Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1991. 3 Fréttir Stefnir 1 getraunasamstarf Islendinga og Svía frá 9. nóvember næstkomandi: Hámarksvmningur yrði um þrjátíu mil Ijónir króna Þaö stefnir í getraunasamstarf ís- lendinga og Svia. í júníbyijun sendu Svíar viljayfirlýsingu um samstarf sem hæfist 9. nóvember næstkom- andi og stæði yfir í 24 vikur. Sama verö yröi á rööinni á íslandi og Sví- þjóö og yrði miðað við 1 krónu sænska sem eru tæplega 10 krónur íslenskar. Einnig veröur þess gætt að sömu reglur gildi á báðum stöð- um, jafnt hvað varðar vinninga og aðra hluti. Það þýðir til dæmis að íslenskur tippari gæti ekki unnið nema 3.000.000 sænskar krónur sem gera um 30 milljónir íslenskra króna. Þrjár milljón krónurnar sænsku eru hámark fyrir fyrsta vinning. Verðið lækkar í tíu krónur íslenskar getraunir byija sem fyrr í ágúst og verða spilaðar tólf vikur með tólf leikjum og verðinu 15 krón- um íslenskum. Þann 9. nóvember breytist verð raðar í 1 krónu sænskar og leikimir verða þrettán. 24 vikum síðar verður aftur breyting. Þá breyt- ist verð raðar í 15 íslenskar krónur á ný og leikirnir verða tólf. Þannig gengur það fyrir sig í fjórar vikur. Vinningarnir eru ekkert slor. Að jafnaði eru vinningar ekki undir 100 milljónum íslenskra króna á viku á þessu tímabili yfir háveturinn sem Islendingar og Svíar eru með sam- starf. Ef litið er á vinninga frá því síðla árs 1990 og snemma árs 1991 kemur í ljós að vinningar eru lægstir 100 milljónir eina vikuna en hæstir 188 milljónir aðra vikuna. Ástæðan fyrir þessari sveiflu er sú að þegar of margar raðir finnast meö tíu rétta, sem er íjórði vinningur, er upphæðin fyrir tíu rétta geymd til næstu viku og þá hækkar potturinn svo sannar- lega. Meðaltal tuttugu og fjögurra vikna á þessu tímabili gerði 136 millj- ónir íslenskra króna í vinninga. Meðalvikan á 136 milljónir Sem dæmi má nefna vinninga fyrir 47. leikviku ársins 1990 sem er næst- síðasta vika nóvembermánaðar. Þá var fyrsti vinningur 597.215 sænskar krónur, tæplega sex milljón íslensk- ar krónur en alls fundust sjö raðir með þrettán rétta þá helgi. 363 raðir fundust með tólf rétta og fékk hver röð 7.677 sænskar krónur, um það bil 76.000 íslenskar krónur. 5.221 röð fannst með ellefu rétta og fékk hver röð 533 sænskar krónur eða 5.330 íslenskar krónur. 281.025 raðir fundust með tíu rétta og fékk hver röð 20 krónur sænskar eða tæp- lega tvö hundruð íslenskar krónur. Litsj ónvarpstæki 14" m/Qarst. Kr. 23.950,-stgr. 5 ára ábyrgð á myndlampa VÖNDUÐ VERSLUN Aukningin 16% í Danmörku Danskt tippár er frá 1. júlí til 30. júní. Dansk Tipstjeneste AS er með lotto og getraunir og var aukningin milli áranna 1989/90 og 1990/91 16%. salan á getrauna- og lottóseðlum var 18 milljarðar króna á tippárinu 1989/90 en jókst í 20,9 milljarða 1990/91. Það þýðir að hver Dani eyðir 4.103 krónum í lottó- eða getrauna- seðla. Þessi aukning er að mestu leyti tilkominvegnalottóseðlasölu. -EJ Tölvustýrð stiglaus sjálfskipting. Ein sú fullkomnasta sinnar tegundar. Skemmtilega léttur og lipur innanbœjar, öruggur og mjúkur á mölinni. Fullkomin sjálfstæð gormafjöðrun Sparneytin. Merkið tryggir gœðin. á hverju hjóli. Sýning um helgina kl. 14-17 Verið velkomin SUBARU JUSTY ÆMW/n\ Ávalltframhjóladrifinn, en meðþvíað styðja á einn takka er ͱA \\ A //L—'J hann kominn ífjórhjóladrif sem tryggir öruggan akstur. Einfaldara getur það ekki verið. 1,2 lítra sprœk fjölventla vél, í senn aflmikil og sparneytin. Ingvar Helgasonhf. Sævarhöföa 2 sími 91-674000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.