Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1991.
Supermodelkeppnin eftir rúma viku:
Á ekki von á að
Birna Bragadóttir er nú stödd i Los Angeles þar sem
hún tekur þátt í keppninni Supermodel of the World
þann 11. júlí.
Anneliese Seubert frá Ástralíu, sigurvegari
Supermodel of the World í fyrra.
komast í úrslit
- segir Bima Bragadóttir sem nú er í Los Angeles
Birna Bragadóttir, sigurvegari í
Fordkeppninni hér á landi, hélt til
Los Angeles sl. þriðjudag á vit
nýrra ævintýra. Birna sagði í sam-
tali við DV að hún væri lítið spennt
og gerði sér engar vonir um að
komast í úrslit. Keppnin fer fram
að kvöldi 11. júlí. Áður en að henni
kemur þurfa stúlkurnar að sitja
fyrir í myndatökum auk þess sem
þær fára í skoðanaferðir um borg-
ina. Meðal þess sem þær skoöa er
Universal kvikmyndaverið.
Stúlkurnar, sem eru tuttugu og
níu, búa á hóteli því sem frægt varð
úr kvikmyndinni Pretty Woman og
ætti því ekki að væsa um þær.
Keppnin Supermodel of the
World, sem Birna tekur nú þátt í
fyrir hönd íslands, var fyrst haldin
í september árið 1980 í Monte Carlo.
Þær stúlkur sem sigrað hafa í
keppninni hafa allar orðiö frægar
fyrirsætur og birst á forsíðum
helstu tískublaða um heim allan.
Það er ekki lítið sem er í verðlaun
því sú stúlka sem ber sigur úr být-
um fær 250.000 dala (15.750.000 kr.
ísl.) samning við Ford Models í New
Yórk. Auk þess fær hún margar
gjafir, þar á meðal demantshring
frá Cartier.
Leitað er að keppendum um allan
heim. Keppnin er kostuð og haldin
í hverju landi fyrir sig af helstu
tískublöðum heims svo sem Elle í
Frakklandi, Ítaiíu, Spáni og Svíþjóð
og Petru í Þýskalandi. í Bandaríkj-
unum eru það stórfyrirtæki á borð
við Bloomingdales, The Daily News
og The Houston Post sem taka þátt
í leitinni af súpermódelinu. Leitað
er að stúlkum á aldrinum frá 14-
24ra ára og er sama hvort þær hafa
reynslu í fyrirsætustörfum að baki
eða ekki. _
Margar af þekktustu fyrirsætum
heims eru fyrrum vinningshafar í
Supermodel of the World keppn-
inni svo sem hin danska Renee
Simonsen, norska Anette Stai,
Carrie Miller og Celia Forner svo
einhverjar séu nefndar.
Keppnin vekur ætíð mikla at-
hygli en henni er sjónvarpað um
Bandaríkin og til Frakklands beint.
Sigurvegarar hafa komið fram í
sjónvarpsþáttum CBS og ABC sjón-
varpsstöðvunum daginn eftir
keppni. Auk þess er venjulega getið
um keppnina í vikublöðunum Time
og Newsweek.
Sex stúlkur komast í úrslit
keppninnar og eru þær allar örugg-
ar sem fyrirsætur hjá Ford Models
skrifstofunni. Ford Models rekur
skrifstofur í New York, Tokyo, Par-
ís og víðar. Þá má geta þess að
margar þekktar leikkonur byijuðu
feril sinn hjá Ford Models eins og
Candice Bergen, Ali MacGraw,
Jane Fonda, Brooke Shields og
Shari Belafonte. Þá hafa margar
fyrirsætur Ford Models vakið á sér
athygli vegna frægra eiginmanna
en meðal þeirra er Jerry Hall,
Cheryl Tiegs og Christie Brinkley.
-ELA
Ford Models sér um stúlkurnar i Los Angeles, þar á meðal förðun og hárgreiðslu. Einnig fá þær fatnað,
stutta kjóla, fyrir sjónvarpsútsendinguna. Þátttakendur þurfa ekki að koma fram I sundbolum.
FERÐAÞJÓNUSTU-
AÐILAR
Til sölu nýtt „Smáhús’’.
Hentar fyrir veiðistaði og
sem gistihús.
Húsið er um 18 fermetrar,
einangrað sem heilsárshús,
er með svefnaðstöðu fyrir 4
í kojum og 2 á svefnlofti.
I húsinu er eldhúskrókur,
klósett og handlaug.
Húsinu fylgja forsteyptar
undirstöður.
Verð með vsk. 1.400.000,-
Upplýsingar á skrifstofu-
tíma i sima 93-41330.
BÚÐAVERK HF.
Búðardal
TIL SÖLU
Chevy Blazer, árgerð '88, 4x4, 6 cyl., 4,3 lítra,
ekinn 48 þús. mílur, svartur með hvítum röndum og
álfelgum. Mjög fallegur bíll.
Upplýsingar í símum 657667 og 651288.
Ferðafólk
- með Eyjaferðum -
og Hótel Stykkishólmi
Hörpushelfiskur veiddur og snæddur
í réttu umhxerfi.
Komið og sannfærist!
Frábærir gistimöguleikar, svo sem á HÓTEL STYKKIS-
HÓLMI, þar sem skelfiskréttir eru einkenni staðarins,
eða á nýju glæsilegu 14 herbergja HÓTELIEYJAFERÐA
Láttu Hólminn heilla þig
Hótel Stykkishólmur, sími 93-81330
Eyjaferðir, sími 93-81450