Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 6: JÚLÍ1991. 25 Halldór Bragason fremstur með gítarinn, Andrea Gylfadóttir syngur og Chicago Beau fyllir bakgrunninn. Blúsarar á Maxwell Street í Chicago á sunnudagsmorgni. Þarna hafa margir þeir frægustu byrjað feril sinn. íslendingar eru negrar norðursins - segir Halldór Bragason blúsari Albert King, Candice, þekktur fatahönnuður og Halldór með diskinn Bleu lce. „íslendingum lætur mjög vel að spila og syngja blús. Þeir skynja mjög vel þá hluti sem þar er verið að syngja um. Að mínu viti er það vegna þess að rétt eins og negrarnir vorum við íslendingar kúgaðir og undirokaðir um aldir. Eina huggun okkar í svart- nætti, hörmungum og plágum var að kveða rímur og segja hvor öðrum sögur. Þetta er nákvæmlega það sama og þrælarnir á plantekrunum gerðu. Þegar búið var að banna þeim að slá trumbur hófu þeir að syngja við vinnu sína á ökrunum og kallast á og þannig varð blúsinn til. Þannig erum við Islendingar negrar norð- ursins,“ segir Halldór Bragason, gít- arleikari og blúsari, í samtali við DV. Halldór hefur um tveggja og hálfs árs skeið starfrækt blúshljómsveit- ina Vinir Dóra sem leikið hefur við góðan orðstír á skemmtistöðum að undanfórnu. Halldór er nýkominn að utan þar sem hann og vinirnir léku ásamt blúsaranum Chicago Beau á mikilli blúshátíð í Chicago. Hátíðin stóð í þrjá daga og meðan á henni stendur er Chicago, sem er óumdeilanlega Mekka blúsins, ið- andi af tónlist og lífi. Þama léku Vinir Dóra, þ.e. Halldór Bragason, Guðmundur Pétursson og Andrea Gylfadóttir, með frægum blúsurum og kynntu efni af glænýj- um blúsdiski sem nýkominn er í verslanir hérlendis og heitir Blue Ice. Ásgeir Óskarsson trommari og Haraldur Þorsteinsson bassi komust því miður ekki með þótt þeir væru hluti sveitarinnar. Á nefndum diski leika vinirnir ásamt Chicago Beau óg Jimmy Dawkins. Diskurinn er þegar kom- inn í búðir í Chicago og verið að semja um dreifingu í Bandaríkjun- um. Það er fyrirtæki Hilmars Arnar Hilmarssonar, Platónskar plötur, í samvinnu við Skífuna, sem gefur plötuna út, og voldugir kynningar- tónleikar verða í næstu viku á Tveim vinum og Púlsinum. En hvernig leið íslenskum blúsmönnum í samspili með þeim bestu í þessari tónlist? Betrienvið þorðum aðvona „Þessi ferð var mjög góð og bar margfalt meiri árangur en við höfð- um þorað að vona,“ segir Halldór og rífur sítt hárið frá andlitinu. „Við sáum þarna að íslenskir blúsarar standa jafnfætis þeim bestu í heimin- um og við komum okkar plötu á framfæri mjög víða. Okkur stendur til boða að leika inn á plötu með blúspíanistanum Pi- netop Perkins sem er gamalreyndur í faginu. Það er verið að kanna mögu- leika á útgáfu á Blue Ice diskinum í Japan og vonandi kemur eitthvað út úr því,“ segir Halldór sem er sjálf- skipaður blúsambassador í Chicago þótt hann hafi ekki fengið neina styrki til fararinnar. „Það var tómt mál að tala um. Ég reyndi mikið að fá einhverja til þess að styrkja okkur til fararinnar, sem var mjög dýr, og ekki enn séð fyrir endann á því hvernig það fer því við þrjú höfðum ekkert efni á því að fara. En ég kom alls staðar að lokuðum dyrum. Þó er þetta ótrúlega gott tækifæri til kynningar á íslenskri tónlist á erlendri grund. Því er nefni- lega þannig farið að þótt blúsinn sé alþjóðleg tónlist þá spilum við hana á sérstakan hátt. Það var líka mjög vandað til upptöku plötunnar og á henni er betra „sánd,“ en á mörgum öðrum blúsplötum og það verður henni vonandi til framdráttar. Þrennir tónleikar á Púlsinum voru teknir upp og síðan valið það besta og það hljóðblandað saman." Blús er, eins og Halldór segir, al- þjóðleg tónhst og nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til þess að búa til íslenskt orð yfir blús. Nefna má orð eins og mæðusöngvar og tregatónl- ist, svo eitthvað sé nefnt, en Halldór hristir hausinn yfir því öllu saman. Geturverið full afgleði „Það skilja alhr þær tilfinningar sém verið er að túlka. Þetta er heldur ekki bara sorgleg og mæðuleg tónlist heldur getur líka verið full af gleöi. Blús er bara blús og við eigum bara að nota það orð rétt eins og jass. Það eru mánaðamót hjá þér og út- borgunardagur. Þú reynir að borga gluggapóstinn en átt ekki fyrir öllum reikningunum. Þú slumpar ein- hverju inn á allt og ferð niður í bæ. Þú ert svangur og þig langar í pulsu en átt ekki fyrir henni og það er rign- ing. Hvaða tilfmningu færðu þá. Blús,“ segir Halldór og hylur sig reykjarmekki áður en hann sýpur á kaffibollanum. Sviðið er kaffihúsið Prikið í Banka- stræti, klukkan er langt gengin tvö og blúsarinn nývaknaður, enn á Chicago tíma, borðar sína ristuðu brauðsneið með osti með morgun- kaffmu milU setninga. Það er rigning í Reykjavík. Halldór og félagar hafa spilað mun oftar síðasta ár en áður og lætur nærri að þeir komi fram í hverri viku. Er hægt að lifa af því að spila blús í Reykjavík? „Það lætur mjög nærri,“ segir Hall- dór og glottir. „Að minnsta kosti geri ég ekkert annað en flestir hinna vinna eitthvað með. Okkur fannst þegar við fórum af stað með þessa hljómsveit að þessi tónUst ætti meiri hljómgrunn en við héldum. Þannig var uppselt á fyrstu tónleika okkcir á einum klukkutíma. Síðan hafa margir fleiri fylgt í kjölfarið en okkur fannst ástæða til þess að dreifa neysl- unni á lengri tíma og spUum því oft- ar. Áheyrendum hefur frekar fjölgað en fækkað en þeir dreifast á fleiri skipti. Nú getur þú farið og hlustað á blús einhvers staðar í hverri viku en áður var þetta viðburður. “ Yfir næsta kafíiboUa heldur Halldór langa tölu um nauðsyn þess að gera Halldór og Fenderinn á sviði i Chicago. kröfur til gæða. Menn skyldu ávaUt vera með góð tæki og vanda sig við spUamennskuna þótt blúsinn sé í eðU sínu frjálslegt form. Með áherslu á gæði „Áhorfendur eiga kröfu á að heyra góða tónlist og það kostar æfingar. Það hafa rúmlega 40 íslenskir tónlist- armenn einhvern tíma komið fram með Vinum Dóra en það þýðir ekki það að við hleypum hverjum sem er upp á svið þótt það sé vissulega stundum gert. En í flestum tilfellum hefur viðkomandi gestur komið á æfrngu og menn hafa farið yfir það sem á að gera í stórum dráttum." Þessi heimsókn Dóra og vina hans til Chicago hefur komið þeim í sam- band við blúsara á erlendri grund og búast má við að diskurinn Blue Ice veki athygli því nöfn Chicago Beau og Jimmy Dawkins eru vel þekkt. Þýðir þetta ef til vUl að íslend- ingar sjái á bak Vinum Dóra til spila- mennsku úti um allan heim? Frægðin freistar ekki „Nei, alveg örugglega ekki,“ segir Dóri. „Þótt það geti þýtt einhverjar ferðir til þess að Spila á einstökum hátíðum þá verðum við áfram hér heima." í undirbúningi er plata frá Vinum Dóra þar sem eingöngu verður frumsaminn íslenskur blús. Flestir láta sér nægja að fást við eldri lög og gæða þau sínum persónulega stíl. Hvernig gengur að semja íslenskan blús? „Rolling Stones byrjaði sem blús- hljómsveit," segir Dóri og glottir. „Þeir léku aldrei blúsa eftir sig sjálfa því þeir sögðu að það væri svo erfitt að semja blúslög. Það er vissulega erfitt en þetta er í eðli sínu einfalt form, rétt eins og íslenska ferskeytl- an er einföld. En okkur sækist það sæmilega." Áferð í Bluesmobile Viðtalinu lýkur með ævintýralegri ökuferð með Halldóri um Þingholtin og miðbæinn á „The Bluesmobile," bláryðguðum japönskum bíl sem muna má fífil sinn fegri. Nokkuð háir ferð okkar að ekkert loft er í öðru afturdekkinu en snögg viðkoma á bensínstöð bjargar því. HaUdór glottir meðan blaöamaöur rifjar upp bænir sínar en að lokum komumst við á leiðarenda. Ferðalag HaUdórs og vina hans eftir erlendum frægðar- brautum syngjandi og spUandi blús er hins vegar rétt að hefjast. -Pá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.