Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1991, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1991, Síða 38
50 F YLLIN G AREFNI Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæöu veröi. Gott efni, lítil rýmun, frostþolið og þjappast LÁÖ,GÁKDÁGtiRr9.:kÁRS' ÍÖáf. vel. Ennfremur höfum viö fyrirliggjandi sand og möl af ýmsum grófleika. Sævarhöföa 13 - sími 681833 y mwifAlI&LEIÍI Smiðshöfða 6 112 Reykjavík, sími 674800, fax 674486 UTSALA TRESMIÐAVELAR - JARNSMIÐAVELAR RÝMUM FYRIR NÝJUM VÉLUM 10-20% AFSLÁTTUR Á NÝJUM OG NOTUÐ- UM VÉLUM NÆSTU DAGA. EIGUM ÁVALLT MIKIÐ ÚRVAL AF NÝJUM OG NOTUÐUM VÉLUM. OPIÐ LAUGARDAG KL. 13 - 16 # Byggdastofnun Fjarvinnsla fyrir opinberar stofnanir Ríkisstjórnln hefur ákveðið að ráðuneyti og stofnanir flytji gagnaskráningu og ritvinnslu til fjarvinnustofa á lands- byggðinni eftir því sem tök eru á. Byggðastofnun hefur verið falin umsjón með framkvæmd þessa máls. Allmargar ríkisstofnanir hafa sýnt fjarvinnslu áhuga og fjárveiting hefur fengist til að greiða aukakostnað vegna flutnings verkefna. Þeir aðilar á landsbyggðinni, sem hafa áhuga og mögu- leika til að taka að sér ritvinnslu og/éða gagnaskráningu fyrir opinberar stofnanir, eru beðnir að senda upplýsingar um tækjakost, fjölda starfsmanna, menntun og þá þjón- ustu, sem I boði er, til þróunarsviðs Byggðastofnunar fyrir 25. mars næstkomandi. Þessum upplýsingum verður dreift til allra rikisstofnana sem síðan munu semja við hlutaðeigandi milliliðalaust. Byggðastofnun, þróunarsvið Rauðarárstíg 25 125 Reykjavík Sími (91) 605 400, grænt númer 99 66 00, myndriti (91) 605 499 Afmæli Kristjana Stefánsdóttir Kristjana Stefánsdóttir húsmóðir, Meðalholti 10, Reykjavík, verður sjötug á morgun. Starfsferill Kristjana fæddist á ísafirði og ólst upp í Reykjavík en þangað ílutti hún með foreldrum sínum 1924. Ásamt húsmóðurstörfum hefur Kristjana stundað afgreiðslu- og þjónustu- störf, lengst af á Dvalarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík. Fjölskylda Kristjana giftist 27.6.1942 Páli Júníusi Pálssyni, f. 21.3.1920, raf- verktaka en þau slitu samvistum. Foreldrar Páls: Páll Júníusson og Þórdís Eyjólfsdóttir að Syðra-Seli á Stokkseyri. Kristjana og Páll Júníus eiga fjög- ur börn. Þau eru Júníus, f. 24.11. 1942, tannsmiður í Reykjavík, kvæntur Guönýju fngibjörgu Ei- ríksdóttur frá Bakkakoti í Skorradal og eiga þau fjórar dætur, Kristjönu, f. 26.5.1963, sem gift er Sigmundi Halldórssyni frá Klúku í Hjalta- staðaþinghá en þau eiga tvö börn, Halldór Berg og Júníu; Guðrúnu, f. 12.8.1965, húsmóður á Shetlandseyj- um sem er gift Arthur Inkster; Ágústu, f. 10.11.1972; Rannveigu, f. 7.7.1981. Grétar, f. 28.3.1945, flugumferðar- stjóri í Reykjavík, kvæntur Ástu Sigurðardóttur og eiga þau tvær dætur, Ingibjörgu Berglind, f. 16.7. 1969, starfsmann á röntgendeild Borgarspítalans; Heiðrúnu Fríðu, f. 25.5.1972, nema, en sambýlismaður hennar er Ástvaldur Bjarki Þráins- sontrésmiður. Þórdís, f. 9.10.1948, húsmóðir í Haukadal í Lýtingsstaðahreppi, gift Erlendi Ragnarssyni trésmíða- meistara og eiga þau þrjú börn, Kristínu Björk, f. 13.5.1969, af- greiðslumann en sambýlismaður hennar er Gissur Ólafur Kristjáns- son nemi; Pál Stefán, f. 27.8.1974, nema; Guðbjörtu, f. 2.12.1981. Stefanía, f. 14.11.1951, fóstra, gift Val Sigurðssyni, rafvirkjameistara í Kísiliðjunni, og eiga þau þrjú börn, SoffíuHelgu, f. 19.12.1976; Guð- mund, f. 5.1.1983; Pál Júníus, f. 30.8. 1984. Systkini Kristjönu eru tvö: Gísli, fyrrv. borgarstarfsmaður, kvæntur Sigríði Sigurðardóttur frá Ytri-Hlíð í Vopnaflrði, en sonur þeirra er Sig- urður Gísli lögfræðingur og er sam- býliskona hans Margrét Gunnars- dóttir nemi; Ragnheiður, var gift Hannesi Einarssyni stýrimanni en þau slitu samvistum og erú synir þeirra Einar nemi og Grétar nemi. Foreldrar Kristjönu voru Stefán Janus Björnsson, f. 25.1.1888, um- sjónarmaður Verkamannabústaða í Reykjavík og innheimtumaður hjá Kristjana Stefánsdóttir. Reykjavíkurborg, ogRagnheiður Brynjólfsdóttir, f.21.4.1884, húsmóð- ir. Ætt Stefán var sonur Björns Jónsson- ar og Guðrúnar Loftsdóttur, b. í Litlu-Ávík, Bjarnasonar, Bjarna- sonar, af ætt Einars Sigurðssonar, sálmaskálds í Eydölum. Ragnheiður var dóttir Brynjólfs, b. á Klippstöðum, Benjamínssonar í Langanesi, Björnssonar í Dagverð- arnesi, Einarssonar á Kjóastöðum, Högnasonar. Móðir Ragnheiðar var Margrét Jónsdóttir, b. í Kothrauni í Helgafellssveit, Jónssonar. Sigvaldi Guðbjöm Loftsson Sigvaldi Guöbjörn Loftsson sjómað- ur, Stekkjarholti 22, Akranesi, er sexíugurídag. Starfsferill Sigvaldi Guðbjörn fæddist í Vík í Hafnarhólmi í Kaldrananeshreppi í Strandasýslu og ólst þar upp í for- eldrahúsum þar til hann flutti á Akranes 1952 en þar hefur hann búið síðan. Hann hefur stundað sjó- mennsku á Akranesi frá því hann kom þangað, fyrst á fiskibátum frá Akranesi en 1970 hóf hann útgerð á eigin trillu sem hann stundar enn. Fjölskylda Sigyaldi Guðbjörn kvæntist 12.10. 1963 Ágústínu Hjörleifsdóttur, f. 18.1.1936, húsmóður, en hún er dótt- ir Hjörleifs Guðmundssonar og Guðrúnar Gunnarsdóttur. Börn Sigvalda Guðbjörns eru Loft- ur Smári, f. 22.9.1954, verkamaður á Akranesi; Guðrún, f. 4.1.1961, verkakona á Akranesi, sambýlis- maður hennar er Aðalsteirin Haf- steinsson og eiga þau einn son, Bjarka Þór, f. 26.7.1982; Helga, f. 14.11.1962, bankastarfsmaður í Grundarfirði, sambýlismaður hennar er Guðmundur Friöriksson; Hilmar, f. 4.3.1966, bankastarfsmað- ur á Akranesi, og Hildur, f. 28.7. 1971, fiskvinnslumaður á Akranesi. Sigvaldi átti tólf systkini og eru fj ögur þeirra á lífi. Þau eru Guö- brandur, b. í Hveravík í Stranda- sýslu; Þorvaldur, er stundar sjálf- stæðan atvinnurekstur á Akranesi; Loftur, bifvélavirki í Garðabæ, og Sóley, húsfreyja á Bæ í Kaldrana- neshreppi. Foreldrar Sigvalda Guðbjörns Sigvaldi Guðbjörn Loftsson. voruLofturTorfason, f. 19.12.1892, d. 26.7.1965, b. að Vík í Hafnar- hólmi, og Hildur Gestsdóttir, f. 20.9. 1896, d. 30.6.1984, húsfreyja. .mars 70 ára Bjarni Páll Jónsson, Hrafpagilsstræti 14, Akureyri. Marta Stefánsdóttir, Ysta-Koti, Vestur-Landeyjura. Rósfríður Eiðsdóttir, Helgamagrastræti 27, Akureyri. Fjóla Bjarnadóttir, Grundarvegi 17, Njarðvík. 50 ára 60ára MaríaHaukdal, Vesturgöt.u 33A, Reykjavik. Kristin Einarsdóttir, Bröttuhlið 3, Akureyri. Elísabet Svavarsdóttir, Túngötu 37, Reykjavík. Sonja Ingibjörg Kristensen, Sólvallagötu 14, Keflavík. Albert Guðlaugsson, Naustabúö 13, Neshreppi. 40ára Sigurborg Þorvarðardóttir, Hjallabraut 37, Hafnarfiröi. Kristín Lilja Sigurðardóttir, Vesturbergi30, Reykjavlk. Símon Helgi ívarsson, Ásholti 2, Mosfellsbæ. Kristinn K. Guðmundsson, Þingholtsstræti26, Reykjavík. Bryndis Hilmarsdóttir, Breiðvangi 54, Hafnarfirði. Pétur Reimarsson, Brekkugötu 34, Akureyri. Ragnheiður Magnúsdóttir, Hléskógum 11, Reykjavík. Helgi Backman, Langholti, Skaftárhreppi. Ingólfur Einarsson, Lyngheiði 5, Hveragerði. Magnús Ólafsson, Brekkubæ 12, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.