Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 6. •'JUI.Í 1991. 5áf Fréttir Það eru engir græningjar sem mynda landsliðið í hestaíþróttum. DV-mynd EJ Enginn nýliði í lands- liðinu í hestaíþróttum Það eru engir græningjar sem mynda íslenska landsliðið í hesta- íþróttum því allir hafa knaparnir sjö, sem voru valdir á úrtöku í Stekkjahrauni í Hafnarfirði, keppt áður á Evrópumóti. Sveitin er tahn vera mjög sterk að þessu sinni. Allir vita að hverju þeir ganga og hestarnir hafa aúir sannað getu sína. Farið var eftir sérstökum lykli sem var saminn í vetur. Fyrstur inn var Sigurbjörn Bárðarson með fjórgangshestinn Kraka. Sigur- björn hefur keppt á mörgum Evr- ópumótum og meðal annars unnið töltkeppnina á Brjáni árið 1987 í Austurrílú. Næstur tryggði sér sæti Tómás Ragnarsson með fimmgangshest- inn Snúð. Tómas keppti á Evrópu- mótinu í Þýskalandi árið 1983 og varð Evrópumeistari í fimmgangs- greinunum samanlagt, yngstur til að ná þeim árangri til þessa. Þriðji í sveitina var Hinrik Braga- son með fjórgangshestinn Pjakk. Hinrik er ungur en hefur verið að sanna sig og keppir á sigurvegaran- um í B-flokki og tölti á Jjórðungs- mótinu á Hellu. „Flakkarinn" úti eða inni á víxl Fjórði í sveitina var Einar Ö. Magnússon með fjórgangshestinn Atgeir. Einar átti einnig möguleika á að fara með fimmgangshestinn Funa frá Skála sem er stóðhestur. Vegna ýmissa reikningskúnsta og mikillar baráttu í úrtökunni var Einar ýmist inni eða úti með At- geir og Funa og var honum líkt við alþingismann sem gjarnan er kall- aður „flakkari“ við alþingiskosn- ingar. Fimmti í sveitina er Jón P. Ólafs- son með fimmgangarann Byr. Jón keppti á Evrópumótinu í Dan- mörku árið 1989 og sigraði þar í gæðingaskeiði. Sjötti knapinn er Gunnar Arnar- son sem keppir á skeiðfáknum Kol- baki. Gunnar keppti á Evrópumót- inu í Þýskalandi árið 1983. Kolbak- ur hefur sótt sig í 250 metra skeið- inu. Hann skeiðaði á langbesta tím- anum í úrtökunni, 21,8 sekúndum, sem er geysilega góður tími. Sjöunda hestinn völdu liðsstjóri keppnissveitarinnar, Sigurður Sæ- mundsson, og formaður HÍS, Pétur J. Hákonarson. Þeir völdu Ragnar Hinriksson með fimmgangshestinn Gamm. Ragnar hefur gert góða hluti á Evrópumótum en aldrei eins og í Hollandi áriö 1979 er hann varð Evrópumeistari á stóðhestin- um Fróða frá Ásgeirsbrekku. Það eykur á afrekið að hestar íslensku keppnissveitarinnar veiktust og Fróði var lánshestur. Þess verður einnig að geta að Ragnar Hinriks- son er móðurbróðir Hinriks Braga- sonar. -EJ Starfsmenn Landgræðslunnar fyrir framan áburðarvélina Pál Sveinsson. Áburði dreift á hún- vetnsku heiðarnar Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki: Starfsmenn Landgræðslunnar og áburðarvélin Páll Sveinsson hafa að undanfömu dreift áburði á Auðkúlu- og Eyvindarstaðaheiði. Dreift er á þau svæði sem grædd hafa verið upp á heiðunum og að auld sáð í 500 hekt- ara til viöbótar á Auðkúluheiði. Uppgræðsla heiðarlandanna er eingöngu kostuð af Landsvirkjun vegna samninga um virkjun Blöndu. Þetta er ellefta sumarið sem upp- græðslan á sér stað. Á Auðkúluheiði hafa verið græddir 1232 hektarar og 417 á Eyvindarstaðaheiði. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri segir að tæknilega hafi uppgræðslan tekist mjög vel en það sé með heiðarnar eins og túnin að þau þurfi sín efni og næringu ef uppskera á að nást á hveiju ári. Samningar bænda við Landsvirkj- un vegna Blönduvirkjunar gera ráð fyrir árlegri áburðardreifingu á heið- arnar í framtíðinni. Þetta atriði hefur verið gagnrýnt og bent á að vegna samdráttar í sauðfjárrækt væri nær að verja íjármununum á annan hátt. Kostnaöur vegna áburðardreifmgar í ár nemur 40 milljónum. Sveinn seg- ir að frá landgræðslulegu sjónarmiöi sé þetta ekki spuming; það eigi að bæta fyrir það gróna land sem við virkjun fari undir vatn. Akureyri: Metið slegið Brynjar M. Valdimare., DV-ókuleiknÍ ’91: Guðmundur B. Guðmundsson bætti met nafna síns frá Húsavík 1 ökuleikni um 5 refsistig með þvi að hafa samtals 90 refsistig í braut og 5 fyrir spurningar eða samtals 95 refsistig. Finnur Víkingsson var einnig með 5 refsistig fyrir spum- ingar en lakari tíma í brautinni og samtals 110 refsistig. Þórir Jón Guðlaugsson var með 120 refsistig og er jafnframt sá fyrsti í sumar sem er með ahar spurningar réttar. Yngri riðil sigraðí Ari Gunnar Ósk- arsson með 138 refsistig, Eiríkur Kjartansson fékk 187 refsistig og Friðfinnur Freyr Guðmundsson 190. Þóra Víkingsdóttir var örugg- ur sigurvegari i kvennariðlí með 119 refsistigum, Steinunn Ragnars- dóttir fékk 181 refsistig og Halldóra Lístiet Friðriksdóttir 197. í hjólreiðakeppni var keppt í ein- um riöh og besta árangur ltafði Helgi Heiðar Jóhannesson, 49 refsi- stig, Jóhann Kristinsson var með 77 refsistig og Páll Brynjar Pálsson 80. Gefandi verðlauna var Trygging hf. á Akureyri. hjóireiðakeppninni skiptir öllu máii að athyglin og einbeitingin séu í fulikomnu lagi. Raufarhöfn: Tvísýnt og spennandi BrynjarM. Valdimarsson, DV-ökuleikni ’91: Hjólreiðakeppni í eldri flokki var mjög spennandi en Skapti Hannes- son og Davíð A. Jones urðu jafnir í efsta sæti með 55 sekúndur í braut- inni og enga villu. í aukakeppni hafði Davíð betur og hreppti fyrsta sætið en þriðji varð síðan Björn Hansmar. Sigurvegari í yngri riðli var Berglind M. Tómasdóttir með 82 refsistig, Björn Ragnarsson fékk 95 refsistig og Hulda Ásmundsdóttir 104. Kristján Önundarson, á Toyota Hi-Lux double cab., varð lúutskarp- astur í karlariðU ökuleikni með 133 refsistig, Sigurður H. Ólafsson varð annar með 176 refsistig og Óskar Óskarsson þriðji með 179. Kvenna-' riðil sigraði Helga Þórdís Guðmunds- dóttir með 152 refsistig og í byijend- ariðli fékk Páll Ingi Jónsson 241 refsi- stig. Gefandi verðlauna í ökuleikni var Landsbankinn á Raufarhöfn en Fálk- inn í Reykjavík gaf verðlaun í hjól- reiðakeppni. Húsavlk: Mjög góður árangur BrynjarM Valdimarssan, DV-ökuleikni ’91: Árangur keppenda í ökuleikni á Húsavík var mjög góður og í fyrsta skipti í sumar tókst þátttakanda að fara brautina villulaust. Guðmundur Salomonsson ók brautina viUulaust og sigraði með 100 refsistig og Guð- laugur Ámason gerði slíkt hið sama en fékk 139 refsistig og lenti í þriðja sæti. Jónas Kristjánsson lilaut annað sætið með 137 refsistig. í kvennariöh var Freyja Ingólfsdóttir með 195 refsistig og í yngri riðil fékk Sigtrygg- ur Brynjarsson 144 refsistig og Þórný Birgisdóttir 237. Bömin fjölmenntu tú keppni- á reiðhjólum. Eldri riðú vann Friðrik Þór Brynjarsson nokkuð örugglega með 53 refsistig, Krisfján Þór Magn- ússon fékk 62 og Egúl P. Egilsson 76. Gunnar Jónsson vann öruggan sigur í yngri riðU, fór brautina á 37 sekúnd- um og fékk tvær vúlur eða samtals 57 refsistig. Kristbjöm Þór Jónsson Árangur nokkurra keppenda í ökuleikninni var framúrskarandi. var með 72 refsistig og Aron Víg- Gefandi verðlauna í ökuleikni var lundsson 73. Búaleiga Húsavíkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.