Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1991, Blaðsíða 10
10
LAUGARDAGUR 9. MARS 1991.
Myndbönd
Gamanmyndin Crazy People (er beint í þriðja sætið þessa vikuna. A myndinni má
sjá Dudley Moore en hann leikur aðalhlutverkið i myndinni.
Það er frekar fátt um feita drætti á
listanum að þessu sinni. Gaman-
myndin Short Time veltir ungl-
ingamyndinni um stelpuna stjórn-
lausu úr fyrsta sætinu. Gaman-
myndin Crazy People kemur inn í
þriðja sætið. Annað á listanum er
kunnuglegt nema myndin sem
kemur inn í tíunda sætið en það
er The Man Inside. Sú byggir á
sannsögulegum atburöum, í ævi
Gunters Wallraff, sem er þýskur
blaöamaður og sennilega frægasti
rannsóknarblaöamaður seinni
tíma. Hann villti á sér heimildir og
komst að sem blaðamaður á einu
af blöðum Axels Springers í því
skyni að fletta ofan af vafasömum
vinnubrögðum þar innan húss.
1 (4) Short Time
2 (1) She’s Out of Control
3 (-) Crazy People
4 (3) Why Me?
5 (6) Dark Angel
6 (7) The Guardian
7(5) Miami Blues
8 (2) Back to the Future III
9 (10) Wild Orchid
10 (-) The Man Inside
★★
Barnfóstruraunir
THE GUARDIAN
Útgefandl: ClC-myndbönd.
Lelkstjóri: William Friedkin.
Aöalhlutverk: Jenny Seagrove, Dwier
Brown og Carey Lowell.
Bandarisk, 1990 -sýningartími 96 mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
William Friedkin leikstýrði einni
bestu hryllingsmynd sem gerð hef-
ur verið, The Exorcist, sem á sínum
tíma hleypti vaf stað flóði eftirlík-
inga. Friedkin hélt sig eftiríeiðis viö
hefðbundnari kvikmyndir, má
nefna The French Connection sem
ásamt The Exorcist hefur haldið
nafni hans á lofti. Hann leikstýrði
ekki aftur hryllingsmynd fyrr en
hann sendi frá sér í fyrra The Guar-
dian.
Það má sjá ákveðið handbragð
sem minnir á The Exorcist þegar
The Guardian er skoöuð og sum
atriðin eru virkilega vel gerö, en
nú hefur Friedkin ekki úr jafn-
frumlegu og skemmtilegu efni að
moöa og stærsti gallinn við The
Guardian er einmitt veikt handrit.
Það er ekkert verið að fela hver
óvætturin er. Strax í byijun er
kynnt fyrir áhorfendum fagurlim-
uð barnafóstra sem nærist á hvít-
voðungum. Eftir að hafa séð hvað
koma skal er skipt yfir á ung hjón
sem eru að eignast sitt fyrsta barn.
Þau eru bæði útivinnandi og aug-
lýsa eftir barnfóstru. Sú fullkomna
birtist i líki Kamillu sem hefur
mjög gott lag á börnum, en eins og
áhorfandinn veit er hún flagð und-
ir fögru skinni. Hryllingurinn í The
Guardian felst frekar í vel klippt-
um atriðum heldur en því óvænta.
Þrátt fyrir stórgallað handrit er
The Guardian ágæt skemmtun og
þá sérstaklega fyrir aðdáendur
hryllingsmynda. Leikur er allur
góöur og einstaka atriði vel útfærö.
Eins og ávallt þegar börn eiga í
hlut verður hryllingurinn áþreif-
anlegri. -HK
★y2
Illur andi í lampa
AMITVILLE HORROR - THE EVIL ES-
CAPE
Útgefandl: Ðergvik
Lelkstjóri: Sandor Stern
Aðalhlutverk: Patty Duke, Jane Wyatt
og Norman Lloyd
Bandarisk, 1989-sýningartimi 100 mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára
Amityville Horror - The Evil Es-
cape er fjóröa myndin í röð hryll-
ingsmynda sem kenndar eru viö
íbúðarhverfiö Amityville. Þar hef-
ur sem sé tekið sér bólfestu illur
andi sem nærist á drápum og virð-
ist hafa það eina markmið að koma
fyrir kattamef öllum þeim mann-
legu sálum sem nálgast hann.
I þessari fjóröu mynd hefur sá
illi tekið sér bólfestu í lampa einum
forljótum sem keyptur er á uppboði
og sendur til eldri konu sem býr í
Kaliforníu.
Það vill svo til að dóttir konunnar
er aö flytja inn á heimili hennar
meö þijú böm sín svo geta má
nærri að þar er nægur efniviður
fyrir þann sem býr í lampanum
þegar hann vill láta til sín taka.
Hörðustu aðdáendur hryllings-
mynda hafa sjálfsagt nokkra
ánægju af myndinni. Nokkur atrið-
in fá hárin til að rísa á líkamanum
en það sem mér fannst vanta var
einhver tilgangur hjá íbúa lampans
og endirinn var í engu samræmi
við þann kraft sem sá illi var búinn
aðsýnaáður. -HK
Sálarkreppa í September
SEPTEMBER
Leikstjórn og handrit: Woody Allen.
Aðalhlutverk: Mla Farrow, Eiaine
Stritch, Jack Warden, Sam Waterston,
Denholm Elliott og Diane Weist.
Amerisk - 1987.
Sýningartimi - 120 mínútur.
Leyfð öllum aldurshópum.
Á sveitabýli í Vermont er hópur
fólks samankominn yfir eina helgi.
Konan sem á húsið er að selja það
og flytja burt. Nágranni hennar
vill ekki að hún fari og tjáir henni
ást sína sem fellur í grýttan jarðveg
því hún ann ungum rithöfundi sem
leigir sumarhúsið hennar. Meðal
helgargestanna er móðir hennar
svo unga konan kemst ekki hjá því
að horfast í augu við sársaukafulla
hluti úr fortíð sinni.
Woody Allen er við kunnuglegt
heygarðshorn i þessari sextándu
mynd sinni. Að vanda eru það sam-
skipti fólks og tilfinningar sem eru
honum hugleiknar. Sálarkreppa,
m 1
I <"'• -!!!!, ■íH'lHliMftíf 'kA-í' Vmti.
K&t*l»tMKJnm W 'MU <*
•'a vmcémfttk***
VtfMi tV6Ml ÍX& 5
- kofttm. wwcw
Sumarleyfis-
martröð
DAMNED RIVER
Útgefandi: Biómyndir.
Leikstjórn: Michael Schroeder eftir
handriti Bayard Johnson.
Aðalhlutverk: Stephen Shellen, Lisa
Aliff, Marc Poppel, John Terlesky og
Bradford Bancroft.
Amerisk - 1989.
Sýningartimi - 92 minútur.
Bönnuð innan 16 ára.
Fjögur amerísk ungmenni ætla í
bátsferð niður eftir Zambesi fljóti í
Afríku. Þau leggja af stað full bjart-
sýni og barnslegrar tilhlökkunar á
gúmmíbát sínum undir stjórn þaul-
vans leiðsögumanns. Það reynist
hins vegar vera sitthvað bogið við
téðan leiðsögumann og áður en
nokkur ferðalanganna fær rönd við
reist er hann búinn að drepa mann
og annan, nauðga einu konunni í
leiðangrinum og heldur þeim öll-
um í gíslingu.
Hér er um nokkuö augljósa stæl-
ingu á Deliverance, rösklega 18 ára
gamalli John Boorman mynd, að
ræða. Munurinn er sá að hér eru
leikararnir verri og leikstjórinn
nær aldrei að byggja upp verulega
spennu eða nýta þau tækifæri sem
stórkostleg náttúra Afríku býður
upp á. Leiösögumaðurinn geggjaði
er aldrei sannfærandi óður og mað-
ur spyr sjálfan sig hvernig einn
maður getur staðið uppi í hárinu á
íjórum öðrum manneskjum.
Nokkur bátaatriðin eru býsna
glæfraleg og tilkomumikil þó sú
brella að sýna þau í „slow moti-
on,“ verði harla leiöigjörn til lengd-
ar. Yfir öðrum hlutum myndarinn-
ar er tæplega hægt að gera annað
en að geispa.
-Pá
íyAUen
mber
tlsmSlriiá
jfftaáwrýfetifefeijaídíWíJij
uné&iKltHnteti&iia
angist og svartsýni eru hlutir sem
hann hefur verið að fjalla um í
kvikmyndum sínum um áraraðir,
svo og samband foreldra og bama.
Sérstaklega er móðurhlutverkið
Allen mikil ráðgáta og þau áhrif
sem mæöur hafa á afkvæmi sín.
Myndin er því, eins og fleiri
myndir Allens, dálítið hæg og
þunglyndisleg. Hins vegar er inn-
sæi hans skarpt og margt sem hann
tekur til meðferðar fallið til þess
að vekja áhorfendur til umhugsun-
ar. Háðið er heldur aldrei langt
undan.
Leikarahópurinn er að stórum
hluta sá sami og unnið hefur með
Allen á undanförnum árum og
leika flestir af öryggi og styrk.
Farrow, eiginkona Állens, er í aðal-
hlutverki og ferst það býsna vel úr
hendi. Þessi mynd er ekki fyrir alla,
til þess er atburðarásin of hæg og
huglæg frekar en að hún snúist um
raunverulega atburði. Unnendur
Allens fá hér hins vegar trausta og
heilsteypta vöru eins og fyrri dag-
inn. -Pá
★ */2
Margsagðuratburður
THE PLOT TO KILL HITLER
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Lawrence Schiller.
Aðalhlutverk: Brad Davis, Madolyn
Smith, lan Richardson og Helmut Griem.
Bandarísk, 1990-sýningartimi 126 min.
Bönnuö börnum innan 12 ára.
Allir sem eitthvað hafa kynnt sér
síðari heimsstyrjöldina vita að her-
foringjar Hitlers sýndu honum al-
varlegt banatilræði árið 1944, tfl-
ræði sem mistókst. Hitler hefndi
sín grimmilega á þeim sem tóku
þátt í samsærinu gegn honum og
lét taka þá alla af lífi og fleiri sem
hann hélt að hefðu komið við sögu.
Þegar þetta tilræði var gert var far-
ið að síga á ógæfuhliöina í her-
brölti þriðja ríkisins og Hitler þoldi
enga gagnrýni og hafði aðeins sér
við hliö hirð af herforingjum sem
fölsuðu skýrslur til að bjarga eigin
skinni.
The Plot to Kill Hitler segir frá
þessu samsæri og er aðalpersóna
myndarinnar Staufenberg höfuðs-
maður sem stóð aö vísu ekki einn
að baki áætluninni, en var sá sem
reyndi að framkvæma verknaðinn.
Brad Davis túlkar þennan óláns-
ama mann sem gat ekki horft upp
á þjóð sína eyðast vegna vitfirrings
sem var í valdastóli.
Það hefur áður verið íjallað um
þennan atburð í kvikmynd og það
oftar en einu sinni, og þaö er fátt
nýtt sem kemur fram hér. Það er
helst að reynt er að bendla þekkta
hershöfmgja viö tilræðið bæði
beint og óbeint. Kryddað er í sögu-
þráðinn með því að lýsa heilbrigðu
fjölskyldulífi barónsins.
Þótt rúm fjörutíu og fimm ár séu
frá þvi síðari heimsstyrjöldinni
lauk ætlar kvikmyndabransinn
seint að fá leiöá á að gera kvik-
myndir um þennan örlagaríka
kafla í mannkynssögunni. The Plot
to Kill Hitler er aðeins ein ónauð-
synleg myndin í viðbót um styrj-
öldina, mynd sem þar að auki er
allt of löng. -HK
★★
mm
Ævintýrasteinninn
BLOODSTONE
Útgefandl: Laugarásbió.
Leiksfjórn: Dwight Little eftir handriti
Nico Mastorakis.
Aðalhlutverk: Brett Stimely, Rajni Kanth
og Anna Nicholas.
Amerísk - 1989.
Sýningartimi - 95 minútur.
Bönnuö börnum innan 12 ára.
Ævaforn indverskur rúbínn, sem
töfrakraftur á að fylgja, hverfur úr
vörslu safns í Bretlandi. Grunur
leikur á að steininum eigi að skila
til sinna réttu heimkynna á ný.
Ungt par, sem er á ferð í Indlandi
með lest, rekst á einkennilegan
mann sem reynist hafa steininn í
pússi sínu. Hann laumar steiinum
í farangur unga fólksins til þess að
koma í veg fyrir aö óheiðarlegir
menn komi höndum yflr hann.
Hefst nú mikill eltingarleikur því
allir vilja eignast steininn.
Þetta er að mörgu leyti hefð-
bundin ævintýra og spennumynd í
anda Indiana Jones og kappa af
svipuðu tagi. Það eru þó minni spá-
menn sem sitja við stjórnvöhnn og
myndin verður aldrei verulega
æsileg. Flestir leikara eru slakir og
átakaatriði oft viðvaningslega út-
færð.
Það kemur þó ekki í veg fyrir að
böm og unglingar gætu haft af
þessu nokkra skemmtun og full-
orðnir líka ef þeir taka viljann fyr-
irverkið -Pá