Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1991, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1991.
Erlendbóksjá
Sá besti sem ekki
fékk nóbelsverðlaun
„Góðar nætur, kóngsson, og syngi
englar sálu þína í ró!“
Spænski presturinn Leopoldo
Duran las þessa tilvitnun úr Ham-
let þegar kista enska rithöfundarins,
Graham Greene, var látin síga í gröf
í kirkjugarði svissneska þorpsins
Corseaux. Faðir Duran, sem hafði
þekkt Greene í áratugi og var talinn
fyrirmynd aðalpersónunnar í skáld-
sögunni „Monsignor Quixote", kom
sérstaklega frá Spáni til þess að veita
Greene hinstu aflausn áður en hann
lést í fyrstu viku aprílmánaðar 86 ára
að aldri. Greene hafði leitað sér
lækninga í Sviss nokkrum mánuðum
áður og því orðið að yfirgefa fyrir
fullt og allt blokkaríbúð sína í Antib-
es á Cote d’Azur þar sem hann hefur
búið um áratuga skeið. En blóðsjúk-
dómurinn reyndist ólæknandi.
Einungis nánustu ættingjar og vin-
ir, um sextíu manns, voru við út-
fórina. Meðal viðstaddra var ekkja
hans, Vivien, sem er 85 ára og hefur
um árabil búið íjarri manni sínum í
Oxfordskíri á Englandi, og böm
þeirra tvö: sonurinn Francis og dótt-
irin Carohne Bourget sem reyndar
býr í Sviss og annaðist föður sinn
síðustu mánuðina fyrir andlátið.
Sömuleiðis ástvina hans undanfarna
þrjá áratugi eða svo, Yvonne Coretta,
sem er á áttræðisaldri.
Sautján ára starf
Norman Sherry, sem er prófessor
í bókmenntum við Trinity-háskólann
í San Antonio í Texas, fylgdi Greene
einnig til grafar í Sviss. Hann átti
mikil samskipti við rithöfundinn
enda unnið aö því síðastliðin sautján
ár að semja ævisögu Greene. Fyrsta
bindi þess verks kom út fyrir tveim-
ur áram og hefur nú birst í pappírs-
kilju. Sherry kveðst hálfnaður við
að skrifa annað bindi ævisögunnar.
Fyrsta bindið er mikiö að vöxtum,
hátt í átta hundrað blaðsíður, og ber
vitni um ótrúlega eljusemi höfundar-
ins. Enda hefur Sherry lagt á sig
meiri fyrirhöfn en títt er um ævi-
söguhöfunda. Það er ekki aðeins að
hann hafi farið yfir öll tiltæk rituð
gögn og rætt ítarlega við Greene
sjálfan og þá karla og konur sem við
hann höfðu helst samskipti á lífsleið-
inni, heldur fór hann hvað eftir ann-
Volume One 1904-1939
NORMAN SHERRY
að í fótspor Greene víða um heim.
Sherry heimsótti þá staöi í Afríku,
Ameríku og Asíu sem Greene notaði
með svo árangursríkum og mögnuð-
um hætti í skáldverkum sínum. Þar
hafði hann jafnvel upp á ýmsum
þeim mönnum sem Greene hitti á
sinni tíð og notaði sem fyrirmyndir
að persónum í sögunum.
Slík elja ævisöguritara er óvenju-
leg. En árangurinn er glæsilegur og
ekki að undra að Sherry hefur hlotið
einróma lof fyrir verk sitt.
í fyrsta bindinu rekur hann ævi og
störf Greene fram til upphafs síðari
heimsstyrjaldarinnar. Þetta er timi
mótunar og síðan sköpunar sem rís
hæst með þeirri skáldsögu sem Gre-
ene sjálfur taldi besta verk sitt: The
Power and the Glory sem fjallar um
drykkfelldan prest í Mexikó á timum
ofsókna gegn kaþólsku kirkjunni
þar.
Erfið æskuár
Graham Greene fæddist 2. október
1904. Hann var ijórði í röð sex systk-
ina. Yngri bróðir hans, Hugh, stjóm-
aði um árabil BBC í London. Faðir
þeirra var skólastjóri heimavistar-
skóla í Berkhamsted, þar sem Gra-
ham stundaði nám í nokkur ár eða
þar til hann þoldi ekki lengur við og
strauk. Sherry gerir skilmerkilega
grein fyrir því hvernig ömurleiki
skólalífsins setti mark sitt á Greene
fyrir lífstíö og mótaði ýmis megin-
þemu skáldskapar hans.
Greene hefur sjálfur lýst sífelldri
baráttu sinni gegn leiðindunum. Þeg-
ar hann var 19 ára gamall hressti
hann upp á tilveruna með því að fara
í rússneska rúllettu. Það munaði ein-
um.
Þegar Greene stundaði nám í Ox-
ford kynntist hann Vivien og varð
yfir sig ástfanginn. Hann gafst ekki
upp þótt hægt gengi að vinna hylli
hennar. Þau gengu loks í hjónaband
þegar Greene haföi snúist til trúar
Vivien, kaþólsku. Trúarskiptin áttu
eftir að hafa mikil áhrif á skáldskap
hans.
í nokkur ár vann Greene fyrir sér
sem blaðamaður við The Times, en
lét af því starfi 1929 eftir að fyrsta
skáldsagan, The Man Within, kom
út. Þótt hann sendi frá sér margar
skáldsögur, sem hlutu ágætar við-
tökur, næstu árin - þar á meðal
Brighton Rock - tókst honum þó ekki
að lifa eingöngu af skáldskapnum og
skrifaði því mikið fyrir tímarit, ekki
síst um kvikmyndir og bókmenntir.
Inn á milh ferðaðist hann til fjar-
lægra landa sem hann notaði síðan
sem sögusvið'í skáldsögum.
Sherry segir mjög ítarlega frá
þessu tímabili í lífi Greene í fyrsta
bindi ævisögunnar.
Virtur og vinsæll
Graham Greene var óvenjulegur
rithöfundur að mörgu leyti og þá
ekki síst vegna þess að hann samein-
aði það tvennt aö vera virtur og vin-
sæll. Vinsældir hans höfðu að vísu í
för með sér að harðsnúnum hópi inn-
an sænsku akademíunnar tókst að
koma í veg fyrir að hann hlyti bók-
menntaverðlaun Nóbels. Ýmsir hafa
vakið athygli á því nú, þegar Greene
er allur, að hann sé tvímælalaust
besti skáldsagnahöfundur þessarar
aldar sem ekki hafi fengið nóbels-
verðlaun og sé það blettur á sænsku
cikademíunni. Garcia Marquez, suð-
ur-améríski nóbelsverðlaunahafinn,
sagði á dögunum að Greene hefði
haft mikil áhrif á sig sem rithöfundur
og að hann hefði sent sænsku aka-
demíunni tillögu um það fyrir
nokkra að Greene fengi nóbelsverð-
launin í ár. Af því verður þó ekki.
Greene tókst að móta svo sterkan
eigin stíl að nafn hans hefur verið
notað sem lýsingarorð fyrir sérstök
efnistök og andrúmsloft í skáldsög-
um. Breskir rithöfundar og gagnrýn-
endur hafa flestir hlaðið á hann lofi
að honum látnum. Slík viðhorf koma
lesendum hans mn allan heim síður
en svo á óvart.
Frá hendi Greene liggja um sextíu
skáldverk: Skáldsögur, smásagna-
söfn, leikrit og endurminningar.
Verk hans hafa verið þýdd á 27
tungumál og selst í ríflega 20 milljón-
um eintaka. Fjölmargar skáldsagna
hans hafa þar að auki verið kvik-
myndaðar, stundum með frábærum
árangri.
The Life of Graham Greene. Volume one
1904-1939.
fföfundur: Norman Sherry.
Penguin Books, 1990.
Metsölukiljur
Bretland.
Skatdsögur:
1. Rosamunde Pilcher:
SEPTEMBER.
2. Mary Wesiey:
A SENSI8LE LIFE.
3. Cothorine Cookson;
TME WINGLESS BIRD.
4. Grant Naylor:
BETTER THAN LIFE.
5. A.S. Byatt
POSSESSION.
8. Robert Ludfum:
THE BOURNE ULTIMATUM.
7. Judith Michael:
A RUUNG PASSION.
8. Sally Beauman:
DARK ANGEL.
9. Arthur Hailey:
THE EVENING NEWS.
10. Jack Hlggins:
COLD HARBOUR.
Rit almenns eðlis:
1. GARDENS OF ENGLAND & WALES
1991.
2. Pater Mayle:
A YEAR IN PROVENCE.
3. Davld Hessayon:
THE BEDDING PLANT EXPERT.
4. Drlvlng Standards Agency:
YOUR DRIVING TEST.
5. Rosemary Conley:
COMPLETE HIP & THIGH OIET.
6. Sheita Alcock:
HISTORIC HOUSES, CASTLES &
GARDENS 1991.
7. Rosemary Conley:
METABOLISM BOOSTER DIET.
8. Rosemary Conley;
INCH-LOSS PLAN.
9. D. Grant & J. Jolce:
FOOD COMBINING FOR HEALTH.
10. Hannah Hauxwelt:
SEASONS OF MY LIFE.
(Byggt 9 The Sunday Timos)
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Thomas Harris:
THE SILENCE OF THE LAMBS.
2. Robert Ludfum:
THE BOURNE ULTtMATUM.
3. Thomas Harris:
RED DRAGON.
4. LaVyrle Spencer:
BITTER SWEET.
5. Tom Robblns:
SKINNY LEGS AND ALL.
6. Mlchael Blake:
DANCES WITH WOLVES.
7. Arthur Halley:
THE EVENING NEWS.
8. Nancy Prlce:
SLEEPING WITH THE ENEMY.
9. Shlriee Buebee:
WHISPER TO ME OF LOVE.
10. Mary Higgins Clark:
THE ANASTASIA SYNDROME
AND OTHER STORIES.
11. David Morell:
THE FIFTH PROFESSION.
12. Terry Brooks:
THE SCIONS OF SHANNARA.
13. Brad Ferguson:
A FLAG FULL OF STARS.
14. Nelson DeMllle:
THE GOLD COAST.
15. Brel Easton Ellis:
AMERICAN PSYCHO.
Rit almenns eölis:
1. Robert Fulghum:
IT WAS ON FIRE WHEN I LAY
DOWN ON IT.
2. Thomas L. Friedman:
FROM BEIRUT TO JERUSALEM.
3. Jerry Hopktns & Danny Sugerman:
NO ONE HERE GETS OUT AU VE.
4. Robert Fulghum:
ALL I REALLY NEED TO KNOW I
LEARNEO IN KINDERGARTEN.
5. Betty Mahmoody, William Hoffer:
NOT WITHOUT MY DAUGHTER.
6. M. Scott Peck:
THE ROAD LESS TRAVELED.
7. CarJton Smlth & Thnrnau Guillen:
THE SEARCH FOR THE GREEN
RIVER KILLER.
8. David Fromkin:
A PEACE TO END ALL PEACE.
9. S. Jill Ker Coneway:
THE ROAD FROM COORAIN.
10. Bernie S. Siegel:
LOVE, MEDICINE, AND
MIRACLES.
11. Bryan Burrough & John Heiyar:
BARBARIANS AT THE GATE.
(Byggt á New York Tímes Sook Review)
Danmörk
Skáldsögur:
1. Jennifer Lynch:
LAURA PALMERS HEMMELIGE
DAGBOG.
2. Tom Wolfe:
FORFÆNGELIGHEDENS BÁL.
3. Marcol Pagnol.
MIN FARS STORE DAG, MIN
MORS SLOT.
4. Jean M. Auel:
HULEBJ0RNENS KLAN.
5. Fay Weldon:
MÆNDS LIV OG HJERTER.
6. Peler Soeberg:
HYRDER.
7. Isabel Allende:
EVA LUNA.
8. Jean M. Auel:
HESTENES DAL.
9. Stephen Klng:
ONDSKABENS HOTEL.
10. Knud H. Thomsen:
DEGNEN I KRAGEVIG.
(Byggt á PollBken SondBg)
Umsjón: Elías Snæland Jónsson
Páfinn undir
skurðhnífnum
Morris West, sem er kunnur
fyrir fjölmargar spennusögur,
hefur samið nokkrar skáldsögur
um æsilega atburði í Páfagarði.
Þessi nýjasta saga hans er ein-
mitt af því tagi.
Söguhetjan er Leó páfi fjórtándi
sem hefur rekið svo kröfuharðan
strangtrúnað sem æðsti maður
kaþólikka að það hefur fælt fólk
frá kirkjunni í stórum stíl víða
um lönd.
Páfinn stendur frammi fyrir
erfiðu persónulegu vali; að gang-
ast undir hjartauppskurð eða
horfa fram á vísan dauða innan
skamms tíma. Hann velur að
leggjast undir hnífmn. Aðgerðin
heppnast vel en páfinn er ekki
samur maður á effir og viðhorf
hans era gjörbreytt.
En páfinn lendir ekki aðeins í
návígi við dauðann undir skurð-
hnífnum. Hryðjuverkamenn vilja
hann feigan og skipuleggja bana-
tilræði.
West skrifar lipran texta og
kann að búa til spennandi sögu-
þráð. Þá nýtir hann vel mikla
þekkingu sína á gangi mála í
Páfagarði. Þetta er því ágætis af-
þreying.
LAZARUS.
Höfundur: Morris West.
Mandarin Paperbacks, 1990.
In Search of
THE CRACK
A 'iniKÍ, sad, RÍjmortius carníval' of a
Ljúfa lífið
og eiturlyfin
In Search of the Crack er fyrsta
skáldsaga rúmlega þrítugs blaða-
manns sem einkum hefur starfað
viö tímaritið Face í London og
fjallaö um tískustrauma meðal
unga fólksins.
Viðfangsefnið í skáldsögunni er
líf fólks á táningsaldri í bresku
höfuðborginni. Það er á flótta frá
dapurlegum hversdagsleikanum
og leitar gjaman hamingjunnar í
hinu ljúfa næturlíf.
Sögumaðurinn, Tony, er nítján
ára. Þótt hann búi enn heima hjá
foreldram sínum og systkinum
er samband hans við fjölskylduna
tilfinningasnautt. Hann er hætt-
ur í skóla, hefur ekki fundið sér
starf - enda lítt áhugasamur um
slíkt - og á yfirleitt erfitt meö að
fóta sig í tilveranni. Hið ljúfa líf
heillar og fljótlega er hann ásamt
félögum sínum kominn út á hála
braut eiturlyíjaviðskiptanna.
Þetta er athyglisverð framraun
höfundar sem þekkir vel til þess
umhverfis sem hann lýsir í sög-
unni þótt hvorki persónumar né
atburðarásin geti talist sérlega
frumleg.
IN SEARCH OF THE CRACK.
Höfundur: Robert Elms.
Penguin Books, 1989.