Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1991, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1991, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 5, MARS 1991. Lesendur Afborgun af lífeyrisláni hjá VR: Hagsmunir fyrir borð Spumingin Hefurðu farið í litgreiningu? Ragnar Magnússon kennari: Nei, aldrei, ég hef ekki áhuga. Kristín Þorsteinsdóttir bókavörður: Nei, ég treysti minni eigin dóm- greind. Kristín Rós Björnsdóttir nemi: Nei, en ég gæti vel hugsaö mér að fara. Erna Héðinsdóttir nemi: Nei, ég hef aldrei farið en ég hef áhuga á að fara. Bjarni Sumarliðason iðnverkamað- ur: Nei, aldrei. Ég hef engan áhuga á því. Ólafur Oddsson, starfsmaður Rauða Kross íslands: Nei, ég hef ekki fariö en ég tel eðlilegt að fólk hafi áhuga á slíku, það gerir tilveruna litríkari. Margrét Sigr. Sölvadóttir skrifar: Lesandi góður. Tilefni þessara skrifa er samtal mitt við starfsmann hjá Verslunarmannafélagi Reykja- víkur. Ég hringdi til að fá upplýsing- ar um hve margar afborganir væru eftir af láni sem ég er greiðandi af, en lánið var tekið 1981, að upphæð kr. 114.000 krónur. - Afborgun í ár er kr. 80.432,- og byggist á eftirfar- andi: afborgun 4.560 kr„ vextir 1.459,20 kr„ verðbætur á afborgun 56.373,55 kr„ verðbætur á vexti 18.039,25 kr. eða samatals kr. 80.432,-. Eftirstöðvar eftir þessa greiðslu eru kr. 68.400,- en með verðbótum kr. 914.003,19! Og sú er upphæðin, sem ég þarf að greiða, vildi ég greiða lá- nið upp, en 15 ár eru eftir af lánstim- Árni Þór Dagbjartsson skrifar: Það er eitt brýnasta hagsmunamál sjómanna og aðstandenda þeirra, og ætti einnig að vera þjóðarinnar allr- ar, að fjárfesta í góðri björgunar- þyrlu sem getur innbyrt a.m.k. eina togaraáhöfn. Þetta ættu ráðamenn að leggja áherslu á, frekar en t.d. skopparakringlur og bragga úti i tjörnum. Slíkar byggingar gera lítið annað en auka skrifstofubáknið en sýna þó að það er ekki vegna fjárs- korts sem björgunar- og öryggismál sjómanna eru í ólestri. Málið er, held ég, að það er ekki pólitískur vilji til að framkvæma þessa sjálfsögðu þjónustu fyrir sjó- R.S. skrifar: Mér finnst ástæða til þess að lýsa óánægju minni á breytingum á Sæ- brautinni í Reykjavík og hvernig stýringu umferðarljósa við götuna er háttað. Þannig er að þegar maöur kemur Ég hafði á orði að mér þætti það ískyggilegt hve afborganimar af þessu láni hækkuðu mikið ár hvert. Starfsmaðurinn svaraði því til aö það héldist í hendur, meðallaun á mán- uði og afborgun á ári af þessum lán- um. Eg spurði þá hvort Verslunar- mannafélagið héldi því fram að þeir sem í VR væru hefðu almennt yfir 80.000 kr. á mánuði. - Það hélt starfs- maöurinn og hafði aö rökum að eng- inn fengi greitt samkvæmt taxta! Eg spurði þá hvort VR semdi um taxta með þetta í huga. Starfsmaðurinn kvað svo vera og mætti hafa þaö eft- ir sér. Nú vil ég taka fram að starfsmaður þessi var mér sammála um að laun væru almennt pf lág hjá fólki í versl- unarstéttinni. Ég gat hins vegar ekki menn, sem þó afla meginhluta þeirra tekna sem þjóðin hefur úr að moða. - Nei, þeir eru ekki meiri menn en það að þeir vilja bara taka viö en ekki gefa til baka. Það sýnir kannski glöggt hve mik- inn „skilning“ þetta brýna mál hefur hjá almenningi, þegar maður les grein eins og einhver Þórður sendi í DV og birtist mánud. 25. febr. sl. Sú grein sýnir fádæma skilningsleysi á þessum málefnum eftir að vélbátur- inn Steindóri GK strandaði á mjög hættulegum stað, undir þverhníptu bjargi i sjó fram. - Mesta mildi að að ekki var þó verra veður þama. Áhafnir björgunarþyrlunnar ís- akandi eftir áður umræddri götu og ætlar að beygja til vinstri á ljósunum (gildir nú jafnt um öll ljós götunnar) þá þarf yfirleitt að bíða svo lengi að maður er orðinn óður af bræði þegar maður loks fær grænt ljós til að fara yfir. Tímalengd ljósanna er alltof hætt að hugsa um þetta og hringdi þvi í stórmarkað hér í borg og spurði um byrjunarlaun í afgreiðslustörfum þar. Þau voru kr. 43.918,- og ef starfs- maður starfaöi við „kassa“ væri greitt 10% að auki, eða kr. 48.310,-. Hveijir eru lántakendur í Verslunar- mannafélaginu? Þetta fólk m.a. Einhver röggsamur stjórnmála- maður hlýtur að taka á þesum mál- um, þessari vitleysu sem verðbættu, vísitölutryggðu lánin eru sem voru tekin á árunum 1981-1985 og eru úr tengslum við raunveruleikann? Hugsum okkur að allir óánægöir félagsmenn í þessum félögum segðu sig úr þeim og fengju í launaumslag- ið þaö sem lífeyrissjóðimir taka, að viðbættu því sem áður fór í félags- gjöld? Það væri dágóð launahækkun. lensku og bandarísku eiga mikinn heiöur skilið fyrir afrek sín og má ekki gera lítið úr því. Þeir menn, sem vinna á þessum björgunartækjum, eru sannkallaöar hetjur og hika ekki við að leggja sjálfa sig í stórhættu fyrir aðra. Eg efast um að menn eins og Þórður myndu gera slíkt hið sama. Hann myndi þó ef til vill þiggja aðstoð væri hann á skipi er hefði strandað einhvers staðar í beljandi broti undir bjargi. - Ég er hræddur um að hann og hans líkar myndu þá ekki tala svo stórkarlalega, heldur heimta „þyrlu strax“. mikil og stundum kemur fyrir að það er sleppt úr einu beygjuljósi. í lítilii umferð er þetta alveg óþolandi, ásamt biðinni, oft og tiðum í engri umferð, ótrúlega langri. Sem dæmi vil ég nefna að eitt skipt- iö beið ég í tæpar fjórar mínútur til komast af Snorrabrautinni og inn á Sæbraut. Að mínu mati hlýtur svona ljósakerfi að vera óhemju hvetjandi til þess að menn aki yfir á rauðu ljósi, vegna of langrar tafar. Þar með hlýtur aö vera komin ein slysagildr- an enn af völdum slæmrar hönnunar á gatnakerfi borgarinnar. Einnig langar mig aö geta þess að það er óþolandi að ekki skuli vera hægt að komast af Skúlagötu og Borgartúni og suður Snorrabraut. Þar sem ég á heima þama í hverfinu og fer mikið þama um fer þetta all- verulega í taugarnar á mér og fmnst mér íbúar hverfisins hafa verið lok- aðir inni og þvingaðir til þess að aka lengri og óskemmtilegri leiöir. Skora ég á yfirvöld gatnamála í Reykjavík að gera nú eitthvað til þess að lagfæra umferðarmenningu við þessar götur borgarinnar, svo að allir geti verið ánægðir og ekið um án þess aö þurfa að ergja sig yfir löngum biðtíma og lokuðum götum. Helgi Siguijónsson skrifar: Leikrítaval Þjóðleikhússins hefur á seinni árum verið mun lakara en það sem Leikfélag Reykjavikur hefur boðið upp á og jafnvel önnur hin minni leik- hús, bæði hér í Reykjavík og sums staöar á landsbyggðinni, t.d. á Akureyri. En nú opnar musteri listanna sínar dyr von bráöar eftir dýrar og viðamiklar viðgerðir og hvað býður það manni upp á sem eins konar opnunarverk? Jú, Pétur Gaut! Ég segi nú bara fyrir mig „Úff!“ Ekki Pétur Gaut, þetta drepleiðinlegasta verk ailra verka að minu mati. - Þessi áfergja aö troða hér upp Pétri Gaut eða Shakespeare meö reglu- legu millibili, það er ekki til fagn- aðar, nema fyrir þröngan hóp áhugamanna um ljóðræna ffam- setningu á leikverki. meðVISA L.P. skrifar: Ég er eins og margir aörir ís- lendingar viðskiptavinur VISA ísland. Ég hef ekki nema allt gott um þaö fyrirtæki að segja og líkar vel sú þjónusta sem það veitir, En oft er galli á gjöf Njarðar sem á þó ekkert skylt við Visa-þjón- ustuna annað en „samflotið". Með reikningsuppgjöri fyrir- tækisins fylgja oft ýmsar upplýs- ingar, nytsamar ef þær eru um starfsemi og þjónustu fyrirtækis- ins, en leiðinlegar ef þær flokkast undir eitthvert „átakið“ eða áróð- ur fyrir hitt og þetta málefnið sem er á döfinni. Nú síöast fylgdi miði um átak fyrir byggingu Tónlist- arhúss. Þetta er margþvælt efni í umræöunni ogtnér finnst frekar ami að þessum lausblaðasending- um sem fylgja annars nauðsyn- legum pósti frá Visa. Háttvísi prýðir formann Friðrik Guðmundsson skrifar: Af þeim umræðum og áróðri, sem nú ber'hæst varðandi vænt- anlegt formannskjör í Sjálfstæð- isflokknum, sýnist mér sem nið- urstaða þessara kosninga ráðist af því hvemig haldið er á málum af keppinautunum, en ekki síöur af þeim er vinna fyrir þá hvorn fyrir sig - og þá á ég við bæði leynt og ljóst, í fjölmiðlum og samtölum viö kunningjana. Ég held aö það sé einhvers kon- ar hefö innan Sjálfstæðisflokks- ins aö líta á formann flokksins sem landsföðurlegan fyrirliða. Þaö þýðir svo aftur að sá hinn sami verður aö hafa ýmsa kosti til brunns að bera. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur verið heppinn með slíka formenn til þessa. - Háttvísi og einarðleiki hefur gjaman fylgt þessum mönnum. - Svo þarf enn að vera að mínu viti. Námsmenn og ávísanir í gjaldeyri Oddbjörg Ögmundsdóttir, deild- arstjóri gjaldeyrisdeildar Lands- bankans, Laugavegi 77, hringdi: Vegna bréfs fjögurra íslenskra háskólanemenda i Bandaríkjun- um og birtist í DV 28. febrúar sl. skal tekið fram að í þessari deild Landsbankans er sérstök þjón- usta við íslenska námsmenn er- lendis. Æskilegt er að snúa sér til okk- ar meö ábendingar eða annað sem miður kann að fara. Svököll- uö „SWIFT“-þjónusta stendur öllum námsmönnum eriendisop- in og má t.d. benda á að ávísanir eru sendar símleiðis og tekur það hámark tvo daga að fá peninga inn á reikning með þjónustu þeirri sem hér er veitt. anum! LÍFEYRISSJÓÐUR VERZLUNARMANNA Hús verslunarinnar -103 Reykjavík - Sími 84033 Kennitala 430269-4459 - Vsknr. 15838 - Fax 685092 Reykjavik, 20.02.1991 Lén nr.i 10922 Margrét Sölvadóttir Tilkynning um gjalddaga á láni. Aftxirgun pr. Vextir .............. Veröbætur á afborgun Veröbætur á vexti ... •Samtals .............. 03.03.1991 4.560,00 1.459,20 56.373,55 18.039,25 80.432,00 Dráttarvextir........ Innheimtukostnaður , Virðisaukaskattur Samtals ............. *P«s9i upphiBÖ er miöuö vift, ad greitt sé 17.03.1991 eða lyrr. El grellt er e»«r greiSaM b. Kennitala skuldara: Kennitala greiðanda: Útgéfudagur: Veð: 050245-7999 - 03.03.1981 47,00 fy^r pyem fjag sam greiöaia dregst (ré GJALDDAGA. 220 Grunnvlsítala: Vtaitala nú: Vaxtatfmabil: Moðalvextir timabils: BY6G 626. 8365. 03.03.1990 - 03.03.1991 FAST 2.0000% Upphafleg lónsfjártiæð: Eftirstöðvar án voröbóta fyrir greiðslu: Eftirstöðvar án veröbóta eftir greiöalu: Eftirstöðvar með verðbótum eftir greiðslu: 114.000,00 72.960,00 68.400,00 914.003,19 Grelðslustaðir: Afgreiðslur iSLANDSBANKA hf. Elnnig má greiða i afgreiðslum annarra banka með C-Gfró-seðli: 430269-4459, 515-26-10200 Hvenær kemur að því að einhver röggsamur stjórnmálamaður tekur á þessum málum? Öryggismál sjómanna Gatnakerf i og umferðarljós

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.