Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Side 15
LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1991. 15 Hann heldur áfram að rigna í efnahagsmálunum. DV-mynd JAK Megum við biðja um eitt prósent? Þessi lota þjóðarsáttar fer senn að enda. Samningar verða lausir í september. Þessi svokallaða þjóð- arsátt hefur verið stöðugt í umræð- unni, síðan hún var gerð. Landsfeð- umir, bæði rauðir og bláir, nefna hana, ef mikið liggur við. Vinstri stjórnin eignaði sér hana, og nú- verandi ráðherrar vilja framlengja hana. Menri voru yflrleitt sammála um að þakka þjóðarsáttinni árang- urinn í efnahagsmálum í fyrra, þegar verðbólgan komst niður í rúm sjö prósent. Nú liggur mikið við, að efnahagurinn skekkist ekki frekar en orðið er með sundrungu þjóðarsáttar í haust. En launþegar borguðu brúsann. Þeir báru þungann af kjarasamn- ingunum. Kaupmáttur hrapaði og er ioks nú að lagast. Það var eink- um láglaunafólkið - að sjálfsögðu - sem þoldi illa við undir þjóðar- sátt. Lágu launin féllu í kaupmætti eins og önnur, og láglaunafólkið varð illa komið. Nú horfa menn til kauphækkana, þegar rætt er um, að þjóðarsátt verði framlengd eða ný þjóðarsátt samþykkt. Er efna- hagurinn ekki að rétta úr kútnum? Segja spár hagfræðinga ekki, að sú sé staðan? Allar spár hagfræðinga gefa til kynna, að framleiðslan í landinu muni næsta árið vaxa meira en hún hefur gert um ára- bil. Hvað halda menn um það og hvaða aukning kaupmáttar gæti orðið? Dekkri mynd Ef viö lítum á spárnar, verður að 'telja, að töluvert sé að marka spá Félags íslenzkra iðnrekenda. Sú spá er nýbirt en var í rauninni gerð í maí. Margt breytist á tveimur mánuðum í íslenzku efnahagslífi. Við skulum athuga, hvað hefur breytzt. Hagfræðingar iðnrekenda gerðu ráð fyrir, að framleiðslan í landinu myndi vaxa um 3,5 prósent á næsta ári, sem sé því ári, sem væntanleg þjóðarsátt mundi ná til. En horfumar hafa versnað, síðan þessi spá var gerð. Allir vita um stóm gjaldþrotin, sem daglega em rakin í fréttum hvert af öðru. Nið- urstaðan er, að almenna umræðan hefur snúizt okkur í óhag. Nú virð- ist hagfræðingum, sem DV ræddi Þeir sem með haustinu munu reyna að koma saman nýrri þjóðar- sátt, þjóðarsáttargengið, eru ekki allir jafnlíklegir til að semja á lægstu nótum. Ásmundur Stefáns- son kann að vera svo hollur þjóðar- sáttinni, að hann geri það, og lík- lega Ögmundur Jónasson einnig, þótt hann maldi í móinn. En há- skólamenn gætu farið í hart. Þeir munu líta svo á, að í næstu samn- ingum verði möguleiki á að hrista af sér afleiðingar bráðabirgðalag- anna í fyrra. Og hvað gerir Verka- mannasambandið? Guðmundur J. Guðmundsson hættir. Þar gæti orðið slagur um formennsku milli Karls Steinars Guönasonar, þing- manns krata, og Björns Grétars Sveinssonar, verkalýðsforingja á Höfn. Bjöm Grétar hefur verið rót- tækur og ólíklegt, að hann sætti sig við kjarasamninga á lægstu nótum. Hendur ríkisstjórnarinnar eru líklega bundnar. Stjórnin getur varla fariö að bjóða fram stóran pakka vegna stöðu ríkissjóðs. Þarna er að líkindum um að ræöa breytt hugarfar. Fyrrverandi ríkis- stjórn hikaði ekki við að gefa gjafir úr götugum ríkissjóði. Núverandi ríkisstjórn getur slíkt varla. Af því leiöir og af framansögðu, að ekki verður auövelt að koma saman framlengingu þjóðarsáttar í sept- ember. Menn hafa mikið talað um, að nú sé lag. Er efnahagurinn ekki að stórbatna? Það eru alltof stór orð. Efnahagurinn tekur lítiliega við sér. Og hvað um lagfæringu lægstu launa, sem var eitt helzta mál allra flokka fyrir kosningarnar? Ekki virðist líklegt, að mikið verði tii skiptanna. Líklega stefnir í, að samningamenn launþega fari af stað með kröfur um sérstakar launahækkanir handa hinum lægstlaunuðu en þær hækkun- arkröfur týnist fljótlega. Skynugur hagfræðingur sagði nú í vikunni, að ekki yrði unnt að veita hinum lægstlaunuðu teljandi kauphækk- un nú nema með því að beinlínis lækka laun þeirra sem meira hafa. Það er ekki meira en svo til skipta, og menn hafa aldrei dug til að hækka hjá hinum lægstlaunuðu. Haukur Helgason við, réttara að hugsa sér 2,5 prósent aukningu framleiðslunnar á næsta ári, prósentu minna en talið var í maí-spánni. Og af þess leiðir, að kalla má bjartsýni, þegar hagfræð- i.ngar tala um, að kaupmáttur launa gæti á þessum forsendum hækkað um eitt prósent á næsta ári, í næstu þjóðarsátt. Þetta er lítið. Enn eru menn að glíma við fallinn kaupmátt síðustu ára og telja sig þurfa meira. Hvað- an ætti að taka það? Á ríkisvaldið að koma til sögunnar og bjóða fram „pakka“ til handa launþegum, kannski þrjá milljarða? Svarið hlýtur að vera, að það væri slæm pólitík. Vissulega mætti með svona pakka „greiða fyrir kjarasamning- um“. En menn vita, að ríkissjóður er á hausnum og hefur verið i mörg ár. Ólafur Ragnar og félagar skildu eftir sig stöðu, sem stefndi í halla- rekstur ríkissjóðs upp á kannski tólf milljarða í ár - bara rekstrar- halla. Lítillega er búið að stoppa í þau göt, en þó stefnir líklega í átta til níu milljarða króna halla. Það stefnir í, að taka verður lán erlend- is til að mæta halla ríkissjóðs, þótt svarið hafi verið, að svo yrði ekki. Af þessu má sjá, að ríkisstjórnin gæti auðvitað slegið lán erlendis og boðið þjóðarsáttarmönnum „pakka“ nú í haust. En shk stjórn efnahagsmála landsins yrði eitt- hvað hið vitlausasta, sem hugsazt gæti. Kyrrstaóa í útflutningi Spámenn hafa verið að gefa því undir fótinn, að útflutningurinn, það sem kahast vöruútflutningur, gæti vaxið um 1,2 prósent á næsta ári. En er það svo? Afurðir ullar- vinnslu voru í fyrra fluttar út fyrir 796 mihjón krónur, sem eru rúmt prósent af vöruútflutningnum. Þetta er allt að hrynja. Fólk þekkir gjaldþrot Álafoss. Vissulega verður áfram einhver útflutningur uUar- vara, en þar má búast við miklum samdrætti. Og hvað um fiskeldið? Sama sagan. Eldisfiskur var í fyrra fluttur út fyrir 767 mUljónir króna, sem voru gróft tekið eitt prósent af vöruútflutningnum. Þetta verð- ar varla meira en orðið er. Mikill vafi er um loðnuveiði og stofninn lélegur. Margir spá í nýja álverið. Framkvæmdir vegna þess verða aldrei miklar á næsta ári, aðallega einhverjar orkuframkvæmdir, lóðaframkvæmdir og byijun á höfn. Hagfræðingar telja, að fram- kvæmdir við álverið kunni að auka framleiðsluna á næsta ári um ein lítil 0,7 prósent. í spá iðnrekenda er vænzt aðeins 6,5 prósent verðbólgu á næsta ári. Kaup gæti þá hækkað um 7-8 pró- sent á því ári, væntanlegu samn- ingstímabili nýrrar þjóðarsáttar. Þetta mundi skilja eftir eins pró- sents aukningu kaupmáttar. Hér hefur verið máluð dekkri mynd af ástandinu í efnahagsmál- um en yfirleitt er máluð um þessar mundir. Við bætist hinn hroðalegi hallarekstur ríkisins, þar sem rík- isstjórnin virðist ætla að skilja við mál í ár, þannig að hallinn verði 8 eða 9 milljarðar. Hægur vöxtur framleiðslunnar þýðir þá, að við erum að lifa um efni fram. Samt hækkar kaupið ekkert eða sama og ekkkert. Við virðumst á næst- unni ætla að komast áfram á er- lendu íjármagni, lánum og hugsan- lega einhverju áhættufé, sem lagt yrði í fyrirtæki hér. Það getur ver- iö hagstætt að fá erlent áhættufjár- magn, en tæplega þykir mönnum hitt góður kostur að halda tekjun- um uppi með frekari slætti erlend- is. Þjóðarútgjöld eru og verða á næstunni miklu meiri en þjóðar- tekjurnar. Útgerð á gengisfellingu? Hér hefur verið nefnd sáralítil hugsanleg aukning kaupmáttar með komandi kjarasamningum. Staðan í efnahagsmálum ræður því, hver kauphækkunin verður, mæld í kaupmætti, hvað sem menn kunna að skrifa undir. Vonandi verður ekki að nýju farið að gera út á gengislækkun, semja um krónutöluhækkun launa, sem strax yrði aftur tekin með gengis- felhngu og verðbólgu. Menn eiga að hafa fengið sig fullsadda af svo góðu. ur lág tala á næstunni, og allir þekkja gjaldþrotasögu fiskeldisins. Ef viö tökum nú af handahófi dæmi, sem gerir ráð fyrir, að út- flutningur afurða ullarvinnslu og eldisfisks mundi bara minnka um helming á næsta ári, þá erum við þegar komin með aukningu vöru- útflutningsins niður í núllið, sem sé: engin aukning. Þessir þættir kollvarpa spám beztu manna. Við ættum að líta á fleiri neikvæð dæmi um útflutninginn. Við lesum um, að álverð hefur hrapað niður úr öllu valdi. Við lesum síðan um vanda rækjuvinnslunnar, vanda sem er geysistór. Ef við „sláum“ bara á, hvað þessi samdráttur þýð- ir, mjög gróft reiknað, erum við strax búin að fá út samdrátt út- flutnings upp á hálft prósent, bara meö tiHiti til þessara fáu þátta. Hvert prósentubrot hefur mikið að segja um hugsanlegar kauphækk- anir í nýrri þjóðarsátt, og við byrj- uðum að tala um mögulega kaup- máttaraukningu um eitt prósent. 6,5prósent verðbólga? Út á hvaö eigum við að gera í nýrri þjóðarsátt? Útflutningur sjávarafurða vex hklega ekki, og verð á fiskafurðunum okkar hækk- Laugardagspistill Haukur Helgason aðstoðarritstjóri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.