Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1991, Síða 13
LAUGARDAGUR 9. MARS 1991.
13
Skák
Benóný var engum lí kur
Benóný Benediktsson lést í
Reykjavík 25. febrúar sl. á 74. aldurs-
ári. Benóný var um árabil einn okkar
snjöllustu skákmeistara og haföi
ekki síður mikinn persónuleika.
Hann verður þeim ætíð minnisstæð-
ur sem voru svo lánsamir aö fá að
kynnast honum.
Benóný fæddist að Kambhóh í
Víðidal 3. nóvember 1917 og átta ára
gamall var hann þegar farinn að tefla
allmikið og þótti efnilegur. Hann
flutti til Reykjavíkur í ársbyrjun 1941
og tveimur árum síðar hafði hann
unnið sig upp í meistaraflokk. Tafl-
mennska hans þá, og raunar alla tíð,
bar þess merki að hann hafði lært
aö tefla „upp úr sjálfum sér“ en ekki
notið aðstoðar kunnáttumanna eða
skákrita. Af því leiddi að Benóný var
manna frumlegastur í hugsun og tók
engu sem sjálfgefnu. Benóný hafði á
orði að er hann kom suður 1941 hefði
honum fundist einkennilegt að mót-
herjar hans gáfu gjaman peð strax í
2. leik (með 1. d4 d5 2. c4) en peð
þetta þáði Benóný (2. - dxc4) sem
Skák
Jón L. Árnason
nefnt er móttekið drottningarbragð.
Lög gera ráð fyrir að svartur gefi
peðið til baka með góðu í framhaldi
taflsins og reyni að þróa stöðu sína
en Benóný freistaði þess hins vegar
með öllum ráðum og dáðum að halda
í peðið og oftar en ekki komst hann
upp með það.
Benóný vann aimenna verka-
mannavinnu og tefldi mikið við
vinnufélaga sem og í heimahúsum.
Gjarnan var eitthvert smáræði lagt
undir, svona eins og til að skerpa
einbeitnina. Benóný var skákmaður
af lífi og sál. Hann þótti brögðóttur
við borðið, lagði gjaman gildmr og
var mjög skemmt ef mótheijinn lét
blekkjast. Á opinberum mótum átti
hann það til að gleyma sér ef staðan
varð flókin. Hann reri sér gjaman í
stólnum, flautaði lágt eða tuldraði
með sjálfum sér. Mörgrnn fannst erf-
itt að tefla við hann, ekki síst vegna
þess að nærtækasti leikurinn varð
sjaldnast fyrir valinu.
Tvisvar varð Benóný hraðskák-
meistari íslands, 1947 og 1953, og fjór-
um sinnum skákmeistari Reykjavík-
ur, 1956, 1962, 1967 og 1974. Síðasta
umferðin á mótinu 1974 er mér minn-
isstæð. Benóný gekk þá í sahnn
strokinn og hreinn, í nýjum sparifót-
um og hef ég sjaldan séð sigurvissari
mann. Þetta kom flatt upp á mótherj-
ann. Benóný var fljótur að ná vinn-
ingsstöðu og tryggja sér sigur á mót-
inu.
Benóný var víðlesinn og manna
fróðastur. Oft var hann meðal áheyr-
enda á fyrirlestrum og fundum í höf-
uðborginni um hin óhklegustu efni.
Þá var hann tíður gestur á skákmót-
um, þótt hann væri ekki þar að tefla
sjálfur. Hann átti það til að vera há-
vaðasamur á áhorfendabekkjunum
ef svo bar undir og skákstjórar
þurftu oft að biöja hann um að hafa
lægra. Einhverju sinni sat kunnur
skákmeistari að tafh sem fannst Ben-
óný hafa of hátt og bað hann um að
hafa lægra. „Þú heyrir betur en þú
teflir,“’ gah þá við í Benóný. Hann
var „húmoristi“ og hnyttin tilsvör
hans urðu landsfræg.
Þá var Benóný ágætlega hagmælt-
ur og eru nokkrar vísna hans lands-
frægar. Hann var fljótur að botna ef
svo bar undir, eins og einhverju sinni
í langferðabíl á leiðinni frá helg-
armóti. Þá var þessum fyrriparti
skotið fram: Enga leiki æskan skil-
ur/ailt af bókum lærir hún, - „og
botnaðu nú Benóný!“ Meistarinn lét
ekki segja sér það tvisvar, enda ort
í hans anda - Benóný fannst yngri
skákmenn htið kunna að tefla en
kunna þeim mun meira í „teóríu":
Það er eins og bhndabylur/blási fram
af hæðarbrún.
Kgntucky
med
Chicken.
Hjallahrauni 15, s. 50828
Faxafeni 2, s. 680588.
Benóný Benediktsson.
Frægustu skákirnar
Þekktustu skákir Benónýs eru
gegn heimsfrægum erlendum skák-
meisturum sem sótt hafa okkur heim
en Benóný fór aðeins einu sinni sjálf-
ur út fyrir landsteinana - á World
Open skákmótið í Filadelfiu 1978, þar
sem hann stóð sig vel, fékk 5,5 v. af
9 mögulegum.
Erlendu meistararnir sóttu ekki
guh í greipar Benónýs. Á minningar-
móti um Guðjón M. Sigurðsson 1956
varð Benóný í 5. - 6. sæti og vakti
feikna athygli fyrir að gera jafntefli
við báða sovésku keppendurna á
mótinu, Tajmanov og Ilivítskíj. Þetta
voru heimsfrægir skákmenn. fli-
vítskíj hafði orðið þriðji á skákþingi
Sovétríkjanna 1955, ásamt Botvinn-
ik, Petrosjan og Spassky(!). Taj-
manov var þáverandi skákmeistari
Sovétríkjanna, síðar margfaldur
áskorandi, aht þar til Fischer sló
hann út með núlh 1970.
Á Reykjavíkurskákmótinu 1970
kom Benóný enn á óvart, nú fyrir
magnaða jafntefhsfléttu gegn júgó-
slavneska stórmeistaranum Mat-
ulovic. Á Reykjavíkurmótinu 1984
gerði Benóný svo jafntefh við sov-
éska stórmeistarann Balashov með
einni af sínum frumlegu byijunum -
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Df6 4. c3
g5!!? sem stórmeistarinn kunni ekki
svar við!
Á Guðjónsmótinu 1956, sem fram
fór í Sjómannaskólanum, átti Ben-
óný unnið tafl á flivitskíj en lék því
niður á óskiljanlegan hátt. Um þessa
skák sagði Benóný: „Þetta er sú vit-
lausasta skák sem ég hef teflt og hana
ætti ekki að birta.“
í skákinni við Tajmanov átti Ben-
óný hins vegar lengstum í vök að
veijast en tefldi vel og tókst að
tryggja sér jafntefli með laglegri til-
færslu. Benóný beitti Nimzo-ind-
verskri vöm í skákinni en Tajmanov
hafði nýlokið við að skrifa bók um
þá byijun. Sagt er að hann hefði
þurft að bæta heilum kafla við bók-
ina eftir viðureignina við Benóný!
Önnur saga segir að eftir byijunar-
leikina hafi Friðrik Ólafsson gengið
til Benónýs og furðað sig á því að
hann skyldi beita þessari byijun,
sem Tajmanov hefði nýlokið við að
skrifa bók um. Benóný mun hvergi
hafa bmgðið en sagt: „Hann ætti þá
að þekkja þetta!" Sjálfur kannaðist
Benóný þó ekki við að þetta hefði
gerst en „þjóðsögurnar" um hann
voru margar.
í haust er væntanleg á markað 2.
bindi í ritröðinni um íslenska skák-
meistara, í útgáfu Tímaritsins Skák-
ar undir ritstjóm Trausta Bjömsson-
ar. Þar verður að finna kafla um
Benóný ásamt völdum skákum hans
með skýringum og umsögnum um
þær. Skákunnendur hljóta að bíða
bókarinnar með óþreyju. Með Ben-
óný er genginn einn sá htríkasti
skákmeistari sem íslendingar hafa
átt og seint mun hann gleymast.
Hvitt: M. Tajmanov
Svart: Benóný Benediktsson
Nimzo-indversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 b6
5. Re2 Bb7 6. a3 Bxc3+ 7. Rxc3 a5(!)
Heimsborgari, broddborgari, hamborgari
eða almennur borgari. Nei, nú er það kjúkl-
ingaborgari á Kentucky Fried sem er aðal-
borgarinn. Hann er úr mjúku bringukjöti, i
sesambrauði, iceberg og tómötum.
Nýjung á Islandi sem sameinar
hollt og gott.
Sagan um að Tajmanov hefði þurft
að bæta kafla við bókina sína eftir
skákina við Benóný er varla á rökum
reist því að hann minnist ekki á
þennan leik hans í seinni útgáfum!
Leikurinn er þó fylhlega rökréttur.
Éftir 7. - d5 8. cxd5 exd5 9. b4 nær
hvitur yfirhöndinni.
8. Bd3 d5 9. 0-0 Rbd710. b3 0-011. Bb2
He8
Sjálfur taldi Benóný 11. - Re4 eðh-
legri leik og má það til sanns vegar
færa.
12. Hcl e5 13. Rxd5 Rxd5 14. cxd5 e4!
15. Bb5 Bxd5 16. Dc2 c6!
Færir sér í nyt ónákvæmni hvíts í
síðasta leik - ekki gengur nú 17.
Bxc6? vegna 17. - Hc8. Svartur hefur
nú jafnað taflið.
17. Bc4 Rf6 18. Bxd5 cxd5 19. a4 h5! 20.
Ba3 Hc8 21. De2 Dd7 22. Da6 De6 23.
h3 Kh7
Þennan leik gagnrýndi Benóný
einnig, taldi 23. - g5 strax betra.
24. Db7 g5! 25. Hxc8 Hxc8 26. Be7 Dc6
27. Da6
Eftir 27. Dxc6 Hxc6 28. BxfB Hxf6
29. Hcl Hd6 ætti svartur að halda
sínu.
27. - Kg6 28. f3 Rg8 29. Ba3 Ha8 30.
De2 Rf6 31. f4 g4 32. Be7
E.t.v. er meiri vinningsvon fólgin í
32. f5 en Benóný hindrar þetta með
óvenjulegum næsta leik sínum.
32. - Kf5! 33. BxflB Dxf6 34. Hcl De6
35. Df2 Df6 36. Hc7 Hg8 37. Dg3 h4 38.
hxg4+ Hxg4 39. Dh3 De6 40. Hb7 Kfl6
41. Kh2
Eða 41. Hxb6 Dxb6 42. Dxg4 Dxb3.
Kannski hefur Tajmanov tahð sig
vera að vinna en Benóný kemur auga
á frumlega vamarleið.
41. - Kg7 42. Hxb6 Df5! 43. Hb5
8
7 6 A #
5 A s a m
4 4 3 s
2 1
43. - Dh5!! 44. Hxd5 f5! 45. Hc5 Kg6!
Hótar að vinna drottninguna með
46. - Hg3 og hvítur verður að þráleika
því að 46. Khl Hg3 47. Dh2 Hxe3 er
of hættulegt.
46. Hc6+ Kg7 47. Hc7+ Kg6
Og jafntefh samið.
Skák Benónýs við Matulovic á
Reykjavíkurskákmótinu 1970 var
einnig eftirminnileg. Eftir 29. leik
svarts (Matulovic) kom þessi staða
upp:
sE 1
7 A A
6 A A
5 A 4S S
4 m
3 S |
2S © &
1 A B C D E F G s H
Svartur á skiptamun meira og að
því er virðist unnið tafl. Benóný
bjargaði sér á ævintýralegan hátt:
30. Hxh7+!! Kg8 31. Hh8+! Kxh8 32.
Dh3+ Kg7 33. Dd7+ Kg8 34. De6+
Kh8 35. Dh3+ Kg8 36. De6+
Og jafntefli.