Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1991. Kvxkmyndir Thelma and Louise: Húsmóðir og gengilbeina leggjast í útlegð Ridley Scott hefur hingaö til ekki verið talinn sérlega laginn viö aö leikstýra konum en það áht hefur breyst með tilkomu nýj- ustu kvikmyndar hans, Thelma and Louise, sem hefur vakið mikla athygli. Thelma and Louise er mjög ólík þekktustu kvikmyndum Scotts, Alien, Blade Runner og Black Rain, sem eru nútímalegar kvikmyndir með fjar- rænu yfirbragði. Gæði þeirra mynda liggja að nokkru í stórfenglegri sviðsetningu og magnaðri kvikmyndatöku samfara hraöri atburðarás og má að nokkru leyti rekja hinn myndræna stíl Scotts til fortíðarinnar en hann var listmálari áður en hann tók til við kvikmyndagerð. Það má þó þekkja stílbrögð hans í Thelmu og Louise þótt ólík séu. Thelmu og Louise hefur verið líkt við jafn ólíkar myndir og Bonnie and Clyde, Butch Cassidy and the Sundance Kid og Easy Rid- er. Það sem þessar kvikmyndir eiga sameig- inlegt er að þær gerast allar á þjóðvegum og segja frá fólki sem er utan viö lög og rétt. Þær stöllur Thelma og Louise eru að vísu ósköp saklausar miðað viö marga aðra söku- dólga í kvikmyndasögunni. Þær eru aðeins fómarlömb tilviljana og leiðast út í ýmislegt sem fyrirfram hefði verið fjarlægt þeim. Kynni þeirra Thelmu, sem er gengilbeina, og Louise, sem er húsmóðir, hefjast þegar Louise bjargar Thelmu frá manni einum sem telur hana auðvelda bráð. Sú björgun leiöir til skotbardaga og flótta þeirra beggja undan lögum og rétti. Á flótta sínum um þjóðvegi lenda þær upp á kant við vörubíl- Kvikmyndir Hilmar Karlsson stjóra, lögreglu og viðskiptavini í matvöru- verslun, svo eitthvað sé nefnt. Ekkert virð- ist ganga upp hjá þeim'og hefur áhorfandinn það á tilfmningunni að þrátt fyrir húmor í myndinni, lífsvilja þeirra beggja og hressi- lega framkomu séu þarna tvær dæmdar sálir á ferð og áhorfandinn fær það mikla samúð með þeim að það liggur við að hann hrópi á aðrar persónur um að láta Thelmu og Louise í friði. Susan Sarandon og Geena Davis-þykja eins og skapaðar í hlutverkin. Sarandon á að baki langan og litríkan feril. Hefur ávallt þótt með betri leikkonum í Hollywood og leikið í mörgum úrvalskvikmyndum en ekki náð þeim stalli sem hún á virkilega skihð. Geena Davis er nýstirni sem fékk óskars- verðlaun fyrir aukahlutverk í Accidental Tourist og hefur verið á uppleið síðan. Hún var til að mynda mjög eftirminnileg í hinni ágætu gamanmynd Quick Change sem vakti minni athygli en hún átti skilið í fyrra. Tilbreyting fyrir Ridley Scott Það kom mörgum á óvart að spennumynda- leikstjórinn Ridley Scott skyldi taka að sér leikstjórn á Thelmu og Louise, en þeir sem sáu hina listrænu Duelists, sem gerð var 1977 og var fyrsta kvikmyndin sem Ridley Scott leikstýrði, vita að hann getur alveg eins gert góðar kvikmyndir sem byggjast á mannlegum tilfinningum eins og kvik- myndir sem byggjast á háþróaðri tækni. Handritið að Thelma and Louise komst í hendur Ridley Scott 1989 og var ætlun hans að láta fyrirtæki sitt, gercy Mains Producti- on, framleiða myndina og hóf hann því að ræða við aðra leikstjóra um að taka að sér verkið. Þegar allir leikstjórar, sem hann þekkti og hafði samband við, sýndu handrit- inu mikinn áhuga tímdi hann ekki að láta það af hendi og ákvað sjálfur að leikstýra myndinni: „Ég get aðeins svarað því á þann veg að eftir því sem ég hafði handritiö lengur und- ir höndum fékk ég meiri áhuga á persónun- um tveimur," segir Scott. „Og þar að auki var augljóst að ég gæti alls ekki nýtt mér mörg þau brögð sem ég hef notað undanfar- iö og ýtti það einnig undir að leikstýra myndinni sjálfur." Þegar Ridley Scott hafði ákveðið að sjá um leikstjórnina var það hans fyrsta verk aö finna hæfar leikkonur. „Bæði Susan Sar- andon og Geena Davis voru í byijunarlið- inu, en ég verð að viðurkenna að í fyrstu vonaðist ég til að fá Meryl Streep og Goldie Hawn til að leika þær stöllur en þær voru báðar bundnar í öðrum verkefnum. Þegar Ridley Scott er hér við upptökur á Thelma and Louise. þær voru út úr myndinni fannst mér Saran- don og Davis vera þær leikkonur sem mundu passa best í hlutverkin og sé ég ekki eftir því að hafa ráðið þær, samleikur þeirra er mjög góður. Báöar eru þær mjög gáfaðar konur og komu mér á óvart á hverjum ein- asta degi.“ Aðspurður hvort Thelma and Louise sé kvikmynd fyrir konur segir Scott: „Myndin fjallar um tvær konur sem lenda utangarðs vegna viðskipta við karlmenn og þær eiga samúð áhorfenda, en þrátt fyrir alvarlegan undirtón er húmor í myndinni og ég vona að þeir karlmenn sem koma til meö að sjá myndina geti hlegið í staö þess að taka hana of alvarlega." Væntanlegar kvikmvndir: duda Nelson og ice T leika tvœr loggur sem eru á hælum fikniefnakóngs. i New Jack City hefur notið töluverðra vin- sælda i Bandarikjunum að imdanfórnu. Hún hefur einnig vakið athygli fyrir það unglinga- ofbeldi sera hún sýnir. Kvikmyndin er tekin í hinum Illræmdu hverfum New York borgar, Harlem og The Bronx, og segir frá uppgangi og falli fikniefnaglæpamannsins Nino Brown sem Wesley Snipes leikur. Hann byrjar feril sinn sem foringi glæpaflokks unglinga, en þegar hann uppgötvar eiturlyfið krakk og hversu auðvelt þaö er að selja það unglingum fara hlutirnir að snúast fyrir hann og byggir hann risaveldí á eiturlyfiasölu sem hann rek- ur af mikilli grimmd. Tveír lögregluþjónar, sem aldir eru upp í strætinu og þekkja þar til, ákveða að reyna aö jafna veldi Browns við jörðu og eftir þaö er leiðin niður á við hjá fíkniefnakónginum. Leikstjóri New Jack City er Mario Van Peebles og leikur hann einnig stórt hlutverk í myndinni. New Jack City verður sýnd i Bíóhöllinni bráðlega. Gene Hackman og Mary Eiizabeth Mastran- ionio leika föður og dóttur sem bæði eru lögfræðingar. Class Action Class Action er ein af þeim kvikmyndum sem gerast aö miklu leyti í réttarsal. Slíkar myndir geta oft skapað mikla spennu. í'þessu tilviki er þó spennan mest á milli verjandans og sækjandans. Sækjandinn er Jedediah Tuc- ker Ward, þekktur lagarefur sem hefur helgað líf sitt upprætingu glæpa. Verjandinn er Margaret Ward sem er ekki síður gáfuð og hörð af sér, kona sem vegna mikilla hæfúeika er gerð aö meðeiganda í stóru lögfræðifyrir- ið á milli þeirra er að Tucker Ward er faðir Margaret Ward. Það eru úrvalsleikararnir Gene Hackman og Mary Elizabeth Mastran- tonio sem leika lögfræðifeðginin. Leikstjóii er breski leikstjórinn Michael Apted. Class Acti- on verður sýnd í Bíóborginni. Susan Sarandon og Geena Davis leika stöllurnar Thelmu og Louise. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.