Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1991, Page 11
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1991.
11
Útlönd
Eduard Sévardnadze
í nýju starf i
Fyrram utanríkisráöherra Sovét-
ríkjanna, Eduard Sévardnadze, kom
í síöustu viku í fyrsta sinn opinber-
lega fram frá því aö hann sagði óvænt
af sér í desember síðastliðnum. Hann
er nú formaður nýmyndaðra sov-
éskra samtaka um utanríkismál sem
hafa það að markmiði að setja á lagg-
irnar óháða utanríkismálastofnun í
Moskvu.
Eduard Sévardnadze, sem er 62
ára, sagði óvænt af sér embætti 20.
desember síðastliðinn eftir margra
mánaða baráttu harðlínumanna
gegn stefnu hans í utanríkismálum,
þar á meðal afstöðu Sovétríkjanna í
Persaflóadeilunni. í kveðjuræðu
sinni lýsti Sévardnadze reyndar yfir
stuðningi við Gorbatsjov en sagði
samtímis að einræðisöfl væru að ná
undirtökunum í landinu.
Sévardnadze segir hættuna á ein-
ræði jafnmikla nú og fyrir tveimur
mánuðum. Hann hefur ekki viljað tjá
sig um kröfu Boris Jeltsin, forseta
Rússlands, um afsögn Gorbatsjovs.
Að undanfórnu hefur Sévardnadze
fengið fjölda boða um að halda fyrir-
lestra í Sovétríkjunum og utanlands
en hingað til hefur hann einbeitt sér
að stofnun hinna óháðu utanríkis-
pólitísku samtaka, FPA. Um þrjátíu
sovéskfélög, stjórnarerindrekar, vís-
indamenn og menningarvitar hafa
lýst yfir stuðningi við samtökin.
Frá og með komandi hausti verður
Sévardnadze yfirmaður utanríkis-
málastofnunarinnar þar sem stund-
uð verða meðal annars rannsóknar-
störf. TT
Eduard Sévardnadze, fyrrum utanríkisráðherra Sovétríkjanna, er nú formað-
ur nýrra utanríkispólítískra samtaka í Sovétríkjunum. Símamynd Reuter
Sandínistar enn áhrifa-
miklir í Nicaragua
Nú, réttu ári eftir sigur Violeta
Chamorro og UNO-bandalagsins í
kosningunum í Nicaragua, hafa
sandínistar enn talsverð áhrif í
stjórnmálum landsins. Ágreining-
ur ríkir hins vegar um hvert hlut-
verk þeirra eigi að vera í framtíð-
inni.
Ýmsir stjórnmálafræðingar segja
að það sé ekki spurning um hvort
flokkur sandínista klofni heldur
hvenær og hvernig. Aðrir segja að
flokkur sandínista sé eina vel
skipulagða stjórnmálahreyfingin í
landinu og að flokkurinn bíði bara
og láti stjórn UNO-bandalagsins
um ábyrgðina á því slæma ástandi
sem ríkir í landinu.
Sandínista greinir á um hvort
flokkur þeirra eigi að vera þing-
flokkur með lýðræðislegu skipu-
lagi eða hvort leggja eigi meiri
áherslu á aðrar byltingarkenndari
baráttuaðferðir.
Sjálf reynir Chamorro að sætta
stríðandi öfl, eins og til dæmis hóg-
væra sandínista og róttæka félaga
í hennar eigin bandalagi. Nic-
aragua er í raun stjórnað af meiri-
hlutablokk á þingi, fulltrúum
sandínista og meirihluta UNO. í
andstöðu eru nokkrir félagar í
UNO, undir forystu Godoy varafor-
seta.
Flokkur sandínista hefur enn
mest fylgi. Samkvæmt niðurstöð-
um nýrrar skoðanakönnunar nýt-
ur hann fylgis 25 prósenta kjósenda
en UNO 17. Fylgi beggja flokka
hefur þó minnkað en óákveönum
fjölgað. Þeir eru nú 50 prósent.
Efnahagsástandið í Nicaragua er
afar slæmt. Fjárhagsaöstoð frá
Sovétríkjunum og Austur-Evrópu,
sem nam allt að milljarði dollara á
ári, er nú nær engin. Bandaríkin
eru sögð lítið hrifm af málamiðlun-
um Chamorros við sandínista og
hafa þau aðeins látið af hendi
rakna lítinn hluta þeirrar 500 millj-
óna dollara aðstoðar sem þau lof-
uöu. Erlendar skuldir Nicaragua
eru nú tíu milljarðar dollara, at-
vinnuleysið er 50 prósent og verð-
bólgan ógnvekjandi. Með hliðsjón
af þessu þykir ekki undarlegt að
þeim sem vita ekki hvaða flokk
þeir eigi að styðja fjölgi.
NTB
omRon
SJÓDSVÉLAJt
Gera meira
en að uppfylla
kröfur
s
t fjármálaráðuneytisins.
j Yflr 15 gerðir fyrirliggjandi
Verð frá kr. 29.800.-
SKRIFSTOFUVÉLAR sund hf
NÝBÝLAVEGI16 - SÍMI 641222
-lækni og |»jóim.sla á Irausluni grunni
Úr leigubil
í holræsi
Ungri sænskri stúlku brá þegar
vinur hennar hvarf sjónum hennar
um leið og hann steig út úr leigubíln-
um sem þau höfðu ekið í heim undir
miðnætti á fóstudagskvöldi. Leigu-
bílstjórinn varð ekki minna undr-
andi.
Að sögn lögreglunnar hafði ungi
maðurinn stigið beint niður í holræs-
isbrann sem lokið hafði líklega færst
af er verið var að ryðja snjó.
Kalla þurfti á slökkviliðið til að
bjarga manninum sem stóð í skólpi
upp í háls. Hann skrámaðist aðeins
lítillega við fallið.
Færeyjar:
Fæðingar-
orlof stytt
Fæðingarorlof kvenna hjá stærsta
útflutningsfyrirtæki Færeyja, Föro-
ya Fiskasöla, hefur verið stytt um
tólf vikur. Ný stjórn tók viö í fyrir-
tækinu um áramótin og síðan hefur
fjölda manns verið sagt upp. Auk
þess hafa verið gerðar ýmsar breyt-
ingar og ein þeirra er stytting fæð-
ingarorlofs.
Nú eiga konur, sem starfa hjá fyrir-
tækinu, aðeins rétt á átta vikna fæð-
ingarorlofi á hálfum launum miðað
við tuttugu vikur á fullum launum
áöur. Stjórn fyrirtækisins hefur
einnig hótað að reka fjórar barns-
hafandi konur.
Árið 1988 voru sett lög í Færeyjum
sem kveða á um rétt allra kvenna til
dagpeninga í tuttugu og sex vikur í
sambandi við barnsfæðingu. Það eru
hins vegar aðeins þær konur, sem
starfa hjá hinu opinbera, sem hafa
tryggt sér svo langt orlof með samn-
ingum. Konurnar hjá Föroya Fiska-
söla eru ekki í stéttarfélagi og getur
því atvinnurekandinn stuðst við lög
frá 1958 en þau kveða á um aðeins
átta vikna fæðingarorlof á hálfum
launum. Samkvæmt þeim lögum er
atvinnurekanda einnig heimilt að
reka bamshafandi konur.
PAJERO stuttur, árg. 1987, ekinn 40 þ.
km, 5 gira, 30" dekk o.fl. Ath. skipti á
ódýrari. Verð 1250 þús.
COROLLA 1300XL liftback, árg. 1988,
ekinn 50 þ. km, 5 gira, aukadekk o.fl.
Ath. skipti á ódýrari. Verð 810 þus.
SUBARU 1800 ST 4x4, árg. 1988, ekinn
39 þ. km, 5 gíra, rafrúður, o.fl. Ath. skipti
á ódýrari. Verð 1060 þús. Eigum allar
árgerðir af Subaru.
FORD BRONCO II XLT, árg. 1984, ekinn
60 þ. km, sjálfskiptur, upphækkaður, 31"
dekk o.fl. Ath. skipti á ódýrari, verð 960
þús. Eigum einnig árg. 1987 og 1988.
SUBARU 1800 coupé 4x4, árg. 1988, ek-
inn 41 þ. km, sjálfskiptur, 135 hö., álfelg-
ur, aukadekk, topplúga o.fl. Ath. skipti á
ódýrari. Verö aðeins 1230 þús.
SUBARU JUSTY J12 4x4, árg. 1990, ekinn
5 þ. km, 5 gira, 5 dyra. Aðeins bein sala.
Verð 800 þús. Eigum einnig árg. 1989.
CITROEN AX 14TRS, árg. 1988, ékinn 30
þ. km, 5 gíra, aukadekk o.fl. Ath. skipti á
ódýrari. Verð 550 þús.
SUBARU LEGACY 1800 ST 4x4, árg.
1990, ekinn 15 þ. km, 5 gira, rafrúður
o.fl. Ath. skipti á ódýrari. verð aðeins
1380 þús. Eigum einnig Legacy sedan,
árg. 1990.
MERCEDES BENZ190E, árg. 1984, ekinn
97 þ. km, beinskiptur, álfelgur, leðurá-
klæði o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verð 1050
þús.
NISSAN SUNNY 1500 SLX sedan árg.
1987, ekinn 57 þ. km, sjálfskiptur, vökva-
stýri o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verð 580
þús. Eigum allar árgerðir af Nissan
Sunnyi
LADA SPORT, árg. 1988, ekinn 37 þ. km,
5 gíra, léttstýri o.fl. Ath. skipti á ódýrari,
góð kjör. Verð 490 þús.
MMC LANCER 1500 GLX, árg. 1988, ek-
inn 50 þ. km, sjálfskiptur, samlæsing o.fl.
Ath. skipti á ódýrari. Verð 710 þús.
NISSAN PATHFINDER 3,OSE, árg. 1988,
ekinn 60 þ. km, sjálfskiptur, álfelgur,
sportpakki, topplúga o.fl. Ath. skipti á
ódýrari. Verð 1850 þús. Eigum einnig
Pathfinder 2,4, árg. 1988. Verð 1600 þús.
DAIHATSU FEROZA EL-II króm, árg.
1990, ekinn 13.000 km, 5 gira, upphækk-
aður, brettakantar, krómfelgur o.fl. Ath.
skipti á ódýrari. Verð 1380 þús. Eigum
sams konar óbreyttan, árg. 1990. Verð
1270 þús.
NISSAN BLUEBIRD 2000SGX dísil árg.
1989, ekinn 80 þ. km, 5 gira, rafrúður,
samlæsing o.fl. Ath. skipti á ódýrari.
Verð 1050 þús. Eigum einnig Bluebird
bensfn, árg. 1989.
VW GOLF SKY, árg. 1988, ekinn 50 þ.
km, 5 gíra, aukadekk o.fl. Ath. skipti á
ódýrari, verð 760 þús.
YFIR 100 BILAR A STAÐNUM!
EIGUM TÖLUVERT ÚRVAL AF BÍLUM MEÐ ENGRI ÚTBORGUN!
BÍLAHÚSIÐ
BÍLASALA
Sævarhöfða 2, sími 67 48 48. í húsi Ingvars Helgasonar.
Ritzau