Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1991, Side 24
LAUGARDAGUR^y^,fy499}.
Heiöar Jónsson, Eileen Ford og stúlkurnar sextán sem kepptu til úrslita í Fordkeppninni á Hótel Sögu um síðustu helgi.
Fordkeppnin:
Langar að prófa
fyrirsætustarfið
- segir Bima Bragadóttir, Fordstúlkan 1991
„Mér finnst þetta allt saman hálf-
skrýtiö. Ég er búin að fá heilmikið
af blómum og skeytum og manni líð-
ur hálfeinkennilega. Meira að segja
skólastjórinn kom inn í stofu og ósk-
aði mér til hamingju,“ sagði Bima
Bragadóttir, Fordstúlkan 1991, í sam-
tali við DV í vikunni þegar mesta
sigurvíman var afstaðin. Eins og
flestum er orðið kunnugt var Birna
valin af Eileen Ford úr sextán
stúlkna hópi sl. sunnudagskvöld í
Súlnasal Hótel Sögu.
Birna er á fyrsta ári í Kvennaskól-
anum en búsett á Álftanesi. „Mig
langaði til að fara eitthvað annað í
skóla til að kynnast nýju fólki,“ segir
hún. Engu að síður á hún kærasta í
Fjölbraut í Garðabæ en hann heitir
Ingólfur Már Ingólfsson og er ári
eldri en Bima.
Birna segist ekki vera búin að
ákveða sig með framtíðina. Hún
hafði hugsað sér að fara sem skipti-
nemi til Suður-Ameríku en ekkert
varð úr þeirri ferð vegna bílsslyss
sem hún lenti í í janúar. Birna hefur
alveg náð sér eftir það en bílslysið
varð til þess að móðir hennar sendi
mynd af henni í keppnina. Bima seg-
ist samt alls ekki hafa átt von á aö
komast í úrsht og því síður að sigra.
Birna verður sautján ára í október
en hún segist hlakka til þess að fá
bílpróf vegna þess hversu langt sé í
alla þjónustu á Álftanesinu. Þar hef-
ur fjölskyldan búiö í þrjú ár en Bima
á eliefu ára bróður og fimm mánaða
systur. Einnig á hún tík, Tátu, sem
er af þýskum minkaveiðikyni.
Öll fyrirsætuumboð hér á landi
hafa boðið Bimu vinnu og hefur hún
ákveðið að velja Módel 79. Fyrir-
hugað ferðalag hennar til Los Angel-
es er henni þó ofarlega í huga þessa
dagana. „Ef mér gengur vel í þeirri
keppni og býðs fyrirsætustarf langar
mig að prófa það t.d. í eitt ár. Tvær
vinkonur minnar era að fara sem
skiptinemar, önnur til Bandaríkj-
anna og hin til Brasilíu, þannig að
ég væri alveg tilbúin að starfa er-
Bryndís Ólafsdóttir, Fordstúlkan 1990, setur boróa á Birnu Bragadóttur, Fordstúlkuna 1991, eftir aó Eileen Ford lendis,“ segir Birna. Þó hún sé enn
hafði kallaó upp nafn hennar sem sigurvegara. ungaðárumþarfhúnenguaðkvíða.
Þessi stúlka úr Módel 79 verður
sennilega meðal þeirra stúlkna sem
Eileen Ford býður vinnu við fyrir-
sætustörf erlendis.
DV-myndir Hanna
Birna Bragadóttir, sigurvegari
kvöldsins, með fangiö fullt af blóm-
um og gjöfum frá heildversluninni
Klassík.