Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1991, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 1991.
Fréttir
Svava Haraldsdóttir kjörin ungfrú ísland á föstudagskvöldið:
Ég var farin að hlakka
til að allt yrði búið
- var orðin þreytt og dauðbrá því þegar úrslitin lágu fyrir
„Viö systurnar vorum famar að
hlakka til að þetta yrði allt yfirstað-
ið. Við vorum orðnar mjög þreyttar.
Ég hugsaði ekkert voðalega mikið
um úrslitin sjálf. Mér dauðbrá þegar
þau lágu fyrir. Ég var búin að hlakka
svo til að ailt yrði búið. En ég var
mjög ánægð samt,“ sagði Svava Har-
aldsdóttir, 18 ára Reykvíkingur, sem
var kjörin ungfrú ísland á Hótel ís-
landi á fóstudagskvöldið.
Hún var fyrir skömmu kjörin feg-
urðardrottning Reykjavíkur. Svava
varð í 3. sæti í Fordkeppninni 1990.
Rakel systir hennar var einnig meðal
þátttakenda á Hótel íslandi á fóstu-
dagskvöldið. Nú liggur nokkur ljóst
fyrir að Svava verður fulltrúi íslands
í keppninni Miss World í haust.
Svava hefur farið í ýmsar mynda-
tökur eftir að úrslitin lágu fyrir -
mjög mikið hefur verið að gera hjá
henni. Hún er nemandi í MH og er
fyrsta prófiö á vorönn hjá henni á
morgun. Svava telur ljóst að hún
geti ekki tekið þátt í öllu sem hún
verður beðin um þann tíma sem próf-
in standa yíir:
„Ég verð í prófum þangaö til 16.
maí. Ég tók 16 einingar og sagði mig
úr nokkrum fogum þegar ég vissi að
ég komst áfram eftir aö ungfrú
Reykjavík var kjörin. Ég vona því
að ég nái að ráða við þau próf sem
ég tek,“ sagði Svava.
Hún sagði ennfremur að mjög
annasamt hefði verið hjá sér frá þeim
tíma sem hún hóf undirbúning fyrir
keppnina ungfrú Reykjavík í vetur:
„Við vorum að gera eitthvaö í
marga klukkutíma nærri því alla
dagana fyrir keppnina. Þetta voru
aðallega gönguæfmgar og ýmislegt
Einar örn Birgisson, unnusti Svövu Haraldsdóttur sem var kjörin ungfrú
ísland, óskar henni til hamingju með kossi á kinn þegar úrslitin lágu fyrir.
Einar Örn er nemandi í Kvennaskólanum i Reykjavík en Svava er í MH.
Frá vinstri: Sigrún Eva Kristinsdóttir, 19 ára, frá Innri-Njarðvík, sem varð í öðru sæti, Svava Haraldsdóttir, 18 ára,
frá Reykjavik, ungfrú ísland, og Sólveig Kristjánsdóttir, 19 ára Hafnfirðingur, sem varð i þriöja sæti. 18 stúlkur
kepptu um titilinn. Telma Birgisdóttir, 18 ára Keflvíkingur, varð í fjórða sæti - hún var kjörin besta Ijósmyndafyrir-
sætan. Sigrún Elsa Smáradóttir, 18 ára, frá Vestmannaeyjum, varð í 5. sæti. Selma Unnsteinsdóttir, 19 ára, frá Höfn
í Hornafirði, var kosin vinsælasta stúlka í hópnum af keppendum. DV-myndir GVA
fleira,“ sagði fegurðardottningin.
Svava á unnusta. Hann heitir Einar
Örn Birgisson og er nemandi í
Kvennaskólanum. Einar æfir auk
þess knattspyrnu með Víkingi.
í verölaun fyrir titilinn ungfrú ís-
land fékk Svava vikuferö til New
York á lúxushóteli, skartgripi og
armbandsúr, samkvæmiskjól,
snyrtivörur og ýmsan fatnað ásamt
fleiru.
-ÓTT
í dag mælir Dagfari_________________
Afkastamikill ráðherra
Það er mikil eftirsjá að Óla Þ.
Guðbjartssyni úr dómsmálaráðu-
neytinu. Þar hefur verið réttur
maður á réttum stað, látið hendur
standa fram úr ermum og unnið
sín mál í kyrrþey án þess að halda
blaðamannafundi og kokkteilboð.
Það eru einmitt svona menn sem
þurfa að komast til valda, menn
sem kunna til verka og vita hvað
þeir vilja.
Þaö fór ekki mikið fyrir Óla Guð-
bjartssyni í ráðherratíö hans. Satt
að segja mundu fæstir eftir honum
þegar ráöherrarnir gömlu voru
taldir upp. Steingrímur var í sviös-
ljósinu, Ólafur Ragnar, Halldór
Ásgríms og Jón Sigurðsson og Júl-
íus Sólnes varð frægur að endem-
um af jeppaferðum sínum. En eng-
inn minntist á Óla, né vissi hvað
hann var aö bardúsa í dómsmála-
ráðuneytinu. Var það hald manna
að þar færi aðgerðarlítill ráðherra
og duglaus.
En annað hefur komið á daginn.
Þegar upp er staðið og að er gáð
hefur þessi hægláti Selfyssingur
afrekað meir en hinir ráðherramir
samanlagt. Einkum hefur honum
verið hugleikið að rétta þeim hjálp-
arhönd sem bágstaddir hafa verið
í samfélaginu og má því segja að
hann hafi sannað í verki að Borg-
araflokkurinn var þrátt fyrir allt
flokkur litla mannsins. Óli Þ. hefur
sannarlega hugsað um litla mann-
inn.
Fráfarandi dómsmálaráðherra
var önnum kafinn við aö leysa
vanda htla mannsins. Þá sem hann
gat ekki náðað, réði hann til starfa
hjá lögreglunni. Þá sem hann gat
ekki ráðið náðaði hann. DV birti
langan lista fyrir helgi um þessi
góðverk Óla Þ. Guðbjartssonar og
er það skrautlegur listi og lofsverð-
ur og ber vott um hugarþel Óla Þ.
Allir fengu úrlausn sem gátu sýnt
flokksskírteini sín í Borgara-
flokknum og áttu bágt. Makar
þeirra einnig, vinir og vandamenn
og ráöherrann lét hvorki nefndir,
embættismenn né lög og reglur
aftra sér frá réttlætinu, ef réttlætið
lá öfugu megin við lögin.
Ólí Þ. Guöbjartsson réö lögreglu-
varðstjóra vitt og breitt um landið
þótt hvergi vantaöi lögregluvarð-
stjóra. Honum var meira annt um
umsækjenduma en embættin. Það
segir sína sögu um tillitssemi hans
við htla manninn. Óli lét ekki af-
brotaferil og dóma aftra sér frá því
að náða fyrrverandi morðingja og
árásarmenn ef afbrotamennimir
lofuðu bót og betrun. Það segir sína
sögu um tillitssemi hans við vonda
manninn. Honum var meira annt
um afbrotamanninn en fóm-
arlömbin. Óli lét ekki reglur um
réttindi starfsstétta aftra sér frá því
aö veita löggiltum skjalaþýðendum
starfsréttindi, ef hann taldi að
dönskukunnátta þeirra væri full-
nægjandi. Það segir sína sögu um
tillitssemi hans við norrænt sam-
starf. Honum var meira annt um
atvinnumöguleika ofsóttra
kvenna, heldur en gæði þeirrar
dönsku sem skjalaþýðendurnir
skildu.
Dómsmálaráðherrar eiga að vera
mannlegir og skilningsríkir. Þeir
eiga ekki að eltast við lög. Þeir eiga
ekki að viröa dóma. Dómsmálaráð-
herrar eru einmitt til þess að koma
í veg fyrir að lögin og réttvísin nái
fram að ganga, þegar fólk á í hlut
sem styður ráöherrann og veröur
fyrir barðinu á lögunum og dómun-
um. Dómsmálaráðherrar hafa því
hlutverki að gegna að veija fólkiö
fyrir lögunum en ekki að verja lög-
in fyrir fólkinu. Það er samviska
ráðherrans sem á að ráöa því þaö
er ráðherrann sem þekkir fólkið
og veit hvað það kýs. Lögin og dóm-
stólarnir hafa ekki hugmynd um
það og fara ekki í manngreinarálit.
Ráðherrann skoðar hinar mann-
legu hliðar og vandræðin sem
hljótast af þvi fyrir morðingja og
árásarmenn þegar þeir eru hneppt-
ir í fangelsi og geta ekki um frjálst
höfuð strokið. Geta ekki einu sinni
kosiö. Það er verk stjórnmála-
mannsins að ráða það fólk í opin-
ber störf sem embættismenn vilja
ekki ráða.
Það er mikil synd hvað góðsemi
Óla Þ. Guðbjartssonar fór leynt.
Ef fleiri afbrotamenn og atvinnu-
leysingjar og réttindalausir skjala-
þýðendur heföu vitaö um sam-
viskusemi Óla ráðherra, hefðu allir
þessir aðilar flykkst í Borgara-
flokkinn og þá hefði hann hlotið
glæsilega kosningu. Þá hefði Óli
Þ. getað haldið áfram góðverkum
sínum í ráðuneytinu.
Dagfari