Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1991, Side 4
4
Fréttir_______________________________________________
Ríkið mun ekki hjálpa 2-3 rækjuverksmiðjum:
Eiga að bera ábyrgð
á eigin glæfraverkum
- segir Davíð Oddsson forsætisráðherra
„Það kemur fram í þeim gðgnum
sem ég hef fengið frá Byggðastofnun
að flestir þættir rækjuvinnslunnar
geta gengið meö almennum aðgerð-
um sem mæta þeim áfóllum sem þeir
hafa orðið fyrir vegna lækkandi
markaðsverðs. Síðan eru aðrir þætt-
ir sem hið opinbera getur ekki komið
til bjargar. íslandsbanki og Lands-
bankinn, sem hafa verið í viðskiptum
við þessar stöðvar, verða að meta það
hvort þeir ætla að halda því áfram
eða hvort þeir vilja einhverja upp-
stokkun eða hvað gerist eftir gjald-
þrot þessara fyrirtækja," sagir Davíð
Oddsson forsætisráðherra í samtali
við DV.
Davíð átti fund með Guðmundi
Malmquist, framkvæmdastjóra
Byggðastofnunar, á fóstudag. Þar var
lögð fram bráðabirgðaskýrsla um
fjárhagsstöðu einstakra rækju-
stöðva. Áður haföi ríkisstjórnin sam-
þykkt að tekið yrði 200 milljón króna
lán til aðstoðar rækjuvinnslunni en
nú er ekki talin þörf á að þeir íjár-
munir verði nýttir nema að hluta.
- Nú hefur því verið haldið fram að
þaö sé eðlilegt að rækjuverksmiðjun-
um verði fækkað um allt aö helming?
„Við setjum ekkert mark á það
hvað rækjuverksmiðjurnar eiga að
vera margar. Meginmálið er aö þær
geti staðiö þetta af sér sjálfar með
almennri fyrirgreiðslu eins og fyrir-
tæki almennt geta átt rétt á við þess-
ar aðstæður.
En það eru tvö eða þrjú fyrirtæki
þannig stödd og sum þeirra hafa far-
ið svo óvarlega í sínum rekstri að það
er ekki hægt að gera kröfu til þess
hlaupið veröi undir bagga með þeim
við þessar aðstæður. En Landsbank-
inn og íslandsbanki verða að meta
hvað þeir gera.
Það er staðreynd að sumar verk-
smiðjurnar hafa verið reknar mjög
glæfralega og þær bera ábyrgð á því
sjálfar," sagði Davíð Oddsson.
-J.Mar
SMarminjasafn á Siglufirði:
Fjölmargir skoða saf nið og rifja upp gamla daga
firði og hefur hópurinn fengið inni
til bráðabirgða í húsi við Suðurgötu
sem er í eigu síldarútvegsnefndar.
Þegar inn í safnið er komið er óhætt
að segja að nýr heimur opnist þeim
sem aldrei þekkti síldarævintýriö
mikla nema af afspurn ',og er með
ólíkindum hversu miklu af gömlum
merkilegum munum hefur tekist aö
varðveita og koma þar fyrir á smekk-
legan hátt. Á veggjum vekja gamlar
ljósmyndir að sjálfsögðu mikla at-
hygli, myndir sem sýna ótrúlegan
fjölda skipa við bryggju og úti á höfn-
inni og iðandi mannlíf á öllum
bryggjum. Þá eru áberandi á veggj-
um „tunnubotnar" með merkjum
hinna ýmsu síldarsöltunarstöðva
sem störfuðu á Siglufirði.
Annars er ógemingur að ætla að
tina til eitt eða annað úr safninu og
geta þess í stuttu máli. Þar eru nán-
ast allir hlutir sem notaðir voru við
söltun síldarinnar og í öörum her-
bergjum eru aðrir hlutir sem tengd-
ust meira veiðunum sjálfum. Þá eru
í safninu munir af skrifstofu eins af
„síldarkóngunum" og margt fleira
mætti nefna.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Aðsókn að safninu hefur verið
mjög mikil og meiri en viö áttum von
á,“ segir Regína Guðlaugsdóttir, en
hún er í hópi þeirra Siglfirðinga sem
stóðu að opnun síldarminjasafns þar
í bænum í vor. Að safninu standa
áhugamenn um byggðasafn á Siglu-
Regina Guðlaugsdóttir í sildarminjasafninu á Siglufirði. Á veggnum að baki henni má m.a. sjá „tunnubotna" með
merkjum ýmissa söltunarstöðva. DV-mynd gk
AÍÁtýy^AGUII^.JýLÍ iw.
Akureyri:
Alvariegar
áhyggjur
vegna atvinnu-
ástands
Gyífi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Atvinnumálanefnd heitir á
stjórnvöld að sýnaþá ábyrgð sem
þeim ber varðandi atvinnulífið á
landsbyggðinni og skorar á
stjórnvöld að treysta með öllum
tiltækum ráðum undirstööu at-
vinnuveganna," segir m.a. í
ályktun sem atvinnumálanefnd
Akureyrarbæjar hefur sent frá
sér.
í áiyktuninni segir að fyrirtæki
á Akureyri og við Eyjafjörð hafi
verið lýst gjaldþrota að undanf-
örnu og stefni í atvinnumissi hjá
á þriðja hundrað manns af þeim
sökum, auk þess sem verulegir
erfiðleikar steöji að fleiri fyrir-
tækjum á svæðinu.
„Hér er um að ræða bæði
smærri og stærri fyrirtæki,
vinnustaði fjölda fólks og mikii-
vægar tekjulindir íyrir sveitarfé-
lögin. Alvarlegast þessara tiðinda
er nýúrskuröað gjaldþrot Álafoss
hf. sem gæti leitt af sér fjöldaat-
vinnuleysi og afkomuskerðingu
hjá hundruðum manna,“ segir í
ályktuninni.
Átvinnumálanefndin lýsir
þungum áhyggjum vegna þessa
og hvetur til að allra tiltækra
ráða verði leitað til varnar ullar-
iðnaðinum. Þá bendir nefndin á
vanda skipasmíðaiðnaðarins og
þar með Slippstöðvarinnar.
Nefndin lýsir sig reiðubúna til
viðræðna við hagsmunaaöila og
ríkisvald um atvinnumál á Akur-
eyri og við Eyjafjörð í því augn-
amiði aö blása til nýrrar sóknar
til eflingar atvinnulífi á svæöinu.
Stelpur í innbrotum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Þijár stelpur á aldrinum 12 og
13 ára hafa oröið uppvísar aö 8
innbrotum í mannlausar íbúðir á
Akureyri. Stelpurnar fóru inn í
íbúðirnar þegar íbúar þeirra
voru í vinnu eða í fríi. Ekki höfðu
þær mikið upp úr krafsinu á
hverjum stað.
í dag mælir Dagfari
Hið innvígða hús
Davíö Oddsson lét það verða sitt
síðasta verk sem borgarstjóri að
vígja Perluna inn í kristindóminn.
Það var mikið þarfaverk. Perlan
er tákn háleitrar hugsunar og á
eftir að þjóna hamingjunni og .
stuöla að jákvæöum hliðum lífsins,
alveg eins og séra Þórir orðaði það
þegar hann lagði blessun sína yfir
þetta veitingahús á Öskjuhlíðinni.
Perlan vekur „hughrif gleðinnar"
og nú mun vernd Drottins hvíla
yfir þessu hamingjuhúsi um
ókomna framtíð.
Auk prestsins, sem mælti þessi
fógru orð, fóru þeir Davið forsætis-
ráðherra og Bjami veitingamaður
með ritningarorð og fjöldi manns
fór með faöirvorið við vígsluna og -
Perlan teygir sig til himins og
snýst. Hún verður hér eftir í stöð-
ugu sambandi við hamingjuna og
gleðina. Ekki veitir af. Davíð er
hættur og má ekki lengur vera að
því að vernda húsin í borginni og
þá veröur að fá Drottin til að
hlaupa í skarðið. Davíð getur ekki
sífellt verið að hlaupa til sjálfur og
nú er kominn nýr borgarstjóri sem
segir að ribbaldar ráði ferðinni í
miðborginni og hann ætlar að tala
við lögreglustjóra um þessa rib-
balda.
Vonandi á Markús ekki við Davíð
þegar hann talar um ribbaldana
enda þótt stjórnarráðið sé í mið-
borginni og vonandi á Markús
heldur ekki við borgarfulltrúana
sem brátt flytja inn í nýtt ráðhús
sem líka er í miðborginni. En þetta
þarf hann að útskýra fyrir lög-
reglustjóra svo lögreglustjóri viti
hvaða ribbalda borgarstjórinn á
við. Kannske geta þeir í samein-
ingu beðið um guðs blessun yfir
miðborginni og fengið séra Þóri til
að fara með bæn. Það dugar aö
minnsta kosti í Perlunni til aö
flæma ribbaldana á brott og hýsa
hamingjuna.
Gallinn við flest veitingahúsin í
Reykjavík er sá að þau hafa ekki
verið vígö inn í guðstrúnna. Veit-
ingamönnum hefur láðst að kalla á
prest til að flytja guðsorð áður en
lýönum’er hleypt inn og allt hefur
það endað með slagsmálum og
ófriði innan sem utan dyra eins og
nýi borgarstiórinn hefur staðfest.
Perlan á Öskjuhlíðinni hefur hins
vegar þá sérstöðu að hafa verið
vígö tvisvar. Fyrst til notkunar fyr-
ir matargesti og síðan sem heilagt
hús í nafni guðs og heilags anda.
Nú þarf enginn að óttast það að
festast í lyftum eða fá matareitrun
í guðshúsinu ofan í hitaveitutönk-
unum vegna þess að Davíö hefur
afsalaö Drottni alla vemd hússins
og sá síðarnefndi mun sjá til þess
að húsið verði til aö þjóna hamingj-
unni og vekja hughrif gleðinnar.
Spurning er hvort kirkjumar séu
ekld aö verða óþarfar eftir að veit-
ingahúsin fá blessun klerkanna.
Munurinn er nefnilega sá að í veit-
ingahúsunum geta menn bæði
drukkið og etið undir vemdarvæng
almættisins meðan kirkjan býður
upp á sálmasöng og prédikanir án
þess aö kirkjugestir fái vott né
þurrt á meðan. Perlan býður upp á
hvort tveggja.
Davíð lét þau orð falla við þetta
tækifæri að það væri dásamlegt aö
enda ferilinn meö þessum hætti.
Mikill guðsmaður Davíð og ekki
dónalegt að geta þjónað hamingj-
unni og skilað borginni og Perlunni
yfir í hendurnar á Drottni og
verndaö hvort tveggja fyrir rib-
böldunum sem ganga lausir í mið-
borginni. Markús þarf að minnsta
kosti ekki að hafa áhyggjur af veit-
ingahúsinu í Perlunni eftir eftir
tvær vígsluathafnir og ritningar-
orð í bak og fyrir. Vernd Drottins
mun sjá til þess aö þar ríki friður
og gæfurík framtíð samkvæmt
upplýsingum vígsluprestsins. Enda
hefur lyftan ekki bilað síðan vígsl-
an fór fram.
Hitaveita Reykjavíkur hefur gef-
ið borgarbúum þetta veitingahús.
Davíð hefur beðið Drottin um að
vernda það af því hann má ekki
vera aö því sjálfur. Hvort tveggja
ber vott um rausnarskap og gjaf-
mildi þeirra sem ráða og hafa vit á
því hvað Reykvíkingum er fyrir
bestu. Viö hin megum vera þakklát
fyrir þessa tillitssemi og það er
ómaklegt og óviðeigandi að velta
sér upp úr því að Perlan hafi kostað
á annan milljarð króna. Guðshúsin
mælast ekki í peningum og hughrif
gleðinnar eru miklu sterkari en
nirfilsháttur þeirra sem ekki tíma
að leggja fé í guðshús þar sem veit-
ingar eru fram bomar.
Perlan hefur fengið vottorð frá
guði.
Dagfari