Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1991.
Sviðsljós
Bandaríski leikarinn Michael
Landon lést á mánudag eftir nok-
kurra mánaða baráttu viö krabba-
mein. Læknar höfðu tilkynnt leik-
aranum í maí að lífslíkur hans
væru engar - hann ætti aðeins
nokkrar vikur eftir. Michael Lan-
don hefur gengið á milli lækna frá
þvi upp komst í vetur að hann
væri með krabbamein í lifur og
brisi. Landon trúði á kraftaverk og
var bjartsýnn á að hann myndi ná
sér upp úr veikindunum en sá
draumur rættist ekki. Hann meira
að segja prófaði nýja meðferð en
ekkert gekk enda sögðu læknar að
of seint væri að bjarga honum.
Michael Landon var níu barna
faðir. Sex voru hans eigin og þrjú
ættleidd. Hann var þekktastur fyrir
að leika góða gæjann í sjónvarpinu
í yfir þrjátíu ár. Fyrst sem Jói litli
í Bonanza, síðar sem Ingalls í Hús-
inu á Sléttunni og loks sem engill-
inn Jonathan í þáttaröðinni Hig-
hway to Heaven sem sýndur var í
fyrra á Stöð 2.
Michael Landon var mjög barn-
góður og undir það síöasta vildi
hann ekki líta af börnum sínum.
Elsti sonur hans, Mark, er 42 ára
og aðeins tólf árum yngri en faðir-
inn. Mark er sonur fyrstu konu
Michaels Landon, Dodie Frazers,
en hún var nýlega búin aö missa
eiginmann sinn er þau kynntust.
Hún var þá 25 ára og Michael 18.
Mark sonur hennar var sex ára og
Michael ákvað að ættleiða hann.
Hjónabandið entist til ársins 1962.
En Dodie og Michael eignuðust
saman soninn Josh sem er 30 ára.
Michael giftist aftur Lynn Noe og
áttu þau fimm börn saman. Þau
Michael Landon ásamt þriðju eiginkonu sinni, Cindy, og tveimur yngstu
börnum meðan allt lék i lyndi.
Jói litli i Bonanza með föður sínum. Það eru Michael Landon og Lorne
Greene.
skildu eftir nitján ára hjónaband
og var skilnaðurinn þungt áfall fyr-
ir Landon sem sökkti sér á kaf í
vímuefnaneyslu á þeim tíma. Árið
1983 kvæntist Michael Landon tutt-
ugu árum yngri snyrtisérfræðingi,
Cindy Clerico. Þau áttu saman
Jennifer, sem er 7 ára, og Sean
Matthew, 4ra ára.
Michael Landon, sem hét réttu
nafni Eugene Orowitz, átti mjög
erfiða æsku. Faðir hans var gyð-
ingur og varð Landon oft fyrir
barðinu á skólafélögum vegna þess.
En Michael Landon á marga
aðdáendur. Það sannaðist á meöan
hann barðist við hinn illkynja sjúk-
dóm. Bréfum rigndi bókstaflega
inn um póstlúgu hans frá aðdáend-
um um allan heim. Þar að auki fékk
hann alls kyns ráðleggingar frá
fólki og sumar komu langt að. En
ekkert dugði. Leikarinn lifði á
grænmetisfæði síöustu vikurnar og
hafði lést mikið. Bandarísku blöðin
voru uppfull af frásögnum um líð-
an hans og viðtölum við ættingja
og vini. Eitt blaðið sagði hann eiga
eftir einn mánuð í apríl. Annað
sagði: Michael Landon: Þetta er
búið. Þannig gátu aðdáendur leik-
arans fylgst með í hverri viku
harmsögu hans sem barðist hetju-
lega fram til síðasta dags.
Michael Landon er látinn:
Lék ætíð góða
gæjann í sjónvarpinu
Leikkonan Lee Remick látin:
Kynþokkadís sem áhorfendur dáðu
Tveir ástsælir leikarar kvöddu
þennan heim í vikunni. Bæði létust
þau úr lifrarkrabbameini. Það eru
þau Lee Remick og Michael Landon
sem bæði hafa notið mikilla vin-
sælda, sérstaklega í sjónvarpi.
Þegar Lee Remick komst að því
aö hún væri meö krabbamein lærði
hún meira um lífið en nokkur önn-
ur lífsreynsla hafði kennt henni.
„Ég hef lært að meta ýmsa hluti á
annan hátt. Það er ömurlegt hversu
við látum oft smáatriði skipta okk-
ur miklu máli og gera okkur döp-
ur,“ var haft eftir leikkonunni í
mars árið 1990 en þá hafði hún
barist við krabbameinið í átta mán-
uði.
Lee Remick lést á þriðjudag að-
eins 55 ára gömul. Hún hafði leikið
í kvikmyndum allt frá árinu 1956
og var fyrir löngu orðin stjarna í
Hpllywood.
í fyrstu kvikmynd sinni „Face In
The Crowd“ lék hún kynþokkafulla
dís en Lee hafði ekki áhuga á að
festast í slíkum hlutverkum. Sagt
var um Lee að hún hefði alla burði
til að verða ein af þessum kyn-
þokkastjömum sem ekkert kynnu
að leika en svo varð ekki. Lee
Remick sýndi og sannaði snemma
að hún var góð leikkona og áhorf-
endur báru virðingu fyrir henni.
Hún var svar Bandaríkjanna við
Leikkonan Lee Remick I hlutverki sínu i kvikmyndinni Baby the Rain Must Fall sem gerð var árið 1965.
Mótleikarar voru Steve McQueen, sem lést fyrir nokkrum árum, einnig úr krabbameini, og Kimberly Block.
Brigitte Bardot Frakklands.
Lee Remick hefur leikið í íjölda
kvikmynda sem náð hafa vinsæld-
um. Hún hefur leikið á móti mörg-
um frægum leikkurum svo sem
Jack Lemmon í kvikmyndinni „Da-
ys of Wine and Roses" en fyrir þá
mynd var hún tilnefnd til óskars-
verðlauna árið 1963.
Lee Remick lék í yfir 30 sjón-
varpsmyndum þar á meðal þátta-
röö um Lady Randolph Churchill.
Leikkonan var fædd í Massachu-
setts 13. desember 1935. Hún var
dóttir sviðsleikkonu og auðkýflngs
sem rak verslunarkeðju. Foreldrar
hennar skildu þegar hún var barn
og hún flutti með móður sinni til
New York. Lee fór í skóla á Man-
hattan en þegar hún var sextán ára
bauðst henni lítið hlutverk á sviöi
í Broadway. Þar með var uppgang-
ur hennar hafinn innan leiklistar-
heimsins.
Lee giftist sjónvarpsþáttafram-
leiðandanum Bill Colleran árið
1958 og áttu þau tvö börn saman,
Kate og Matthew. Hjónabandið ent-
ist í ellefu ár. Ári síðar giftist Lee
aftur, þá breska kvikmyndafram-
leiöandum William Gowans. Þau
bjuggu á Englandi en áttu auk þess
heimili í Holly wood og í Massachu-
setts.