Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1991, Blaðsíða 18
18
MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ1991.
Fréttir
Að byggja upp líkama og sál:
Vikudvöl er meira virði
en sólarlandaferð
- segir Guðrún Tryggvadóttir sem stendur fyrir sæludögum á Hallormsstað
Sigrún Björgviiisdóttir, DV, Egilsstödum;
Fréttaritari rak nýlega augun í
auglýsingu um sæluviku á Hall-
ormsstað þar sem á dagskrá eru
margar þær aðferðir til uppbygg-
ingar heilsunnar sem nú eru í
tísku. Hann fór því á stúfana til að
forvitnast nánar um hvað hér væri
á seyði.
Undanfarin ár hefur verið ali-
mikOl áhugi á hugrækt og andleg-
um málefnum hér á Egilsstöðum
og nágrenni. „Fólk er að leita inn
á við til að uppgötva sjálft sig og
gleðina.“ Þetta voru orð þeirra
Guðrúnar Tryggvadóttur og Krist-
bjargar Kristmundsdóttur en það
eru einmitt þær sem standa fyrir
því sem þær kalla sæludaga á Hall-
ormsstað í júlímánuði.
„Þetta á að vera uppbyggileg
hvíldarvika," sagði Kristbjörg.
„Það er komið inn á ýmsa þætti,
svo sem yoga, heilun, hugleiðslu,
nudd, slökun og fleira. Boðið er upp
á jurtafæði og makróbíotiskt fæði.
Þá verður líka leiðbeint um tínslu,
þurrkun og not íslenskra jurta.‘>
„Viö byrjuðum með þetta í fyrra
og vorum með eina viku sem tókst
mjög vel,“ sagði Guðrún. „Við fmn-
um fyrir miklum áhuga og fólk
spyr mikið. En auðvitað er svo
margt sem um er að velja á þessum
árstíma, eins og til dæmis sólar-
landaferðir. Okkur finnst að viku-
dvöl á þessum yndislega stað sé
meira virði en sólarlandaferð með
sínu ljúfa lífi en á sæludögunum á
Hallormsstað er leitast við að
byggja upp líkama og sál.“
Dvalið veröur í Húsmæðraskó-
lanum og eins og Kristbjörg sagði:
„það er vart hægt að fmna betri
stað fyrir shka starfsemi. Þetta er
gamalt hús með góða sál og um-
hverfið er heillandi og ég myndi
segja mannbætandi í sjálfu sér.“
Og hvað kemur svo út úr þessu.
Heilbrigð sál í hraustum líkama?
Það hlýtur að minnsta kosti að vera
takmarkið.
Guðrún Tryggvadóttir og Kristbjörg Kristmundsdóttir sjá um sæludaga
sem eru um þessar mundir á Hallormsstað. DV-mynd SB
Á Sauðárkróki eru nokkur hress blaðburðarbörn sem eru dugleg i vinnu sinni og leysa hana prýðilega af hendi. Af
þvi tilefni bauð DV þessum ungu starfsmönnum sinum í smáveislu á veitingahúsi i bænum. Aftari röð frá vinstri:
Björg, umboðsmaður DV á Sauðárkróki, Inga Dóra, Dagbjört og Símon. Fremri röð frá vinstri: Atli, Guðrún, Ingvi,
Gunnar og Árni. DV-mynd Þórhallur
Smáiðnaður og handiðn á Hvammstanga:
Undirtektir hafa
verið alveg f rábærar
- segir Guðrún Eyja Erlingsdóttir um tilkomu Gallerí Bardúsu
Segja má að upphafið að stofnun
Bardúsu megi rekja til átaksverkefn-
is V-Húnvetninga en á vegum þess
var boðað til fundar á Hvammstanga
um handiðn og smáiðnað. Undirtekt-
ir voru strax mjög góðar og á fundin-
um kom Jón Eiríksson á Búrfelli með
hugmynd um sölu- og vinnustað fyr-
ir handiðnaðarfólk þar sem það gæti
unnið aö handiðn sinni og boðið vöru
sína til sölu.
í Bardúsu er fjöldi alls kyns list-
muna á boðstólum en allir þessir'
hlutir eru unnir af fólki í V-Húna-
vatnssýslu. Þar eru m.a. ullarvörur,
útskornir trémunir og alls kyns aðrir
Ustmunir sem eru á „þægilegu
verði“. Þegar DV leit inn í galleríið
var flöldi erlendra ferðamanna að
gera þar viðskipti og virtist líka vel.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Undirtektimar hafa verið alveg
frábærar. Fjöldi fólks kemur gagn-
gert til Hvammstanga til að koma
hingaö og það svífur hér inn í sælu-
vímu,“ segir Guðrún Eyja Erhngs-
dóttir en hún er í starfshópi um
rekstur gallerísins Bardúsu sem opn-
að var á Hvammstanga fyrr í sumar.
Guörún Eyja og Dagbjört Jónsdóttir að afgreiða viðskiptavini i Bardúsu á
Hvammstanga. Þær segja að fólk drífi að úr öðrum byggðarlögum gagn-
gert til að fara galleríið. DV-mynd gk
Rækjuviimsla frá Reykjavik til Siglufiarðar:
Rétt ákvörðun
að f lytja hingað
- segir framkvæmdastjóri Ingimundar hf.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það var hárrétt ákvörðun að flytja
hingað.Reksturinn hér hefur gengið
mjög vel, hér er góð vinnsla og gott
og vant starfsfólk," segir Ari Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Ingi-
mundar hf. á Siglufirði.
Það vakti talsverða athygli á síð-
asta ári þegar fyrirtækið flutti
rækjuvinnslu sína frá Reykjavik til
Siglufjaröar enda ekki algengt á síð-
ustu tímum að fyrirtæki flytji sig frá
höfuðborginni út á landsbyggðina.
„Rekstur verksmiðjunnar hefur
gengið vel í þessa 10 mánuði sem við
höfum starfað hér. Hins vegar hefur
orðið mikið verðfall á rækjunni sem
gerir okkur erfitt fyrir og þetta er
rekið með buhandi tapi þótt ég viti
ekki hvort það er jafnmikið og hjá
öðrum. Markaðsverðið er allt of lágt
og hefur lækkað um 25% síðan í maí
á síðasta ári. Menn vonast hins vegar
til að nú sé botninum náð og þetta
fari upp á við aftur."
Ingimundur hf. gerir út tvö rækju-
skip, Helgu og Ögmund, og þau hafa
aflað vel. Helstu rækjumiðin eru út
af Norðurlandi og því kostnaðar-
minnst að gera út þaðan en áður en
Ari Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Ingimundar hf.
Ingimundur flutti rækjuvinnslu sína
norður var aflanum landað fyrir
norðan og ekið á bifreiðum suður til
Reykjavíkur til vinnslu þar.
Úr vinnslusal rækjuvinnslunnar Ingimundar hf. á Siglufirði. DV-myndir gk