Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1991, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1991, Side 33
LAUGAR'DAGUR' 13. APRÍL 1991. 45 Handbolti unglinga Valsmenn sterkir í 5. flokki A-úrslit 5. flokks karla voru leikin á Seltjarnarnesi um síðustu helgi og var keppnin tvísýn eins og verða vill í úrslitakeppni. Sterkliðs- heildValsmanna Leikmenn Vals komu, sáu og sigr- uðu því þeir komu upp úr 2. deild í síðustu törn og er ljóst að þeir hafa lagt hart að sér í undirbúningnum og úppskáru samkvæmt því þar sem þeir stóðu uppi sem sigurvegarar í mótslok og það sanngjarnt. Valsmenn sigruðu alla sína and- stæðinga, nema Gróttu, en þeirri við- ureign lauk með jafntefli. Styrkleiki Valsmanna Uggur fyrst og fremst í góðri og sterkri liðsheild. Liðið er drifið áfram af Jóni Brynj- arssyni fyrirliða og hefur á að skipa leikmönnum sem geta skorað mikið af mörkum eins og Þorgeir Símonar- son, Bjarki Hinriksson og svo mætti marga telja. í flestum leikja Valsliðsins sjá 5-6 leikmenn um markaskorið og er það ekki algengt í þessum aldursflokki sem venjulega er borinn upp af 1-3 einstaklingum fremur en liði eins og hjá Valsmönnum. Þaö er ljóst að þarna eru Valsmenn að fá upp framtíðarflokk og ef vel verður haldið á spilunum megum við Glæsileg tilþrif sáust oft í úrslita- keppni 5. flokks og hér skorar Einar Þorsteinsson eitt marka sinna gegn Víkingi i botnslagnum. handboltaunnendur vera vissir um aö sjá eitthvað af þessum strákum leika í meistaraflokki. Önnur lið FH-ingar urðu í öðru sæti en þeir Páll Beck stendur i ströngu í leiknum gegn Haukum en KR-ingar unnu þann leik örugglega, eins og svo marga leiki í vetur. Sanngjarn sigur KR Keppni í 3. flokki karla var háö um helgina og fór hún fram í íþróttahúsinu í Kaplakrika. Segja má að keppni í þessum flokki hafi varla orðið spennandi í allan vetur því yfirburðir KR-inga í vetur hafa verið algjörir. Þeir brugðust líka ekki áhangendum sínum að þessu sinni og fóru í gegn- um keppnina án teljandi mót- spyrnu og sigruðu því nokkuð ör- ugglega. KR-hðið hefur verið eins og áður sagði langsterkasta liðið í þessum flokki í vetur, markvarslan er mjög góð, vörnin með Einar Baldvin Árnason sem sterkasta mann var frábær og sóknin drifin áfram af Páli Beck átti ekki i miklum vand- ræðum þegar skora átti mörk. KR-ingar, sem fengu mikinn lið- styrk fyrir þetta keppnistímabil hafa náð að stilla liðið vel saman. Þaö er ljóst að KR þarf ekki að kvíða framtíðinni með þessa stráka innanborðs. í öðru sæti varð lið heimamanna, FH-inga, sem komu mjög sterkir til leiks að þessu sinni og hafa á mjög skemmtilegu liði að skipa. Þeir töp- uðu aðeins einum leik, gegn Is- landsmeisturum KR. í þriðja sæti varö síðan lið Týr frá Vestmanna- eyjum og má segja að barátta þeirra hafi fleytt þeim í verölaunasæti. Önnur lið komu þessum þremur nokkuð að baki, getulega séð, en í fjórða sætinu varð lið Hauka, í fimmta sæti hð Þórs frá Vest- mannaeyjum. KA varö í sjötta sæti, í sjöunda sæti lið Fram og leik- menn Þórs frá Akureyri urðu í síð- asta sætinu að þessu sinni. Úrslitakeppnin ólögleg? Ekki væri rétt aö ljúka þessari grein án þess að minnast á hlutverk umsjónaraðila, sem í þessu tilfelli voru FH-ingar. Þeir höfðu ekkert fyrir því að boða landsdómara til starfa og má því segja að keppnin öll sé ólögleg, því það stendur skýrt í reglugerðum fyrir dómara að landsdómarar einir hafi rétt til að dæma í A-úrslitum yngri flokka. Það er alveg ljóst að sú reglugerð á fullkomlega rétt á sér þvi aö sum- ir þeir dómarar sem sáust í Hafnar- firði um síðustu helgi voru langt í frá að vera hæfir til að takast á við sitt hlutverk, og setti keppnina stórlega niður af þeim sökum. íslandsmeistarar Vais i 5. flokki karla ásamt þjálfara sínum, Valdimar Grímssyni. DV-mynd S hafa einnig á að skipa mjög skemmti- legu liði sem á ábyggilega eftir að láta að sér kveða í framtíðinni. KA varð í þriðja sæti sem er mjög góður árangur hjá liði sem ekki leikur fleiri leiki en þeir norðanmenn. Grótta varð í íjórða sæti með jafn- mörg stig og KA en Grótta tapaði innbyrðis leik þessara liða. Stjarnan varð í fimmta sæti, HK í sjötta, Vík- ingar í sjöunda og lið Fylkis rak lest- ina í áttunda sæti. B-úrslit ÍR-ingar unnu B-úrslitin nokkuð örugglega en úrslitaleikurinn þar var viðureign Fram og ÍR, sem ÍR- ingar’unnu. 0 Stórkostlej* frammistaða ÍBV - kom úr 2. deild og varð íslandsmeistari Úrslitakeppni 3. flokks kvenna fór fram í íþróttahúsinu í Keflavík um síðustu helgi og var umsjón í hönd- um ÍBK, sem leysti það verkefni af hendi með sóma. Fyrirfram var búist viö að Grótta, sem hafði unnið 1. deild þrisvar í vetur, myndi vinna öruggan sigur í úrslitakeppninni en annað kom á daginn. Það var hð ÍBV, sem var í fimmta sæti 1. deildar eftir síðustu umferð, sem stal senunni að þessu sinni og skaut öllum andstæðingum sínum ref fyrir rass meö því að vinna alla leiki sína. Lið ÍBV, sem að miklu leyti er skip- að leikmönnum sem urðu íslands- meistarar í 4. flokki kvenna á síðasta ári, var vel að sigrinum komið að þessu sinni. Liðið kom mjög vel und- irbúið til leiks og var greinilegt á leik liðsins að vel hefur verið æft frá síð- ustu umferð er liðið lék í 2. deild og varð þar í fyrsta sæti. Vestmannaeyjastúlkurnar léku varnarleikinn mjög vel og var Laufey Jörgensen í markinu öryggið upp- málað. í sóknarleiknum bar mest á Söru Ólafsdóttur en hún gerði mörg faheg Umsjón: Heimir Ríkarðsson og Lárus H. Lárusson mörk og dýrmæt í úrslitakeppninni, er mest á reyndi. Víkingar skutust upp í annaö sætið en lið þeirra tapaði aöeins viðureign- inni gegn ÍBV og gerði jafntefli við Gróttu, sem varð að láta sér lynda þriðja sætið að þessu sinni. Þrátt fyrir að Grótta hafl orðið í þriðja sæti úrslitakeppninuar að þessu sinni geta leikmenn hðsins vel viö unað því þrír deildarmeistaratitl- ar. á einum og sama vetrinum segja alít sem segja þarf um getu hðsins og framtíðarhorfur þess. Sara M. Ólafsdóttir, fyrirliði ÍBV í 3. flokki kvenna, hampar hér is- landsmeistaratitlinum Stjarnan, sem varð í öðru sæti 2. deildar í síðustu umferö, færðist upp um fjögur sæti, en liöið vann alla leiki sína gegn liðunum sem urðu fyrir neðan í stigatöflunni en tapaði fyrir þremur efstu liðunum. Baráttan um fimmta sæti stóð á milli Fram og ÍBK og fór heimahðið þar með sigur af hólmi, vann inn- byrðisleik þessara liða. Slök frammistaða ÍBK á heimavelli kemur nokkuð á óvart þar sem hðiö endaði í öðru sæti 1. deildar í síðustu ÍBK skorar eitt marka sinna gegn Haukum og vann ÍBK leikinn nokkuð örugglega. umferð en hrapar nú niður um þrjú sæti. Fram varð í sjötta sæti eins og áöur sagði en Haukar, sem unnu aðeins leikinn gegn KR, uröu í sjöunda sæti. KR rak lestina að þessu sinni í A-úrshtum 3. flokks kvenna og kem- ur frammistaða þeirra nokkuð á óvart þar sem liðið varð í þriðja sæti 1. deildar í byrjun mars. Þess má þó geta að liðiö saknaði sárt Önnu Steinsen, sem lék ekkert með hðinu að þessu sinni. iveiiuiiiDOO ' " 11 ' t 100 kr. leikurinn mánudaga til föstudaga kl. 12.00-17.00. Keilusalurinn Öskjuhlíð Cfmi fi'JIKQQ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.