Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1991, Blaðsíða 9
MÁWODA'GUR fiá.í M&WíM:
9f
DV
Júgóslavla:
TóH féllu í átök-
um um nelgina
- leiðtogar landsins ræðast við í dag
Júgóslavneskur hermaður sýnir notkun fallbyssu þegar eftirlitssveitir EB komu i heimsókn um helgina.
Símamynd Reuter
Helstu leiðtogar Júgóslavíu munu
hittast í dag eftir að tólf manns létu
lífið í bardögum í Króatíu um helg-
ina. Fundinum, sem verður haldinn
í ferðamannabænum Ohrid í Make-
dóníu, er ætlað að finna friðsamlega
lausn á kreppunni í landinu en leið-
togarnir sögðust ekki búast við því
að hann markaði tímamót.
„Ég trúi ekki á sögulega fundi,“
sagði Stipe Mesic, forseti Júgóslavíu,
þegar hann kom til Ohrid á sunnu-
dagskvöld. „En við getum tekið skref
fram á við í samningaviðræðunum,
meira að segja maraþonhlaup hefst
með litlu skrefi."
Nýliðin helgi var sú blóðugasta í
Króatíu til þessa. Á sunnudag sagðist
lögreglan hafa drepið fimm serb-
neska skæruliða í tveggja klukku-
stunda bardaga nærri Glina.
Skömmu eftir miðnætti á laugardag
drap byssumaður, sem var einn síns
hðs, þrjá unga nýliða í króatísku lög-
reglunni eftir að hafa setið fyrir eftir-
litsbifreið þeirra í bænum Dra-
vograd. Önnur fórnarlömb voru
gömul kona, sem lést í sprengju-
vörpuárás, og maður sem var skot-
inn inni í stofu heima hjá sér.
Aö minnsta kosti tuttugu og tveir
létu lífið í síðustu viku í átökum
milli króatískra öryggissveita og
Serba. Króatísk stjórnvöld hétu því
á sunnudag að herða baráttuna gegn
serbnesku skæruliðunum, eða
tsjettnikkum.
„Tsjettnikkar eru að víkka út
hryðjuverkaárásir sínar í Króatíu,"
sagði Franjo Tudjman, forseti Króa-
tíu, á blaðamannafundi í Slavóníu í
austurhluta Króatíu sem Dóná skilur
að frá Serbíu. í fylgd með honum
voru vel vopnaðir verðir.
Króatar óttast að sveitir sambands-
hersins, sem eru á fórum frá Slóve-
níu, muni safnast saman á suður-
landamærum lýðveldis þeirra að
Serbíu og Bosníu. Stjómvöld í Króa-
tíu segja að herinn hjálpi skærulið-
um.
Reuter
Suður-Afríka:
Ráðherra íhugar afsögn vegna leyniframlaga
Ríkisstjórn Suður-Afríku ákveð-
ur líklega í dag hvort Adrian Vlok,
ráðherra laga og reglu, verður lát-
inn segja af sér vegna leynilegra
fjárframlaga lögreglunnar til Ink-
athaflokks zúlúmanna, helstu and-
stæðinga Nelsons Mandela meðal
blökkumanna landsins.
Vlok sagði í fjörugum sjónvarps-
umræðum í gærkvöldi við Anton
Harber, ritstjóra blaðsins Weekly
Mail, að hann íhugaði að segja af
sér til að ryðja úr vegi hindrunum
fyrir samningaviðræðum um fram-
tíð landsins. „Ég mun ræða þaö við
forsetann," sagði Vlok við ritstjór-
ann. Það var Weekly Mail sem upp-
lýsti það fyrir helgi að ríkið hefði
greitt Inkathaflokknum á sjöttu
milljón króna.
Vlok sagði að á sex ára tímabili
hefði Inkathaflokkurinn og verka-
lýðsfélag honum tengt fengiö rúm-
lega þrjátíu milljóna króna fjár-
framlög frá ríkisvaldinu. Hann
sagði að endi hefði veriö bundinn
á greiðslumar snemma á síðasta
ári samkvæmt skipunum frá de
Klerk forseta.
Nelson Mandela, forseti Afríska
þjóðarráðsins, krafðist afsagnar
Vloks eftir að fréttir um greiðslurn-
ar til Inkatha birtustbæði í Weekly
Mail og breska blaðinu Guardian.
Fréttaskýrendur segja að afsögn
Vloks myndi róa Mandela sem
sagðist ekki geta rætt við de Klerk
forseta á sama tíma og ríkisstjórnin
færi með ófriði á hendur hreyfingu
hans.
Vlok sagði að með greiðslunum
til Inkatha hefði verið ætlunin að
berjast gegn viðskiptabanni á Suð-
ur-Afríku og til að skapa andrúms-
loft friðar. Harber sagði aftur á
móti að blað sitt hefði sannanir
fyrir því að markmiðið hefði verið
að veikja Afríska þjóðarráðið.
Reuter
Bush í Tyrklandi:
Varar Hussein
við að betta valdi
George Bush, forseti Bandaríkj-
anna, varaði Saddam Hussein, leið-
toga íraks, við að byija aftur að berj-
ast gegn eigin fólki og hvatti til friðar
milli Tyrklands og Grikklands í opin-
berri heimsókn sinni til Tyrklands.
Bush, sem lauk heimsókn sinni í
gær, sagði að hinar svokölluðu hrað-
sveitir, sem staðsettar verða á landa-
mæram Tyrklands og íraks til að
vemda Kúrda gegn írökum, yrðu þar
til frambúðar.
Bush taldi að ekki væri nauðsyn-
legt aö kalla til herliðs bandamanna
til að stöðva átök eins og þau sem
brutust út á milli kúrdískra upp-
reisnarmanna og íraskra hermanna
í síðustu viku. En í yfirlýsingu sinni
í gær lagði Bush mikla áherslu á það
að ekki yrði hikaö við að senda hrað-
sveitimar yfir til íraks ef nauðsyn-
legt reyndist að vernda Kúrdana.
Áður en Bush kom til Istanbul
heimsótti hann sögulegan óvin Tyrk-
lands, Grikkland. Hann sagði í yfir-
lýsingu sinni við lok heimsóknarinn-
ar í gær að forsetar landanna tveggja
hefðu alla burði til þess að binda
enda á áratuga deilur landanna sem
aðallega snúast um eyjuna Kýpur.
„Sem vinur Tyrklands segi ég að
tími nýrra vinatengsla gagnvart ná-
granna og samherja í NATO er mnn-
inn upp. Það er kominn tími til að
endanlegur friður komist á á milli
Tyrklands og Grikklands," sagði
Bush. Hann sagðist vera vongóður
um að takast mætti að leysa deilu-
mál landanna um Kýpur og gerði það
mál að nýju forgangsverkefni í utan-
ríkisstefnu sinni.
Grikkir vilja að Tyrkir dragi her
Forseti Tyrklands, Turgut Ozal, og forseti Bandaríkjanna, George Bush,
veifa til mannfjöldans af útsýnisbáti á Bosphorous-sundi í Istanbúl í gær.
Símamynd Reuter
sinn, sem réðst inn á Kýpur 1974, til
baka en Tyrkir vilja að Grikkland
viöurkenni tyrkneska hluta eyjunn-
ar og að jafnræði verði komið á milh
gríska og tyrkneska hlutans.
Bush er fyrsti forseti Bandaríkj-
anna til að heimsækja Grikkland og
Tyrkland síðan Dwight Eisenhower
heimsótti löndin árið 1959.
Koma Bush til landanna tveggja
leiddi til mikilla mótmæla, bæöi í
Aþenu og Istanbul.
Reuter
_________________Útlönd
Skærulidi með
baitkareikninga
Palestínski skæruliðaforinginn
Abu Nidal var einn af viðskipta-
vinum Alþjóðlega lána- og fjár-
mögnunarbankans (BCCI) sem
bresk stjórnvöld létu loka fyrir
skömmu vegna meintra stór-
felldra fjársvika. Frá þessu var
skýrt í dagblöðum á Bretlandi í
gær.
Breska leyniþjónustan hélt
skýrslu um bankann vegna við-
skipta Nidals við hann og Sunday
Times skýrði frá þvi að Englands-
banka heföi verið sagt frá þvi að
nokkuð öruggt væri aö Hiz-
bollahsamtökin í Líbanon hefðu
verið með reikninga í bankanum.
Samtök þessi hafa íjölmarga vest-
ræna gísla á valdi sínu.
Eftirlitshópur, sem Englands-
banki setti á laggirnar, komst að
því að Abu Nidal og aðrir hryðju-
verkamenn eða vopnasalar heföu
verið með meira en íjörutíu
reikninga í breskum útibúum
BCCI. Abu Nidal, sem af Banda-
rikjunum er álitinn leiðtogi
hættulegustu hryðjuverkasam-
taka heimsins, er talinn bera
ábyrgð á tugum skæruliðaárása
á undanfómum tuttugu árum.
Englandsbanki vildi ekki tjá sig
neitt um málið.
Hmn bankans hefur valdið
miklum úlfaþyt á Bretlandi og
stjórnarandstaðan segir að
stjórnvöld hafi vitað um staðhæf-
ingar um svik í meira en ár.
Grunaður morð-
ingihengirsig
Maður, sem grunaður var um
aðild að morðinu á Rajiv Gandhi,
fyrrum forsætisráðherra Ind-
lands, framdi sjálfsmorð með því
aö hengja sig, að því er lögreglan
á Indlandi skýrði frá í gær.
Eiginkona mannsins, Nagaraj-
ans Shanmugams, sakaðí lögregl-
una hins vegar um að hafa drepið
mann hennar sem slapp úr vörslu
lögreglunnar á fóstudag. Lík hans
fannst síöan á laugardag.
Shanmugam var handtekinn á
miðvikudag og vísaði lögreglunni
á falið sprengiefni og fjarskipta-
tæki i frumskógum Tamil Nadu-
fylkis. Lögreglan sagði aö
sprengiefhið heföi hklega veriö
ætlaö skæmliðum tamílatígra
sem berjast fyrir sjálfstæðu ríki
tamíla á Sri Lanka.
Tamílatígrar bera á móti þvi að
hafa drepið Gandhi en lögreglan
telur þá hafa drepiö hann af því
aö hann sendi indverskar her-
sveitir til Sri Lanka 1987 til að
reyna að stilla þar til friöar.
Reuter
Traktors-
hrærivélar
Stærð: 350 lítra
Verð kr. 130.700.-
með virðisaukaskatti.
UUBOOS - OG HEILDVERSLUNIN
BILDSHÖFÐA 16SIMI6724 44 TELEFAX6725 80