Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1991, Qupperneq 18
18ci
LAWAHD4GUK í9í Mfmmt
Veidivon
Flaskan
Lögregian var eitt sinn kölluö
J aö einum skemmtistaö hér í borg
vegna þess aö maöur haíöi veriö
barinn með flösku. Erveröirlag-
anna mættu á staðinn var mann-
greyið að ranka við sér eftir liögg-
ið.
„Þú verður nú íljótur aö jafna
þig eftir þetta,“ sagðí einn lög-
regluþjónninn hugiireystandi.
„Já, kannski," svaraöi maður-
inn. „Þetta var nú bara léttvíns-
Qaska. Ekki hefði ég boðiö í það,
heíöi ihniháldið verið eitthvað
sterkara.“
Skyldleikinn
Skömmu eför glæsilegan ár-
angur Grétars Örvarssonar og
Sigríðar Bemteinsdóttur í
söngvakeppninni voru eldri lijón
á Akureyri að velta fyrir sér ætt-
erni söngvaranna. Þau voru al-
veg viss á að Grétar væri sonur
Örvars Kristjánssonar harmón-
íkuleikara enætt Siggu Beinteins
var þeim hms vegar huhn ráð-
gáta. Er þau höfðu spekúlerað í
henni góða stund, ságði sú gamla:
„Hún er þó ekki systir Svein-
bjarnar Beinteinssonar alisherj-
argoða?"
Styrkurinn
Kaupmaður einn hitti eitt sinn
vinkonu sína og spurði hvar Ní-
els, sonur hennar, væri.
„Hann er í Danmörku,“ svaraði
konan.
„Er hann að vinna þar?“ spurði
kaupmaðurinn.
„Nei, hann er sko aldeílis ekki
að vinna þar," svaraði konan
gremjulega.
„Nú, er hann kannski viö
nám?“ spurði kaupmaðurinn þá
aftur.
; „Nei, hann er sko aldeilis ekki
við námsvaraöi konan.
„Hvað er hann þá að gera i
Danmörku?" spurði kaupmaður-
inn forvitnari en fyrr.
„Hann er á styrk,“ svaraði kon-
an enn reiöilegri en fyrr.
Landeigendur sjálfir með Vesturdalsá í Vopnafirði:
A frjálsan markað
Góð meðalveiði
Garðar sagði í samtali viö DV að
veiðileyfm í ána í sumar væru nær
uppseld en veitt er á þrjár stangir í
Vesturdalsá. Veiöitímabiliö er styttra
þar en í flestum ám, liðugir tveir
mánuöir, en veiðin hefst 5. júli og
stendur til 12. september. Veiðileyfm
eru seld í þriggja daga hollum og er
verðið 6.000 til 21.000 krónur á stöng
á dag og veiði oft fimagóð. Að meðal-
tali hefur veiðin verið um 250 laxar
á sumri sem gerir rúmlega 1,2 laxa
á stöng á dag, en best hefur hún orð-
ið 500 til 600 laxar sem jafngildir hátt
í þremur löxum á stangardag. Auk
laxins veiðist falleg sjóbleikja víða í
ánni en hún er yfirleitt 1 og 2 pund
- oft stærri en sjaldan minni. Aö jafn-
aði veiðast 700 til 1.400 bleikjur í ánni
á hverju sumri.
Vesturdalsá er frekar vatnslitil en
afar falleg veiðiá. Hún á upptök sín
í Amarvatni en þar er vatnsmiðlun
og til samburðar má nefna að Vestur-
dalsá er svipuð Flókadalsá í Borgar-
firði að vatnsmagni. Áin er um 33
km löng frá ósi og upp að fremsta
fossi sem er ólaxgengur. Annar foss
er þar nokkru neðar en á þessu svæði
hefur veiðin ekki veriö leyfð hingað
til. Áin rennur um Vesturárdal og út
í Skógarlón, skammt norðan Vopna-
fjarðarkaupstaðar. Merkilegt er að
þó að systur Vesturdalsár og ná-
grannar, Selá og Hofsá, séu mun
vatnsmeiri er meðalþyngd laxa ekki
ósvipuð í þessum ám. Þannig hafa
þrír 25 punda laxar veiðst í Vestur-
dalsá og þar veiðist oft stærsti lax
sumarsins úr Vopnafjaröaránum.
Einn þessara 25 punda laxa var
stoppaður upp og prýðir veiðihúsið
viö ána.
Sigríður Huld og Hulda Guðrún með
Veiðisvæðið lengt
„í sumar verður í fyrsta sinn leyft
að veiöa milli fossa fremst i Vestur-
dalsá og þannig lengist veiöisvæðið
um hálfan annan km,“ sagði Garðar
5 punda flugulax.
DV-myndir G.Bender og Garðar
H. Svavarsson í samtali við DV.
Það verður spennandi aö sjá hvern-
ig til tekst með veiðina á þessu nýja
svæði en marga failega veiðistaði er
þar að finna.
-G.Bender
Veiðileyfin í Vesturdalsá, sem er ein
fjögurra laxveiðiáa í Vopnafirði, hafa
verið boðin til sölu á fijálsum veiði-
leyfamarkaði nú í vetur en áin hefur
nær fjórða áratugi verið leigð veiðifé-
lögum á Norðfirði og í Reykjavík.
Hefur Veiðifélagið Vopni í Neskaup-
stað haft ána í 22 ár en áður leigði
félagið í Reykjavík ána um 17 ára
skeið.
Það er Garðar H. Svavarsson, einn
landeigenda, sem hefur með sölu
veiðileyfa að gera fyrir hönd Veiðifé-
lags Vesturdalsár sem ákvað í fyrra
að selja sjálft veiðileyfi í ánni. Jafn-
framt hefur veiðifélagiö á prjónun-
um að stórefla rannsóknir á lífríki
árinnar í samvinnu við Veiðimála-
stofnun í þeim tilgangi að stórauka
laxagengd í ána. Samkvæmt þeim
rannsóknum, sem þegar hafa verið
gerðar, er ljóst að vaxtarmöguleikar
smáseiða eru mjög góðir og í ráði er
að fjölga veiðistöðum og bæta um
leið afkomumöguleika seiðanna.
Fallegir laxar komnir á land, ný-
komnir I veiðiána.
eftir fjörutíu ár
Finnur þú fimm breytingai? 96
ÓQ78
Qfáé
4Q78
Qfáé
Pabbi, viltu hjálpa mér aö brjóta sparibaukinn minn áður en þú ferð .
Nafn:........
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. Sharp útvarpstæki með seg-
ulbandi að verðmæti kr. 8.500.
2. Sharp útvarpstæki með seg-
ulbandi að verðmæti kr. 8.500.
Vinningamir koma frá vérsl-
uninni Hljómbæ, Hverfisgötu
103, Reykjavík.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 96
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir nítu-
gustu og fjórðu getraun
reyndust vera:
1. Erna Sigurðardóttir,
Jöklaseh 29,
109 Reykjavík.
2. Vilborg Pétursdóttir,
Kleppjámsreykjum,
320 Reykholti.
Vinningarnir verða sendir
heim.