Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1991, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1991, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 1991. Fréttir Selfoss: Fasteignagjöld ekki lækkuð Knstján Einaisson, DV, Selfossi: Meirihluti bæjarstjórnar á Sel- fossi felldi tillögu minnihlutans um lækkun fasteignagjalda á fundi bæjarstjórnar þar sem Qárhagsá- ætlun bæjarins var til seinni um- ræðu og afgreiðslu. Framsóknarmenn, sem skipa minnihlutann, lögðu fram tillögu um lækkun á álagsprósentu fast- eignagjalda úr 0,400% í 0,375% og koma þannig til móts við launþega að draga úr þeirri 10-12% hækkun á fasteignamatinu sem varð milh ára. Formenn aöildarfélaga Alþýðu- sambands Suðurlands, trúnaðar- mannaráð Verkalýðsfélagsins Þórs og aðalfundur Starfsmannafélags Selfoss höfðu fyrir fundinn sent bæjarstjóm áskomn þess efnis að tekiö yrði mið af launamálum í þjóðarsátt þegar fasteignagjöld yrðu endanlega afgreidd. Meirihlutinn felldi tillögu minni- hlutans og lagði fram bókun þar sem kom meðal annars fram að gjaldskrárbreytingar stofnana á Selfossi hefðu veriö í lágmarki und- anfarin ár. Einnig kom fram aö gjaldskrá Hita- og rafveitu hefði ekki hækkað á þessu ári. Með þess- um rökum helstum samþykkir meirihluti bæjarstjómar Selfoss ekki lækkun á fasteignagjöldum bæjarbúa í ár. Annað afturhjólið á bíl Landleiða datt undan honum í gærmorgun og billinn settist á rassinn. Óhappið gerðist neðst á Hverfisgötunni og staðsetning bilsins olli nokkrum umferðartöfum þvi talsverðan tíma tók að koma honum burt. DV-mynd S Andlát Ragnheiður Þorkelsdóttir frá Bár lést 2. mars á Elliheimilinu Grund. Hreiðar Svan Jónsson múrari, Skeljagranda 2, Reykjavík, andaðist í Vífilsstaðaspítala laugardaginn 2. mars. Siguijón Jónsson, áður til heimilis að Suðurgötu 64, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði aðfaranótt 4. mars. Elínborg Þórarinsdóttir, Nönnugötu 3, lést á Landakotsspítala 3. mars. Jón Björgvin Guðmundsson, til heimilis að Blesugróf 24, Reykjavík, lést í Landspítalanum laugardaginn 2. mars. Alfreð Lowe, andaðist á heimili sínu, 51 Alnwick Rd. Lee., Se 12 London, 1. mars. Garðar Guðmundsson, Bólstaðarhlíð 52, andaðist á öldrunarlækninga- deild Landspítalans að morgni 3. mars. Þorbjörg Sigurðardóttir, Látra- strönd 26, lést laugardaginn 2. mars. Kristín Sigurðardóttir, Skúlagötu 40b, áður Hvassaleiti 40, lést í Landspítalanum laugardaginn 2. mars. Úlfar Úlfarsson, Bláhömrum 19, Reykjavík, lést 3. mars. Jarðarfarir Benóný Benediktsson skákmeistari, verður jarðsunginn frá Bústaöa- kirKju í dag, þriðjudaginn 5. mars kl. 13.30. Kveðjuathöfn Jóns Jónatanssonar frá HóU, Önundarfirði, Reyni- hvammi 27, Kópavogi, fer fram frá Fossvogskirkju í dag 5. mars kl. 16.30. Jarðsungið verður frá Holts- kirkju, Önundarfirði, laugardaginn 9. mars kl. 14. Guðbjörg Ólafsdóttir, lést þann 21. febrúar sl. Útfór hennar fór fram þann 4. mars sl. Finnbogi Valdimarsson, Hverfisgötu 87, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 7. mars kl. 13.30. Útfor Ólafs Magnússonar frá Mos- felli, verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 6. mars kl. 13.30. Kristín Halldórsdóttir lést 22. febrú- ar. Hún var fædd 20. nóvember 1913 á Tréstöðum í Glæsibæjarhreppi, Hörgárdal. Voni foreldrar hennar hjónin HaUdór Ámason og Kristjana Gunnarsdóttir. Kristín giftist Svav- ari Antoníussyni en hann lést árið 1979. Þau hjónin eignuðust 7 böm. Þegar bömin voru uppkomin sneri Kristín sér að verslunarrekstri og rak verslunina Reyni í í Vestmanna- eyjum frá 1964-1973. Efdr gos vann hún á ýmsum stöðum í Reykjavík, lengst af hjá Vestfirsku harðfisksöl- unni. Útfór hennar verðtn- gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag kl. 13.30. Safnaðarstarf Þriöjudagur Breiðholtskirkja: Bænaguðsþjónusta í dag kl. 18.30. Fyrirbænaefnum má koma á framfæri við sóknarprest í viðtalstím- um hans, þriðjudaga til fóstudaga kl. 17-18. Grensáskirkja: Biblíulestur í dag kl. 14 í umsjón sr. Halldórs S. Gröndál. Síðdeg- iskaffi:---"—--—~——-------------— Hallgrímskirkja: Fyrirbænaguðsþjón- usta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Kvöldbænir með lestri Passíusálma kl. 18. Kársnessókn: Biblíulestur í safnaðar- heimilinu Borgum í kvöld kl. 20.30. Langholtskirkja: Foreldramorgnar mið- vikudag kl. 10 f.h. í umsjón Sigrúnar E. Hákonardóttur. Starf fyrir 10 ára og eldri miðvikudaga kl. 17. Þór Hauksson og Óskar Ingi Ingason leiða starfið. Seltjarnarneskirkja: Opið hús fyr- ir foreldra ungra barna kl. 15-17. Elín- borg Lárusdóttir kemur og ræðir um ungbarnanudd. Seljakirkja: Mömmumorgunn. Opið hús kl. 10. Tilkyimingar Grindavíkurkirkja Kvöldmessa í kvöld, kl. 20.30. Sönghópur- inn Án skilyrða ásamt Þorvaldi Halldórs- syni annast söng og undirleik. Sóknarprestur Félag eldri borgara í dag, þriðjudag, verður skáldakynning í Risinu, Hverfisgötu 105, kl. 15. Sr. Gunn- ar Kristjánsson fiytur erindi um Matthí- as Jochumsson. Leikaramir Geirlaug Þorvaldsdóttir og Jón Júlíusson lesa úr verkum skáldsins. Leikfimi kl. 17. Mar- grét Thoroddsen verður til viðtals um tryggingarmál fimmtudaginn 7. mars kl. 13-15. Arshátíð FEB verður fóstudaginn 8. mars nk. Miðapantanir á skrifstofu. Spilakvöld SÍBS og Samtaka gegn astma og ofnæmi Samtök gegn astma og ofnæmi og SÍBS- deildirnar í ReyKjavík og Hafnarfirði sjjila félagsvist kl. 20.30 í kvöld í Múlabæ, Armúla 34, 3. hæð. Félagar eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti. Kaffiveitingar. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir á spilakvöldið. Ný verslun á Selfossi. Ný verslun var opnuð á Selfossi föstudag- inn 1. mars í Ársölum, húsi því sem m.a. Hótel Selfoss er í. Verslunin fékk nafnið „í tilefni dagsins" og er gjafavöruverslun í eigu þeirra Ásu Líneyjar Sigurðardóttur og Lilju Guðmundsdóttur. Þær stöllur eru með ýmis þekkt merki í verslun sinni, einnig vörur fyrir ferðafólk. Á myndinni er Lilja til vinstri og Ása Líney við opnun verslunarinnar. DV-mynd Kristján Einarsson, Selfossi. Hólmarar Hólmarar sem eru burtfluttir og aðrir velunnarar St. Franciskusspítala. Nú stendur yfir fiársöfnun í Stykkishólmi og víðar á Snæfellsnesi vegna kaupa á sónartæki (ómsjá) fyrir heilsugæslustöð- ina og sjúkrahúsið í Stykkishólmi. Með tilkomu sónar myndi margt breytast til batnaðar og mörgu umstangi létt af lækn- um, hjúkrunarfólki og sjúklingum. Vilji einhverjir hjálpa til að auka öryggi Snæ- fellinga þá eru fiárframlög vel þegin, bæði stór og smá - safnast þegar saman kemur. Opnuð hefur verið gullbók í Bún- aðarbanka íslands, Stykkishólmi, merkt „Sónarsöfnun í Stykkishólmi" nr. 256-248. Kennitala: 2207307199. Nánari upplýsingar gefa Elín Sigurðardóttir, s. 93-81149, Gunnar Svanlaugsson, s. 93-81376, og Margrét Guðbergsdóttir í s. 93-81481. Húnvetningafélagið í Reykjavík Fögnum góu fostudaginn 8. mars kl. 22 í Húnabúð, Skeifunni 17. Harmóníku- hfiómsveit Hauks Jóhannssonar leikur. Fundir Aðalfundur knattspyrnu- deildar Fjölnis verður haldinn í kvöld, 5. mars, kl. 20 að Viðarhöfða 4 (Fjölnishúsinu). Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kvenfélag Grensássóknar heldur aðalfund með kvöldverði í safnað- arheimilinu mánudaginn 11. mars kl. 19.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Þátttaka tilkynnist fyrir 6. mars hjá Kristrúnu s. 36040, Steinunni s. 35220 og Gígju s. 36798. Kvenfélag Haligrímskirkju Fundur verður haldinn í safnaðarheimili kirkjunnar fimmtudaginn 7. mars kl. 20.30. Gestir fundarins verða hjónin frú Zu Wen söngkona frá Kína, hún syngur og kynnir kínverska tónlist. Maður henn- ar, Steingrímur Þorbjamarson, ræðir um kínverska menningu. Fleira veröur á dagskrá og kaffiveitingar. Að lokum flyt- ur sr. Ragnar Fjalar Lárusson hugvekju. Aðalfundur handknattleiks- deildar Fjölnis verður haldinn miðvikudagirm 6. mars kl. 21 að Viðarhöfða 4, (Fjölnishúsinu). Dagskrá: Vepjuleg aðalfundarstörf. Fyrirlestrar Fyrirlestur hjá íslenska heilunarfélaginu Jytta Eiríksson, stofnandi Heilunarskól- ans, heldur fyrirlestur í kvöld, 5. mars, kl. 20 að Laugavegi 163, 3. hæð, og nefn- ist fyrirlesturinn Sannleikurinn og við. Börn og stríð Foreldrasamtökin, samtök áhugafólks um málefni bama, munu standa fyrir fyrirlestri um böm á stríðstímum í kvöld, þriðjudag kl. 20.30. í ljósi ríkjandi stríðs- ástands í heiminum á undanfómum vik- um þykir Foreldrasamtökunum vert að taka tíl umfiöllunar hugsanleg áhrif þess á böm og velferð þeirra. Fyrirlesari verð- ur Guðrún Alda Harðardóttír, forstöðu- maður leikskólans Marbakka, þar sem stuðst er við Reggio Emilio uppeldisstefn- una. Tapað fundið Eyrnalokkur tapaðist Gulleymalokkur með múrsteinsmunstri tapaðist í janúar, líklegast fyrir utan Vesturgötu 7 eða í leigubíl. Finnandi vin- samlegast hringi í síma 18454. Fundar- laun. Tónleikar Háskaleg tónleikaröð Djass- og blúshljómsveitin Sálarháski hefur undirbúið nýja efnisskrá sem jafn- framt er fyrsta efnisskrá þessarar nýju hljómsveitar. Meðlimir hfiómsveitarinn- ar em þó engir nýgræðingar í íslensku tfiasslífi heldur valinkunnir hfióðfæra- leikarar úr framvarðasveit (fiassleikara íslands. Eyþór Gunnarsson leikur á píanó, Pétur Grétarsson á trommúr, Sig- urður Flosason á saxófón, Tómas R. Ein- arsson á kontrabassa og Atli Örvarsson leikur á trompet. Tónleikamir verða haldnir á tónlistarbamum Púlsinum við Vitastíg sex næstu þriðjudagskvöld og er aldrei að vita hveija Sálarháskamenn kalla sér til fulltíngis í þessar þerapíu- sessjónir sínar. Allir tónleikarnir hefiast kl. 26 stundvíslega. Bridge Bikarkeppni Norðurlands í bridge: Fjórar sveWr eftir í keppninni Bikarkeppni Bridgesambands Norðurlands eystra og vestra og sveitakeppni hefur verið í gangi frá því í haust. Fjórar sveitir standa eftir ósigraðar af 22 sem hófu keppni. Dregið hefur verið um það hvaða sveitir leika saman í undan- úrshtunum. Sveit Jakobs Kristins- sonar, Akureyri, mætir sveit ís- landsbanka, Siglufirði, og sveit Hermanns Tómassonar, Akureyri, mætir sveit Grettis Frímannsson- ar, Akureyri. Sú sveit sem fyrr er nefnd á hei- maleik og sér um spilastað og mót- tökur. Undanúrslitum skal vera lokið fyrir mánudaginn 25 mars. Spilaðar eru 4 lotur, 12 spil í hverri þeirra. Tvímenningur Bridgefélags Akureyrar Magnús Aðalbjömsson og Gunn- laugur Guðmundsson sigraðu í Akureyrarmóti BA í tvímenningi sem lauk í Hamri fyrir skömmu. Þeir félagar hlutu samtals 311 stig í 27 umferðum en í öðru sæti urðu Anton Haraldsson og Jakob Krist- insson með 282 stig. í þriðja sæti urðu Pétur Guðjónsson og Stefán Ragnarsson með 229 stig. Alls tóku þátt 28 pör og leiddu þeir Magnús og Gunnlaugur lengst af mótið. Lokastaðan í mótinu varð þessi: 1. Magnús Aðalbjörnsson- Gunnlaugur Guðmundsson 311 2. Anton Haraldsson-Jakob Kristinsson 282 3. Pétur Guðjónsson-Stefán Ragnarsson 229 4. Reynir Helgason-Jón Sverrisson 197 5. Sigfús Hreiðarsson- Ármann Helgason 161 6. Hermann Tómasson-Ásgeir Stefánsson 138 Næsta mót félagsins er hraðsveit- arkeppni Sjóvá/Almennra sem hefst í Hamri þriðjudagskvöldið 5. mars kl. 19:30. Skrá þarf sem fyrst í keppnina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.