Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1991, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1991, Side 21
LAUGA'RDAGUR 9. MARS 1991 2Í' Menning John Goodman og Bette Midler í Stellu. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI: 681511 LUKKULlNA: 991000 Laugarásbíó - Stella ★★ Grasið VERTU MEÐ - ÞAÐ ER GALDURINN Stella er ansi meyr mynd um ein- stæða móður, sem fórnar sjálfri séj- til þess að geta alið upp dóttur sína. Hún er fijálsleg endurgerð Stellu Dallas, myndar frá 1937 með ögn nútímalegri áherslum, skyldi maður ætla. Sagan fylgir Stellu (Bette Midl- er) frá yngri árum, sem barþernu. Hún kynnist ungum lækni (Collins) og verður ófrísk, en kýs að hafa barn- ið ein og sparkar lækninum út á vit frægðar og frama. Árum saman reynir hann að auðvelda henni lífið, en hún er viljasterk og kýs að sjá um þetta ein. Ágætisvinur hennar, frá- bærlega leikinn af John Goodman að vanda, hefði getað verið henni meiri stoð, ef hann væri ekki svona mikill róni sjálfur. Þegar dóttirin fullorðnast (Alvarado) fær hún tæk- ifæri til að kynnast annarri hlið á lífmu gegnum foður sinn og þá er hann umgengst. Sagan er augljós og kemur aldrei á óvart, en hún forðast líka í lengstu lög að vera meö einhvem vellu- kenndan boðskap og segir ágætlega og oft bráðskemmtilega frá mishtum persónum. Góðir leikendur hjálpa geysilega mikið við aö rífa hana upp. Bette Midler leikur, aldrei þessu vant, ekki skass eða kvendjöful, heldur óframfærná en ákveðna móð- ur með talsverðan karakter. Ég hef ekki séð hana betri til þessa. Allir aðrir leikarar eru nánast gallalausir og Goodman styrkir enn stöðu sína sem vinsælasti aukaleikarinn í bransanum. Persóna hans hér er ekkert stórt stökk leikrænt séð en nú styttist í hans fyrsta aðalhlutverk í King Ralph. Myndinni er fjötur um fót að vera af bandarískum toga. Allt sem við þurfum-að vita fáum við að vita og það fer ekki miUi mála hvenær mikil- vægustu tilfmningauppgjörin eiga sér stað, því þau eru undirstrikuð með tUheyrandi sírópstónlist. Svigr- úm tU að kryfja tíl mergjar eða hafa áhrif eftir óhefðbundnum leiðum er ekkert og undir lokin fer hún að dala. Hún togar aðeins of fast í hjarta- Strengina í nokkrum iUa uppsettum atriðum, sem jaðra við væmni, þ.e. ósönn tilfmningasemi. Auk þess er sagan skilin eftir, á frekar harkaleg- an hátt, í lausu lofti, stílbrot við það sem á undan er gengið. Nú gætu sumir haldið að hér væri um dæmigerða kvennamynd að ræða, aUavega var lítið um karlpen- ing á minni sýningu. Ég get ekki stimplað hana sem slíka. Hún keyrir aldrei úr hófi tilfinningalega og hefur í sjálfu sér ekkert nýtt innsæi inn í heim kvenna og gefur ekkert tilefni til umhugsunar um nein sérstök málefni. Þetta er bara venjuleg, oft skemmtUeg, bíómynd fyrir fullorðið fólk. Leikstjórinn, John Erman, kemur hér yfir á hvíta tjaldið eftir stórglæsilegan ferU í dramatískum sjónvarpsmyndum. Hann var meðal annars annar leikstjóri Roots, og hefur gert eina bestu sjónvarpsmynd sem ég hef séð, Right to Kill?, með Kvikmyndir Gísli Einarsson Justine Bateman og Christopher Col- let. Hér er hann ögn háður handrit- inu, þannig að erfiðara er að sjá hver hans þáttur er í myndinni, en ég ef- ast ekki um að þarna hafi Hollywood eignast enn einn slarkfæran starfs- kraft úr sjónvarpinu. Stella (Band-1990) 109 mín. Leikstjóri: John Erman (Who Will Love My Chll- dren?, Ace Eli and Roger ot the Skies). Leikarar: Bette Midler, John Goodman (Punchline, Big Easy), Trini Alvarado (Mrs. Sofel, Rich Kids), Stephen Collins (Hold the Dream), Marsha Mason (Good- bye Girl), Eileen Brennan (The Sting, Daisy Miller). tiVt. *J?U yztmi .1 í&'Siíy "HAVA TYGUM ROYNT OKKARA MOTORVEG MILLUM ISLANDS OG EUROPA"? ... spyr Amaliel Knudsen, skipstjóri færeysku ferjunnar Norrænu. Ef ekki, þó ættuð þið að panta far með Norrænu núna, því að með Norrænu siglið þið hinn beina og breiða "motorveg". Norræna getur í einni ferð flutt 1050 farþega og 300 bíla. Akið því ó eigin bíl um borð, þið komist þó fyrr af stað þegar lagt er að ó meginlandinu. Um borð er öll aðstaða til fyrirmyndar. Lúxusklefar með tvöföldu rúmi, tveggjamanna klefar, fjögurramanna klefar eða svefnpokaplóss. Sérstakt leikherbergi fyrir börnin, "sóldekk" og fríhafnarverslanir með mikið úrval af tollfrjólsum varningi. Fyrsta flokks veitingastaður þar sem óvallt eru í boði herlegar kræsingar af veisluborði eða af matseðli dagsins, einnig fyrirmyndar skyndibitastaður. Notaleg vínstúka og næfur- klúbbur með lifandi tónlist fyrir nóttbrafnana. Hreint sjóvarloftið gerir sumarfríið létt og skemmtilegt. Verið velkomin um borð og góða ferð. ERÐASKRIFSTOFAN ik ■ Sími: (91) 626362 Fjarðargötu 8, /10 Seyðisfjörður. $ími:(97) 21111 w&Mfflmm græna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.