Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1991, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 1991.
9
Víetnamskt barn i flóttamannabúö-
um í Thailandi. Barnið ber spjald
þar sem mótmælt er drápi á ví-
etnömskum unglingum.
Simamynd Reuter
Thalland:
Víetnamskir
unglingar
skotnirtilbana
í f lóttamanna-
búðum
Thailenskir hermenn skutu til
bana tvo víetnamska unglinga og
særöu fimm er til átaka kom í flótta-
mannabúðum austan viö Bangkok í
gær.
Um þrjú hundruð hermenn vopn-
aðir sjálfvirkum rifflum og byssu-
stingjum skutu á flóttamenn sem
efnt höfðu til óeirða í kjölfar orðróms
um aö flytja ætti flóttamennina aftur
til Víetnam. Um fimmtán Víetnamar
voru handteknir.
Um þúsund flóttamenn settust við
vegarkant utan við flóttamannabúð-
ir, kveiktu elda og héldu á lofti
spjöldum þar sem hvaft var til að
hætt yrði að skjóta á víetnamska
unglinga. Fullyrtu flóttamennimir
að þeir væru engir óeirðaseggir og
væru ekki að mótmæla gegn thai-
lenskum yflrvöldum. Um væri að
ræða friðsamlegar mótmælaaögerðir
og kröfur um betri skilyrði.
í _ flóttamannabúðunum Phanat
Nikhom austan við Bangkok eru yfir
23 þúsund flóttamenn frá Indókína.
Um 14 þúsund þeirra eru Víetnamar
. og hefur flestum þeirra verið neitað
um búsetu í Thailandi.
Á sunnudaginn og mánudaginn
brutust hundrað víetnamskra flótta-
manna út úr búðunum og grýttu far-
artæki er óku framhjá og thailenska
hermenn. Thailenskir embættis-
menn ætla að hitta í dag tuttugu full-
trúa flóttamannanna og ræða vanda
þeirra. Reuter
Otranto á Ítalíu:
Neyðarástand
vegnakomu
albanskra
flóttamanna
í hafnarborginni Otranto á Ítalíu
var í gær lýst yfir neyðarástandi
vegna komu hundruða albanskra
flóttamanna. Embættismenn í Otr-
anto kröfðust þess að yfirvöld í Róm
hefðu meiri afskipti af þeim níu
hundruð Albönum sem fiúið hafa til
Otranto á skipum frá því að mótmæl-
in gegn kommúnistastjórninni hóf-
ust 21. febrúar.
Flestir Albananna, sem flýja að
næturlagi, hafa komið.til Otranto en
nokkrir til Brindisi. Næstum allir
hafa fengið húsaskjól í nærliggjandi
hótelum og skólum. En aðstæðurnar
í Otranto, þar sem aðeins eru fimm
þúsund íbúar, eru erflðar. Á sunnu-
daginn komu þangað fimm hundruð
þrjátíu og fimm Albanir á einu skipi
og nokkrum klukkustundum seinna
komu þrjátíu og fimm vopnaðir lið-
hlaupar á báti. I gær komu svo þrett-
án Álbanir til viðbótar. Tíu þeirra
báðu um pólítískt hæli.
Reuter
Utlönd
Veikin komin til Ekvador
5pu, þar á meðal íslands
Kólerufaraldurinn, sem geysað
hefur í Perú síðustu mánuði, breið-
ist nú út í Suður-Ameríku og er
kominn til Ekvador. Kólera hefur
ekki náð að breiðast út í álfunni
áður á þessari öld.
í Ekvador hefur veikinnar orðið
vart i tveimur smáþorpum við
landamæri Perú. Báðir staðimir
hafa verið settir i sóttkví í von um
að takast megi að hefta úrbreiðslu
veikinnar um landið.
í Perú varð kólera fyrst vart í
janúar og hefur heilbrigðisyfir-
völdum ekki tekist að ráða niður-
lögum hennar. Nú er vitað að 45
þúsund menn í Perú hafa sýkst en
þó ekki nema 200 látist.
Heilbrigðisráðherrar i öllum ná-
lægum löndum hafa komið saman
til fundar til að ræða aðgerðir gegn
veikinni. í síðasta mánuði var allur
innflutningur frá Perú til Ekvadors
bannaður en það virðist ekki hafa
dugað.
í Evrópu er innnflutningur mat-
væla frá Perú bannaður til nokk-
urra landa. Þar á meðal er ísland.
Kólera berst einkum milli manna
með menguðu vatni og einnig er
algengt að fólk sýkist eftir að hafa
neytt sjávarafurða. Veikin er mjög
skæð þar sem fólk er illa haldið
fyrir af vannæringu og hreinlfeti
lítið.
Reuter
S^c^orecH E/icTOTecH E ^c^QTecH E ^CTOTecH E^GTOrecH E ^ororecH P2 <^c;oTecH <^o?arecH ^crerecH S^c^orecH S
0
0
0
0
0
x
s
0
0
0
0
0
0
0
0
0
^CROTeCH
Hágæða tölvur - einstakt verð
Dæmi um verð:
286 AT16 MHz Kr. 134.100,-
386SX16MHz Kr. 159.900,-
Innifalið í verði: Virðisaukaskattur,
Super VGA litaskjár, 40 Mb harður diskur og MS-DOS 4,01.
Greiðsluskilmálar til allt að 30 mánaða
Acrotech
Einfaldlega betri tölvur og betra verð
Balti hf., Ármúla 1, sími (91) 82555
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
^QgQTecH B^teoréCH B^ororecH B^crorecH B^crorech B^orerecH B./foorecH B>1c?orecHB/IcxnecH gjj./jororecH gj