Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1991, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1991, Page 28
Fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna: Lygin, nísk og ómerkileg - bókin um Nancy Reagan selst eins og heitar lummur Nancy Reagan er heldur ómerkilegur pappír ef marka Kitty Kelley hefur orðið vellauðug á að skrifa ævisögur má nýja bók um hana sem nýlega kom á markað í frægs fólks í óþökk þess. Bandaríkjunum. Anna Bjamason, DV, Flórída; Um fátt hefur verið meira rætt þessa síðustu viku í fjölmiðlum í Bandaríkjunum en ævisögu Nancy Reagans sem skrifuð er af Kitty Kel- ley í óþökk viðkomandi. Kitty Kelley er sögð hafa fengið 3,4 milljónir dollara greiddar fyrirfram upp í ritlaun og fleiri milljónir bíða hennar ef fer eins og sannarlega lítur út fyrir að bókin komist ofarlega eða jafnvel efst á vinsældarlistann hér vestra. Kitty Keliey segist hafa unnið að bókinni í fjögur ár og rætt við og safnað upplýsingum frá á annað þús- und manns. Þetta er íjórða ævisagan sem Kitty skrifar. Áður hefur hún skrifað bækur um Frank Sinatra, Elizabeth Taylor og Jackie Kennedy Onassis í þeirra óþökk. Mynd sú sem lesandi fær af forseta- frúnni fyrrverandi er ekki sérlega fögur. Hún er eigingjöm og svo lygin að ekki er að marka eitt einasta orð sem hún segir. Hún býr hreinlega til sannleika sem hún fer svo smám saman að trúa sjálf. T.d. segir Nancy sig vera tveimur árum yngri en hún raunvemlega er, falsaði hreinlega skírnarvottorðið sitt. í bókinni segir að aöeins tvennt sem standi í því vottorði sé sannleikanum sam- kvæmt, kyn hennar og litarháttur. Allt annað er tilbúningur. Nancy er ótrúlega nísk, hefur aldr- ei tímt að kaupa sjálf nokkurn skap- aðan hlut heldur hefur hún látið vell- auðuga vini sína gefa sér allt milli himins og jarðar. Hún er fatasjúk en hefur heldur ekki tímt að kaupa sér föt heldur sníkt þau út úr tískuhönn- uðum og verslunareigendum. Lenti hún heldur betur í því þegar upp komst að hún var búin að taka viö fatnaði fyrir hundrað þúsund dollara og ekki gefið upp til skatts. Nancy tókst ekki vel með uppeldi barna sinn eða stjúpbama, hún af- neitaöi föður sínum og vildi ekki af honum vita frá því að foreldrar hennar skildu. Móðir hennar giftist aftur og í það sinnið fátækum lækni sem haföi stundað nám í Princetown háskólanum. Móðir Nancyar, Edith, sá í þessum manni tækifæri til þess að komast í nánari snertingu við efri stéttarfólk, sem henni tókst. Læknirinn, Loyal Davis, auðgaðist fljótt með því aö stunda „rétta sjúkl- inga“. Loyal ættleiddi Nancy og eftir það taldi hún sig vera dóttur hans, og afneitaöi föður sínum jafnvel á banabeði hans. Eftir stutta dvöl í leiklistarskóla hitti Nancy, Ronald Reagan, sem þá var formaður Leikarafélagsins. Hlut- verkum hans í kvikmyndum fór fækkandi og stjarna hans heldur dal- andi. Hann var þá nýskilinn við Jane Wymann. Er því haldið fram í bók- inni að hann hafi ekki þolaö vel- gengni hennar í kvikmyndum og er hún fékk óskarinn fyrir leik sinn í kvikmyndinni Johnny Belinda varð það Ronald um megn og þau skildu. Nancy aðeins ein af mörgum Ronald var ákaflega miður sín eftir skilnaðinn og reyndi að gleyma sér í faðmi fagurra leikkvenna. Nancy til mikillar hryggðar varö hún að gera sér að góðu að vera aðeins ein úr hópnum. Nancy var yfir sig ástfangin í Ronnie og þar sem hún var orðin þrjátíu ára fóru þau að sofa saman þótt þau væru ekki gift. Nágranni segir frá því að Nancy hafi sést fara út og inn úr íbúð Ronnies. Þar sem Ronnie dró ekki gluggatjöldin fyrir mátti sjá hvað gerðist í svefnherberg- inu. Þótti þetta nokkuð ósiðlegt á þessum árum. Það var samt ekki Nancy sem hann bað um að giftast sér heldur .ungt smástirni, Christina Larson að nafni. Christina hafnaöi bónorðinu en þáði demantsúr sem því fylgdi. Kvöld eitt sagði Nancy honum að hún væri ófrísk eftir hann. Hann fór rakleiöis heim til Christinu og sagði henni að honum fyndist eins og hann væri kominn í gúdru. Hann lét sér detta í hug að Nancy væri að reyna að ginna hann i hjónaband. Nokkrum kvöldum eftir að þetta gerðist slangraði Ronnie inn á næt- urklúbb einn síns liðs. Hann sá þar unga leikkonu, ljóshærða og ítur- vaxna, Selena Walters að nafni og lét kynna sig fyrir henni. „ Fyrir kornunga leikkonu eins og mig var auövitað mikils virði að láta sjá sig með jafnfrægum leikara og Ronald Reagan var og hann var einn- ig formaður Leikarasambandsins. Það gat aldeilis komið sér vel fyrir frama minn í kvikmyndum. Ég gaf honum því símanúmer mitt og heim- ilisfang," segir Selena. „Ég var ekki nema nítján ára göm- ul og svo heimsk að ég skildi ekki hvers vegna hann spurði mig hvort ég byggi ein eða heföi herbergisfé- laga, og sagði ég honum aö ég byggi ein. Vonaðist ég til þess að hann myndi hringja í mig og bjóða mér út að borða. Klukkan þrjú um nóttina var hann mættur og hringdi dyrabjöllunni. Mér varð ekki um sel, því ég vildi alls ekki hitta hann bak við læstar dyr, vildi aðeins láta sjá mig meö honum á almannafæri. En hann tróö sér inn og sagðist verða að hitta mig. Hann neyddi mig til að setjast í sóf- ann, ég reyndi að koma af stað sam- ræðum.“ En Ronnie var ekki kominn til Sel- enu til að tala heldur ætlaði hann að koma fram vilja sínum við hana. Hann var stór og stæðilegur og leik- urinn þvi ójafn. Selena segir aö hann hafi náð fram vilja sínum. í dag er þetta kallað nauðgun. „Á eftir bað hann mig afsökunar, sagðist ekki hafa haft stjóm á sér. „En hafðu ekki áhyggjur,“ sagði hann, „ég ætla að hringja í þig og við skulum fara saman út og ræða um framtíð þína.“ Ég varð því ekki litið hissa er ég frétti viku seinna að hann væri trú- lofaður Nancy Davis.“ Fyrirburður Ronnie og Nancy giftu sig 4. mars 1952. Brúðkaupið var mjög látlaust, enginn viðstaddur nema vinahjón þeirra, William Holden og kona hans. Hvorki böm Ronnies frá fyrra hjóna- bandi, Maureen og Ronald, foreldrar né bróðir hans voru viðstödd. Þar sem Nancy var komin tvo mánuði á leið þegar þau gengu í það heilaga var því haldið fram að fyrsta barnið þeirra, Patti, hefði fæðst fyrir tim- ann. Fæðingin gekk mjög erfiðlega og Ronnie var ekki einu sinni viðstadd- ur. í bókinni segir að hann hafi verið með Christinu á meðan Nancy kvald- ist við barnsburðinn. Reaganhjónin eignuðust annað barn sitt, soninn Ron þegar Patty var sex ára. Ron varð þegar eftirlæti móður sinnar og fannst Patty þá sem henni væri ýtt til hliðar. Sonurinn var þeim þó ekki alltaf til yndis. Hann gerðist dansari og átti vingott við kynvilltan dansara. Það féll ekki í kramið hjá ríkisstjóra- hjónunum. Nancy og Frank Sinatra Mjög náið vináttusamband á milli Nancyar, þegar hún var orðin for- setafrú, og söngvarans Franks Sin- atra var aðstoðarfólkinu í Hvíta hús- inu mikið áhyggjuefni. „Það vom þessir einkamálsverðir í einkahibýlum forsetans sem ollu okkur áhyggjum," sagði einn af að- stoöarmönnunum. „Nafn Sinatra var aldrei á neinni ákveðinni stunda- skrá forsetafrúárinnar. Honum var alltaf hleypt inn bakdyramegin en við vorum alltaf með líflð í lúkunum um að flölmiölarnir kæmust í mál- ið.“ „Við vissum betur en svo að við fæmm að truila þessa einkahádegis- verði,“ sagöi einn af aðstoðarmönn- um forsetafrúarinnar. „Einkahíbýli forsetahjónanna voru algert bann- svæði. Loftið var rafmagnað þegar hann var í heimsókn. Hún lék öll lögin hans og hlustaöi á þau dag og nótt í svefnherbergi sínu. Vanalega voru hádegisverðir þessir í sólstof- unni. Hún lagöi sig fram um aö allt væri sem huggulegast, valdi bæði blóm og mat af mikilli kostgæfni. Fáir vissu af því þegar hann var þarna uppi hjá henni. Það var eink- um þegar forsetinn var í burtu sem Sinatra kom í heimsóknir sínar. Hann kom vanalega um hálfeitt og var farinn um flögur leytiö. Það mátti alls ekki truíla forseta- frúna þegar Sinatra var í heimsókn. Hún tók aldrei símann og jafnvel var hún ekki viðlátin þótt það væri sjálf- ur forsetinn sem hringdi.“ Gribban í Hvíta húsinu Forsetinn hafði ekki setið á valda- stóh nema í 30 daga þegar Nancy var farin að skipa fyrir eins og hver önn- ur María Antoinette. Starfsfólk hennar vissi ekki hvernig það átti að bregðast við þessu. Nancy vildi breyta öllu í Hvíta hús- inu og gera það eins vel úr garði og um væri að ræða konunglegar vist- arverur. Eitt af þvi sem fór í taugarn- ar á henni var að henni fannst matar- stellin orðin skörðótt og lúin. Hún vildi fá nýtt sett og vildi sjálf ráða hvernig það yrði. Lét hún aðstoðarmann sinn hafa samband við Lennox postulínsfyrir- tækið og spyrjast fyrir um kostnað við slíkt matarstell. Það myndi kosta um 1000 dollara fyrir manninn. Nan- cy hóf nú miklar viðræður við for- ráðamenn fyrirtækisins og pantaði hjá þeim matarstell fyrir 220 manns. Einnig vildi Nancy láta búa til sér- stakt stell fyrir heimili forsetahjón- anna. Svo illa tókst til að sama daginn og Nancy tilkynnti að hún ætlaði að kaupa matarstell fyrir ríkisbúskap- inn í Hvíta húsinu fyrir meira en 200 þúsund dollara tók forsetinn fyrir að ríkið gæfi skólabörnum hádegisverð. Og jafnframt að héðan í frá yrði htið á tóftiatsósu sem grænmeti í þeim skólamat sem ríkiö neyddist til þess að sjá fátæklingum fyrir. Fyrirsagnir dagblaðanna komu illa við Reaganhjónin þar sem því var haldið fram að þau hefðu engar til- fmningar til fátækra. Nokkrum dögum áður hafði forset- inn þegið 1000 dollara kúrekastígvél að gjöf og reyndi hann að breiöa yfir mistök konu sinnar ifteð postulínið og sagði að þau hefði þegið það að gjöf frá stofnun nokkurri og myndi það ekki kosta skattgreiðendur eitt einasta sent. Öll þessi gagnrýni fór svo fyrir brjóstið á Nancy aö þegar stellið sem hún ætlaöi þeim hjónum kom nokkr- um mánuðum seinna neitaöi hún að taka viö því eða greiða reikninginn sem var upp á 100 þúsund dollara. Hún bað aðstoðarmann sinn að hringja í postulínsfyrirtækiö og segja þeim að þeir heföu nákvæmlega klukkutíma til að flarlægja stellið. Það var gert og stellinu komið fyrir í öruggri geymslu þar sem það er enn. Afmælisgjafirnar Vinkonur Nancyar, sem giftar voru mjög áhrifamiklum og vellauðugum mönnum, höföu þann sið að færa Nancy veglegar gjafir á afmæhnu hennar. Segir í bókinni að gjafirnar hafi jafnan verið eitthvað virkilega flott sem Nancy hefði ekki keypt sér sjálf. Hélst þessi siður eftir að Nancy var orðin forsetafrú. Eitt árið var afmæhsgjöfin þrjár Martin van Schook handtöskur (sem eru víst þær dýrustu í heimi) og kost- aði hver taska 1650 dollara. Eitt árið fékk hún níðþunga 18 karata gull- hálskeðju sem á hékk ljón með dem- antsaugu. Nancy virðist vera mjög nísk og hafa lag á að láta aðra borga fyrir sig. Þegar hún útdeildi jólagjöfum til starfsfólks Hvíta hússins var það aldrei neitt sem hún keypti. Heldur notaði hún gjafir sem þeim hjónum höföu verið gefnar og þeim ekki hk- að. Geymdi hún gjafir þessar í ákveðnum skáp sem hún gat svo gripið til þegar á þurfti að halda. Hún lét stundum búa til ómerki- lega minjagripi sem hún notaði til jólagjafa fyrir starfsfólkið, en fyrir þær greiddi Repúblikanaflokkurinn. Eitt sinn þótti hún ganga full langt. Sonur Michaels (fóstursonur frá fyrra hjónabandi Reagans) sex ára gamall fékk bangsa í jólagjöf frá for- setahjónunum. Hann gleymdi svo bangsanum þegar hann fór heim úr jólaboðinu. Nokkrum mánuðum seinna fékk hann sama bangsann í afmælisgjöf, hafði honum þá aftur verið vafið inn í gjafapappír og skrif- að afmæhskort frá „afa og ömmu“! í fyrstu ferð hjónanna til New York, eftir að Reagan tók við forseta- embættinu, voru þau í lúxusíbúð á Waldorf-Astoria hótelinu. Blaðafull- trúi hótelsins segir frá atviki sem gerðist, en þaö var talinn heiður að forsetahjónin væru gestir hótelsins. Allt var gert til þess að gera hótel- íbúö þeirra sem vistlegasta. Keypt var forláta kristalskrús sem kostaði 150 dollara, undir jellýbaunirnar sem voru eftirlæti forsetans. Tilefni ferð- arinnar var að hjónin ætluðu að vera viðstödd frumsýningu í Metrópolitan Óperunni þar sem sonur þeirra Ron dansaði. Ron yngri haföi kvænst flórum mánuðum áður og höföu forseta- hjónin ekki haft samband við ungu hjónin eftir brúðkaupið. Nú átti að heimsækja þau. Á leiðinni út lítur Nancy í kringum sig og segir: „Æi, ég keypti ekkert handa þeim.“ Hún koma auga á kristalskrúsina og tók hana um leið og hún sagði við blaða- fulltrúann: „Er það ekki allt í lagi?“ Sjóður skiptir um nafn í bókinni kemur fram að í hvert skipti sem Nancy gerði einhveija skyssu sem lét hana eða þau hjónin líta illa út í augum almennings var reynt að bæta fyrir það með því að kalla fram jákvæð viðbrögð. Þá þurfti Nancy að heimsækja barna- sjúkrahús eða einhvern slíkan stað. Nancy tók þátt í baráttunni viö eitur- lyf og stofnaði til herferðarinnar „Segið nei, við eiturlyflum“. Stofnað- ur var sjóður sem kallaður var Nan- cy Reagan Drug Abuse Fund og safn- aðist brátt mikið fé í þann sjóð. Þegar Nancy flutti úr Hvíta húsinu breytti hún um nafn á sjóð þessum og heitir hann nú Nancy Reagan Foundation og er í umsjá Nancyar sjálfrar. í upp- haflega sjóðinn söfnuðust 3,8 milljón- ir dollara og voru það framlög margra stórfyrirtækja og góðra per- sónulegra vina forsetahjónanna. Bókarhöfundur segir aö ekki hafi verið veitt úr sjóði þessum nema 80-90 þúsund dollurum. Borin er upp sú spurning hvað verði nú um þenn- an sjóð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.