Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1991, Qupperneq 46

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1991, Qupperneq 46
58 Afmæli LAUg'áRDAGUR 13. APRÍL 1991. Ólöf Ketilbj amadóttir Ólöf Ketilbjarnadóttir húsmóöir, Baldursgötu 16, Reykjavík, verður níræöámorgun. Starfsferill Ólöf fæddist að Klukkufelli í Reyk- hólasveit en fór þriggja ára meö for- eldrum sínum að Saurhóli í Saurbæ í Dalasýslu þar sem hún ólst upp. Ólöf kynntist öllum almennum sveitastörfum í foreldrahúsum. Hún fór til Reykjavíkur 1919, lærði þar kjólasaum hjá Stefónu Björnsdóttur 1923 auk þess sem hún lærði útsaum og balderingu hjá Jónínu Benedikts- dóttur. Ólöf stundaði um skeið nám við skóla Ásgríms að Bergstaðastræti 3, fór síðan til Bandaríkjanna og lauk þaðan prófi frá Lýðháskóla í Hartford 1928 og frá Hartford Grammar School 1930. Hún var sæmd heiðursmerki og heiðurs- skjali American Legion Auxiliary fyrir ritgerðir og góða frammistöðu ínámiíHartford. Ólöf var búsett í Bandaríkjunum 1925-31 en flutti þá til Reykjavíkur. Hún starfaði hjá Ríkisútvarpinu í níu ár eftir heimkomuna auk þess sem hún stundaði einkakennslu í ensku í heimahúsum. Þá starfaði hún hjá Sláturfélagi Suðurlands í Reykjavík á árunum 1958-78. Ólöf gaf út ljóðabókina Gullregn fyrir tveimur árum og er nú með aðra ljóðabók í smíðum. Fjölskylda Ólöf giftist 19.5.1933 Indriða Hall- dórssyni, f. 13.2.1908, d. í október 1990, múrarameistara en hann var sonur Halldórs Indriðasonar út- vegsb. í Grundarfirði, og konu hans, Dagfríðar Jóhannsdóttur frá Kverná. Böm Ólafar og Indriða eru Halld- órlndriðason, f. 29.11.1933, d. 1980, múrarameistari og stýrimaður í Reykjavík, var kvæntur Sigrúnu Stefánsdóttur húsmóður og eru dætur þeirra tvær; Kolbrún Dóra Indriðadóttir, f. 26.11.1938, kaup- kona í Reykjavík, gift Guðmundi Guðveigssyni lögregluþjóni og eiga þaufimmbörn. Dætur Halldórs og Sigrúnar eru Oddný Björg, f. 11.4.1956, skrifstofu- maður í Reykjavík, var gift Bjarna Friðrikssyni og eiga þau eina dótt- ur, Birgittu, og Ólöf Berglind, f. 11.12.1959, þroskaþjálfiíReykjavík og á hún einn son, Halldór Hrafn Jónsson. Börn Kolbrúnar Dóru og Guð- mundar eru Ólöf, f. 26.2.1958, skrif- stofumaður í Reykjavík, gift Peter Joseph Broome Salmon verslunar- manni og eiga þau einn son, Thom- as; Eggert Snorri, f. 1.1.1961, húsa- smiður og brunavörður, kvæntur Jóhönnu Guðbjörnsdóttur húsmóð- ur og eiga þau tvö börn, Hafstein og Herdísi; Indriði, f. 24.8.1963, múrari í Reykjavík, kvæntur Nínu Edvardsdóttur fóstru og eiga þau einn son, Alexander Frey; Guð- mundur Sævar, f. 20.4.1970, nemi í bílasmíði en unnusta hans er Guð- rún S. Þrastardóttir; Halldóra Katla, f. 24.12.1971, menntaskólanemi. Ólöf átti sjö alsystkini og fimm hálfsystkini, samfeðra. Af alsystk- inum hennar komust þrjú til full- orðinsára en þrír hálfbræður. Ólöf er nú ein á lífi af systkinunum. Foreldrar Ólafar voru Ketilbjörn Magnússon, f. 25.6.1865, d. 1915, b. á Saurhóli í Saurbæ í Dölum, og seinni kona hans, Halldóra Snorra- dóttir, f. 18.4.1865, d. 30.4.1945, hús- freyja. Ætt Ketilbjörn var sonur Magnúsar, hreppstjóra og fræðimanns í Tjald- arnesi, Jónssonar, b. á Kleifum, Ormssonar. Móðir Magnúsar var Kristín Eggertsdóttir, óðalsb. í Hergilsey, Ólafssonar, og Guðrúnar Jónsdóttur af Djúpadalsætt. Móðir Ketilsbjörns var Ólöf Guðlaugsdótt- ir, prests í Vatnsfirði, Sigurðssonar, prests í Lundum, Þorbjarnarsonar, Ólöf Ketilbjarnadóttir. ríka í Lundum, Ólafssonar. Móðir Ólafar var Rannveig Sigurðardóttir, sýslumanns á Hvítárvöllum, Jóns- sonar. Halldóra var dóttir Snorra Árna- sonar, dbrm, í Amarstapa, Eyjólfs- sonar. Móðir Halldóm var Ingveld- ur Jónsdóttir frá Haukatungu, syst- ir Oddnýjar, móðir séra Ingvars Nikulássonar. Ólöf tekur á móti gestum í Templ- arahöllinni við Eiríksgötu á af- mælisdaginn milli klukkan 16 og 19.00. abalfundur Aðalfundur Olíufélagsins h.f. verður haldinn þriðjudaginn 16. apríl 1991 á Hótel Sögu, Súlnasal og hefst fundurinn kl. 14.00. Ci 3 Ua 4. ■ I ■■ni# d ib Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Tillögur um breytingar á 4., 5. og 16 gr. samþykkta félagsins. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja frammi á aðalskrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent á aðalskrifstofu félagsins Suðurlandsbraut 18, 4. hæð, frá og með 11. apríl, fram að hádegi fundardag. Stjórn Olíufélagsins h.f. Olíufélagið hf Til hamingju með afmælið 13. apríl 90 ára Sesselja Einarsdóttir, Hrafnistu, Kleppsvegi, Reykjavík. 85 ára Gyðriður Sveinsdóttir, Austurbrún 2, Rcykjavík. Jón Magnússon, Hávarösstöðum, Leirár- og Mela- hreppi. 80 ára Sigurður H. Sigurðsson, Torftiesi, HUf 2, fsafiröi Jóhannes Jósepsson, Rauðamýri 4, Akureyri. Sigurður Gíslason, EyrargÖtu, Lækníshúsi, Eyrarbakka. Jósef Sigurvaldason, Eiðsstöðum, Svinavatnshreppi. 60 ára Halidór Axel Halldórseon, Úlfarsfellj 3, Mosfellsbæ. Sveinn Jónsson, Álftamýri 36, Reykjavík. Kristján Guðlaugsson, Nónvörðu 8, Keflavík. Ragnhildur Bergsveinsdóttir, Njálsgötu 104, Reykjavfk. Pctur Viðar Karlsson, Viöivöllum 23, Selibssi, .; Bjarni Ólafsson, Austurströnd 4, Seltjarnarnesí. Láru Valgerður Júlíusdóttir, Sogavegi, Melbæ, Reykjavik. Magnús Loftsson, Krummahólum 6, Reykjavik. Sesselja G. Bjurnadóttir, Álfhólsvegi 133, Kópavogi. Sigriður Stefánsdóttir, Goðheimum 16, Reykjavík. Kagnheiður Jósúadóttir, Hellulandi 3, Reykjavík. Jenný Jensdóttir, Dalseli 31, Reykjavík. Björn Hákon Jóhannesson, Ugluhólum 6, Reykjavík. Andrés B, Júhusson, Hólabraut 8, Höfn í Hornafirði. Gísli S. Eiríksson, Strembugötu 17, Vestmannaeyjum. SMÁAUGLÝSINGASÍMINN FYRIR LANDSBYGGÐINA: í 99-6272 ^ Esa sImÍnn E2 -talandi dæmi um þjónustu! Einar G. Jónsson Einar Guðni Jónsson, sóknar- prestur að Kálfafellsstað í Suður- sveit, er fimmtugur í dag. Starfsferill Einar fæddist á Kálfafellsstað. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1961, embættisprófi í guöfræði frá HÍ1969 og stundaði framhaldsnám í Kaupmannahöfn 1975-76. Þá lauk hann prófi í uppeldis- og kennslu- fræöiviöHÍ 1986. Með háskólanámi starfaði Einar í lögreglunni í Reykjavík á sumrin og spilaði meö ýmsum danshljóm- sveitum. Hann starfaði við Lands- banka íslands 1969-70, var deildar- fulltrúi hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar 1970-72, sóknar- prestur í Söðulsholti 1972-82, sókn- arprestur í Árnesi 1982-89 og sókn- arprestur að Kálfafellsstað frá 1989. Hann kenndi við Laugagerðis- skóla, Finnbogastaðaskóla og Hroll- augsstaðaskóla. \ Einar var formaður skólanefndar Laugagerðisskóla 1972-78, í fulltrúa- ráði Hjálparstofnunar kirkjunnar 1987-89 og formaður Öldrunar- nefndar Austur-Skaftafellssýslu frá 1990. Fjölskylda Einar kvæntist 4.12.1971 fyrri konu sinni, Jórunni Oddsdóttur, f. 10.2.1938, húsmóður, en hún er dótt- ir Odds Ólafssonar, húsvaröar í Reykjavík. Þau skildu. Kjörbarn: Sigurkarl, f. 18.8.1972, sjómaður. Einar kvæntist 25.7.1987 seinni konu sinni, Sigrúnu G. Björnsdótt- ur, f. 8.7.1941, kennara, en hún er dóttir Björns Laxdals Jónssonar, leigubifreiðarstjóra í Reykjavík, og konu hans, Kristjönu Kristjánsdótt- urhúsmóöur. Synir Sigrúnar eru Bjarki Frans- son, f. 1965, tækniskólanemi í Óö- insvéum; Bijánn Fransson, f. 1968, sálfræöinemi við HÍ, og Kristján Björn Birgisson, f. 1982. Systkini Einars eru Pétur, f. 12.1. 1938, viðskiptafræðingur og fram- kvæmdastjóri stjórnunarsviðs rík- isspítalanna, búsettur í Reykjavík, kvæntur Valdísi Erlendsdóttur þroskaþjálfa, og Helga Jarþrúður, f. 22.2.1939, fótsnyrtir, búsettí Reykjavík. Foreldrar Einars: Jón Pétursson, f. 1.3.18%, d. 23.1.1973, prófastur aö Kálfafellsstað, og kona hans, Þóra Einarsdóttir, f. 10.2.1913, fyrrv. formaður Verndar í Reykjavík. Ætt Jón var sonur Péturs, prests á Kálfafellsstað, bróður Brynjólfs, prests á Ólafsvöllum, Jarþrúðar, konu Hannesar Þorsteinssonar rit- Einar Guðni Jónsson. stjóra, og bróður Jóhönnu Soffíu, móður Páls Agnars, fyrrv. yfirdýra- læknis og Zóphóníasar, fyrrv. skipulagsstjóra, föður Páls, fyrrv. bæjarstjóra í Vestmannaeyjum og Hjalta, skrifstofustjóra í dómsmála- ráðuneytinu. Pétur var sonur Jóns, háyfirdómara í Reykjavík, bróður Brynjólfs Fjölnismanns og Péturs biskups. Jón var sonur Péturs, pró- fasts á Víðivöllum, Péturssonar. Móðir Péturs prófasts var Þóra Brynjólfsdóttir gullsmiðs, Halldórs- sonar, biskups á Hólum, Brynjólfs- sonar. Móðir Péturs á Kálfafellsstað var Jóhanna Soffía Bogadóttir, fræðimanns á Staðarfelli, Bene- diktssonar. Móðir Jóns prófasts var Helga, systir Kristjáns, fóður Arngríms, skólastjóra Melaskólans, fóður Unnar, framkvæmdastjóra Módel- samtakanna. Helga var dóttir Skúla, b. á Sigríðarstöðum, Kristjánssonar, b. þar, Arngrímssonar. Móðir Helgu var Elísabet Jónsdóttir frá Leyningi. Þóra er dóttir Einars yfirverk- stjóra, Jónssonar, b. í Saurhaga, bróður Hjörleifs, prests á Undorn- felli, fóður Einars Kvarans rithöf- undar. Jón var sonur Einars, prests í Vallanesi, Hjörleifssonar, prests á Hjaltastöðum, Þorsteinssonar, bróöur Guttorms, prófasts á Hofi, langafa Þórarins á Tjörn, föður Kristjáns Eldjárns forseta. Móðir Jóns í Saurhaga var Þóra, systir Péturs, prests í Valþjófsdal, langafa Ragnars, stjómarformanns ísals. Þóra var dóttir Jóns, vefara á Kór- reksstöðum, Þorsteinssonar, ætt- föður vefaraættarinnar. Móðir Ein- ars verkstjóra var Guðlaug Einars- dóttir, b. í Firöi, Halldórssonar. Móðir Þóru var Guöbjörg Kristjáns- dóttir, b. á Bár í Eyrarsveit, Þor- steinssonar, og Sigurlínar Þóröar- dóttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.