Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1991, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 1991.
5
Fréttir
Frá kosningaskrifstofu Davíðs Oddssonar.
DV-mynd S Frá kosningaskrifstofu Þorsteins Pálssonar.
DV-mynd Brynjar Gauti
Annir á kosningaskrifstofum Davíðs og Þorsteins:
Mikil bjartsýni ríkjandi
„Könnun ykkar gefur sterka vís-
bendingu um stöðuna eins og hún
er. í fyrsta lagi finnst mér þessi könn-
un sýna að ótti margra sjálfstæðis-
manna í þá veru að átök um formann
flokksins hefðu áhrif á fylgi hans sé
ástæðulaus. Flokkurinn bætir við sig
fylgi. Þá svara tveir hópar einni
spumingu. Þar er hópurinn sem
skipta mun máli á landsfundi en þá
gefum við okkur að landsfundarfull-
trúar séu ágætt úrtak þeirra sem
kjósa munu Sjálfstæðisflokkinn um
land aUt. Fylgi þessa hóps skiptist
jafnt milli Davíðs og Þorsteins viku
eftir að Davíö gaf kost á sér. Það er
töluverð sveifla á einni viku en til-
finning manna fyrir viku var að Dav-
íð hefði 30-35 prósent fylgi. Mér
flnnst allt benda til að þessi sveifla
haldi áfram þar sem tilfmningar eru
farnar úr máhnu og tekin er efnisleg
afstaða til framtíðarinnar. Ég óttast
ekki það mat. Loks kemur það fram
að þeir sem kjósa ekki Sjálfstæðis-
flokkinn vilja frekar Þorstein Páls-
son. Það má leggja út af því hvernig
sem menn vUja en ég hallast að því
að þetta sé traustsyfirlýsing við Dav-
íð Oddsson. í Sjálfstæðisflokknum
hefur það virkað vel ef andstæðing-
arnir hafa ekki viljað mann,“ sagði
Friðrik Friðriksson, talsmaður
stuðningsmanna Davíös Oddssonar,
við DV.
„Ég held að það þurfi að gæta þess
að skoðanakönnunin er ekki úr hópi
landsfundarfuUtrúa og því ekki mjög
sterk visbending um hvað gerast
muni á sjálfum landsfundinum.
Könnunin staðfestir það sem við höf-
um fundið undanfarna daga að vax-
andi stuðningur er við Þorstein Páls-
son. Mér flnnst mjög athyglisverð
þessi forysta hans meðal óákveðinna
kjósenda. Hún kemur heim og saman
við það sem við höfum verið að finna.
Viö erum því hóflega bjartsýn. Það
eru enn sex dagar til kosninganna á
landsfundinum og margir fulltrúar
hafa ekki gert upp hug sinn. Eftir að
Davíð tilkynnti um framboð sitt tóku
ákveðnir landsfundarfulltrúar að
móta afstöðu til hans og hann fékk
fylgi. Seinni hluta vikunnar og yfir
helgina höfum við hins vegar fundið
aö fylgið er aftur að renna til Þor-
steins Pálsonar. Það er tilfmning mín
að Þorsteinn hafi forskot á Davíð,“
sagði Víglundur Þorsteinsson, tals-
maður stuðningsmanna Þorsteins
Pálssonar.
Aðspurðir um hvernig unnið væri
á kosningaskrifstofunum svöruðu
bæði Friðrik og Víglundur því til að
stuðningsmenn kæmu í heimsókn og
málin væu rædd. Hringt væri i
stuðningsmenn um landið og reynt
að kortleggja landsfundinn eins langt
og það nú næði. Kom fram að enn
væru margir landsfundarfulltrúar
óákveðnir og afstaða margra réðist
fyrst á fundinum eftir ræður fram-
bjóðendanna.
-hlh
-institut
der euro-sprachschulen gmbh
Lærið þýsku í Þýskalandi
deutsch in deutschland
german in germany
Fjórða árið í röð hefjum við samstarf við fyrirtækið „Deutsch Institut im
Deutschland", DID, sem rekur þýskuskóla víðs vegar um Þýskaland. Er
um að ræða skóla sem kenna útlendingum þýsku. Almennir ársskólar, sem
hægt er að sækja hvenær sem er á árinu, sumarskólar ætlaðir unglingum
og eru þá oft íþróttir stundaðar jafnframt þýskunáminu. Þá eru ýmis sér-
hæfð námskeið fyrir þá sem vilja rifja upp þýskuna, önnur fyrir þá sem,
ætla sér að bæta við sig sérhæfðri þýsku, svo sem við rekstur fyrirtækja,
viðskipti, lögfræði, svo að nokkuð sé nefnt.
Öll eru þessi námskeið stutt og þurfa nemendur að hafa nokkra kunn-
áttu fyrir. Þá er hægt að tvinna saman ferðalög og þýskunám yfir sumar-
ið o.s.frv. Við fljúgum með Flugleiðum til Frankfurt eða Hamborgar yfir
sumarið en einnig er hægt að fljúga til Amsterdam eða Lúxemborgar, allt
eftir því hvað hentar best fyrir þann stað í Þýskalandi sem valinn er til
náms en þeir eru alls 34. Við sendum ítarlega bæklinga og verðlista til
þeirra er þess óska.
Ferðafréttir eru að koma út og verða sendar út í lok vikunnar. Við minn-
um á ferðir okkar til Kanaríeyja allt árið. Flogið um London. Hótel
Koka Playa del Ingles.
Á Kanaríeyjum er eilíft sumar allt árið. Þú getur farið hvenær sem þú
vilt, dvalist eins lengi og þú vilt.
Þá skipuleggjum við ferðir til Tenerife, Palma del Americas hvenær sem
er. fbúðir, Club Mare Verde.
Búlgaríuferðir alla þriðjudaga frá 28. maí.
Enskuskólar í Englandi, þýskuskólar í Þýskalandi og frönskuskólar í
Frakklandi.
Jersey, Ermarsundseyjan veðursæla og margt fleira.
Fáið ykkur bæklinga og verðlista, hringið eða komið.
- Við sendum bæklinga.
Ferðaskrifstofa Kjartans Helgasonar hf. 8-17 mánud.-föstud.
Gnoðarvogi 44, Reykjavík, sími 91-68-62-55 Laugardaga 9-12
Hotel Career Centre
í Bournemouth, Englandi
er hótel- og veitingaskóli. stofnaður 1972, en>
jafnframt er kennt allt er við kemur ferðaskrif-
stofurekstri.
Skólinn er opinn nemendum á öllum aldri.
Hann nýtur almennrar viðurkenningar og
hefur á að skipa færum kennurum á hverju
sviði.
Hægt er að taka fullt nám í 1 eða 2 ár en einn-
ig skemmri eða lengri námskeið fyrir þá sem
vilja sérhæfa sig í einhverju sérstöku eða end-
urmennta sig.
Skólinn veitir viðurkenningu að afstöðnum
prófum sem veita atvinnuréttindi. Fjöldi at-
■ vinnufyrirtækja víðs vegar að, sem er að leita
að góðum starfskröftum, leitar til skólans.
Bæklingar og verðlistar sendir.
Kynningarfundur
verður á Hótel Loftleiðum laugardaginn
9. mars kl. 14. Skýrt verður frá skólum
sem kenna ensku, þýsku og frönsku.
Auk þess mun ungfrú Soffía Stefánsdóttir,
starfsstúlka Flugfraktar, sem verið hefur
á hótel- og ferðamálaskólanum, skýra frá
honum.
Þá mun Nicholas Keeping frá enskuskól-
unum Harrow House mæta.
Sýnd verður videospóla frá enskuskólun-
um. Opið öllum.