Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1991.
41
Iþróttir
• Hér sjást þeir kappar sem hlutu verðlaun DV og Samskipa fyrir góðan árangur í júnímánuði. Frá vinstri: Hilmar Sighvatsson, besti leikmaðurinn, Hörður Hilmarsson, besti þjálfarinn, Gylfi
Orrason, besti dómarinn, og lengst til hægri er Ragnar Pálsson, fulltrúi frá Samskipum.
DV-mynd Brynjar Gauti
DV og Samskip útnefna þá bestu í júnímániiði:
Hilmar, Hörður og Gylfi
verðlaunaðir fyrir júnímánuð
- Hilmar besti leikmaðurinn, Hörður besti þjálfarinn og Gylfi besti dómarinn
Hilmar Sighvatsson, miðjumaður úr Breiða-
bliki, var útnefndur besti leikmaður júnímán-
aöar í 1. deildinni í knattspyrnu. Hörður Hilm-
arsson, þjálfari Breiðabliks, var útnefndur
besti þjálfari mánaðarins og Gylfl Orrason úr
Fram besti dómari júnímánaðar.
DV stendur að þessu kjöri ásamt Samskipum
hf., styrktaraðila 1. deildarinnar, eða Sam-
skipadeildarinnar eins og hún heitir opinber-
lega. í fyrra stóð DV að sams konar útnefning-
um og þá í samvinnu við Hörpu hf. sem þá
styrkti deildina.
Hilmar drjúgur í
velgengni Breiðabliks
Hilmar Sighvatsson er í hópi reyndari knatt-
spymumanna í 1. deild. Hann er 32 ára að aldri
og hefur leikið nær samíleytt í 1. deild í tíu ár
en hann hóf ferilinn með Fylki í 2. deild. Hann
lék síðan með Val til ársins 1988, var síðan eitt
ár með Fylki í 1. deild og gekk í fyrra til liðs
við Breiðablik sem þá var í 2. deild.
Hilmar á nú að baki 155 leiki í 1. deild, þar
af 129 með Val, 18 með Fylki og 8 með Breiða-
bliki. Fyrir leikinn við Val í gærkvöldi hafði
hann skorað 28 mörk-í deildinni frá upphafi
en sitt fyrsta fyrir Breiðablik gerði hann á
glæsilegan hátt gegn KR á dögunum, tveimur
mínútum fyrir leikslok, og tryggði þá Kópa-
vogsliðinu jafntefli.
Hilmar hefur átt drjúgan þátt í velgengni
Breiðabliks í sumar, er í lykilhlutverki á miðj-
unni, og reynsla hans hefur verið nýhöunum
ómetanleg.
Hörður hefur náð
góðum árangri
Hörður Hilmarsson tók við liði Breiðabliks
fyrir síðasta keppnistímabil en þá var staðan
ekki góð hjá Kópavogsliðinu. Það hafði ekki
sýnt burði til að endurheimta 1. deildarsætið,
sem það missti 1986, og var um miðja 2. deild-
ina. En undir stjórn Harðar vann Breiðablik
sér sæti í 1. deild í fyrra og hefur í ár komið
liöa mest á óvart.
Breiðablik var ósigrað í fyrstu sex leikjunum
í deildinni og var að þeim loknum í öðru sæti,
með jafnmörg stig og KR en lakari markatölu.
Liðið hefur þótt leika skemmtilega knatt-
spyrnu og hún hefur til þessa verið árangurs-
rík.
Hörður lék um langt árabil með Val og ís-
lenska landsliðinu en einnig um hríð í Svíþjóö.
Hann hafði áður þjálfað lið Grindvíkinga og
Selfyssinga, auk þess að vera aðstoðarþjálfari
hjá Val og FH, áður en hann var ráðinn til
Breiðabliks fyrir tæpum tveimur árum.
Gylfi er kominn
í hóp þeirra bestu
Gylfi Orrason stóð sig mjög vel í báðum þeim
leikjum sem hann dæmdi í 1. deild í júnímán-
uði og sýndi og sannaði að hann er að komast
í röð bestu dómara landsins. Gylfi er 32 ára
og er að dæma sitt þriðja keppnistímabil í deild-
inni.
Gylfi hefur víða komið við í knattspyrnunni
á undanfórnum árum. Hann sat lengi í stjórn
knattspyrnudeildar Fram en þjálfar nú yngri
flokka hjá Stjörnunni annað árið í röð og býr
því yfir víðtækri reynslu sem vafalítið kemur
honum til góða í dómarastörfunum.
-GH/JKS/RR/VS
• Himar Sighvatsson úr Breiðabliki, besti leikmaður júnímánaðar að
mati DV og Samskipa.
Dy/Samskipaliö júnímánaðar
* Æ
• Stefán Arnars • Þormóður Egilsson • Heimir Hallgrímsson • Erlingur Kristjánsson • Pavol Kretovic
FH KR IBV KA Breiðabliki
l ^ R |Q S
• Rúnar Kristinsson • Hlynur Stefánsson • Pétur Ormslev • Steindór Elison • Guðm. Steinsson
KR ÍBV Fram Breiðabliki Vikingi