Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1991, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1991, Page 4
I4UG4RÍ»4«UHi 9.. MAH& mv Fréttir Formannsslagurinn á landsfundi Sjálfstæðisflokksins: Ræðu Davíðs beðið með mikilli eftirvæntingu - mun fleiri fulltrúar óákveðnir en haldið var Skeggrætt á landsfundi. Davið Oddsson ræðir við Ásgeir Pétursson, bæjarfógeta i Kópavogi, og Eyjólf Konráð Jónsson alþingismann. Þorsteinn Pálsson og Einar Oddur Kristjánsson i samræðum við lands- fundarfulltrúa. DV-myndir Brynjar Gauti Uppgjör sjálfstæðismanna um hver verði næsti formaður flokks- ins fer fram um miðjan dag á morg- un. í gær höfðu línur ekki mikið skýrst um hvor hefði meira fylgi landsfundarfulltrúa, Þorsteinn Pálsson eða Davíð Oddsson. Sann- leikurinn mun vera sá að stuðn- ingsmenn beggja hafi ofreiknað fylgi sinna manna. Það var skoðun fjölmargra landsfundarfulltrúa, sem DV ræddi við, að mun fleiri fulltrúar en haldið var höfðu ekki tekiö ákvörðun um formannskjörið er þeir komu til landsfundarins á fimmtudag. Stuðningsmenn þeirra Þorsteins og Davíðs höfðu hringt í velflesta landsfundarfulltrúana áö- ur en fundurinn hófst. í flestum tilfellum var báðum vel tekið og því reiknuðu stuðningsmenn beggja sér mun fleiri stuðnings- menn en raunhæft þótti. Maður á mann Kosningabaráttan náði að sjálf- sögðu hámarki eftir að landsfund- urinn hófst. Þá var tekin upp bar- áttuaðferöin sem kölluð er maður á mann. Báðir aðilar setja sér það mark að ræða við hvern einasta fufltrúa augliti til auglitis. Hópur manna vinnur við þetta alveg þar til formannskjörið fer fram á morg- < un. Það var athyglisvert að þeir Þor- steinn og Davíö sátu ekki við há- borðið meðan landsfundarstörfin fóru fram fyrrihluta dags í gær, eins og formaður og varaformaður gera venjulega. Þess í stað gengu þeir um salinn, þar sem umferðin var mest, heilsuðu fólki og tóku þaö tah. Svipað var uppi á teningnum eftir hádegi. Hvaða áhrif hafa ræður frambjóöenda? Mjög margir viðmælendur DV á landsfundinum töldu Þorstein Pálsson hafa komist ágætlega, sumir sögðu mjög vel, frá setning- arræðunni á fimmtudag. Menn telja að sá kafli ræðunnar sem fjali- aði um formannskjörið, þar sem Þorsteinn fór fram á endumýjað traust, hafi verið sterkur. Voru ófiá- ir á því að hann hefði aflað sér aukins fylgis með þessari ræðu. Þó voru uppi sterkar raddir sem sögðust hafa orðið fyrir vonbrigð- um með ræðuna og viðbrögöin. Sögðust hinir sömu hafa heyrt mun kröftugra lófaklapp eftir ræöu for- manns á landsfundi en reyndin var á fimmtudag. Þó að margir landsfundarfulltrú- ar hafi gert upp hug sinn töluðu mjög fáir af sannfæringu um sigur- líkur frambjóðendanna. Bentu allir á og undirstrikuðu með feitu að ræða Davíðs væri eftir. Davið mun flytja sína framboðsræðu í dag. Það voru allir sammála um að hún gæti haft mikið að segja og sumir fullyrtu að hann mundi hreinlega sópa að sér fylgi tækist honum vel upp. Það vakti athygli að í ræöu sinni fór Þorsteinn engum orðum um glæsilegasta sigur Sjálfstæðis- flokksins, fyrr og síðar, í sveitar- stjómarkosningunum síöastliðið vor. En hann sagði heldur ekki eitt einasta orð um Davíð Oddsson, annað en að varaformaðurinn teldi nauðsynlegt aö hann tæki nú við forystunni. Því telja sumir aö Dav- íð Oddsson eigi erfitt meö að ræða um Þorstein á mjög neikvæðum nótum í sinni ræðu. Á fólki var að heyra að það myndi skaða Davíö hnýtti hann mikið í Þorstein. Þessu tengist sú skoöun að Davíð sé í nokkrum vanda með aö rétt- læta framboð sitt gegn Þorsteini gagnvart mörgum landsfundar- mönnum. Þannig varð vart við efa- semdir hjá mörgum þeirra, ekki síst utan af landi, er sögðu aö nú yrði Davíð aldeilis að flytja góða ræðu ef hann ætti að sannfæra þá um réttmæti þeirra „láta“ sem ver- ið hafa í flokknum síðastliðnar tvær vikur. Ef Davíð mistækist þetta væri hann ekki vel staddur. Á þeim var að heyra að þeim fynd- ist sér vera stillt upp við vegg þar sem þeir neyddust til aö gera upp á miili tveggja mjög hæfra manna með stuttum fyrirvara. Þaö var nokkuö sem margir áttu mjög greinilega ekki von á að gert yröi með svo stuttum fyrirvara og rétt fyrir kosningar. „Mér þykir leiðinlegt ef Davíð fær ekki stuðning sem formaður en um leið finnst mér ansi hart að þurfa að hafna Þorsteini sem sitjandi for- manni. Þetta er alls ekki auðvelt,“ Fréttaljós: Sigurdór Sigurdórsson og Haukur L. Hauksson sagði einn eldri landsfundarfull- trúi við DV og margir töluðu á svip- uðum nótum. Það undrar engan að landsfund- armenn bíða í ofvæni eftir ræðu Davíðs í dag. Málflutningur stuðn- ingsmannanna hefur vissulega haft áhrif en menn vilja sjá og heyra Davíð sjálfan sannfæra fund- inn, fá boöskapinn „beint í æð“. Þaö má jafnvel búast við átaka- miklum eftirmiðdegi því stuön- ingsmenn Þorsteins Pálssonar sögðu í gær að ef Davíö færi út í að hnýta í Þorstein myndi Þor- steinn svara fyrir sig fullum hálsi. Kjofinn í herðar niður í viðræðum DV við fulltrúa hinna ýmsu landshluta kom í ljós að mjög misjafnt var hvort menn væru aö einhverju leyti samtaka í afstöðu sinni til verðándi formanns eða hvort hver kysi fyrir sig. Þorsteinn virðist njóta töluverðs stuðnings utan af landi. Kemur ýmislegt til en meðal þess sem blaðamaður heyrði oft var að menn vildu engan ófrið eftir landsfund og því væri best að styðja óbreytta forystuskip- an. Þótt stuðningur við Þorstein viröist töluverður í ákveðnum landshlutum, eins og hjá Vestfirð- ingum, eru önnur kjördæmi marg- klofin i afstöðu sinni, sum hver klofin í herðar niður, eins og einn viðmælenda oröaði það. Afstaðan til Davíðs eða Þorsteins virðist hafa klofið sjálfstæðisfélög um allt land, kjördæmi, vinahópa og einnig íjölskyldur. Málefnalega er enginn ágreiningur um Davíð og Þorstein. Slagurinn stendur umfram allt um persónumar og mismunandi stjómunarstíl þeirra. Vegna þess er sagt að áhyggjur vegna klofnings og átaka í kjölfar landsfundarins séu ekki alveg á rökum reistar. Menn sameinist á ný þó auðvitað verði einhveijir sem eldi grátt silfur. Upplag manna sé einu sinni misjafnt og flokkurinn stór. Varaformaöurinn Að vonum ræða landsfundarfull- trúar mjög hver verði næsti vara- formaður. Þeir em þó margir sem halda því fram að sigri Þorsteinn í formannskjörinu eigi Davíð vart annarra kosta völ en að gefa kost á sér sem varaformaöur áfram. Tapi Davíö 1 formannskjörinu eigi hann ekki aðra leiö til að halda þeim völdum sem hann hefur. Aðrir fullyrða að Davíð muni ekki undir neinum kringumstæð- um gefa kost á sér áfram sem vara- formaöur. Hann geti ekki sætt sig viö að vera númer tvö áfram. Þurfi þau viöbrögð ekki að þýða að hann væri úr leik í flokksforystunni, eins og haldið er fram, en vissulega gæti hann misst sterkan mann fram fyrir sig. Gæti því oröiö erfitt fyrir hann að sækja aftur á tindinn fyrr en eftir töluvert langan tíma. Mörg nöfn hafa verið nefnd í sam- bandi við kjör varaformanns. Æ fleiri eru famir að nefna nafn Sig- ríðar A. Þórðardóttur, formanns Landssambands sjálfstæðis- kvenna. Hún er sögð vera snarpur pólitíkus og góð ræðumanneskja. Aðrir sem nefndir hafa verið eru alþingismennimir Pálmi Jónsson og Halldór Blöndal og síðan Björn Bjarnason. Pálmi og Halldór eru báðir sagðir tilkippflegir ef til kem- ur. Það er hins vegar staðreynd að fólk er ekki tilbúið að ræða vara- formannskjörið af neinni alvöru fyrr en formannskjörið hefur farið fram. Sé æriö nóg að hugsa um það eitt. Úrslit þess og viðbrögð við þeim skipta öllu varðandi kjör varaformanns tfl næstu tveggja ára. Fyrst þá fara landsfundar- menn að velta fyrir sér forsendum varaformannskjörs, eins og sam- bandi mifli landsbyggðar og höfuð- borgarsvæðis, kynferðis og fleiri þátta sem óhjákvæmflega verða í deiglunni. Hefðbundið starf í molum Gamalreyndir landsfundarfull- trúar fullyrtu að allt starf á lands- fundinum væri í hálfgerðum mol- um og í skugga formannskjörsins. Stór mál, eins og mótun sjávarút- vegs- og landbúnaðarstefnu flokks- ins, yrðu vart að neinu vegna þess að öll orka landsfundarfulltrúa færi í formannsslaginn. Tveir piltar fóru til Rannsóknarlögreglu ríkisins í gær: Gáfu sig fram vegna Suðurgötumálsins - segja að ekki hefði verið um ránstilraun að ræða Tveir pfltar, 17 og 19 ára, gáfu sig fram hjá Rannsóknarlögreglu ríkis- ins síðdegis í gær vegna líkamsmeið- ingamáls sem átti sér stað við Suður- götu og Þjóðarbókhlöðuna aðfara- nótt síöastUðins laugardags. Eins og fram hefur komið í DV í vikunni var ráöist á tvo karlmenn með þeim af- leiðingum að annar þeirra rifbeins- brotnaði og annað lungað féll saman. RLR rannsakaði þetta mál með hliðsjón af láti manns sem talinn er hafa veriö rændur og ráðinn bani nóttina á eftir. RLR upplýsir hins vegar ekkert á þessu stigi hvort talið sé að um hugsanleg tengsl sé að ræða milli þessara tveggja mála. Þegar DV fór í prentun átti eftir að ræða við tvo af félögum piltanna sem voru með þeim umrædda nótt. Piltarnir hafa sagt að þama hafi alls ekki verið um ránstilraún að ræða - þeir hafi verið fjórir saman í bíl á móts við biðskýli á Suðurgötu þegar tveir menn komu að bíl þeirra. Þessar upplýsingar koma heim og saman við framburð þeirra tveggja sem urðu fyrir meiðslum. Einn fjór- menninganna fór út að létta á sér og hindraði bílhurðin hina í að komast framhjá. Pfltarnir segja aö síðan hafi komið til rifrildis og átök hafist að frumkvæði mannanna tveggja sem síðan hlupu á brott. Fjórmenningamir eltu mennina og náðu þeim sem þeir segja að hafi byijaö átökin. Piltarnir hafa ekki dregið dul á að einn af þeim hefði lamið þann mann illa sem leggja þurfti inn á sjúkrahús. Tveir af fjór- menningunum áttu beinan þátt að átökunum. Bílstjórinn og einn annar fengu hina til að hætta barsmíðun- um, að sögn piltanna. Þegar DV fór í prentun var veriö að gera ráöstafanir tfl að ná sam- bandi við þá tvo af fjórmenningunum sem ekki skiluðu sér í gær. Rann- soknarlögreglan hafði í gærkvöldi ekki neinn í haldi vegna mannsláts- íns í Bankastræti um helgina. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.