Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1991, Blaðsíða 44
56
.íóei J1RCÍA .81 H'JOACLHAOU/u
LAUGARDAGUR 13. APRIL 1991.
Afmæli
Guðmundur Jónsson
Guömundur Jónsson vélvirki,
Þverbrekku 4, Kópavogi, veröur
sextugur þriðjudaginn 16. apríl.
Starfsferill
Guðmundur fæddist að Ytri-
Húsabakka í Skagafirði og ólst þar
upp. Fjórtán ára gcunall fluttist
hann til Reykjavíkur og síðla árs
1949 hóf hann nám í vélvirkjun.
Hann lauk því árið 1954 í Lands-
smiðjunni og réðst þá til Vélsmiðj-
unnarHéðins.
Seinna vann hann hjá Vélsmiðj-
unni Hamri hf., í Stálsmiðjunni, við
leiguakstur hjá Steindóri og einnig
um nokkurt skeið í Fjölvirkjanum.
Því næst fluttist Guðmundur til
Sauðárkróks og vann um tíma hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga og víðar en
fór þá á sjó og var vélvirki á nokkr-
umbátum.
Árið 1963 hóf Guðmundur svo
störf hjá Strætisvögnum Reykjavík-
ur og hefur unnið þar alla tíð síðan.
Fjölskylda
Guðmundurkvæntist 13.11.1956
Sigríði Höllu Hansdóttur, f. 16.11.
1935, iðnverkakonu. Sigríöur er frá
Grímsstöðum á Mýrum, dóttir Hans
Meyvantssonar frá Grímsstöðum og
Láru Sigurðardóttur. Hans er nú
látinn en Lára býr á Dvalarheimili
aldraðra í Borgarnesi.
Guðmundur og Sigríður eiga fjög-
ur börn, þau eru: Hjálmar H. Smári,
f. 28.11.1959, starfsmaður Mikla-
garðs og búsettur í Reykjavík; Jón-
ína K. Björk, f. 2.8.1961, verslunar-
maður, búsett í Kópavogi, á tvær
dætur, Höllu Ósk, sex ára, og Sigr-
únu Elínu, þriggja ára; Þröstur Ingi,
f. 26.8.1963, starfsmaður Heklu hf.,
búsettur í Reykjavík, og Ástþór Óð-
inn, f. 22.6.1966, verkamaður, bú-
settur í Kópavogi.
Guðmundur á sex alsystkin og tvo
hálfbræður. Alsystkin hans eru:
Hjálmar, hann lést árið 1953; Gísli,
b. Ytri-Húsabakka í Skagafirði; Páll
M., b. á Jaðri í Skagafirði; Fjóla,
símastarfsmaður í Reykjavík; Guð-
rún, iðnverkakona í Reykjavík, og
María, verslunarmaður.
Guðmundur Jónsson.
Guðmundur er sonur Jóns Þor-
grímssonar, f. 24.12.1884, d. árið
1960, b. að Húsabakka og víðar, og
MaríuHjálmarsdóttur,f. 13.11.1906,
frá Grímsstöðum í Skagafirði.
Guðmundur býður til kafíi-
drykkju á afmælisdaginn í matsal
Strætisvagna Reykjavíkur á Kirkju-
sandi (verkst. efri hæð) á milli kl.
16 og 19.
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
Til sölu Suzuki Fox Samurai, árg. '88,
ekinn 49 þús., 1300 vél, jeppaskoðað-
ur. Til sýnis og sölu á Aðabílasöl-
unni. Uppl. í hs. 98-22829 og vs.
98-21266. Gauti.
Scania 141, árg. 79, til sölu, ekinn 380
þús., nýlegur grjót/efnispallur og
skífa, skoðaður, vel útbúinn bíll.
Einnig 142, árg. '82 o.íl. bílar. Bílabón-
us hf., vörubílainnflutningur og verk-
stæði, sími 91-641105 og 91-642688.
Toyota Hilux '81 til sölu, 2000 cc, ný-
sprautaður, dökkblár, vökvastýri,
5,71:1 drif, læstur framan, 35" dekk,
5" hækkun, Brahma plasthús, stólar,
kassi milli sæta, nýtt efni í toppi +
teppalagður, jeppaskoðaður + skoð-
aður '92. Ath. allt. Uppiýsingar í síma
91-611514.
Chevy Blazer 78 (’85-’90), vél 305, 8
cyl. ’85, ek. 75 þús. km, ný dekk, 38",
o.fl. o.fl. Skipti, skuldabréf. Upplýs-
ingar í síma 985-31069 (Sigurður).
M. Benz 207 D ’84, m/gluggum og
mæli, ek. 150 þús. km. Skipti, skulda-
bréf. Upplýsingar í síma 985-31069
(Sigurður).
Gullmoli! Til sölu toppeintak af BMW
323i ’84, Capriet blæjubíll, ekinn 110
þús. km. Bifreiðin er skoðuð ’92, flutt-
ur inn ’88, með álfelgum. Otvarp/seg-
ulband, 6 hátalarar, ný sumardekk og
margt fleira. Verð aðeins 1250 þús.,
ath. skipti á ódýrari. Upplýsingar í
síma 91-52894.
Suzuki Samurai '88 til sölu, ekinn 44
þús. km, 33” dekk, 4,56 hlutföll, læstur
að framan, flækja o.fl. Uppl. í síma
91-656448.
M. Benz 280 SE '83 til sölu, aðeins
ekinn 100 þús. km, bíll í sérflokki.
Uppl. í símum 91-22975 og 985-20132.
Volvo Lapplander, árg. '80. Toppbill.
Til sýnis á Bílasölunni Braut, sími
91-681510 og hs. eiganda 91-616672.
□MH!
Toyofa Hilux 2400 turbo disil, árg. ’85,
til sölu, rauður, 35" dekk. Gott verð.
Uppl. í síma 91-624502.
Scania 111, árg. 79, til sölu, 2ja drifa.
Uppl. i síma 95-35920.
Til sölu er einn af þeim betri sinnar
tegundar sem er Toyota Lite-Ace, árg.
’88, gjaldmælir, talstöð, hlutabréf,
stöðvarleyfi og mikið af aukabúnaði.
Uppl. í síma 91-13995 eftir kl. 18.
■ ÝmislegT"
Smágrafa. Tökum að okkur ýmiss kon-
ar jarðvinnu, hentar vel í garða o.fl.
Sími 91-39153, 985-23341 og boðsími
984-52041
Geymið auglýsinguna.
■ Þjónusta
Önnumst alla smiöavinnu.
Gerum verðtilboð.
Góð og vönduð vinna.
Traktorsgrafa til leigu allan sólarhring-
inn. Vanur maður, símar 91-42140 og
985-34590.
Gifspússningar - Knauf - alhliða múr-
verk. Löggiltur múrarameistari,
heimas. 650225 og 985-25925.
Myndgáta
Meiming
Ljóðatón-
leikar í
Hafnarborg
Ásdís Kristmundsdóttir sópransöngkona hélt ljóðatónleika í Hafnarborg
í Hafnarfirði í gærkvöldi. Undirleik á píanó annaðist Kristinn Örn Krist-
insson. Flutt voru verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Franz Schu-
bert, Theu Musgrave, Gabriel Fauré og Richard Strauss.
Verkefnalistinn var kunnuglegur aö mestu en vel valinn og skipaður
veröugum viðfangsefnum. Það var gaman að fá að heyra sönglög enska
tónskáldsins Theu Musgraves, Suite 0. Bairnsangs, (Barnasöngvar). Þessi
lög eru samin í nýklassíkum stíl, vel gerð og sum þeirra mjög falleg. Má
þar nefna Karlinn í tunglinu, Wilhe Webster og Kirsuberjatréð. í efnis-
skrá voru öll ljóðin birt á frummáhnu og í íslenskri þýðingu eftir ýmsa
Tánlist
Finnur Torfi Stefánsson
snjaha þýðendur. Hins vegar var ekki að finna neinar upplýsingar um
ílytjendurna og má það kallast fuhmikil hógværð.
í sumum af fyrstu lögunum á tónleikunum gætti aðeins óöryggis í rödd
Ásdísar, en það hvarf þegar á leið. Rödd hennar er hrein og tær og margt
gerði hún einkar fahega. Má þar nefna Die Forehe og Rastlose Liebe eft-
ir Schubert og flest lög Musgrave komu ágætlega út svo dæmi séu tekin.
Textaframburöur var oftast góður en þó svohtiö misjafn, enda sungið á
mörgum tungumálum.
Píanóleikur Kristins var öruggur og látlaus eins og vera ber og samleik-
ur þeirra beggja vel samhæfður. Góð mæting var á tónleikana eins og
jafnan er við að búast þegar þessi vinsæla tegund tónlistar er á boðstólum.
Miðgarður 1 Skagafirði:
Fjórir kórar á sönghátíð
Öm Þórarinsson, DV, njótum:
Mikh sönghátíð verður í Miðgarði
í Seyluhreppi hér í Skagafirði laugar-
daginn 13. apríl. Þar er um að ræða
hina árlegu söngskemmtun sem
skagfirsku kórarnir Heimir og Rökk-
urkórinn gangast fyrir. 160 manns
syngja þar í fjórum kórum. Gestir
verða Rarik-kórinn úr Reykjavík,
sem Violetta Smid stjórnar, og karla-
kórinn Söngbræður úr Borgarfirði,
stjómandi Sigurður Guðmundsson.
Alls starfa um 100 manns með
skagfirsku kómnum í vetur. Starf-
semin hefur verið blómleg, m.a. hélt
Heimir tvær söngskemmtanir fyrir
páska við ágætar undirtektir og búið
er að hljóðrita söng kórsins vegna
plötuútgáfu sem fyrirhuguð er síðar
á árinu. Stefán Gíslason er söngstjóri
Heimis í vetur en Sveinn Árnason
stjórnar Rökkurkórnum.
Sönghátíöin í Miðgarði hefst kl.
20.30. Að söngnum loknum verður
stiginn dans við undirleik hljóm-
sveitar Ingimars Eydal.