Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1991.
FYLLINGAREFNI
Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæöu verði.
Gott efni, lítil rýmun, frostþoliö og þjappast
vel.
Ennfremur höfum viö fyririiggjandi
sand og möl af ýmsum grófleika.
Sævarhöföa 13 - sími 681833
Byggðastofnun
Atvinnuráðgjafi
Starf atvinnuráðgjafa á Vestfjörðum er laust til umsókn-
ar. Starfið felst m.a. í vinnu við ýmis verkefni tengd at-
vinnuþróun og rekstrarráðgjöf. Aðsetur atvinnuráðgjaf-
ans er á skrifstofu Byggðastofnunar á ísafirði.
Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun á tækni-
og/eða viðskiptasviði. Umsóknarfrestur er til 9. ágúst
1 991 en umsækjendur þurfa helst að geta hafið störf í
septembermánuði.
Allar nánari upplýsingar veita:
Guðmundur Hermannsson atvinnuráðgjafi, Byggða-
stofnun, isafirði, sími 94-4633.
Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður Þróunarsviðs,
Byggðastofnun, Reykjavík, simi 91 -605400.
Umsóknir skal senda:
Byggðastofnun
Þróunarsvið
Pósthólf 5410, 125 Reykjavík
Logmanns- & fasteignastofa
REYKJA VÍKUR
Skipholti 50C, sími 678844
Fasteign
Einbvli raðhús
i-
Vesturfold Ca 180 fm einbýli á
einni hœð. Fullbúið að utan, fokhelt að
innan. Góð eign á góðum stað. Sendum
teikningar um land allt.
Grafarvogur Neðri hæð i tvíbýlis-
húsi, ca 140 fm, ásamt bílsk. Afh. full-
búið að utan,- fokhelt að innan.
Hentugt fyrir hestamenn í ná-
grenni Reykjavíkur Ca 200 fm
mjög sérstakt einb. ásamt ca 150 m úti-
húsi. Ca einn hektari lands. Stórkost-
legt úrsýni. Hentar vel l'yrir hestamenn.
í nágrenni Reykjavíkur er
laust mjög gott fullbúið raðhús með sér-
íbúð í kjallara. Arinn, parket, garðhús,
gróinn garður. Mjög góð lán áhvílandi.
Mosfellsbær Einbýli, ca 180 fm á
einni hæð. Afh. tilbúið undirtréverk og
fullbúið að utan. Frábær staðsetning.
Laugarás
Stórglæsil. cu 290 Im parhús með
innb. bílskúr. Húsið er allt hið
vundaðasta: sérsmíðuðar inrir., 4
svefnherb., biómaskáli, arinn í
stofu. Ákv. sala. Ath., cignaskipti
konia til greina.
25 herb.
Hlíðar
Ca 130 fm sérhæð í þríbýli. 3
svefnherbergi, 2 earaliggjandi
stofur. lbúðin er laus fljótlega.
SuÖurgata
Hafnarfirði, 4 herb. 4- bflskúr.
íbúðin er ötórglæsileg f 4-býli.
Aíhent fullbúið að utan, er til*
búið undir tréverk aö innan.
Ath.: til afhendingar strax.
er okkar fag
Lokað um helgar í sumar
Jöklasel ca 95 ím stórgóð 3ja herb.
íbúð, þvottahús inn af eldhúsi, suðvest-
ursvalir. Hagstæð áhv. lán.
Vesturbær Mjög góð ca 70 fm íbúð,
öll endumýjuð, parket, aukaherb. í
kjallara. Laus fljótlega. Verð 5,9.
Rauðarárstígur Stórglæsileg 2ja
herb. ca 65 fm íbúð, bílskýli, suðursval-
ir. Laus fljótlega.
Krummahólar Góð 3 herb. íbúð
m/góðu útsýni, bílskýli. Stutt í skóla
og alla þjónustu. Laus mjög fljótlega.
Alftamýri Stórgóð 2 herb. íbúð á
2. hæð. fbúðin er öll endumýjuð. Frábær
staður. Mjög góð lán.
Austurströnd - vesturbær
Mjög góð ca 85 fm íbúð ásamt bíl-
geymslu. Veðd. 2,3.
Ljósheimar Ágæt 3 herb. 80 fm
íbúð á efstu hæð með frábæru útsýni.
25 fm svalir. Eignaskipti möguleg á
stærri eign. Laus fljótlega.
Engihjalli 80 fm stórglæsileg 3 herb.
íbúð. Öll endumýjuð.
Kópavogur Ca 90 fm góð íbúð í
sambýlishúsi. Parket. Verð 6,9.
Miðbær Mjög góð 70 fm íbúð á
1. h. Allt nýtt, parket, sérbílastæði.
Háaleiti Ca 110 fm endaíbúð í blokk.
Gott útsýni. Suðursvalir.
Vestast í vesturbæ Stórgóð
110 fm íbúð á 2 hæðum. Gott út-
sýni, hílskýii. Eignaskipti koma til
greina.
Breiðholt Ca 95 fm stórgóð íbúð, 3
svefnh. Góðar suðursv. Parket á gólfum.
Langamýri, Gb. Ca 117 fm íbúð á
jarðhæð. Áhvílandi ca 4,5 Vd. Ákveðin
sala.
Miðbær Glæsileg ca 110 fm 5
herb. íbúð. Allt nýtt Parket á gólf-
um, tvennar svalir, frábært útsýni.
Klassaeign. Nýtt á sölu.
Grænatún, Kópav., 3-4 herb. ris-
íbúð í tvíbýli. Smekkleg eign. Verð 5,6.
A n nað
15 hesta stórgott hús í
Álfholt Veðdeild 4,9, ca 120 fm íbúð
á fyrstu hæð. Afhent tilbúið undir tré-
verk. Sameign fullfrágengin.
Piparsveinaíbúð Miðbær Glæsi
leg 50 fm íbúð í steinhúsi. Allt nýtt, laust
fljótlega. Góð kjör. Nýtt á sölu.
Gamli bærinn Hafnarfirði, 50 fm
jarðhæð, frábær kjör. Verð 3,5.
Bugðulækur Snotur 55 fm íbúð í
kjallara. Rólegt hverfi, stutt í skóla.
Áhvílandi 1,5. Ág. útb.
Hesthús
Víðidal.
Söluturn - myndbanda-
leiga Mjög góð myndbandaleiga, vel
staðsett í bænum.
Matvöruverslun - Kópa-
VOgÍ Góð rótgróin verslun. Verð
samkomuiag. Nýtt á söiu.
Sumarbústaðarland í Vatnaskógi (Eyr-
arskógi).
Sjávarlóðir undir einbýli í nágr. Reykja-
víkur. Ýmsar eignir í Hveragerði.
Vantar fyrirtæki og eignir á söluskrá.
Ólafur örn, Páll Þórðars., Friðgerður Friðriksd. og Sigurberg Guðjónss. hdl.
Matgæðingnr vikurinar
Saltfiskur
með þistlum
„Þessi uppskrift hefur reynst mér
vel og sjálfsagt að deila því með
öðrum,“ sagði Gunnar Helgi Krist-
insson, lektor í stjórnmálafræði við
Háskóla íslands, í samtali við DV.
Gunnar tók karlmannlega viö
áskorun norðan frá Akureryi um
að vera matgæðingur vikunnar.
„Ég lærði fyrst og fremst að búa
til mat af matreiðslubókum," sagöi
Gunnar aðspurður um skólagöngu
sína í matargerðarlist. „Ég býst við
að orsökin hafl verið sú aö ég var
mikill gikkur og fannst matur oft
vondur. Það lá því beinast við að
reyna að gera betur sjálfur."
Gunnar, sem segist stundum
grípa í matseld á hverjum degi,
býður lesendum upp á girnilega
saltfiskuppskrift með framandi
sósu.
„Persónulega finnst mér ind-
verskur matur einna áhugaverð-
astur og finnst mjög gaman að
spreyta mig á uppskriftum ættuð-
um þaðan. Margt af þessum mat
er milt og gott því það er útbreidd-
ur misskilningur að allur ind-
verskur matur sé logandi af
kryddi.“
Gunnar Helgi Kristinsson matgæðingur.
DV-mynd Hanna
Saltfiskur fyrir tyo
Saltílskflak, útvatnað og roðflett
skorið langsum í strimla, piprað
og steikt við vægan hita í jarð-
hentuolíu þar til fiskurinn er gull-
inn og stökkur (ca tvær mínútur).
Stór kartafla, skorin í teninga (1
cm á kant), þeir soðnir stutta stund
og svo steiktir í olíu við vægan hita
þar til þeir eru vel stökkir.
Lítið þistilhjarta (artiskokkur),
ytri lauf fjarlægð og önnur snyrt
efst, skorið langsum í íjórðunga og
rauðleitu hárin fjarlægð. Soðiö í
vatni með sítrónusafa í 15 mínútur.
Sósa: hrærið saman í könnu 2
msk. tómatpúré, 100 ml af vatni,
tveimur pressuðum hvítlauksrifj-
um, 100 ml rjóma, 1 tsk. Garam
Masala, 'A söxuðum grænum chili
pipar, 2 tsk. sítrónusafa og 1-2 msk.
ferskri steinselju eða kóríander.
50 grömm smjör.
Steikið fyrst saltfiskinn og kart-
öflurnar og sjóðiö þistilhjörtun.
Bræöið smjörið á stórri pönnu og
hrærið sósunni út í. Þegar hún
hefur blandast eru saltfiskurinn,
kartöílumar og þistilhjörtun sett
út í og hitað örstutta stund.
Með þessu er ágætt að bera fram
gott brauð, ferskt salat og e.t.v.
„pikkles," af einhverju tagi eða
sítrónubáta.
Gunnar skorar á Guðmund
Andra Thorsson rithöfund aö vera
næsti matgæðingur vikunnar.
Gunnar segir Guömund vera nokk-
uð slyngan með sleifma.
-Pá
Hinhlidin
Reyni að safna peningum
- segir Gunnlaugur Helgason útvarps- og lottókarl
Gunnlaugur Helgason hefur
starfað sem útvarpsmaður í nokk-
ur ár, fyrst á rás tvö en síðan
Stjörnunni og loks FM. Hann flutti
til Bandaríkjanna um síðustu ára-
mót þar sem eiginkonan hóf nám.
Gunnlaugur ætlar sjálfur að hefja
nám í haust í leiklist í Los Angeles.
Hann er hér heima um þessar
mundir og hefur tekið upp fyrri
störf jafnt sem útvarpsmaður og
starfsmaður Lottósins á laugar-
dagskvöldum. Þaö er Gunnlaugur
Helgason sem sýnir hina hliðina
að þessu sinni.
Fullt nafn: Gunnlaugur Helgason.
Fæðingardagur og ár: 26. ágúst
1963.
Maki: íris Erlingsdóttir.
Börn: Helgi Steinar sem er nýorð-
inn tveggja ára.
Bifreið: Mazda 626 árg 1982 hér
heima en Chevrolet árg 1986 í
Bandaríkjunum.
Starf: Útvarps- og lottókarl.
Laun: Já, já. Þau mættu vera hærri.
Áhugamál: Fjölskyldan, starfið og
að fara á völlinn svona stöku sinn-
um.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Ég hef fengið þijár
en dró ekki sjálfur í það skiptið.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Slappa af við sundlaugina í
San Diego og grilla úti með góðum
vinum.
Hvað fmnst þér leiðinlegast að
gera? Að eiga eftir að vaska upp
en svo er það allt í lagi þegar ég
Gunnlaugur Helgason.
er byrjaður.
Uppáhaldsmatur: Þaö eru margir
réttir í uppáhaldi. Ætli jólamatur-
inn rjúpan sé ekki best.
Uppáhaldsdrykkur: Léttmjólk og
undanrenna og viskí í sóda með
miklum ís.
Hvaða íþróttamaður fmnst þér
standa fremstur í dag? Rúnar Krist-
insson í KR.
Uppáhaldstímarit: Ég les þau tíma-
rit sem ég kemst í. Ætli ég hafi
ekki mestar taugar til Gestgjafans.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan eiginkonuna?
Grace Kelly.
Ertu hlynntur eða andvígur rikis-
stjórninni? Þokkalega hlynntur
eins og er.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? James Stewart og Kevin
Costner.
Uppáhaldsleikari: James Stewart.
Uppáhaldsleikkona: Julia Roberts
er ágæt en Grace Kelly var frábær.
Uppáhaldssöngvari: Björgvin Hall-
dórsson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Jón
Baldvin Hannibalsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Bart Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Náttúru-
lífsmyndir.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Einhvers
staðar verða vondir að vera.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? FM 95,7 er langbest þessa
stundina.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Jón Axel
Ólafsson.
Hvort horfirþú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Eg horfi meira á ríkis-
sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Bjarni
Vestmann.
Uppáhaldsskemmtistaður: Amma
Lú.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Víking-
ur og Fram.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Já, að útskrifast úr
skólanum, sem ég er að fara í, fyrir
þrítugt.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Reyna að vinna mér inn eins
mikið af peningum og ég mögulega
get. -ELA