Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1991, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1991, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 9. MARS 1991. Erlend bóksjá Urval ljóða Redgroves Peter Redgrove, sem fæddist áriö 1932, hefur síðustu áratugina veriö afkastamikið og virt ljóö- skáld í heimalandi sínu, Eng- landi, auk þess sem hann hefur samið skáldsögur og leikrit. í þessari bók er birt úrval ljóöa hans í meira en þrjá áratugi, frá 1954 til 1987. Samtals 117 ljóö eru hér valin úr þeim þrettán ljóðabókum sem Redgrove sendi frá sér á áðurnefndu árabili. Sumar þessara ljóöabóka hans hafa reyndar hlotið ensk bók- menntaverölaun. Þaö sama á við um eina af skáldsögum Redgro- ves og í þaö minnsta tvö leikrita hans. Ljóöin í þessu úrvali eru fjöl- breytileg aö efni og stíl enda ort á löngu tímabili. Sum ljóðanna eru nánast prósi en önnur í meitl- aöra formi. Redgrove flnnur sér ekki síst yrkisefni í ástinni og náttúrunni en sumir gagnrýn- endur hafa fundiö i ljóðum hans skyldleika við Blake. POEMS 1954-1987. Höfundur: Pefer Redgrove. Penguin Books, 1989. Rússneskur skáldjöfur Lífsverk Tolstoys greifa er mik- iö að vöxtum. Rússnesk útgáfa á ritverkum hans fyllir níutíu bindi. Lífshlaup þessa mikla skáldjöf- urs Rússa var ekki síður stórt í sniöum en ritverk hans. Þaö er því ekkert áhlaupaverk að fjalla um ævi Tolstoys og verk. A. N. Wiison réðist í slíkt stórvirki, lagði í þaö nokkurra ára vinnu og hefur fengiö mikiö lof fyrir árangurinn sem birtist í þessari tæplega sex hundruö blaðsíðna bók. Wilson tekur viðfangsefniö hefðbundnum tökum. Hann rek- ur æviferil Tolstoys í tímaröö, tengir verk hans viö þann veru- leika sem þau eru vaxin af og frægar sögupersónur Tolstoys, svo sem í Stríöi og friöi og Önnu Kareninu, við þær fyrirmyndir sem skáldið haföi allt í kringum sig. Hér sést glögglega aö Tolstoy var afar margbrotinn persónu- leiki. Hann var mjög upptekinn af sjálfum sér og sínum hug- myndum og fór eigin, oft sér- kennilegar, leiöir. Segja má aö hann hafi verið stór jafnt í ris- miklum skáldskap sínum sem í öfgafullri sérviskunni. TOLSTOY. Höfundur: A. N. Wilson. Penguin Books, 1989. Af Sylvíu Plath og Dylan Thomas Tilviljun ræöur því vafalaust að verk tveggja skálda, sem eiga það sameiginlegt aö hafa dáiö fyrir aldur fram viö hörmulegar aöstæður, eru um þessar mundir til meðferðar hjá reykvískum leikhópum. Þetta eru þau Dylan Thomas, sem lést af of- drykkju og ofneyslu lyfja í New York í nóvember áriö 1953 og Sylvía Plath sem stakk höfðinu í gasofn í London í febrúar árið 1963 og framdi þannig sjálfsmorð. Bæöi hafa þau öölast þjóðsagna- kenndara langlífi og frægð eftir dauöann en títt er um ljóðskáld. Af þessu tilefni er ástæöa til aö minnast lítillega á þessi aö mörgu leyti ólíku skáldsystkin og nefna nokkrar þær bækur sem aögengileg- ar eru fyrir þá sem hafa hug á aö kynnast þeim, eöa verkum þeirra, Ljóöskáldið frá Wales Dylan fæddist í Wales rétt eftir upphaf fyrri heimsstyrjaldarinnar, eöa 27. október áriö 1914, og var því innan við fertugt þegar hann lést. Fyrsta ljóðabók hans kom út þegar hann stóð á tvítugu, áriö 1934. Hann vann síðan fyrir sér meðal annars meö því aö lesa upp ljóö og aö skrifa fyrir útvarp og í blöð, en var þó allt- af peningalaus vegna sífellt vaxandi áfengisneyslu. García Lorca hallaðist að því aö ljóöiö vaknaði þá fyrst til lífsins er það væri mælt af vörum fram; þvílíkt líf gæti þaö ekki öðlast á hvítum pappírnum. Og Dylan var einmitt gott dæmi um þaö hvernig frábær ljóðaflytjandi gat kveikt í áheyrend- um. Þess vegna var eftir því sóst aö fá hann til að lesa ljóö sín, ekki síst í Bandaríkjunum. Hann var einmitt í einni slíkri ferð þegar hann lést. Öll helstu verk Dylan Thomas eru til í pappírskiljum (Dent). Það á til dæmis viö um ljóðasöfnin „Collected Poems 1934-1952“, sem fyrst kom út Dylan Thomas. árið 1952, og „Dylan Thomas: The Poems“ sem birtist síðar en þar er einnig aö frnna ýmis ljóð sem Dylan haföi ekki sent frá sér sjálfur og því væntanlega ekki verið fullkomlega ánægður meö. Leikritið „Under Milk Wood“, sem nú er flutt á Herranótt, kom fyrst á prent eftir að Dylan var allur, þótt það hafi verið flutt eöa öllu heldur lesið á sviði áður. Þeim sem vilja kynna sér lífshlaup Dylans nánar skal bent á ævisöguna „Dylan Thomas“ eftir Paul Ferris (Penguin), og svo auðvitað sjálfsævi- sögubrot Dylans sjálfs: „Portrait of the Artist as a Young Dog“. Þá hafa ýmis bréf hans veriö gefin út í bók- inni „Selected Letters of Dylan Thomas“. Áttu sama „ afmælisdag Þaö er ein af þessum skemmtilegu tilviljunum lífsins að Sylvía Plath átti sama afmælisdag og Dylan Thomas. Hún fæddist í Bandaríkjun- um 27. október árið 1932 - daginn sem Dylan varð átján ára. Og stóö á þrít- ugu þegar hún lést. Sylvía einsetti sér þegar á barns- aldri að verða ljóðskáld og lagði sig alla tíð mjög fram um gera þá fyrir- Sylvía Plath. ætlun sína að veruleika. Það tókst henni svo sannarlega. Sylvía var í nánu en erfiðu sam- bandi við móður sína, Aureliu, þótt þær væru að mestu aðskildar síðasta eina og hálfa áratuginn í lífi Sylvíu sem dvaldi þann tíma fyrst í fram- haldsskólum og síðan í Englandi. En á þessum árum, frá 1950 til 1963, skrifaði hún nær sjö hundruð bréf til fjölskyldu sinnar í Bandaríkjun- um. Það leikrit sem nú er sýnt í Þjóð- leikhúsinu byggir einmitt á tilvitn- unum í nokkur þeirra bréfa sem Syl- vía skrifaði móður sinni á þessu tímaskeiði. Úrval bréfa Sylvíu hefur verið gefið út í pappírskilju undir nafninu: „Letters Home - Correspondence 1950-1963“ (Faber). Sylvía hélt dagbækur mikinn hluta lífs síns. Dial Press í Bandaríkjunum hefur gefið þær flestar út í „The Jo- urnals of Sylvia Plath“. Ljóðasafn Sylvíu, „Collected Po- ems“, er einnig til í pappírskilju (Fa- ber) sem og eina skáldsaga hennar, „The Bell Jar“. Margar bækur hafa verið skrifaðar um líf og list Sylvíu Plath. Nýjasta og umdeildasta ævisagan er „Bitter Fame“ eftir Anne Stevenson (Pengu- in). Metsölukiljur Bretland Skáldsögur: 1. A. S. Byatt: POSSESSION. 2. John Mortímer: TITMUSS REGAINED. 3. John le Carré: THE RUSSIA HOUSE. 4. John Mortímer: RUMPOLE Á LA CARTE. 5. Arthur Halley: THE EVENING NEWS. 6. Danlelle Steei: DADDY. 7. P.D. James: DEVICES AND DESIRES, 8. Bernard Cornwell: SHARPE'S WATERLOO. 9. Campbell Armstrong: MAMBO. 10. Catherine Cookson: THE BLACK CANDLE, Rit almenns eðlis: 1. Peter Mayle: A YEAR IN PROVENCE. 2. Orlving Standards Agency: YOUR ORIVING TEST. 3. Cleese & Skynner: FAMILIES AND HOW TO SURVIVE THEM. 4. Roaemary Conley: METABOLISM BOOSTER DIET. 5. Rosemary Conley: COMPLETE HIP & THIGH DIET. 6. Hannah Hauxwetl: SEASONS OF MY LIFE. 7. Jackle Bennett & Rosmary Forgan: THERE’S SOMETHING ABOUT A CONVENT GIRL. 8. Rosemary Conley: INCH-LOSS PLAN. 9. Edward De Bono: I AM RIGHT YOU ARE WRONG. 10. Robert Flsk: PITY THE NATION. (Byggt á The Sunday Times) Bandaríkin Skáldsögur: 1. Michael Blake: DANCES WITH WOLVES. 2. Thomas Harris: THE SILENCE OF THE LAMBS. 3. Judíth Michael: A RULING PASSION. 4. P. D. James: DEVICES AND DESIRES. 5. James A. Michener: CARIBBEAN. 6. Robin Cook: HARMFUL INTENT. 7. Jude Oeveraux: THE CONQUEST. 8. David L, Lindsay: MERCY. 9. Amanda Quick: SCANDAL. 10. Chatheríne Coulter: THE SECRET SONG. 11. Tony Hillerman: TALKING GOD. 12. Nancy Príce: SLEEPING WITH THE ENEMY. 13. Peter Straub: MYSTERY. 14. Umberto Eco: FOUCAULT’S PENDULUM. 15. Cathy Cash Spellman: PAINT THE WIND. 16. Mary Higgins Clark: THE ANASTASIA SYNDROME AND OTHER STORIES, Rit almenns eðiis: 1. Thomas L. Friedman: FROM BEIRUT TO JERUSALEM. 2. Judíth Miller & Laurie Mylroie: SADDAM HUSSEIN AND THE CRISIS IN THE GULF. 3. Betty Mahmoody, Wflliam Hoffer: NOT WITHOUT MY DAUGHTER. 4. Jean P. Sasson: THE RAPE OF KUWAIT. 5. Robert Fulghum: ALL I REALLY NEED TO KNOW I LEARNEÐ IN KINDERGARTEN. 6. John Naisbitt & Patricia Aburdene: MEGATRENDS 2000. 7. JHI Ker Conway: THE ROAD FROM COORAIN. 8. M. Scott Peck: THE ROAD LESS TRAVELED. 9. Oliver Sacks: AWAKENINGS. 10. John F. Walvoord: ARMAGEDDON, OIL AND THE MIDDLE EAST CRISIS. (Byggt á New York Times Book Review) Danmörk Skáldsögur: 1. Anais Nin: DAGBOG 1934-39. 2. Isabel Allende: EVA LUNA. 3. Marcel Pagnol. MIN FARS STORE DAG, MIN MORS SLOT. 4. Jean M. Auel: HESTENES DAL. 5. Jean M. Auel: MAMMUTJÆGERNE. 6. Marcel Pagnol: KILDEN I PROVENCE. 7. Bjarne Reuter: VI DER VALGTE MÆLKEVEJEN 1-2. 8. Jean M. Auel: HULEBJ0RNENS KLAN. 9. John Irving: EN B0N FOR OWEN MEANY. 10. Knud H. Thomsen: DEGNEN 1 KRAGEVIG. (Byqqt á Pojjtlken Snndaq) Umsjón: Elías Snæland Jónsson ‘1 h e Histortcat B u d d fi a Líf og starf Gautama Búdda Árið 528 fyrir upphaf tímatals okkar flutti Siddhart Gautama, öðru nafni Búdda, fyrstu predik- un sína. Þau nýju trúarbrögð, sem hann boðaði, hafa haft víð- tæk áhrif á fjölda fólks, ekki að- eins í heimalandi hans, Indlandi, heldur víða um heim. í þessari bók er hins vegar ekki fjallað um þróun búddismans í heiminum heldur sjónum beint að Gautama sjálfum; manninum, lífi hans, starfi og umhverfi. Fer- ill hans frá því hann fæddist árið 563 fyrir Krist í þorpinu Kapila- vatthu, sem er við núverandi landamæri Indlands og Nepal, þar til hann lést í bænum Kusin- ara árið 483 er ítarlega rakinn samkvæmt fyrirliggjandi ind- verskum heimildum. Höfundurinn fjallað einnig um hvernig upphaflegar kenningar Gautama þróuðust frá því hann fór, rétt innan við þrítugt, að leita „sannleikans" þar til boðskapur- inn fékk skipulegt form og i fram- haldi af því vaxandi fylgi meðal lýðsins. THE HISTORICAL BUDDHA. Höfundur: H. W. Schumann. Penguin Books, 1989. Og asninn sá engilinn Nick Cave, sem mun ástraiskur að uppruna, reynir vissulega að fara eigin leiðir í þessari fyrstu skáidsögu sinni. Hann ýtir les- andanum inn í lokað sértrúar- samfélag þar sem sérstök útgáfa af guði og ritningunni er ráðandi í lífí fólksins. Við slíkar aöstæður eru öfgarnar ríkjandi og grunnt á ofstæki og trúarofsa. Trúarlegt áreiti og átök einkenna gjarnan viðhorf og viðskipti sögupersón- anna sem búa í þessu samfélagi og eru sumar hverjar allsérstæð- ar. Frásagnarstillinn tekur nokkuð mið af þessu. Orðgnóttin er mik- ii, jafnvel svo að lýsingar eru stundum uppskrúfaðar, og myndir af persónum og atburð- um oft dregnar í afar sterkum lit- um. Þótt vissulega megi deila um árangurinn og sumum muni þykja frásögnin fremur tilgerðar- leg fantareið er óneitanlega hressandi tilbreyting að lesa skáldsögu þar sem höfundurinn reynir aö brjótast út úr farvegi hins meitlaða og yfirvegaða og lætur gamminn geisa. AND THE ASS SAW THE ANGEL. Höfundur: Nlck Cave. Penguln Books, 1990.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.