Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1991, Side 6
1,AUGAKDAGUR 20. ARRÍL 1991.
6
Sjö menn létu lífið i tilræðinu á Grikklandi. Þar á meðal voru tvær konur og má á myndinni sjá lík annarrar
þeirra borið inn í sjúkrabíl. Tiu menn særðust í sprengingunni. Simamynd Reuter
Enn eitt sprengjutilræðið á Grikklandi:
Póstsprengja banaði sjö
Útlönd___________________
BushætSarSam-
einuðu þjóðun-
umaðtaka við
George Bush Bandaríkjaforseti
segist þess fullviss að Sameinuðu
þjóðimar taki áður en langt um
líður við rekstri ftóttamannabúöa
fyrir Kúrda innan landamæra
íraks. Hann vill þó ekki segja
hvenær bandarískir hermenn
verða kaUaðir heim eftir að hafa
tryggt Kúrdum á svæöinu friö
fyrir herUöi Saddams Husseins.
Bandaríkjamenn hafa verið
mjög tregir til að láta her sinn
hafa afskipti af málum í írak eftir
af stríðinu lauk af ótta við að
dragast á ný inn í vopnuö átök.
Þeir hafa þó sent nokkur þúsund
hermenn tU norðurhéraðanna í
írak tU að koma þar á fót flótta-
mannabúðum.
í gær átti yfirmaður herUðs
Bandaríkjanna í Kúrdahéruðun-
um fund með íröskum herfor-
ingja þar sem rætt var um hvern-
ig aiþjóðlegar stofnanir gætu tek-
ið við hiálparstarfmu án þess aö
eiga á hættu að verða fyrir árás-
um fraka.
írakar hafa mótmælt komu
bandaríska herUðsins til Norö-
ur-íraks og segja að um ógnun
viö fuUveldi íraka sé að ræða.
Perez de Cuellar, framkvæmda-
stjóri Sameinuöu þjóðanna, lýsti
einnig yfir áhyggjum sínum
vegna herfararinnar. Nú virðist
þó Ijóst að aUt ætlar að vera með
friði. Breskir og franskir her-
menn hafa einnig veriö sendir
inn 1 írak meö Bandaríkjamönn-
unum. Reuter
George Bush vill kalla herllð
Bandarikjanna heim frá írak.
Símamynd Reuter
Sjö menn fórust og tíu særðust
þegar sprengja sprakk í grísku fyrir-
tæki um miöjan dag í gær. Fyrirtaek-
ið annaðist hraðsendingar á pósti og
var í samstarfi við bandarískt fyrir-
tæki á sáma sviði.
Sprengjan barst fyrirtækinu í
pósti. Hún var mjög öflug og nötraði
aUur miðbærinn í Patras, bænum
þar sem fyrirtækið starfar. Sex bUar
eyðilögðust og rúður brotnuðu í ná-
lægum húsum. Þetta er sú öflugasta
af um tíu sprengjum sem sprungið
hafa á Grikklandi á þessu ári.
Þeir sem létust voru ýmist starfs-
menn fyrirtækisins eða viðskipta-
vinir í afgreiðslu þess. Þegar tókst
að bera kennsl á sex lík en þaö sjö-
unda var það Ula fariö að útUokað
var að sjá á því mannsmynd.
AUt bendir til að hryðjuverkamenn
hafi verið að verki. Sjónarvottar
segja að maður hafi haldið á pakkan-
um sem sprakk. Ekki er vitað hvort
hann var vitorðsmaður en aðeins
saklaus viðskiptavinur að ná í send-
ingu. Það er lík þessa manns sem
ekki hefur tekist að bera kennsl á.
Enginn hefur enn lýst ábyrgð á
hendur sér vegna verknaðarins. Lög-
regluna grunar aö vinstrisinnaður
hryðjuverkahópur, sem kennir sig
við 17. nóvember, hafi verið þarna
að verki. Hópurinn hefur staðið fyrir
mörgum tUræðum á þessu ári og
einkum beint spjótum sínum að
Bandaríkjamönnum eöa Grikkjum
sem eiga samskipti við þá.
Reuter
Færeyjar:
„Ríkið“bíður
betri tíma
Þrátt fyrir góðar vonir eru litlar
líkur á að ný áfengislöggjöf verði
samþykkt fyrir Færeyjar í vor og
tæplega á þessu ári. Nýja lands-
stjórnin hefur þó lýst áhuga sínum á
að auka frelsi Færeyinga og ferða-
manna, sem koma til eyjanna, til að
kaupa áfengi með eðlilegum hætti.
Stjórnin hefur lagt fram frumvarp
á Lögþinginu um að stofna áfengis-
einkasölu og útibú þar sem áfengi
verður selt með sama hætti og þekk-
ist hér á landi. Frumvarpið fer hins
vegar fyrir laganefnd þingsins og í
henni eru andstæöingar nýju lag-
anna í meirihluta. Því er búist viö
að frumvarpið sofni svefninum langa
þegar það kemur í hendur nefndar-
manna.
Nefndarmenn bera því við að of
skammur tími sé til stefnu til aö
ræöa frumvarpið því að ætlunin sé
að slíta þinginu í næstu viku. Þeir
segja að svo mikilvægt frumvarp sem
þetta verði að fá ítarlega umijöllun.
Þeir sem hafa atvinnu af ferðaþjón-
ustu í Færeyjum leggja ríka áherslu
á að nýju lögin taki gildi fyrir sumar-
ið því það fæli marga erlenda ferða-
menn frá þegar þeir frétta að ekki
sé hægt að kaupa áfengi með lögleg-
um hætti. Heimamenn eru líka ósátt-
ir viö að þurfa að panta allt áfengi
frá Danmörku og pukrast meö þaö
þegar heim er komið.
Ritzau
Nýrírskur
f lokkur berst
gegnpöbbum
Á írlandi hefur orðið til nýr
stjórnmálaílokkur sem hefur það
helst á stefnuskrá sinni að fækka
pöbbum í landinu. Flokknum er
ekki spáð fiöldafylgi enda eru ír-
ar frægir fyrir að una sér vel á
öldurhúsum.
„Hvers vegna sjást írar miklu
oftar með bjórkoliu í hönd en
bók?“ spyrja flokksmenn og vilja
kymia írland sem menningar-
land en ekki drykkjubæli.
Á írlandi eru 11 þúsund pöbbar
og óvíða fleiri á hvern íbúa. Nýi
flokkurinn viU einnig láta tak-
marka sölu á smokkum til ungl-
inga og segja flokksmenn að getn-
aöarvarnir séu óvirðing við
mannkynið. Reuter
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
INNLAN överðtr.
Sparisjóðsbækurób. 4,5-5 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 4,5-7 Sp
6mán. uppsögn 5,5-8 Sp
Tékkareikningar, alm. 1-1,5 Sp
Sértékkareikningar 4,5-5 Lb
ViSITOLUB. REIKN.
6 mán. uppsögn 2,53,0 Nema ib
15-24 mán. 6-6,5 Ib.Sp .
Orlofsreikningar 5,5 Allir
Gengisb. reikningar í SDR7.4-8 Lb
Gengisb. reikningar i ECU8.1 -9 Lb
ÖBUNDNIRSÉRKJARAR.
Vísitölub. kjör, óhreyfðir. 3 Allir
óverðtr. kjör, hrevfóir 10,25-10,5 Nema Ib
BUNDNIR SKIPTIKJARAR.
Visitölubundin kjör 5,25-5,75 Bb
överðtr. kjör 12,25-13 Bb
INNL. GJALDEYRISR.
Bandaríkjadalir 5-5,25 Bb
Sterlingspund 11-11,1 SP
Vestur-þýsk mörk 7,75-8 Sp
Danskarkrónur 8-8,6 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
ÚTLAN överðtr.
Almennirvixlar(forv.) 15,25 Allir
Viöskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 15,25-15,75 Lb
Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) UTLÁNVERÐTR. 18,75-19 Bb
7,75-8,25 Lb
afurðalán
Isl.krónur 14,75-15,5 Lb
SDR 9,75-9,9 Nema Sp
Bandaríkjadalir 8-8,5 Lb
Sterlingspund 14-14,25 Lb
Vestur-þýsk mörk 10,75-10,8 Lb.lb.Bb
Húsnæðislán 4,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
óverðtr. mars 91 15,5
Verðtr. april 91 7,9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala apríl 3035 stig
Lánskjaravísitala mars 3009 stig
Byggingavisitala apríl 580 stig
Byggingavísitala april 181,2 stig
Framfærsluvisitala apríl 151 stig
Húsaleiguvisitala 3% hækkun 1. april
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,519
Einingabréf 2 2,977
Einingabréf 3 3,618
Skammtímabréf 1,847
Kjarabréf 5,416
Markbréf 2,888
Tekjubréf 2,074
Skyndibréf 1,608
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,645
Sjóðsbréf 2 1,853
Sjóðsbréf 3 1,834
Sjóðsbréf 4 1,589
Sjóðsbréf 5 1,105
Vaxtarbréf 1.8775
Valbréf 1.7474
Islandsbréf 1,146
Fjórðungsbréf 1.077
Þingbréf 1.145
öndvegisbréf 1,132
Sýslubréf 1,156
Reiðubréf 1,121
Heimsbréf 1,055
HLUTABRÉF
Sölu- og kaupgengi að lokinni jófnun:
KAUP SALA
Sjóvá-Almennar hf. 6,10 6.40
Eimskip 5,40 5,62
Flugleiðir 2,30 2,39
Hampiójan 1.72 1,80
Hlutabréfasjóðurinn 1.84 1,93
Eignfél. Iðnaðarb. 2,32 2,40
Eignfél. Alþýðub. 1,62 1,70
Skagstrendingur hf. 4,40
Islandsbanki hf. 1,50
Eignfél. Verslb. 1,73 1,80
Olíufélagið hf. 5,40 5,65
Grandi hf. 2.48 2,65
Tollvörugeymslan hf. 1,00 1,05
Skeljungur hf. 5,75
Ármannsfell hf. 2.35
Fjárfestingarfélagiö 1,35
Útgerðarfélag Ak. 4.05 4,20
Olis 2,25
Hlutabréfasjóður VÍB 0.99
Almenni hlutabréfasj. 1,05
Auðlindarbréf 0,990
Islenski hlutabréfasj. 1,06 1.11
Síldarvinnslan, Neskaup. 2.48 2.60
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aöila, er miðað við sérstakt kaupgenqi
kge.