Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Side 24
24
LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1991.
Helgarpopp
Keppni ungra hljómsveita í Húnaveri um verslunarmannahelgina:
Sigursveitin leikur
Kaupmannahöfn
Til mikils er að vinna fyrir hljóm-
sveitina sem sigrar í hljómsveita-
keppninni í Húnaveri um verslunar-
mannahelgina. Henni býðst að fara
á The Copenhagen Music Seminar í
Kaupmannahöfn í haust og leika þar.
Aðrar íslenskar hljómsveitir sem
leika á seminarinu verða Sáhn hans
Jóns míns, Todmobile og Friðrik
Karlsson ásamt Point Blank. Þá
koma þar fram hljómsveitir annars
staðar að af Norðurlöndunum.
„Með þessu móti vonumst við til
að geta laöað landsins bestu ungu
hljómsveitirnar út úr bílskúrunum
og í keppnina. Hingað til hafa verð-
launin verið fremur lítt freistandi og
því hafa þeir bestu ekki ómakað sig
að vera með,“ segir Stefán Hilmars-
son söngvari. Hann hefur ásamt öðr-
um veg og vanda af undirbúningi
tónlistarhátíðarinnar í Húnaveri.
Þrjár bestu hljómsveitir keppninn-
ar verða valdar. Þær eiga síðan að
hljóðrita sitt lagið hver. Það verður
síðan leikið á útvarpsstöðinni Eff-
Emm og síðan útnefna dómnefnd og
hlustendur sigursveitina. Þau úrslit
fara fram fljótlega eftir verslunar-
mannahelgi.
Að sögn StefánS hafa engin tak-
mörk verið sett fyrir því hve margar
hljómsveitir verða með í keppninni.
Þeir sem hug hafa á að keppa um að
komast til Kaupmannahafnar í haust
verða að skrá sig annað hvort bréf-
lega eða símleiðis. Bréfin á að senda
í pósthólf 121 á Blönduósi. Skráning-
arsíminn er 96-27844.
Fjölmargar
hljómsveitir
Auk hljómsveitanna sem taka þátt
í keppninni koma ellefu hljómsveitir
fram á tónleikahátíðinni í Húnaveri
um verslunarmannahelgina. Þær
eru Sálin hans Jóns míns, Síðan
skein sól, Todmobile, Stuðmenn,
Blúskompaníið, Bless, Blautir drop-
ar, Fríða sársauki, Leading Volcano,
Deep Jimi & The Zepp Creams og
leðurrokksveitin norðlenska Svörtu
kaggarnir. Að þessu sinni munu all-
ar hljómsveitirnar koma fram á stóra
sviðinu sem reist verður utan dyra
í Húnaveri. Hingað til hafa hljóm-
sveitir jöfnum höndum leikið úti og
inni og þar meö hefur dagskráin orð-
ið nokkuð sundurslitin.
Að sögn Stefáns Hilmarssonar er
allt kapp lagt á að öll aðstaða fyrir
hljómleikagesti verði eins og best
verður á kosið. „í raun og veru var
mjög vel að öllu staðið í fyrra," segir
hann. „Hins vegar loddi þá enn við
hátíðina eitthvert klúður frá því í
hittifyrra sem nú hefur vonandi
fyrnst. Allir ætla að taka höndum
saman um að gera hátíðina í Húna-
veri sem glæsilegasta - virkilegan
hápunkt íslenska tónlistarsumarsins
1991.
Síðan skein sól verður meðal aðalhljómsveitanna á hljómleikahátíðinni í Húnaveri.
r
i
Bob
Dylan og
Michael
Bolton
semja
saman
Þeir eru viö fyrstu sýn óliklegt
par til að vinna saman en það
hafa þeír gert eigi að síður, laga-
smiöirnir Michael Bolton og Bob
Dylan.
Er Bolton var að vinna við nýju
plötuna sína í Los Angeles á síð-
asta ári var hringt í hann frá út-
gáfuréttarfyrirtækinu sem fer
meö mál Dylans. Honum var
Umsjón
Ásgeir Tómasson
formálalaust tilkynnt að Bob Dyl-
an yrði viku í bænum innan
skamms og hann langaði til að
semja nokkur lög með Bolton.
Hefði hann áhuga?
„Ertu að grínast?" var svar
Michaels Boltons. En grín var til-
boðið ekki og áður en langt um
leið sat platínupilturinn Michael
Bolton með þjóösagnapersónunni
Bob Dylan og bjó til dægurlög.
Saman unnu þeir í tvo daga og
sömdu bæði lög og texta. Eitt
þeirra, Steel Bars, verður vænt-
anlega á næstu plötu Dylans.
Bolton viröist hins vegar ekki
hafa notað neitt frá þessu óvænta
samstarfi til að skreyta með nýju
plötuna sína.
Hljómleikaferð Dire
Straits hefst í ágústlok
Dire Straits verða i um tvö ár að fylgja plötunni On Every Street eftir.
Mark Knopfler fær nóg að starfa
næstu tvö árin: að leika á tónleikum
um allan heim til að fylgja eftir nýju
Dire Straits-plötunni On Every Stre-
et. Hún kemur út í septemberbyrjun.
Þá verður Dire Straits þegar lögð í
heimsför sína. Hún hefst þann 27.
ágúst í Dyflini á írlandi.
Miðasala á fyrstu tvo tugi hljóm-
leika Dire Straits hófst fyrir um það
bil mánuði. Allir miðar seldust um-
svifalaust upp. Hljómsveitin verður
aðallega á Bretlandseyjum í sept-
ember. Til að mynda heldur hún
fimm hljómleika á Wembley Arena í
London upp úr miðjum mánuðinum.
- Wembley Arena tekur um sjö þús-
und manns er hljómleikar eru haldn-
ir. Á Wembley leikvanginum rúmast
hins vegar tugir þúsunda.
Á hljómleikum Dire Straits í
Bandaríkjunum verður einnig sneitt
hjá leikvöngunum sem og væntan-
lega annars staðar í heiminum. í
Bandaríkjunum verður hljómsveitin
frá janúar til apríl '92 og þangað ligg-
ur leiðin að nýju síðla í ágúst. Fyrst
í stað verður Dire Straits annars í
Þýskalandi, Hollandi, Belgíu, Frakk-
landi og Sviss. En áður en hljóm-
leikaferðin er á enda verða Mark
Knopfler og félagar búnir að koma
við í Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Tasma-
níu, Kanada, Spáni, Portúgal, Aust-
urríki, Danmörku, Noregi, Svíþjóð,
Finnlandi, Brasilíu, Argentínu, Ur-
uguay, Chile og Mexíkó. Þá er fyrir-
hugaö aö Dire Straits leiki í Austur-
Evrópu sem og Miðausturlöndum.
Willie og skatturinn
með plötu saman
Hvað getur heimsþekktur tónlist-
armaöur gert ef hann skuldar sextán
milljónir dollara í skatt? Til dæmis
gengið til samstarfs við skattstofuna
um útgáfu hljómplötu. Það er ein-
mitt það sem Willie Nelson kántrí-
tónlistarmaður hefur gert. Platan er
tvöföld - 25 laga - og heitir Who’ll
Buy My Memories? The IRS Tapes
(Hver kaupir endurminningarnar
mlnar? Skattstofuupptökurnar).
Útgáfa sem þessi á sér tæplega for-
dæmi. Skattayfirvöld höfðu lagt hald
á upptökur laganna ásamt mestöll-
um öðrum eigum Willies. Hann fékk
hins vegar að gefa þær út með því
skilyrði að allur hugsanlegur hagn-
aður útgáfunnar rynni upp í skatt-
skuldina. Platan kemur út án milh-
liða en útgefandi Willies, Sony, ann-
ast framleiðsluna.
Lögin 25 á Who’ll Buy My Memori-
es? eru öll eftir Wilhe Nelson. Hann
syngur þau öll og leikur með á gítar.
Állur kostnaður við útgáfuna er í
lágmarki og þeir sem alla jafna fá
greitt fyrir þaö er plata kemur á
markaðinn taka lágmarksgjald að
þessu sinni. Á umslagi plötunnar er
mynd af Willie. Hann er klæddur bol
sem á stendur Shit happens!
Willie Nelson, stórskuldugur þrátt
fyrir mikla velgengni á liönum árum.