Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Síða 30
42
LAUGARDAGUR 6. JULÍ 1991.
Helgarvísur________________________________ pv
Lífið allt er eins og visa
í þætti, sem birtist í DV 26. jan. sl.
(Hvaö skal yrkja um hreina trú), er
sagt frá kveðskap Steingríms Ey-
fjörðs læknis um Ingólf Þorvaldsson,
prest á Ólafsfirði. Ekki er sagan þar
nema hálfsögð og reyndar er kviðl-
ingurinn ekki alveg kórréttur. En
leiðréttingu og nánari skýringar á
því sem fram fór birtist upphaflega
í tímaritinu Súlum, sem Jóhannes
Óli Sæmundsson ritstýrði og gefið
var út á Akureyri meöan hans naut
við. Góðkunningi minn einn sendi
mér ljósrit úr 7. tbl. Búnaðarblaðsins
Freys 1985, en þar er endurprentuð
frásögn sú sem Jóhannes Óli færði í
letur og er hún svohljóðandi:
„Steingrímur Eyíjörð Einarsson
læknir var eitt sinn á ferð tO Siglu-
fjarðar og kom við í Ólafsfirði. Séra
Ingólfur Þorvaldsson og Steingrímur
voru skólabræður og góðir kunningj-
ar. Nú stóö svo á, er Steingrímur
heimsótti prestinn, að hann var aö
messa. Bar því fundum þeirra ekki
saman að þessu sinni, því að læknir-
inn var á hraðri ferð. Hann gat þó
ekki á sér setið nema að hnippa í vin
sinn, klerkinn, og skildi eftir til hans
miða með þessum vísuorðum:
Ingólfur er að messa,
orðin hans margan hressa
gáfu- og guðdómleg.
Þó hefur hann til þessa
þrammað hinn breiða veg.
Friðþjófur Gunnlaugsson skip-
stjóri, hálfbróðir séra Ingólfs, segir
mér, að þegar Ingólfur sagði
Jónataníu, móður þeirra, frá kerskn-
isvísu Steingríms, hafi hún svarað
samstundis:
Steingrímur lærði að lækna,
lagði þar hönd að frækna,
það votta þorum vér.
Meinsemdum margra eyðir,
- mest þeirra, sem hann deyðir.
Heiður þeim heiður ber.
Hvort svarvísan hefur nokkurn
tíma náð eyrum Steingríms, veit ég
ekki, en vel mætti ætla, að sæmilega
hafi honum líkað svarið."
„Mín fyrstu leikföng voru íslenzk
orð“ var fyrirsögn vísnaþáttar í DV
6. apríl sl. Svo illa tókst til að botninn
datt úr honum og þar með skýring á
heiti hans. Það sem féll niöur hljóðar
svo:
Og „þótt borgir standi í báli/og beitt
sé eitri og stáli“ mun íslenzk tunga
standast það allt, haldi menn vöku
sinni, eða það telur Guðmundur Ósk-
ar Einarsson:
Þó að bálið brenni menn,
biturt stálið syngi,
veitir sálum unað enn
Egils mál á þingi.
Mættu sem flestir taka undir með
borgarskáldinu okkar, Tómasi Guð-
mundssyni:
Vísnaþáttur
Mín fyrstu leikfong
voru íslenzk orð,
og engin leikföng
hafa reynzt mér betur.
Hafa ekki ljóð og stökur verið beztu
verndarenglar íslenzks máls gegnum
tíðina, þegar vel hefur verið kveðið?
Steingrímur Baldvinsson í Nesi í
Aðaldal, sem kunni mörgum betur
að haga orðum sínum, kvað svo:
Ef stutt varð hlé á starfsins söng,
sterkast þrennt minn huga tók:
Yrkja vísu, veiða á stöng
og vaka yfir góðri bók.
Þórarinn Bjamason járnsmiður í
Reykjavík, yrkir svo í hógværð sinni:
Ég er eik á eyðiströnd,
andans fallið brumið.
Ferskeytlunnar fegurst lönd
fékk ég aldrei numið.
Ríkarður Jónsson myndhöggvari
var vel liðtækur við vísnagerö, eins
og fram kemur í eftirfarandi stöku:
Láttu aldrei á því hlé
ævi þinnar vöku,
að yrkja líf í leir og tré,
líka marga stöku.
Guörúnu M. Benónýsdóttur á
Hvammstanga var ljóst hvert leið vel
gerðrar vísu myndi liggja, þegar hún
kvað:
Vísa hver sem vel er gerö
viða nýtur hylli,
leggur svo í langa ferð
landshomanna milli.
Og á þeirri leið verður hún mörg-
um til yndisauka og eða huggunar.
Skúli Þorsteinsson námsstjóri:
Þegar reyndist leiðin löng
og lág var gleðisólin,
í ferskeytlunnar fræga söng
fundu margir skjólin.
Ásgrímur Kristinsson frá Ás-
brekku í Víðidal hefur trú á varan-
leik stökunnar og tilgangi hennar:
Vísan stendur öld og ár,
oft er send til varnar.
Hún á að benda á bros og tár
bak við hendingamar.
Síðasta vísan þessu sinni er eftir
Rúnar Kristjánsson, ungan og bráð-
efnilegan hagyrðing á Skagaströnd:
Sjáðu í austri rööul rísa,
rauðu bliki um himin stafar.
Lífið allt er eins og vísa,
ort á milli vöggu og grafar.
Torfi Jónsson
>egar Sunny nálgast það
markmið að finna Alex
Markoff kemur í Ijós að
taún kallar sjálf yfir sig
mikla hættu.
Leikurinn berst vitt um
heim - San Fransiskó,
England, Noregur,
Kanada.
í leit sinni að Alex
Markoff er hún
kötturinn sem leitar
músarinnar; gagnvart
óljósum ofsækjendum
er hún músin á
flótta undan
köttunum. Þetta
er leikur upp á
líf og dauða -
úrvals spennusaga.
Sunny Sinclair
hefur ekki séð
Alex Markoff
síðan heimsstyrj-
öldinni siðari lauk.
Þá voru þau bæði
starfandi njósnarar
og um skeið
Þvi er nú löngu lokið.
En mörgum áratugum
síðar rifjast þetta
gamla, eldheíta ævintýri
upp með óyæntum
hætti.
Hún verður að finna
þennan gamla elskhuga
sem raunar hefur lengi
verið talinn af.
En nú kemur hrollkaldur
veruleikinn æ skýrar i Ijós
með hverju skrefi sem hún
tekur - hann er ekki bara IH-
andi heldur er hann sennilega
líka i miklum háska staddur.
Hægt er að panta
Úrvalsbækur
í síma 62-60-10