Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1991, Side 11
JiBtÁ ;ðs íWöÁQHAÐUáij
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1991.
Ot
11
Karlaveldin falla enn:
Kem
strákunum
auðveldlega
í gólfið
Gerum ekki margt í einu
við stýrið..
Akstur krefst fullkominnar
einbeitingar!
UUMFERÐAR
RÁÐ
X
- segir Guðrún Guðmundsdóttir, 14 ára
l„Ég er búin aö æfa glímu í tvö ár
en byijaöi æfingar vegna áhuga hér
í sveitinni. Mér þykir hún mjög
skemmtileg og hef hugsaö mér að
halda áfram svo lengi sem ég hef ein-
hvern til aö glíma við,“ sagði Guörún
Guðmundsdóttir, 14 ára glímustúika,
í samtah viö DV.
Guörún, sem býr í Tungu í Gaul-
veijabæjarhreppi, sigraöi á móti í
ghmu sem fram fór í Hrafnagih viö
Eyjafjörð fyrir stuttu. Guörún er
elsta stúlkan á landinu sem æfir
ghmu en íþróttin hefur hingað til
þótt karlaíþrótt.
„Jón M. Ivarsson kom í bamaskól-
ann hér í sveitinni og kynnti ghmu
fyrir krökkunum og áhuginn vakn-
aði strax. Ég smitaðist af þessum
áhuga og núna æfum við einu sinni
í viku en þá kemur þjálfarinn hing-
að. Ekki veit ég til að ghma sé æfð á
Selfossi en á Laugarvatni þjálfar
Kjartan Lárusson í ghmu.“
Guðrún hefur æft frjálsar íþróttir
frá því hún var 6 ára gömul og telur
ekki eftir sér að bæta glímunni við.
Henni finnst ghman ekkert frekar
vera fyrir stráka en stelpur og ætlar
sér að ná árangri á sínu sviði.
„Ég tek strákana oft í glímu og hef
komið þeim í gólfið,“ segir hún gal-
vösk. Guðrún, sem stundar nú nám
í grunnskólanum á Selfossi, segir að
tæplega tuttugu stúlkur á landinu
öhu stundi nú þessa karlaíþrótt sem
venjulegast hefur verið nefnd þjóðar-
íþrótt íslendinga. Ghman er æfð á
Norðurlöndum einnig og vonast
Guðrún til að geta komist á mót
þangað. Það er þó einungis hér á
landi sem stúlkurnar æfa ghmu. Mót
eru nokkuð oft í ghmu og hefur Guð-
rún borið sigur úr býtum í öhum
mótum sem af er þessu ári og öhum
nema einu á síðasta ári.
Karlaveldin faha hvert af öðru og
ghman er þar enginn eftirbátur. Guð-
rún segist vera orðin vel sterk eftir
miklar æfingar og hræðist ekki að
taka á stráknum. Hins vegar segist
hún ekki vita hvort stúlkur og dreng-
ir megi keppa saman á mótum.
„Við ræðum hvemig búningum við
erum í en ég hef bara verið í hjóla-
buxum og bol. Alhr eru með svört
eins belti. Það er eiginlega verst hvað
fáar konur eru í þessu og engin eldri
ég,“ segir Guðrún.
- Er ekkert skrýtið að stelpur skuh
æfa ghma?
„Nei, ahs ekki. Þær geta þetta alveg
eins og strákar. Ég hef heldur enga
aðra en stráka th að æfa mig á. Þetta
er mjög skemmtileg íþrótt og hun
heillar mig.“
- ELA
glímukona
Guðrún Guðmundsdóttir glímukona til vinstri ásamt tveimur öðrum glímukonum. Nú mega karlarnir fara að vara sig.
X
UM LEIÐ 0G VIÐ ÞÖKKUM VEITTAN STUÐNING
VILJUM VIÐ BENDA Á KOSNINGASÍMA OKKAR
KOSNINGAMIÐSTÖÐ - SKEIFUNNI 7, REYKJAVÍK
Afgreiðsla Akstur Kjörskrá 91-82115 91-82142, 91-82237
REYKJANES Kópavogur Keflavík 91- 45878 92- 13871
SUÐURLAND Selfoss Vestmannaeyjar Hella 98-22219 98-12999 98-75411
VESTURLAND Akranes Grundarfjörður Borgarnes 93-12903 93-86737 93-71004
VESTFIRÐIR ísafjörður 94-3651
NORÐURLAND vestra Sauðárkrókur 95-35547
NORÐURLAND eystra Akureyri 96-27787
AUSTURLAND Egilsstaðir 97-11633
FRJALSLYNDIR
KOSNINGAHÁTÍÐ F-LISTANS í REYKJAVÍK
veröur í Fóstbræðraheimilinu, Langholtsvegi 109-111,
og hefst strax að loknum kjörfundi kl. 22:00.
Allir Frjálslyndir velkomnir