Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1991, Qupperneq 7
r
LMTGAHÐAGUR 9,'MAÍIU 1991.'
I>V
Fréttir
Ullarsala til Sovét:
Alafoss í kröppum dansi
Fulltrúar Álafoss fara til Sovétríkj-
anna nú um helgina til að freista
þess að ná sölusamningum fyrir
framleiðslu sína og innheimta skuld
upp á 215 milljónir vegna sölu þangað
á síðasta ári. Engin viðskiptabókun
er nú milh landanna og verða Ála-
fossmenn því að semja beint við
hugsanlega kaupendur í Sovétríkj-
unum.
Um nokkurra mánaða skeið hafa
staðið yflr samningaviðræður eink-
um við tvo aðila varðandi kaup á
ullarvörum héðan. Aö sögn Ólafs
Ólafssonar, forstjóra Álafoss, hafa
þessar viðræður einkum staðið við
við Sovéska samvinnusambandið og
Rússnesku innkaupastofnunina.
Hann segir að rætt sé við þessa aðila
um sölu fyrir allt að 800 milljónir
króna.
í byrjun síðasta mánaðar var við-
Trillukarl:
„Ég tilkynnti
víst um mig“
Vegna fréttar DV í gær um trillu-
karl, sem Tilkynningaskyldan í
Reykjavík leitaði að í fyrrinótt þar
sem hann hafði ekki tilkynnt um sig
í fyrrakvöld, vill Kristján Jakobsson,
eigandi bátsins, koma því á framfæri
að hann hafi tilkynnt tvisvar um sig
til Slysavarnafélagsins í fyrradag.
Greint var frá því í gær að þegar leit
var að hefjast að trillunni í fyrrinótt
hefði lögreglan loks fundið manninn
er hann var kominn upp í rúm heima
hjá sér, löngu kominn í land og að
sjálfsögðu heill á húfi.
„Ég tilkynnti um mig og gaf stað-
setningu um ehefuleytið. Þegar ég
kom að landi, klukkan rúmlega fimm
síðdegis, tilkynnti ég síðan um komu
mína. Það er því ekki rétt að ég hafi
ekki látið vita af mér,“ sagði Kristján
í samtali við DV í gær.
Að sögn starfsmanns hjá Tilkynn-
ingaskyldunni í gær er ekki útilokað
að tveir hafi tilkynnt sig í einu í tal-
stöðina þegar Kristján lét vita afsér
í fyrradag og tilkynningarnar hafi
verið skildar sem ein. Hann sagði það
stundum gerast aö tveir til þrír
„væru í loftinu í einu“. Ekkert fannst
bókað um að Kristján hefði tilkynnt
um komu sína klukkan fimm á
fimmtudaginn - því hefði eðhlega
verið farið að óttast um hann.
-ÓTT
VlkingBrugg:
Páskabjórinn
á markaðinn
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Viking Brugg hf. á Akureyri hefur
nú öðru sinni sett á markaðinn
páskabjór. Þessi bjór var' fyrst á
markaði á síðasta ári og líkaði svo
vel að hann seldist upp á skömmum
tíma.
Vegna langs vinnslutíma er ein-
ungis hægt að framleiða takmarkað
magn af bjórnum, eða svipað magn
og á síðasta ári. I fréttatilkynningu
frá Viking Brugg segir að við vinnslu
bjórsins séu notaðar aðferðir sem
einungis séu á færi hins þýska brugg-
meistara fyrirtækisins, Álfred Teuf-
el. í bjórinn eru notuð úrvals hráefni
og það ásamt framleiðsluaðferðum
og ströngu gæðaeftirliti tryggir að
um mjög vandaðan bjór sé að ræða.
Páskabjórinn er 5,6% að styrk-
leika. Hann er seldur á einnota flösk-
um eins og allur flöskubjór Viking
Brugg kemur til með að vera í en
Löwenbrau, Viking bjór og Viking
pilsner eru þegar komnir á slíkar
flöskur.
reynir samningaviðræður við Sovétmenn enn á ný
ræðunum við Sovéska samvinqu-
sambandið frestað einhhða af hálfu
Sovétmanna en í þeim viðræðum var
rætt um viðskipti upp á 150 milljónir
króna á yfirstandandi ári. Ástæðan
var fyrst og fremst gjaldeyrisskortur
en einnig þótti sýnt að pólitískur
stirðleiki í samskiptum landanna
vegna Litháensmálsins hefði þar
einnig áhrif á.
Hvað varðar samninginn við Rúss-
nesku innkaupastofnunina er verið
að ræða viðskipti upp á allt að 650
milljónir á næstu tvehnur árum. Ól-
afur vildi ekki skýra DV frá hvers
vegna dráttur hefði orðið á þessum
samningi en í samtali við DV fyrir
mánuði kvað hann fullnægjandi
ábyrgðir ytra vera fyrir hendi, þar á
meðal ríkisábyrgð, undirrituð af for-
sætisráðherra Rússneska lýðveldis-
ins.
Fyrir Álafoss eru gífurlegir hags-
munir í húfi varðandi framtíð fyrir-
tækisins um að þessir samningar
takist. Á síðasta ári nam tap fyrir-
tækisins um 250 milljónum króna og
tvö árin á undan nam tapið samtals
tæplega 2 milljörðum. Skuldir fyrir-
tækisins eru vel á þriðja milljarð.
-kaa
JjHp''' ÞATTASKIL
í framleiðslu þvottaefnis
VENJULEG
ÞVOTTAEFNI
ARIEL
Áhrifaríkara en áður hefur þekkst.
Helmingi minna magn er notað
hverju sinni.
Sannkallaður blettabani.
Forþvottur óþarfur.
HELMINGI MINNA ÞVOTTAEFNI.
í ARIELultra eru einungis notuð bestu fáanlegu hráefni,
sem hafa verið hreinsuð af öllum óþarfa aukaefnum.
Þvottaduftsagnirnar eru smáar, þjappast vel saman
og leysast strax upp í vatni. Skömmtunarkúlan auðveldar
að mæla rétt magn og tryggir að þvottaefnið dreifist
strax í allan þvottinn. Þvottatíminn nýtist að fullu.
ÞÆGILEGRA I NOTKUN
Auðveldara í meðhöndlun
Sparar geymslupláss.
Þægileg skömmtun
Kúla í stað óhreinna hólfa,
UMHVERFISVÆNT. Af ARIELultra notar þú helmingi
minna þvottaefni og stuðlar
að hollara umhverfi.
Pakkningin er helmingi
minni og sparar pappa
í umbúðir.
ORKUSPARANDI
- Styttri þvottatími.
WWF
VENJULEG
ÞVOTTAEFNI
ARIEL ULTRA VINNUR
MEÐ UMHVERFIS-
VERNDARSAMTÖKUM.
Einkaumboð:
Tunguháls 11 ■ sími 82700