Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1991, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1991, Síða 23
LAUGARDAGUR 9. MARS 1991. Fastráðnir við Þjóð- leikhúsið haustið Hinir ósnertanlegu, þ.e ýmist æviráðnir á A-samningi eöa kornnir yilr 50 ára aldursmörkin sem þjóöleikhússtjóri setti. Baldvin Halldórsson. Bríet Héðinsdóttir. Bryndís Pétursdóttm. Erlingur Gíslason. Flosi Ólafsson. Guðrún Þ. Stephensen. Gunnar Eyjólfsson. Helga Bachmann. Helgi Skúlason. Herdis Þorvaldsdóttir. Kristbjörg Kjeld. Margrét Guðmundsdóttir. Róbert Arafmnsson. Sigríður Þorvaldsdóttir. Þóra Friðriksdóttir. Áeftirlaunum: Bessi Bjarnason. Rúrik Haraldsson. Þessum var sagtupp: Edda Þórarinsdóttir. Hákon Waage. Helga Jónsdóttir. Jón Símon Gunnarsson. Lilja Þórisdóttir. Þórunn Magnea Magnúsdóttir. Benedikt Ámason. Brynja Benediktsdóttir. Þessir eru eftir: Anna Kristin Arngrímsdóttir. Arnar Jónsson. Jóhann Sigurðarson. Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir.' Pálmi Á. Gestsson. Ragnheiður Steindórsdóttir. Randver Þorláksson. Sigurður Skúlason. Sigurður Sigurjónsson. Tinna Gunnlaugsdóttir. Þórhallur Sigurðsson. Öm Ámason. „Öryggið er lista- mönnum hættulegt'' - segir Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri „Öryggi til langs tíma er listamönn- um hættulegt. Það leggur enginn fyr- ir sig listir með ævilangt atvinnuör- yggi í huga,“ sagði Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri í samtali við DV. „Það væri dauðadómur yfir listinni." Þjóðleikhússtjóri hefur verið í sviðsljósinu að undanfornu eftir að hann hóf starfsferil sinn með því að segja upp 9 starfsmönnum leikhúss- ins. Uppsagnir em viðkvæmt mál og listamenn eru viðkvæmt fólk og því eðlilegt að spyrja Stefán: Hvað átti þetfa að þýða? „Þetta em eðlilegar áherslubreyt- ingar í leikhúsinu samfara leikhús- stjóraskiptum. Samkvæmt lögum er leikhússtjóri ábyrgur fyrir rekstri hússins bæði fjárhagslegum og list- rænum og honum ber að marka leik- húsinu listræna stefnu. Listræn stefnumörkun felst í því hvað er sýnt í leikhúsinu og hverjir veljast til þess aö koma þeirri stefnu á framfæri." „Því finnst mér það lágmarkskrafa, og felst raunar í lögunum, að leik- hússtjóri hafi ákveðin umsvif til þess að móta sína stefnu. Ég er að fara í gegnum starfsemi hússins í heild og hef skoðað hvað megi betur fara. Allt er þetta gert leikhúsinu til góðs og ég vil undirstrika að hér er ekki um samdrátt að ræða heldur er verið að skapa svigrúm til breytinga." Stefán vildi ekki tjá sig um einstak- ar uppsagnir eða hverjir ættu þar hlut að máli enda máhð viðkvæmt. „Það hefur lengi verið réttindamál í hópi íslenskra leikara að meiri hreyf- anleiki sé í sambandi viö þau fáu stöðugildi sem í boði eru. Það er mín grundvallarskoðun að í svona stóru leikhúsi sé ákveðinn kjarni sem býr við tímabundið atvinnuöryggi án þess að festast í því ævilangt." 33 fastir, 11 æviráðnir AIls eru 33 leikarar fastráönir við Þjóðleikhúsið. Ellefu þeirra voru ráðnir til starfa fyrir 1974 á svoköll- uðum A-samningum og eru því ævi- ráðnir. Hinir voru ýmist með 3 eða sex mánaða uppsagnarfrest. Engin uppsagnanna tekur gildi fyrr en 1. september í haust og var fresturinn hafður svo langur að sögn Stefáns til þess að leikurunum gæfist kostur á að aðlaga sig breyttum aðstæðum. Ennfremur var miðað við þá grundvallarreglu við uppsagnir leik- aranna að engum eldri en 50 ára var sagt upp. Að sögn Stefáns þóttu eldri leikarar eiga færri atvinnutækifæri en hinir. Sá yngsti 34 ára Almennt útskrifast leikarar úr sínu námi 23-25 ára gamlir. í dag er yngsti fastráðni leikari Þjóðleik- hússins 34 ára gamall. Það er því augljóst að meðalaldur leikara er orðinn í hærra lagi sem aftur setur leikhúsinu skorður við verkefnaval. En í ljósi þessa háa meðalaldurs, hyggst hann þá ráða yngri eða mjög unga leikara til starfa í stað þeirra sem sagt er upp? „Það segir sig sjálft að ég mun leitast við að lækka meðalaldurinn," svarar Stefán. Þegar leikari við Þjóðleikhúsið nær 60 ára aldri í starfi er heimilt að ráöa nýjan leikara samhhða honum. Þess- ar heimildir hafa ekki veriö nýttar á undanfömum árum en Stefán segist að sjálfsögðu munu nýta þær. Félagar í Félagi íslenskra leikara eru ahs 299. Innan vébanda þess er að finna leikara, óperusöngvara, hst- dansara og leikmyndasmiði. Leikar- ar í félaginu eru 219 talsins. Það er því einfalt reikningsdæmi að um 12-15 leikarar eru um hvert pláss sem losnar við leikhúsin. Mótmæli berast Stefáni hefur borist bréf frá Félagi íslenskra leikara þar sem látin er í ljósi von um að þau stöðugildi sem heimild er fyrir verði nýtt. Stjórn og trúnaðarmannaráð fé- lagsins hefur mótmælt vinnubrögð- um við uppsagnirnar og telur að ráða hefði átt í lausar stöður áður en til uppsagna kæmi. Þar er átt við þær stöður sem heimild er fyrir en hafa ekki verið nýttar.„Auðvitað skilja þeir manna best ákvörðun eins og þessa,“ sagði Stefán. Leikarafélag Þjóðleikhússins sendi stjórn félags- ins á fund leikhússtjóra þegar upp- sagnir lágu fyrir. Stefán segir að stjórnin sýni ákvörðun hans fullan skilning. „Það skilja þetta langflestir. Það hefur verið útbreidd skoðun meðal félagsmanna mjög lengi að aðgerðir af þessu tagi væru leikhúsinu nauð- synlegar. Þetta verður hinsvegar alltaf sárt og persónulegt mál þegar til kastanna kemur,“ sagði Stefán. Full sátt innan leikhússins - Myndir þú telja að það væri full sátt um þessar aðgerðir innan veggja leikhússins? „Ég myndi segja það, já,“ segir Stef- án. „Starfsmannafélag ríkisstofnana hefur mótmælt þessum ráðstöfunum en á þeim forsendum að ekki hafi verið haft samráð við þá. Ég vildi alls ekki ræða þetta við of marga áður en hlutaðeigandi leikurum heföi verið tilkynnt um áformin en áður hafði máliö verið kynnt for- manni Starfsmannafélags Þjóðleik- hússins og leikarafélagi hússins. Öll stemning hér innan hússins er á þann veg að þetta hafi verið tíma- bært og ég tel að fólk hafi beðið eftir þessu.“ Starfsmannafélag ríkisstofnana hefur lýst því yfir að þó uppsagnirn- ar séu lögmætar þá séu þær siðferði- lega rangar þar sem ekkert sé út á störf þeirra að setja sem sagt er upp. Félagið kannar nú lögmæti uppsagna nokkurra leikara sem voru felagar í Bandalagi háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna. Stefán Baldursson kvaðst í samtali hafa kannað hver réttur þjóðleik- húsyfirvalda væri þegar uppsagnir sem þessar væru annars vegar og niðurstaðan hefði verið sú að ekki væri heimilt að segja þeim upp sem nytu æviráðningar en uppsagnir annarra væru heimilar. Eitt það erfiðasta sem ég hef þurft að gera „Þetta er eitt það erfiðasta sem ég hef þurft að gera. Það voru engum send bréf heldur talaði ég persónu- lega við alla sem sagt var upp. Ég þekki allt þetta fólk persónulega, sumt náið. Það, hverjum var sagt upp og hverjum ekki var fyrst og fremst mitt mat eftir að Þjóðleikhúsráð hafði samþykkt ákvörðun um upp- sagnir. Þetta er mín ábyrgð og ég vil gjarnan að það komi fram að þetta þýðir ekki að viðkomandi sé útilok- aður frá störfum við leikhúsiö. Þvert á móti vona ég að starfskraftar þeirra nýtist hér í framtíðinni í einstökum verkefnum." -Pá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.