Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1991, Blaðsíða 27
„Ég vil að i borginni þróist ötlug atvinnustarfsemi," segir nýr borgarstjóri í Reykjavík, Markús örn Antonsson.
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1991.
„Þaö er hægt að fullyrða að það er
ólíkt meiri stöðugleiki kominn á í
þessari samkeppni Ríkisútvarpsins
og nýrra ljósvakamiðla heldur en
fyrst eftir breytinguna. Að því leyti
verður þetta öðruvísi fyrir þann sem
tekur við af mér. Þá tel ég að fjár-
hagsleg staða RÚV sé mun tryggari
en hún hefur verið um alllangt skeið
eða frá því samkeppnin skall á. Einn-
ig hafa dagskrár RÚV fengið góðar
umsagnir í þeim könnunum sem
gerðar hafa verið.“
Á kaf í stjórnmálin
- Varstu farinn að sakna stjórnmál-
anna?
„Ég hef ekki gert það. Ég ákvað að
shta mig algörlega frá stjórnmálum
og ýmsir voru hissa á hvað það var
gert með afgerandi hætti. Eg taldi
ekki annað koma til greina og held
það haíi verið öllum fyrir bestu,
mér, Ríkisútvarpinu og samstarfs-
fólki mínu þar.“
- En ætlar þú að hella þér út í þau
aftur?
„Já, ég hyggst gera það. Reyndar
þarf nokkurn aðdraganda að því. Ég
er ekki kjörinn borgarfulltrúi. Það
er ákvörðun stofnana Sjálfstæðis-
flokksins hvernig staðið verður að
því að ákveða framboð í næstu borg-
arstjórnarkosningum og hver verður
borgarstjóraefni. Það þarf að ákveða
prófkjör og hvernig verður staðið að
þessu að öðru leyti. Hins vegar
hyggst ég sækjast eftir umboöi til
þess að starfa áfram sem kjörinn
borgarfulltrúi og borgarstjórarefni
flokksins. Það er aftur á móti ekki á
dagskrá að fara í þingkosningar."
- Hafa borgarmálefni þá heillað þig
meira en landsbyggðarmál?
„Ef þú ert að tala um landsbyggðar-
málin í þeirri merkingu sem snerta
dreifbýli íslands þá vill svo til að ég
hef haft töluverðan áhuga á þeim.
Ég hef farið víða um landið sem
blaðamaður og gert skil ýmsum hlut-
um sem hafa verið að gerast í öðrum
landshlutum en suðvesturhorni
landsins. Þá aðallega atvinnumálum,
fyrirtækjastarfsemi og fleira af því
tagi. Sem útvarpsstjóri hef ég líka
haft mjög gott samband við fólk á
landsbyggðinni, forystumenn í sveit-
arfélögum og fjórðungssamböndum.
Þá hafa málefni, sem snerta þjónustu
Ríkisútvarpsins, að sjálfsögðu veriö
efst á baugi, uppbygging og rekstur
dreifikerfis í þágu fólksins sem á
landsbyggðinni býr.
Borgarmálefnin hafa alltaf heillað
mig og standa mér kannski nær.
Þetta er umfjöllun um þjónustu í
næsta umhverfi manns sem Reyk-
víkings. Þau snerta fjölmörg atriði
sem borgarbúar eru í náinni snert-
ingu við daglega. Ég fór nokkuð vítt
yfir þetta svið þegar ég var borgar-
fulltrúi. Ég var formaður í æskulýðs-
ráði, félagsmálaráði og fræðsluráði,
sat í heilbrigðismálaráði og ýmsum
öðrum sérnefndum borgarinnar.
Þetta voru allt saman áhugaverð
verkefni sem gaman var að fást við.“
Fyrsta mál
á dagskrá óvíst
- Nú spyr gamla fólkið í borginni
sjálfsagt hvað þú æthr að gera fyrir
það. Og unga fólkið hvað þú ætlir að
gera í dagvistarmálum?
„Ég ætla nú ekki að vera með yfir-
lýsingar eða tilkynningar á þessu
stigi. Það er auövitað fyrir hendi
greinargóð og skýrt fram sett stefnu-
skrá Sjálfstæðisflokksins í þessum
málaflokkum. Þar eru atriði af þessu
tagi rækilega tíunduð í einstökum
atriðum. Ég tel mig ekki í aðstöðu til
þess að bæta hana í fljótu bragði í(.
símanum frá Strassburg. “
- Veistu hvert verður þitt fyrsta verk
sem borgarstjóra?
„Ég veit ekkert um hvaða skuld-
bindingar bíða borgarstjóraembætt-
isins um það leyti sem ég tek til
starfa. Að svo miklu leyti sem ég ræð
ferðinni mun ég auðvitað hefja mitt
starf með því aö eiga viðræður við
sem flesta af mínum verðandi sam-
starfsmönnum meðal kjörinna fufi-
trúa og embættismanna borgarinn-
ar. Þá verður rætt og farið yfir þau
mál sem eru til meðferðar um þessar
mundir og þarfnast afgreiðslu á
næstunni."
Kennslustund
í hundafræðum
- Hlakkar þú til að takast á við nýja
starfið?
„Já, það geri ég. Ég er sannfærður
um að þetta verður ánægjulegt starf.
Þetta er vitaskuld feykilega mikið
starf. Þá er gott til þess að vita að
eiga góða samstarfsmenn og vini sem
ég get reitt mig á. Þeir hafa sýnt mér
mikið traust með þeirri samhljóða
niðurstöðu á fundi sínum í borgar-
stjómarflokknum á miðvikudag. Ég
hugsa töluvert mikið um þetta nýja
starf og að því leyti verður sumar-
leyfisferð okkar hjónanna kannski
öðmvísi en gert var ráð fyrir.“
- En á verðandi borgarstjóri hund?
„Nei, hann á ég ekki. Mig hefur oft
langað til að eignast hund. Við höfum
ekki treyst okkur til þess þar sem
við höfum tahð að þá þyrfti alltaf
einhver að vera heima th að sinna
honum. Aftur á móti fékk ég nokkrar
leiðbeiningar um hvernig ætti að
haga sér í slíkum málum er ég hitti
borgarstjórann núverandi og forsæt-
isráðherrann sem er meö hund.
Hann sagði að í sínu tilfehi væri
hægt að venja hundinn einan heima
ef menn gerðu það markvisst í þrep-
um. Fyrst í fáeinar mínútm- og síðan
lengja tímann en þannig að hundur-
inn gerði sér alltaf grein fyrir að fólk-
ið skilaði sér heim aftur. Ég vil nú
ekkert segja um það núna hvort ég
læt verða af því að fá mér hund. Því
er þó ekki að neita að þessi umræða
hefur komið upp í fjölskyldunni oftar
en einu sinni," sagði Markús Öm.
SonurinnFramari
Eiginkona Markúsar, Steinunn,
hefur starfað sem kennari í Álfta-
mýrarskóla í þrettán ár. Þau hjónin
eiga tvö böm, Sigrúnu, sem er 25 ára
fréttamaður hjá Sjónvarpinu, og
Anton Björn, 20 ára, sem var að út-
skrifast úr Verslunarskóla íslands.
Hann er mikill knattspymumaður
og hefur spilað með Fram. Anton
hefur þó ekki sphað mikiö undanfar-
ið vegna meiðsla sem hann hlaut í
innanhússfótbolta í vetur."
- Er Markús þá líka Framari?
„Nei, ég hef ekki verið félagsbund-
inn í neinu íþróttafélagi. Þegar ég var
drengur gekk ég í KR fyrst og fremst
vegna fjölskylduaðstæðna. Faðir
minn heitinn, systkini hans og
frændfólk mitt úr vesturbænum, hef-
ur verið og er í KR. Það má kannski
segja að ég búi í rétta umhverfinu
en ekki em ahir tílbúnir að sætta sig
við að sonurinn sé Framari."
- Enhvaðtelurvæntanlegurborgar-
stjóri nauðsynlegast þegar hann tek-
ur við hinu nýja embætti?
„Að í borginm þróist öflug atvinnu-
starfsemi og fyrirtækjarekstur sem
skapi borgarbúum trausta og góða
atvinnu þannig að Reykvíkingar geti
haft tryggingu fyrir góðum kjörum.
Það er vissulega undirstaða aUs þess
sem hægt er að aðhafast á sviði borg-
armálefna. Ég mim bgita mér fyrir
því.“ -ELA