yfir Stuðlaheiði til Reyðar-
fjarðar en það verk á eftir að bjóða út.
Fara ísfirð-
ingar í lax til
Grænlands
Hlynur Þór Magnússon, DV, ísafirði:
Nokkrir fulltrúar frá Nanortalik,
vinabæ ísafjarðar á Grænlandi, voru
fyrir skömmu í kynnisferð á Ísaíirði.
Þeir nutu leiðsagnar Björns Helga-
sonar íþrótta- og æskulýðsfulltrúa
og heimsóttu ýmis fyrirtæki og stofn-
anir. Þá sátu gestirnir fund með
bæjarráði ísafjaröar.
Rætt var þar um möguleika á að
auka ferðalög ísfirðinga til Græn-
lands, til dæmis til lax- og silungs-
veiða. Kom fram að auðvelt ætti að
vera að koma á slíkum ferðum. Þá
var ijallað um þann samdrátt sem
orðið hefur í komum grænlenskra
rækjutogara til ísafjarðar og hvort
eitthvað væri hægt að gera til að
bæta þar úr. Fram kom að miklar
breytingar hafa orðið á fiskveiðum
Grænlendinga og hefur m.a. samein-
ing útgeröarféíaga leitt til fækkunar
togara sem stunda veiðar við Aust-
ur-Grænland.
ÞórhaBur Asmunds., DV, Sauðárkróki:
Rækjumiðin í Skagafirði komu
vel út við könnun fiskifræðinga
sjávarútvegsráðuneytisins ■ ný-.
lega. Leytð var veiði 200 tonna til
viöbótar og mun sá kvóti duga
vinnslunni í Dögun fram í apríl.
Þrir bátar eru á rækjunni: Jök-
ull, Sandvík og Þórir.
Vinnslan er komin á fullt í Dög-
un fyrir nokkru eftir daufan jan-
úarmánuð og flestir þeir, sem
sagt var upp fyrir áramótin,
komnir til starfa að nýju. Vel
hefur víðrað fyrir bátana til veiða
og þeir geta auðveldlega náð þeim
20 tonnum yfir vikuna sem
vinnslan i Dögun þarfnast.
iiiíii's: -ri
er lokadagur pantana í 1. hluta
Samningur á milli Innkaupastofnunar ríkisins, Radíóbúðarinnar/Apple-umboðsins
og Apple Computer hefur nú verið endurnýjaður og er þetta fjórða árið sem
ríkisstofnununi og starfsmönnum þeirra og Háskólastúdentum gefst kostur á að
kaupa tölvur, búnað og forrit með verulegum afslætti.
Nú í íyrsta sinn gefst kostur á að kaupa eina af nýju tölvunum, sem voru kynntar
í vetur, Macintosh LC á aðeins 167.655,- kr. með lyklaborði og sv/hv skjá
eða 184.815,- kr. með litaskjá. Ennfremur er verð Macintosh Classic-
tölvanna sérlega hagstætt, frá 71.556,- kr.
Pantanir berist í síöasta lagi 5. mars
til Agnesar Vilhelmsdóttur hjá
Innkaupastofnun ríkisins,
Borgartúni 7, s: 91-26844
Radíóbúðin hf.