Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Qupperneq 10
ió
.ree; 'uút .9 íiuoaqíiaðuaj
LAUUAJIDAGUR 6. -1ÚLÍ 1991.
Myndbönd
Tvær nýjar myndir skjóta upp
kollinum í neðstu sætum listans en
flest efstu sætin eru óbreytt ef frá
eru taldar smávægilegar innbyrðis
breytingar. Önnur er Henry og
June. Þetta er að mörgu leyti falleg
mynd þó henni takist ekki allt sem
hún ætlar sér. í neðsta sætinu kúr-
ir svo meistaraverk Giuseppe
Tornatos um, Paradísarbíóið. Þeir
sem ekki hafa séð þessa dásamlegu
mynd fá hér tækifæri til þess að
grandskoða handbragð Tornatos
heima í stofu hjá sér.
1 (1) My Blue Heaven
2 (4) Ghost
3 (5) Presumed Innocent
4 (7) Quick Change
5 (2) Goodfellas
6 (3) Flatliners
7 (6) Nikita
8 (9) Men At Work
9 (-) Henry And June
10 (-) Cinema Paradiso
Ekki íyrir alla
THE COOK, THE THIEF, HIS WIFE & HER
LOVER
Útgefandi: Háskólabíó.
Leikstjóri: Peter Greenaway.
Aöalhlutverk: Michael Gambon, Helen
Mirren, Alan Howard og Richard Bo- .
hringer.
Frönsk/bresk, 1989 - sýningartimi 120
min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Peter Greenaway hefdur ávallt
verið umdeOdur leikstjóri enda
hefur hann alltaf farið eigin l^jðir
í kvikmyndasköpun, leiðir sem
umdeilanlegar . eru. Hvað sem
hverjum flnnst um hann þá eru
kvikmyndir hans ávallt athyglis-
verðar og er The Cook, The Thief,
His Wife and her Lover engin und-
antekning. Greenaway er ekki að
hika við að láta fólkið „skipta um
föt“ eftir því hvar það er statt, til
að mynda er Helen Mirren í rauð-
um kjól þegar hún er inni í rauðum
..hv'r> <■> s->>(0 Í:ö4>: pn
Riyndtno. PRÓ tr ét:k:«6t »4 M b«y»i<i ab bydnf
lakíar.i {><( !>*«.-» »• .áhdfáiVk ö»>»Kt" « >,•:> fta.viMo. Hw. 'H»
Ft».M BY Pl tOi GRlLNAWAY
KOKKURINN,
WÓFURINN,
KONANHANS,
0G;
ELSKHUGI |
HENNARi
veitingastaðnum en þegar hún fer
inn í hvítt baðherbergið er hún
komin í sams konar kjól og hún
var í nema hann er orðinn hvítur.
Annars gerist myndin nánast að
öllu leyti á nokkrum kvöldum inni
á skrautlegum veitingastað sem er
í eigu „þjófsins", og gestir fá svo
sannarlega að vita hver er eigand-
inn. Michael Gambon hefur með
þjófinum skapað einhvgr mest frá-
hrindandi persónu sem sést hefur
í kvikmynd lengi. „Eiginkonan“,
sem Helen Mirren leikur, þarf að
sitja undir málæði hans og má
varla segja orð. Hún tekur eftir
manni einum sem situr einn og
þegar þau hittast á klósettinu tak-
ast strax með þeim eldheitar ástir
og kvöld eftir kvöld elskast þau án
vitundar eiginmanns hennar inni á
veitingastaðnum og er trúnaðar-
vinur þeirra „kokkurinn".
En það kemur að því að hinn
grimmi eiginmaður fréttir af sam-
bandinu og hefnir hann sín
grimmilega á „elskhuganum“ en
eiginkonan notar heldur engin
vettlingatök þegar hún gerir upp
sakirnar við hann.
The Cook, The Thief, his Wife and
her Lover er ákaflega stíliseruð
kvikmynd og er gaman að fylgjast
með hvernig Greenaway nýtir sér
myndmiðilinn til fullustu og reynir
oft að blekkja áhorfendur meö
brellum en myndin er einnig frá-
hrindandi og stundum uppáþrengj-
andi í afstöðu sinni. Margir hafa
fyllst viðbjóði yfir sumum atriðum
og ekki að ástæðulausu en hér má
segja að ef öllum „viðbjóðnum"
væri sleppt væri tilganginum ekki
náð, að sjokkera áhorfendur um
leið og að minna þá á að lífið er langt
ífráaöveradansárósum. -HK
★★★
Æ Jl
Ábláþræði
NARROW MARGIN
Útgefandi: Bíóhöllin-myndbönd
Leikstjórn og höfundur handrits: Peter
Hyams
Aðalhlutverk: Gene Hackman, Anne
Archer, James B. Sikking, J.T. Walsh
og Memet Walsh
Sýningartimi - 95 mínútur
Bönnuó innan 12 ára
Hér er Gene Hackman í hlutverki
fulltrúa saksóknara sem tekst á
hendur það erfiða verkefni að
koma lykilvitni í morðmáli heilu á
húfi til mannabyggða ofan úr kana-
dísku fjöllunum. Ferðin til L.A.
tekur næstum tvo sólarhringa og
er ferðast með lest. Um borð í lest-
inni leynast útsendarar mafíunnar
sem vilja allt til vinna að konan
nái ekki að vitna gegn höfuðpaurn-
um. Caulfiled þarf á öllu sínu
hyggjuviti og kænsku að halda til
þess að sjá við skúrkunum.
Það er ekki margt frumlegt við
þessa mynd enda er hún endurgerð
eldri myndar (1952) um sama efni.
Það skiptir hins vegar ekki máli
því hér er á ferðinni afbragðs
skemmtan. Spennunni er haldið
uppi allan tímann og sagan kemur
stöðugt á óvart. Sumar senumar
eru, þrátt fyrir kunnugleg handtök,
æsispennandi og að hætti
klassískra mynda af þessu tagi er
okkar maður nokkrum sinnum við
dauðans dyr. Máttarstólpar mynd-
arinnar eru Gene Hackman og
Anne Archer. Hackman leikur
aldrei illa heldur misvel og hér er
hann í hlutverki sem hæfir honum
mjög vel. Archer leikur konuna
sem á að bera vitni og allur hasar-
inn snýst um. Hún er góð leikkona
sem veldur þessu hlutverki vel.
Traustir leikarar, spennandi saga
og góð framsetning. Ekki missa af
þessari.
-Pá
Vitni sem ekki lætur að stjóm
MY BLUE HEAVEN
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Herbert Ross.
Aðalhlutverk: Steve Martin og Rick
Moranis.
Bandarísk, 1990-sýningartími 92 mín.
Leyfð öllum aldurshópum.
Steve Martin er sjálfsagt einn
allra vinsælasti gamaleikarinn í
dag og hann á oftast þessar vin-
sældir skilið. Þegar honum tekst
vel upp er hann er ákaflega liflegur
gamanleikari sem getur slegið svo
um sig að allir aðrir verða að auka-
leikurum við hlið hans.
Oft hefur hann verið betri en í
My Blue Heaven og má þar nefna
Sögur úr stórborg sem nú er sýnd
í Stjörnubíói. Eftir að hafa séð hann
fara á kostum í þeirri mynd veldur
My Blue Heaven dálitlum von-
brigðum en þó eru vonbrigðm frek-
ar lítilfjörleg því margir góðir
brandarar líta dagsins ljós hjá
Martin þótt heildin hefði kannski
Ogþávar
eftir...
TEN LITTLE INDIANS
Útgefandi: Háskólabió.
Leikstjóri: Alan Birkinshaw.
Aðalhlutverk: Donald Pleasence,
Brenda Vaccaro, Frank Stallone og Her-
bert Lom.
Bresk, 1989 - sýningartími 96 mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Það eru orðin ein sextíu ár síðan
Agatha Christie samdi leikrit sitt
And Then There Was None... sem
notið hefur mikilla vinsælda síðan.
Ten Little Indians er gerð eftir
þessu leikriti og er þetta alls ekki
fyrsta kvikmyndaútgáfan eftir
þessu þekkta verki, heldur sú
fjórða og jafnframt sú sem minnst
er varið í.
í þetta skiptið er sagan látin ger-
ast í Afríku. Þangað hefur verið
safnað saman tíu einstaklingum
með vafasama fortíð að baki. Þau
eru öll komin til að hitta milljónera
nokkum sem boðið hefur þeim í
veiðiferð. Þegar þau hafa hlustað á
skilaboöin frá honum þar sem
hvert um sig er afhjúpað, fara þau
að týna lífinu hvert á fætur öðru
og ávallt er vitnað í vísurnar frægu
um tíu htla negrastráka sem marg-
ir kannast við.
Því miður er fátt sem gleður aug-
að þegar Ten Little Indianser skoð-
uð. Það er greinilegt að leikararnir
skila sínu hlutverkum með hang-
andi hendi og þegar allt virkar eins
og enginn hafi áhuga á neinu þá
er útkoman ekki góð. Meira aö
segja hinn ábúðarmikli leikari
Donald Pleasence er ósköp daufur
í einu stærsta hlutverkinu. Saga
þessi er barn síns tíma og þótt end-
irinn komi vissulega á óvart er
myndin langt í frá að vera nógu
spennandi til að halda athyghnni.
-HK
mátt vera betri.
Steve Martin, sem hefur látið lita
hár sitt svart, er hér í hlutverki
vitnis fyrir FBI sem nýtur verndar
lögreglunnar. Sá sem verndar
hann er leikinn af Rick Moranis
og á sá góði maður í byrjun í alls
konar persónulegum vandamálum
sem Martin er ekki alls kostar
ánægður með. Hann ákveður því
að hressa dálítið upp á tilveruna
hjá þessum ágæta lögreglumanni
og tekst með þeim ágætur vinskap-
ur. Martin notar einnig tímann til
aö þéna vel án þess að lögreglan
viti enda hefur honum verið sagt
að lofgorö lögreglunnar séu engu
haldbetri en loforð Mafíunnar.
My Blue Heaven er ærslafull
grínmynd eins og við er að búast
frá Steve Martin. Þó heldur hinn
gamalkunni leikstjóri Herbert Ross
frekar aftur af Martin sem eins og
áður sagöi hefur oft verið betri.
My Blue Heaven er aftur á móti í
heild ágæt afþreying sem ætti að
koma flestum í gott skap.
-HK
★★
Hver er sekur?
KILLING IN A SMALL TOWN
Útgefandi: Kvikmynd
Leikstjórn: Stephen Gyllenhal eftir
handriti Cynthiu Cidre
Aöalhlutverk: Barbara Hershey og
Brian Dennehy
Amerísk - 1990
Sýningartimi - 99 minútur
Bönnuð innan 16 ára
Sérkennilegt sambland af morð-
gátu, sálfræðitrylli og réttarsalsdr-
ama. Barbara Hershey leikur
stillta og prúða húsmóður í smábæ
sem er sökuð um að hafa myrt
kunningjakonu sína með öxi í 41
höggi. Brian Dennehy leikur lög-
fræðinginn sem tekur að sér að
verja hana fyrir rétti. Hann trúir
ekki í fyrstu að hún sé sek en fljót-
lega koma hlutir í ljós sem benda
til hins gagnstæða. Þar vegur
þyngst nokkurra ára gamalt ástar-
ævintýri sem eiginmaður hinnar
látnu og meintur morðingi áttu.
Satt að segja kom þessi mynd
nokkuð á óvart. Barbara Hershey
er mjög góð leikkona sem þarna
fær tækifæri til þess að sýna hvað
í henni býr í erfiðu hlutverki sem
hún skilar af stakri prýði og reynd-
ar á köflum frábærlega vel. Brian
Dennehy er reyndur og traustur
leikari þó hann hafi kannski aldrei
sýnst neina stjörnutakta. Hann
skilar sínu mjög vel og samleikur
þeirra tveggja gerir að verkum að
það sem talið var hálfgert rusl
reyndist vera afbragðs afþreying
sem er vel þess virði að eyða einni
kvöldstund í.
-Pá
Martröð á 13. hæð
NIGHTMARE ON THE 13TH FLOOR
Útgefandi: CIC myndbönd
Leikstjórn: Walter Grauman
Handrit: J.O. Feigelson og Dan DiStef-
ano
Aðalhlutverk: Michele Grenne, John
Karlen, Louise Fletcher og James Brol-
in
Amerisk - 1990
Sýningartimi - 90 mínútur
Bönnuö innan 16 ára
Ung blaðakona verður fyrir sér-
kennilegri reynslu á hóteli sem hún
gistir á þegar lyftan stöðvast á 13.
hæð og stúlkan verður vitni aö
morði. Þetta fær mjög á hana en
enginn trúir sögu hennar því engin
13. hæð er á hótelinu. Hún fer því
á stúfana og rannsakar málið.
Fljótlega kemst hún að því að á 13.
hæðinni, sem reyndar er til, urðu
hryllilegir atburðir fyrir nær 90
árum þegar óður axarmorðingi
gekk milli bols og höfuðs á 16
manns. Sitthvaö bendir til þess að
sagan sé að endurtaka sig.
Það er fátt sem gleður augað í
þessum metnaðarlausa samsetn-
ingi. Leikkonan, sem fer með aöal-
hlutverkið, lítur út eins og
barbídúkka með lystarstol og getur
ekki leikið. James Brolin er þokka-
legur leikari sem þama er borinn
ofurliði af slæmu handriti. Fyrir
þá sem unna kvikmyndasmámun-
um (movie trivia) má sjá Louise
Fletcher þarna í smáhlutverki.
Fletcher lék yfirhjúkkuna vondu í
Gaukshreiðrinu hér um árið og
hefur lítið breyst. Að öðru leyti er
myndin hrein tímasóun.
-Pá